Morgunblaðið - 11.11.1913, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ
LrOGMBNN
Sveinn Björnsson yfirdómslögm.
Hafnarstræti 22. Sími 202.
Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6.
Sjálfur við kl. 11—12 og 4—5.
EGGERT CLAESSEN, yfirréttarmála-
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulega heima 10—11 og 4—5. Sími 16.
I£AUPj^APUÍ\
Lögbók Magnúsar konungs laga-
bætis eða Jónsbók hin forna.
KirkjuréttuP Jóns Péturs-
sonar.
Stjópnartíðindi (A, B, C,)
frá aldamótum til þessa tíma —
í bandi og ágætu standi.
Fæst alt keypt fyrir að eins
25 krónur.
Afgreiðslan vísar á.
Guitar, ágættlborð meðskúffu,
möttulkantur, fæst með tæki-
færisverði á Hverfisgötu 13.
Morgunk jólar og dagtrey j-
ur fallegar og ódýrar fást í Dokt-
orsbúsinu við Vesturgötu.
I---1E> VINNA <ll I
Mjög stórt og ríkt
lifsábyrgðarfélag
vel þekt hér á landi, óskar eftir um-
boðstnanni hér í bænum.
Bill. nr. 3000.
Trúlofunarliringar
vandRÍiir. með hvaða
lagi f»em menn ósha.
eru ætið ódýrastir hjá
qrullsmih. Laugaveg 8.
Jóni Sigmundssyni
OSTAR og PYLSUR áreiðanlega
bæjarins stærstu og beztu birgðir í
Matarverzlun Tómasar Jónssonar,
Bankastræti 10. Talsfmi 212.
vetrarins
Ágætir úlsterfrakkar og vetrarfrakkar
Fallegt snið. Nýtzku litir og efni.
Vetrarjakkar og sportjakkar
fyrir drengi og fullorðna.
Skinnjakkar í miklu úrvali.
Skinnvesti fyrir konur og karla.
Vetrarhúfur fyrir karlm. og drengi, i óvenjumiklu úrvali
Vetrarhanzkar fyrir dömur og herra
Ath. Beztu ferðaföt og verkmannafot til
' vetrarins eru hin Norsku hermannaföt
(Stormföt) mín.
Brauns verzl. ^.ðalstr. 9.
Hvar fær maður nýtízku vörur fyrir jólin ?
/ Vörufjúsinu.
YÁTÍpfGGINGAT^-
A. V. TULINIUS, Miðstræti
vátryggir alt.
Heima kl 12 3 e. h.
ELDUR!
Vátryggið í »General«. Umboðsm.
SIG TH0R0DDSEN
Frikirkjuv. 3. Heima 3—5. Talsimi 227.
Carl Finsen Austurstr. 5, Reykjavík.
Brunatryggingar. Heima 6 '/4—7 V4-
Talsími 331.
mm mmmm m
W
Mannheimer vátryggingarfélag
C. T r o 11 e Reykjavík
Landsbankannm (uppi). Tals. 235.
Allskonar sjóvátryggingar
■j Lsekjartorg 2. Tals. 399.
Havari Bureau.
*•«« % « « • « * mmm • • • % mmwmmm m*.
Gunnlaugur Claessen lækuir
Bókhlöðustíg xo. Talsími 77.
Heima kl. 1—2.
777. TJlagnús læknir
sérfr. i húðsjúkd. Kirkjustr. 12.
Heima 11 — 1 og 6V2—B. Tals. 410.
P0RVALDUR PÁLSS0N
Spec. meltingarsjúkd. Laugaveg 18.
Viðtalst. 10—11. Sími 334 og 178.
Massage læknir Guðm. Pétursson.
Heima kl. 6—7 e. m.
Spitalastig 9 (niðrij. — Sími 394.
oImpQrial*
ritvélinni er óþarft að
gefa frekari meðmæli en það,
að eitt til tvö hundruð
hérlendra kaupenda
nota hana dagleða með sí-
vaxandi ánægju. Allir þnrfa
að eiga og nota Imperial-
ritvélina, sem að eins kostar
205 kr
Einkasali fyrir ísland og Fær-
eyjar, Arent Claessen, Rvík.
ÓL. GUNNARSSON læknir
Lækjarg. 12 A (uppi). Tals. 434.
Liða- og beinasjúkdómar (Orthopædisk Kir-
urgi) Massage Mekanotherapi. Heima 10—12.
G. BJÖRNSSON
landlæknir
Viðtalsstundir á virkum dögum:
10—II árdegis,
7—8 siðdegis.
18. talsími.
Alls konar
'ísl. frímerki
ný og gömul
kaupir ætíð
hæsta verði
Helgi Helgason, hjá Zimsen.
Svörtu gammarnir.
10 Skáldsaga
eftir
Ovre Richter Frich.
(Frh.)
Auðvitað hefir gyðingurinn logið
þessu, en stóllinn kostaði 500 franka.
En eg segi yður satt að eg vildi ekki
selja hann fyrir 10,000 franka, eins
og hann er núna. Þessi gamli stól-
garmur er meira virði en nokkur
annar stóll —, eða hvað finst yður
herra minn?
— Þér skuluð geyma fyndni yðar,
svaraði ungi maðurinn kuldalega.
Hvaða erindi eigið þér við mig ?
Fjeld laut að honum og sagði al-
varlega.
— Þér eigið að gefa oss upplýs-
ingar um gammana.. Og þér skuluð
gefa þær upplýsingar þótt eg verði
að toga þær út úr yður með valdi,
orð fyrir orð. Eg veit ekki hvað
meðaumkun er. —
Fanginn hafði nú náð sér aftur.
— Eg sé að yður er alvara, svar-
aði hann lágt. En þér vitið ekki
hvað þér gerið, ef þér ætlið yður að
berjast við gammana. Þeir eru nú
refsivöndur Evrópu. Enginn getur
gert þeim nokkurt mein. Hvað hald-
ið þér að það geri til hvort eg lifi
eða dey? Hvers virði haldið þér að
líf mitt sé? Það er aðeins sem lít-
ill dropi í því syndaflóði sem nú
skellur yfir álfuna. Eg er ekki ann-
að en litil fjöður af þeim risagammi
sem heggur hjartataugar þjóðanna. —
Og svo getið bæði þér og Ralph
Burns farið til fjandans. — Nú get-
ið þér byrjað pyndingarnar.
Fjeld reis á fætur. Hann var föl-
ur sem nár og andlitsvöðvar hans
titruðu.
Hann leitaði á fanganum. í hægri
erminni fann hann litla skammbyssu
og í brjóstvasanum vindlingaveski og
gult sendibréf. Fanganum hefir víst
lítið verið gefið um þessa leit, því
hann braust um eins og vitstola mað-
ur og bölvaði í sand og ösku.
Fjeld fór með bréfið inn í herberg-
ið þar sem Burns lá, en kom aftur
stundu síðar og leysti fangann úr
viðjunum.
— Ætlið þér nú að sleppa mér?
spurði hann háðslega, um leið og
hann stóð á fætur.
Nei, svaraði Fjeld, en eg hefi í
hyggju að flytja yður niður í kjall-
ara og láta yður skemta rottunum i
nótt.
Maðurinn ypti öxlum. Hann leit
á vindlingaveskið sitt og mælti.
— Viljið þér ekki lofa mér að
reykja einn bréfvindling, áður en þér
flytjið mig í þann sælustað.
Fjeld rétti honum veskið. Hann
opnaði það, og fékk sér einn vind-
ling.
— Hvort viljið þér heldur Philip
Morris eða Dubec, sagði hann með
hægð og bauð lækninum. Nú, þér
reykið ekki, því miður! Viljið þér
gera svo vel og gefa mér eldspítur?
Þakka yður fyrir!
Hann fekk sér sæti, krosslagði fæt-
urnar og kveikti i vindlingnum.
— Þér hafið þekt Jaap van Huys-
mann sagði hann svo.
— Já. Hann dó í Sun Francisco
og eg var hjá honum meðan hann
háði dauðastríðið.
— Það er svo. Yður þykir þá
ef til vill gaman að vita að það var
hann sem stofnaði félag vort. Hann
er dáinn, en andi hans lifir. Hann
var sá sem fyrstur hófst handa.
— Og þér! Hver eruð þér ?
Stjórnleysinginn svaraði ekki spurn-
ingunni. Höfuð hans htieig niður á
bringu og vindlingurinn féll frá vör-
um hans niður á gólf. Læknirinn
flýtti sér tii hans og lyfti upp höfð-
inu á honum. Augun voru brostin ;
fangiun var dauður í höndunum á
honum. Hann greip vindlinginn
sem lá á gólfinu og þefaði að hon-
um.
— Cyankalium, tautaði hann fyrir
munni sér og kastaði henni út um
gluggann.
6. k a p í t u 1 i.
Læknirinn stóð lengi hljóður og
virti fyrir sér dauða manninn. Andlit
haus var frítt þó hann væri látinn,
en á vörum hans lá storknað bros,
illilegt og sigri hrósandi.
Helena systir kom inn.
— Er þetta hann? spurði Fjeld.