Morgunblaðið - 13.11.1913, Blaðsíða 2
)4
MORGUNBLAÐIÐ
Hið landfræga 26 aura léreft
og fiðurhelt léreft 0,37,
aftur komið til
Th. Th. Ingólfshvoli.
Röntgenstofnun háskólans
óskar að fá til leigu í austurbænum, frá i. jan. næstkomandi, eitt
herbergi ca. 7X9 álnir, og tvö lítil herbergi.
Menn snúi sér til Gunnlaugs Claessens læknis, Bókhlöðustig xo.
Talsími 77.
Dömuklæðið á 2,90
komið aftur til
Th. Th. Ing-ólfshvoli.
Kjallari
með vatnsleiðslu og skolpræsi, nálægt höfninni, óskast til leigu nú þegar.
Upplýsingar í Kjötbúðinni í Austurstræti 7.
Hegnkdpur, ntjar gerðir, komnar tií
Tt). Ttj. & Co.
fyrir Akureyrarbæ. í Eyjafjarðar-
sýslu bjóði þeir sig fram gömiu
þingmennirnir og }ón Stefánsson,
ritstjóri á Akureyri.
Ma.lt er að þeir síra Halfdan
Guðjónsson á Breiðabólsstað, og síra
Sigfús Jónsson á Mælifelli muni
sækja um Sauðárkróks prestakall.
Júlíus Havsteen, settur sýslumaður
og bæjarfógeti hér, hefir sótt um
það embætti ásamt ýmsum fleirum.
Vilja sýslubúar og bæjarmenn ein-
dregið að hann hljóti embættið og
á að skora á stjórnina að veita hon-
um það. Hafa nú flestir . málsmet-
andi menn héraðsins og bæjarins
skrifað nafn sitt undir áskorun þessa.
Run.
Patreksfirði 12. nóv.
Fiskafli ágætur hér á Vestfjörðum.
80—100 í hlut á opna báta, af
vænum fiski. Jón.
Verzlnnarfréttir.
Kaupmannaböfn.
Hrísgrjón (heil)........Kr. 11.00
Hveiti Am...................— 8.25
Haframél ...................— 10.25
Bankabygg...................— 8.25
Kaffi.......................— 49.51
fcandis.....................— 16.25
Melís (höggvinn)............— 14.25
Stransykur..................— 12.50
Farin.......................— 10.50
Rúsinnr.....................— 21.00
VerðiB er miðað við 100 pd. með nm-
búðnm.
Rúgnr.......................Kr. 5.40
Rúgmjöl.....................— 5.88
Alexandra hveiti............— 9.38
Maismjöl (smátt)............— 5.40
Hafrar......................— 5.35
Hveiti, góð tegnnd .... — 8.38
Verðið er miðað við 100 pd. án nmbúða.
Markaður. F i s k n r hefir nú nm lang-
an tíma verið i afarverði, en er nú aftur
að falla, einkum sá er til Spánar flyzt,
og er orsökin sú, að of mikið herst af
honnm á markaðinn.
S i 1 d i n kostaði um eitt skeið í Höfn
24—26 aura, en nú hefir verðið lækkað,
og er ekki nema 18—19 aurar og tæp-
lega það. Kaupmenn hafa vænst eftir
hærra verði, og þessvegna geymt birgðir
sinar. Verður það til þess að þeir tapa
gtórfé. Verðfallið á sildinni mun því
að kenna að mikið veiddist, en sildin er
óvanalega horuð. .
Erlend tíðindi.
Yfirlit.
Dr. Diesel hugvitsmaður hvarf, eins
og menn muna, af skipi á siglingu
frá Belgíu til Englands. Nú hefir lík
hans fundist í mynni Scheldefljóts.
Komið hefir í ljós það sem engan
varði, að fjárkröggur hömluðu hon-
um og munu valdið hafa sjálfsmorði
hans.
Kolanámuslysið mikla i Cardiff
Eins og símað hefir verið kviknaði
þ. 14. okt. í kolanámu í Cardiff á
Bretlandi. I brunanum fórust 393
námumenn, en 487 varð bjargað.
Rússar og Georg Brandes. Georg
Brandes ætlaði nýlega að ferðast um
Rússland og flytja þar erindi. En
Rússastjórn lagði blátt bann við að
hann færi inn fyrir landamærin.
Loftskipsslysið þ. 17. okt., sem
fréttist um með símanum, varð 30
mönnum að bana. Loftskipið hét
»L. 11« og var ætlað þýzka flotan-
um. Var nýfanð á stað frá Berlin.
í 200 m. hæð kviknaði í belgnum
og skipið steyptist í björtu báli til
jarðar. 6 farþegar og 24 af skips-
höín biðu bana.
Aldarafmæli fólkorustunnar við
Leipzig, þeirrar er dauðadóminn
kvað upp yfir veldi Napóleons, var
hátíðlegt haldið þ. 18. okt. á sjálf-
um orustuvellinum. Minnismerki
mikið var þá afhjúpað, hersveitaskrúð-
göngur, ræðuhöld o. s. frv.
Skispbruninn á Atlantshafinu. í
honum fórust 162 menn en 485
var bjargað. I skipinu kviknaði af
vindling sem einn farþeganna hafði
fleygt í óaðgætni niður í matgeymslu-
klefann.
Tungumálsbardaginn ‘í Noregi.
Snemma í okt. var Jeppi á Fjalli
leikinn á nýnorsku í Landmandsleik-
húsinu í Kristjaníu. Urðu þar glett-
ingar og sennur miklar milli þeirra
er nýnorsku og dansknorsku fylgja,
svo að hætta varð leiknum um hríð.
Stokkhólmur: Nýlega eyddi eldur
bifreiðaverksmiðjunni »Scandia vob-
is« í Södertelje i nánd við Stokkhólm.
Mikið var af bensíni í verkstæðinu
og stóð alt í björtu báli á augabragði.
Tjónið metið meira en milljón kr.
Spánn: Uppþot mikið hefir enn
á ný orðið á Lissabon. Var ráðist á
lögregluliðið og hermenn lýðveldis-
manna og fangar teknir úr varðhaldi
borgarinnar. Reglu var samt brátt
komið á aftur og um 100 menn
teknir fastir fyrir byltingartilraun.
Noregur: Á prestafundi í Þránd-
heimi var nýlega samþykt áskorun
til |stjórnarinnar, um launahækkun
fyrir alla presta í Noregi. |
Rússland: Rússar hafa látið byggja
4 nýja bryndreka, 36 torpedóbáta og
13 undirsævarbáta. Til hversf spyrja
Þjóðverjar.
JJLProfessor Friðþjófur Nansen hélt
fyrirlestra viðsvegar í Rússlandi fyrir
skömmu, og var ger að þeim hinn
mesti rómur.
1^3 DAGBÓíJIN.
Afmælf 13. nóv.
Frú Marie Ellingsen,
Frú Ingibjörg Þorlák&son.
Frk. Sofia Helgadóttir.
Frú Ásta Hermannsson.
Frú Anna Q-uðbrandsdóttir,
Björn Árnason gullsmiður.
Söngskemtun heldur Frú Laura Finsen
i Bárubúð þriðjudaginn 18. þ. m. Að-
göngumiða má panta í bókverzlun Isafoidar
og Sigf. Eymundssonar. •
Ceres fór i gærmorgun til Hafnarfjarð-
ar og affermir þar vörur, sem þangað eiga
að fara. Nokkrir binna föstu manna Sam.
fél. — alls 10 — fóru »suður i Fjörð«
til þess að afferma skipið.
Beskytteren, varðskip 'Færeyinga, sem
og Jdvaldi jhér við Norðurland um sild-
veiðartimann, bjargaði þ. 30. f. m. botn-
vörpung úr sjávarháska við Færeyjar.
Dróg hann skipið inn til Þórshafnar. Er
þetta vist tiunda skipið sem Beskytteren
þannig kemur til hjálpar á hinum ill-
ræmdu Færeyjamiðum.
Giftingar : Finnbogi Sveinsson og Sæunn
Sæmundsdóttir frá Lágafelli i Mosfells-
sveit, giftust i fyrradag.
Nord-Jylland aukaskip Sam. fél. sem
hingað kom á mánudaginn, fer héðan i lok
vikunnar til Akureyrar og affermir þar
steinoliu. Síðan tekur skipið kjöt á Aust-
fjörðum til útlanda.
Veðrið I gær kom norðanáttin ströng
og stríð, með rokstormi í Yestmannaeyj-
um og 0,1 stiga hita, hvassviðri í Rvik
og 4- 0,5 st., stormi á Isafirði og -7- 4,7,
stinningskalda á Akureyri og -j- 2,2 stig,
stinningsgolu á Grímsstöðum og -j- 3,5, en
Seyðisfjörður skar sig úr. Þar var logn
og +3,3 stig.
Uppboð var haldið á munum botnvörp-
ungsins Edinburgh Castle í gær
kl. 4. Hlerarnir voru seldir 4 270 kr.
(parið) og keypti það Jón Jóhannss. skipstj.
og hitt 250 kr. (Helgi Zoega). Yirinn
keypti Helgi Zoega á 230 kr., en vörpur
tvær keypti Helgi á 75 og 70 kr.
Hljómleikar Brynjólfs Þorlákssonar i
gærkveldi voru vel sóttir. Þótti mönnum
einkum ánægjnlegt að heyra einsöngva
Simonar frá Hól. Karlakórið söng flest
lögín mikið vel, en blandaða kórið miður.
Auk þess lék Brynjólfur sjálfur nokkur
lög á harmonium af list, eins og ella.
Jólakort. Friðfinnur prentari öuðjóns-
son sendi í gær Morgunblaðinu
sýnishorn af jóla- afmælis- nýárs- og ferm-
ingar-kortum, sem koma munn br&ðlega i
Trúlofnnarhringar
vandadir, meö hvaða
iagi Bem menn óska,
eru sötlö Odýrastir hjá
gullsmio^ Laugaveg 8.
Jóni Sigmundssyni
Upphlntsmillnr, Beltispöro II,
ódýrast hjá
Jóni Sigmundssyni
gullsmið. Laugaveg 8.
OSTAR og PYLSUR áreiðanlega
bæjarins stærstu og beztu birgðir í
Matarverzlun Tómasar Jónssonar,
Bankastræti 10. Talsimi 212.
Kenslu í ensku, dönsku og
hannyrðum, veitir Inga Lára Lárus-
dóttir, Miðstræti 5.
L. F. K. R. Fundur í kvöld
kl. 8 ^/2 á lesstofu félagsins. Fjöl-
mennið.
Ennþá geta nokkrir menn feng-
íð gott fæði á Laugav. 23. K. Johnsen.
Góður heitur matur fæst allan
daginn á Laugaveg 23. K. Johnsen.
bóka- og korta-verzlanir bér í bænum.
Þessi kort eru sérlega smekkleg — bæði
myndirnar og kvæðin, og teljum vér víst,
að þau muni mikið verða notuð um jólin
og nýárið. Friðfinnur á þakkir skilið
fyrir að hafa gefið þau út.
Sjögutten, kolaskipið, sem hingað kom
til G-arðars Qislasonar, kom frá Ólafsvík
i gær og hafði affermt kolahleðsluna.
Heldur skipið mjög bráðlega áleiðis til
útlanda.
Ingólfur Arnarson fór með 750 kitt at
fiski til Englands i gær.