Morgunblaðið - 13.11.1913, Side 3

Morgunblaðið - 13.11.1913, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ 55 P'" Gott herbergi með húsgögn- um og rúmi fyrir einhleypan, ósk- ast leigt nú þegar. Menn snúi sér til skrifstofu E. Chouillou, Hafnar- stræti 17. |> VINNA <| Mjög itórt og ríkt lífsábyrgðarfélag vel þekt hér á landi, óskar eftir um- boðsmanni hér í bænum. Bill, nr. 3000. Piano nýtt, af vönduðustu gerð, fæst með tækifærisverði. Frú Anna Petersen gefur upplýsingar. Fermdur drengur getur íengið atvinnu hjá Poulsen Hverfisgötu 6. A I I y BE 3 k Sfór útsala! -**- Stór útsala! r Alls konar vefnaðarvara. Tilbúinn fatnaður. Yetrarfrakkar og -jakkar. Regnkápur (Waterproof) kvenna, karla og barna. g Hálslín, slipsi og slaufur, Sköfatnaður alls konar o, m. fl. Alt selt með afarlágu verði. 10-40 afsláttur. Sturia Jónsson, Rvík. 3C Hljómleikar ’Brynjólfs Þorlákssonar verða endurteknir í kvöld kl. 8 V2 í Bárubúð. Aðgöngumiðar seldir í bókverzl. ísafoldar og Sigf. Eymundssonar og við innganginn og kosta: 1.2 5, og 1.00. Tombólu heldur Kvenfélag Fríkirkjusafnaðarins á laugardag og sunnudag næstkomandi, í Bárubúð. Nánar á götu- auglýsingum. Með s/s Ceres og aukaskipinu komu t. d. 2 toun af prjónlesi, Garni af öllum litum og nærfætnaði. Kven-léreftsnærfatnaður í miklu úrvali. Treflar og vetlingar fyrir karla, konur og börn. Golfblúsur á kvenfólk og telpur. — Ermablöð, pífur í kjólhálsa og ýmislegt smádót. Vöruhúsið. Svörtu gammarnir. 12 Skáldsaga eftir Ovre Richter Frich. .... (Frh.) Og þessir menn hafa ekkert ann- að markmið en það, að tortíma öllum þeim sem enn eru heilbrigðir. — Og þeir bera áreiðanlega sigur úr býtum, fyr eða síðar, ef ekki er tekið í taumana. — Pasteur fann sóttkveikju þá. sem veldur hundaæði. Sú uppgötvun er einkis virði hjá því, ef einhverjum tækist að uppgötva gerla þá, sem valda því að mennirn- ir gerast úlfar og gammar. — Þér eruð einkennilegur maður, læknir, sagði Burns eftir langa þögn. •— En það er talsvert satt i því sem þér segið. — Eg get aðeins ekki skilið hvernig þeir hafa náð }ones á sitt band. Hann var fyrst í Chica- go, og þá vildi svo til að hann gat gert Redpath mikilsverðan greiða, og kaus sér þá að launum, að fá að vera aðstoðarmaður ensku lögreglunnar. — Öllum geðjaðist vel að honum. Hann var sikátur og ætið reiðubú- inn til hvers er vera vildi. — Og betri félagsbróður gat ekki. Við borðuðum oft og tiðum ostrur niðrí Strand, en þær voru að visu ekki kryddaðar með cyankalium eða rottu- eitri. — Eg minnist þess að vísu að sá kvittur gaus eitt sinn upp, að Jones væri eitthvað riðinn við glæpamál nokkuð í Chicago. En enginn lagði trúnað á þá sögu. Það má svo að orði kveða, að hann hafi verið eftir- lætisgoð allra lögregluþjónanna. — — Og nú liggur hann hér dauð- ur fyrir fótum mér! Aldrei hefi eg séð þennan svip fyr á andliti hans. En það hans rétti svipur. Áður sá- um við aðeins sakleysisgrímu þá sem hann hafði dregið yfir sig. — Segið þér mér eitt: Hvað ætlið þér nú að gera við hann? — Mér hefir þegar hugkvæmst það, svaraði Fjeld. Það er ekki nauð- synlegt að gera lögreglunni viðvart. Það er nóg rúm fyrir hann í líkkist- unni yðar, sem á að senda til Eng- lands á morgun. Hafið þér nokkuð á móti því að líkið sé sent þannig? Og svo getum við tilkynt Redpath það síðarmeir. — — Þetta er ágætt ráð, sagði Burns þreytulega. En mér finst að betra sé fyrir mig að komast í rúmið mitt aftur. Þér verðið að hjálpa mér, He- lena systir. Það er hressandi að horfa á sakleysislega andlitið á yður, eftir það að maður hefir mist bæði aðra hendina og bezta vin sinn. — Hann staulaðist á fætur. Um leið féll gult bréf úr kjöltu hans ofan á gólfið. Féld greip það. — Hafið þér lesið það, spurði hann. — Nei sagði Burns. Eg gáði ein- kis annars en að hlýða á það sem þið töluðuð saman. Hvar funduð þér bréfið ? — í vasa hans. Og það hlýtur að vera nokkurs virði. Eg sá það á fátinu sem kom á hann, þegar eg náði í það. En mér er ómögulegt að komast fram úr bréfinu, því eins og þér sjáið, þá eru það eintóm merki. Og hafi maður ekki lykilinn að bók- máli þeirra, er það þýðingarlaust að ætla sér að komast fram úr því. Og þegar Jones hefir verið svo var- kár að bera ekki lykilinn á sér, þá er ekki við því að búast að við ná- um í hann annarstaðar. — Mér virð- ist þó að bréfið sé ekki fullgert. Ef til vill hefir hann ætlað að bæta ein- hverju við eftir heimsóknina hér. — Það er aðeins utanáskriftin sem við getum fært okkur í nyt. Kannist þér nokkuð við þennan mann sem bréfið er til? Hann heitir Josiah Saimler forstjóri og á heima í Villa Rosenhain Eppendorpf hjá Hamborg. — Nei eg þekki ekki manninn, svaraði Burns. En eg skal hafa kynni af honum innan hálfs mánaðar, enda þótt það ætti að kosta mig hiua hend- ina. Já, og þó lífið fylgdi með. Góða nótt, læknir. Reynið eftir fremsta megni að veita líkama mínum þann þrótt sem hann hefir mist, og þá skuluð þér sjá, að vinstra handlegg- inn langar til að jafna um þá, sem hafa svift hann góðum félaga. Eg er að vísu enginn lagabrjótur en mér finst oft og einatt að ekki sé til nema ein lög hér í heiminum. — Og hver eru þau lög? — Að gjalda ætíð í sömu mynt, auga fyrir auga og tönn fyrir tönn. Það er að segja, að hefna sín altaf sjálfur.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.