Morgunblaðið - 18.11.1913, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ
79
Jólamerki.
Sú nýung er .ið gerast hér á landi,
að gefin verða út svokölluð jólamerki,
eins og venja hefir verið erlendis
síðustu 5 árin. Hefir Thorvaldsens-
félagið tekið upp hugmyndina og
fengið einkarétt hjá stjórnarráðinu á
útgáfu merkisins um io ára tímabil.
»Hvað eru jólamerki?* munu marg-
ir spyrja. Og í þessu sambandi skal
sagt frá jólamerkjum, eins og þau
tíðkast erlendis.
Fyrir nokkrum árum fekk Holböll
póstmeistari í Charlottenlund á Sjá-
landi þá hugmynd, að gefa út lítil
frímerki — örlítið stærri en hin vana-
legu burðareyrismerki á bréf. Fékk
hann í lið með sér ýmsa málsmet-
andi menn í Danmörku, sem undir
eins komu hugmyndinni í fram-
kvæmd. Merkin voru prentuð og
kölluð jólamerki. Tilætlunin var sú,
að þeir sem bréf eða kort sendu um
jólin til vina og kunningja, keyptu
jólatnerkið fyrir að eins 2 aura, og
létu það fylgja bréfinu. Allur arður
af sölu merkisins gekk til berkla-
hæla í Danmörku. Hafa síðan á
hverju ári verið gefin út jólamerki,
sem seijast í hundrað þúsunda tali,
og við það hefir safnast nóg fé til
þess, að reisa nýtt berklahæli. Hug-
myndin hefir verið tekin upp af
ýmsum öðrum þjóðum, og allsstað-
ar hefir jólamerkið fengið hinar beztu
undirtektir manna.
Thorvaldsensfélagið á sannar þakkir
skilið fyrir að hafa flutt hingað þessa
ágætu hugmynd. Hefir þetta félag
og sýpt það í verkinu, að alvara
fyígir gjörðum þess í hvívetna og
væri óskandi að eigi yrði árangur-
inn minni í þetta sinn, en hann hefir
orðið af öðruni fyrirtækjum þessa
ágæta félags. Allur arður félagsins
og bazar þess er notaður handa fá-
tækum börnum, og er það sízt van-
þörf í þessum bæ, að eitthvað sé'
gjört fyrir fátæk og veik börn. Ef
vel ætti að vera, ætti ekkert það
bréf að sendast héðan úr bænum,
sem eigi bæri jólamerkið. Það kost-
ar að eins 2 aura — og pd upphað
geta allir gefið fátækum.
Carol.
Sly s.
Stúlka fellur út um glugga á
þriðja lofti og bíður bana af.
Það hörmulega slys vildi til í gær-
dag, að stúlka nokkur, Dýrleif Guð-
mundsdóttir að nafni, til heimilis á
Bergsstaðastr., 45 féll út um glugga á
þriðja lofti í því húsi og beið bana af.
Dýrleif sál. var 24 ára gömul, ætt-
uð ofan úr Borgarhreppi. Hún var
heilsulitil mestan hluta æfi sinnar.
Þegar hún var á 13. árinu varð hún
berklaveik og lá í þeirri veiki á
sjúkrahúsi Landakots nær tveggja ára
tíma. Siðan fór hún heim til sín,
og skömmu síðar fór að bera á þung-
lyndi hjá henni og undi hún sér
hvergi.
Systir hennar Guðrún Guðmunds-
dóttir, er gift Magnúsi söðlasmið Sæ-
mundssyni á Bergsstaðastræti 45. Til
þeirra hjónanna fluttist Dýrleif sál.
um miðjan september í haust og var
hjá þeim síðan.
Þau hjónin búa á miðlofti hússins
en herbergi hennar var á efra lofti.
Nokkru eftir hádegi í gær gekk hún
frá systur sinni og upp í sitt her-
bergi og læsti því að sér. Skömmu
síðar féll hún út um gluggann. Hús-
ið er afar-hátt, en strætið steinótt,
svo búast hefði mátt við því að hún
hefði dáið þegar í stað. En hún
lenti á símaþráðum og tóku þeir af
henni mesta fallið. Þó voru þeir
ekki nægilega sterkir og slitnuðu
því.
Hún var með futlri rænu er hún
var borin inn í húsið. Þó lifði hún
ekki lengur en tvo tfma eftir fallið.
Skófatnaður
er nú með feiknamiklum afslætti, og
Skóhlífar eru seldar að eins fyrir
1 kr. og 50 a. f verzl.
Edinborg.
Dansleiknr
fyrir nemendur dansskólans f Bár-
unni, verður haldinn á laugardags-
kvöldið 22/u á Hótel Reykjavfk,
fyrir þá sem hafa verið í vetur og
i fyrravetur. Aðgöngumiðar fást í
Confektbúðinni í Austurstræti.
Sigurður Guðmundsson.
Rúgmjöl,
16,50 kostar heilsekkur hjá
Jöni frá Vaðnesi.
Lítil íbúð, 2 herbergi og eld-
hús, óskast til leigu frá 1. jan. 1914.
Upplýs. á skrifstofu Morgunbl.
Bv’úkuð sauniavél er til sölu
á Grettisgötu 27.
Lítill ofn, brúkaður, til sölu á
Óðinsgötu 13.
Hjartans þakklæti frá mér og börnum
minum, til allra þeirra, sem sýndu okkur
samúð og hjálp i veikindum og við jarðar-
för konu minnar sál., Guðríðar Guðnadóttur
Guðmundur Guðmundsson.
Skautar verða keyptir. Ritstj.
vísar á.
En nþá
hölclum vér áfram að gefa
þennan stórkostlega afslátt af vörun-
um i Austurotræti 9.
Yerzl. Edinborg.
ÞÚ, sem tókst töskuna á vinnu-
stofuborðinu hjá Ólafi Magnússyni,
gjörir réttast að skila henni með öllu
því sem í henni var, því það sást
til þín úr myrkraherbeginu. Eða viltu
heldur láta lögregluna tala við þig?
Söngskemfutt
frú Lauru Tinsen
verður í Bárubúð í hvölct (þriðjudag Í8.nóv.) Af.8lU
Aðgöngumiðar fást í bókaverzlunum ísafoldar og Sigf. Eymundssonar,
og kosta kr. 1.25 og 1.00.
Í-T S
Bankastræti 8.
Þ a r f á s t:
Vefnaðarvörur.
Prjónvörur.
Smávörur.
Regnkápur kvenna og karla.
í byrjun desember verður opnaður
Jólabazar
við verzlunina
og verður þar mikið af ódýrum jólavarningi
fyrir börn og fulllorðna.
Jón Bjömsson & Co.
C. A. HEMMERT
mælir með sínum góða nærfatnaði, handa konum, börnum og karlmönn-
um, verkmannafötum, hvítu vörunum og mislitu kjólatauunum.
Leir- og glervörubúðin
1 Kolasundi
hefir með aukaskipinu fengið talsvert af vörum í viðbót við það, serrr
áður var komið með »Ceres«. Þar er svo margt fallegt, að margur mundi
sér kjósa sem jólagjöf.
Lítið því inn í Kolasand, og rennið augum á vöruna, og vitið
hvort of mikið er mælt.
Pappírs- og ritfangaverzl. V. B. K.
er ávalt bezt byrg af þeim vörum í bænum.
Mest úrval. Lægst verð.
Saltkjöt.
Bezta spaðkjötið í bænum fæst hjá
«
okkur.
Pundið að eins 32 aura.
Ódýrara í heilum tunnum.
Carbide,
jafnt i heildsölu sem smásölu, selur
ódýrast og bezt
Hf, P. I. Thorsteinsson & Co.
Hf. P. I. Thorsteinsson & Co.
(öodthaabs-pakkhús).
(Godthaab).
Ennþá geta nokkrir menn feng-
ið gott fæði á Laugav. 23. K. Johnstn.
Góður heitur matur fæst allan
daginn á Laugaveg 23. K. Johnsen.