Morgunblaðið - 25.11.1913, Side 1

Morgunblaðið - 25.11.1913, Side 1
Þriðjudag 25. nóv. 1913 HORGUNBLADID 1. árgangr 24. tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusími nr. 48 I. O. O. F. 9511289 Bio Biografteater Reykjavíkur. Nýtt prógram í kvöldl |Bio Bio-kaffil)úsið (inngangur frá Bröttugötu) mælir með sínum á la carte réttum, smurðu brauði og miðdegismat, Nokkrir menn geta fengið fult fæði. Jiartvig Jlielsen Talsími 349. Nýja Bió Vald konunnar Leikrit í 2 þáttum. Leikið af frönskum leikurum frá Theatre-francnise, H etjkið Godfrey Phillips tóbak og cigarettur sem fyrir gæði sín hlaut á sýningu í London 1908 sjö gullmedaliur og tvær silfurmedalíur. Fæst í tóbaksverzlun H. P. Leví. Sa = L L Sælgætis og tóbaksbúðin LANDSTJARNAN á Hótel Island. íin )l [= J Skrifstofa ^ Eimskipaféíags ístands Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Talsími 409. jiiiiiiiitiii 11 rjnmjms H. Benediktsson. Umboðsverzlun. — Heildsala. iTirfTiiiimimTrnT Það er óhrek- WHI* y aö alt £ ■ódýrasl V öruhúsinu. Leikfjús. Vér íslendingar stærum oss þrá- faldlega af þvi, að vér stöndum öðrum þjóðum framar, hvað mentun snertir. Og Reykvíkingar þykjast bera höfuð og herðar yfir aðra landsmenn, enda ætti það svo að vera, því hér eru flestar mentastofnanir landsins, og allar hinar æðstu. Hér eru margar prentsmiðjur, og bóka- og blaðaút- gáfa er hér í stærstum stíl. Sam- bönd við umheiminn eru hér meiri en í öðrum landshlutum, skipaferðir tíðastar og aðalstöð símanna. Hér eru tvö kvikmyndaleikhús, og hér eru öll aðal söfn landsins. En hér er ekkert leikhús! Leikfélag er þó hér og hefir verið um mörg ár. Hefir það svo góðum kröftum á að skipa, sem kunnugt er, að leikendur eru fengnir héðan í aðrar heimsálfur, til þess að sýna þar list sina. Félag þetta hefir veitt bæjar- búum marga ánægjustund, en lítið þegið að launum annað en aðfinslur og vanþakklæti. Hverju gegnir slíkt? Er það af því að vér kunnum ekki að meta leiklistina eða menningaráhrif hennar ? Ólíklegt er að svo sé, því séum vér eins fróðleiksfúsir og aðrar þjóð- ir, og því neitar enginn, þá ættum vér að minsta kosti ekki að ganga framhjá leikhúsum sem þýðingarlaus- um stofnunum í þeirri grein. Allar borgir hins mentaða heims eiga sér fleiri eða færri leikhús, og jafnvel þorp, sem eru mikið minni en Rvík, vanda ekki miður til leikhúsa en kirkna eða skóla. Því höfum við ekki reist leikhús handa okkur? Sumir kunna að segja að hér ráði féleysi mestu um. Og víst er um það, að leikfélagið hefir ekki það fé milli handa, sem til þess þarf að koma upp slíku húsi. Fé- lagið er fátækt, og það er Reykjavík einnig að vissu leyti, enda hefir áræði brostið i hvert skifti sem það mál hefir horið á góma að koma hér upp leikhúsi fyrir bæinn. Mönn- um hefir ekki fundist fyrirkomulagið eins og það nú er, svo hábölvað að ekki mætti við una. En það eru þeir sem ekki þekkja til, né vita hve leiksvið og búnings- klefar eru ill-notandi. Svo er og einn ókosturinn við Iðnó, og hann ræður ekki minstu um, en það er salurinn. Hann er þannig úr garði ger, að ómögulegt er að syngja þar. í flestum leikritum er meiri eða minni söngur, og eru því ekki lítil spjöll á orðin, ef annaðhvort þarf að sleppa honum, eða þá að hann nýt- ur sin als ekki. Báran hefir til þessa verið aðal- sönghöll bæjarins. Hefir þar ætíð verið húsfyllir á hverri söngskemtun og ei það ljós vottur þess að Reyk- víkingar unna sönglistinni ekki síður en aðrir. En nú er í það skjólið fokið. Póststjórnin hefir leigt salinn til þess að geyma þar póstsendingar, og bæjarbúum verður ekki fyrst um sinn skemt þar með söng eða hljóm- leikum. Væri sízt kynlegt þó einhver sakn- aði þess sáran og þætti dauflegra lífið en áður. Og Reykjavík getur naumast talist höfuðstaður landsins, meðan hún á ekki þak yfir höfuð söngmanna né leikara sinna. Hér vantar hikhús 0$ pað nú pegar. Framfarir. I gærkvöldi, kl. að ganga sjö, kom lágvaxinn og þrekinn sjómaður inn á skrifstofu Morgunblaðsins. Hann nefndist Steinn Ólafur Jónsson, vél- fræðingur, skagfirzkur að ætt, en nú nýkominn hingað frá Norðfirði, á vélbáti. Oss þótti það ærið glæfraleg för á þessum tíma árs, og spurðum hann því nánar um ferðasöguna. Hann sagði oss að þeir hefðu lagt á stað frá Norðfirði fyrra sunnudag, á 3 vélbátum, sem Gísli Hjálmars- son kaupmaður á. Voru þrír menn á hverjum báti og auk þess nokkrir farþegar. Þeir sigldu nú sem leið lá til Vestmanneyja, og tók það þá 59 klukkutíma að komast þangað. En alt gekk slysalaust og til Njarð- víka komu þeir á sunnudagsnótt, en þangað var förinni aðallega heitið. Eiga tveir bátarnir að stunda fisk- veiðar þar i vetur, en einn verður hafður til þess að flytja aflann jafn- óðum hingað til Reykjavikur og selja hann hér. Það er karlmannlega af sér vikið, að koma svona langa leið á ekki stærri fleyum, en vélbátar þessir eru, og ætla að halda þeim hér til fisk- veiða allan veturinn. Eða hvað segja Keflvíkingar um það? Þeir eru nú sem óðast að setja báta sina á land, og vilja ekki lita við þeim gæðum, sem liggja fyrir fótum þeirra, þó að mönnum úr fjarlægum héruðum þyki ómaksins vert að sækja þau, svo að segja í greipar þeira. Víkinqur. UmboösYerzlun. — Heildsala, Magnús Th. S. Blöndahl. Skrifstofa og sýnishornasafn Lækjargata 6 B (uppi). Selur að eins kaupmönnum og kanpfélögum. Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 29. Hann á að vera likur Adam á allan hátt. Hann var að öllu leyti vel gefinn, lærði af sjálfum sér, það sem hann þurfti, var sæmilega gáf- aður og listfenginn til allra verka, svo að hann gat unnið alt sem þurfti fyrir heimilið. Hann elskaði konu sína og var henni eftirlátur. Hann borðaði »eplið« með henni, þó hann vissi þeim væri bannað það, og sýndi með. þvi að hann vildi fullnægja löng' un hennar og taka á sig afleiðing- arnar með henni. Hann átti börn með kenu sinni, og heimili þeirra var fyrirmynd. Þangað þurfti prest- ur ekki að koma, ekki lögreglustjóri og ekki læknir. Þetta frumsmíði skaparans var fullkomið, það mátti að eins spilla þvi, en ekki bæta. Svar nr. 31. Mér er alveg sama hvernig mað- urinn minn litur út. Jafnvel þó hann sé sá ófríðasti maður sem guð hefir skapað, jafnvel þó hann sé líkamleg- ur aumingi; ef hann að eins elskar mig. Elskar mig með hjartanu en ekki vörunum. Lætur sem hann sé blindur fyrir brestum minum og ber ótakmarkaða virðingu fyrir mér. Já, þá er mér alveg sama hvernig hann lítur út. Pipartney. Svar nr. 32. Hvernig á eiginmaður að vera? Já, því er nú fljót svarað. Nákvæmlega eins og minn eigin- maður er — Hvernig er hann? Segðu okkur það — til þess vi? getum haft hann sem fyrirmynd, þeg ar til okkar kasta kemur að velj; eiginmann, kalla margar — stand andi á öndinni af forvitni og ákafa Eg svara. Auðvitað með fullkomn ustu sannfæringu(ll) Nafn hans er *enqinn<. Piparmey. Svar nr. 33. Alveg eins og maðurinn minn, óaðfinnanlegur í alla staði. (Kona i 16 ár, 10 barna móðir). -ot<»

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.