Morgunblaðið - 25.11.1913, Síða 2

Morgunblaðið - 25.11.1913, Síða 2
IIO MORGUNBLAÐIÐ Smávegis Yíðsvegar að. Hygginn læknir. Seleucus hét einn af hershöfðingjum Alexanders mikla. Eftir lát hans tók Seleucus sér kon- ungsnafn yfir, Sýrlandi. Hann var þá hniginn á efra aldur, og hafði mist konu sína fyrir skömmu. Son- ur hans hét Antiochus. Konungurinn hafði nú i hyggju að kvongast aftur og valdi sér fyrir brúði unga og afbragðs fríða stúlku, er Stratonike hér. En hún var með leynd trúlofuð Antiochus konungs- syni, og fekk því þessi ráðabreytni svo á hann, að hann lagðist i rúmið og óskaði sér einkis nema dauða. Erasistratus hét læknir konungs, og stundaði hann sjúklinginn. Þótti honum kynlegt um krankleika hans og vissi ekki hverra ráða ætti að leita, til þess að lækna hann. Þó leið ekki á löngu, áður en hann komst að því, að sjúklingurinn varð allur annar en hann átti að sér að vera, ef Stratonike sat við rúmið hans. Hann varð þá ýmist fölur sem nár eða rauður sem blóð, augu hans fengu einkennilegan glampa og lif- æðin sló hraðar. Læknirinn fór nú að gruna márgt, og einu sinni er þeir voru tveir einir, spyr hann konungsson hverju þetta gegni, en hann segir þá hið sanna. »Eg get ekki lifað án hennar*, mælti hann, »og eg get ekki rænt föður minn brúði sinni. Eg á einkis annars kost en deyja«. Læknirinn íhugaði nú sitt ráð. Hann vissi að konungurinn elskaði son sinn meira en alt annað og von- aði þvi að alt mundi lagast. Nokkru síðar spyr kongurinn hann eftir líðan sonar síns. »Hann er hættulega veikur«, sagði læknirinn. »Engin lyf geta læknað hann, því að hann elskar konu, sem hann getur aldrei eignast*. «Hver er sú?« spurði konungur. »Það er konan mín«, svaraði lækn- irinn. »Hvað segirðul* hrópaði konung- ur. »Þú verður að gefa honum kon- una til þess að bjarga lífi hans!« »En ef það værí nú konan þín tilvonandi. Mundir þú þá gefa syni þínum hana?« »Já, það mundi eg gera, ef eg gæti með því gæti frelsað hann frá dauðac, sagði konnngur með ákafa. »Þú getur bjargað lífi hanstj mælti læknirinn. «Líf sonar þins og dauði liggur í þinni hendi. Hann elskar Stratonike, en vill ekki gera þér neitt á móti skapi og þegir því*. Seleucus hugsaði sig ekki um tvisv- ar sinnum. Hann kallaði á ráðgjafa sína og mælti: «Eg hefi ákveðið að gefa syni mín- um helming rikisins og Stratonike fyrir konu. Sonur minn er vanur þvi að hlýðnast mér, og vona eg að hann geri eins nú. En ef Straton- ike er þetta móti skapi, þá sýnið hénni fram á það, að heill ríkisins verður að ganga fyrir siðum og ven- jum«. Þess er ekki getið, að hin unga mær hefði nokkuð á móti skipun konungsins! Hægfara járnbrautarlest. Þess er getið í »Railway Magazine«, að járn- brautarlest í Ameriku hafi orðið sjö árum eftir áætlun. Hún lagði á stað frá Beumont i Texas kl 11 x/2 að morgni og átti að halda til Port Bolivar og nemur sú vegalengd 114 röstum. Ef alt hefði nú gengið eins og til var stofnað, hefði lestin verið þar kl. i55 sama dag. Ferðin gekk slysalaust þangað til kom að High Island. Þar hafði sjórinn úr Mexiko- flóanum flætt 15 mílur inn í land- ið og stöðvaðist lestin þar í flóðinu. Þegar fjaraði var brautin horfin með öllu, nema stúfur sá er vagnarnir hvildu á. Félag það er brautina átti varð gjaldþrota og lestin, sem stóð úti á sléttunni, gleymdist. En síðan hefir annað félag lagt járnbraut á þessum sömu slóðum og tengt hana brautarstúfnum, sem gamla lestin hvíldi á. Svo komu þangað nokkrir vélasmiðir, sem gerðu við gufuvél- ina og báru olíu á alla snúningsása og hjól. Síðan kyntu þeir eld undir kötlunum og settu lestina á stað, en áhorfendurnir hrópuðu marg- falt fagnaðaróp. Gekk nú ferðalagið að óskum, og kom lestin til Port Bolivar, sjö árum á eftir áætlun. Vesturheimsmenn. í stórri verk- smiðju í Chicago voru verkamenn- irnir svo heilsulausir, að til stórra vandræða horfði. Læknirinn hélt að það mundi stafa af óhreinlæti, og til þess að bæta úr því, lét verk- smiðjan öllum verkamönnum sinum í té ókeypis bað, með sápu og þerri- dúk. En þetta hafði lítil áhrif, verka- mennirnir voru jafn skítugir eftir sem áður, og baðklefarnir stóðu auð- ir. Þá fann verksmiðjan upp á þvi, að greiða hverjum manni 50 cent fyrir baðið. Það hreif. Á fáum dögum var eins og verksmiðjan hefði fengið sér nýjan verkalýð. Og nú urðu þeir svo ákafir í að baða sig, að verksmiðjan sá sér ekki fært að gefa hverjum þeirra verðlaun fyrir meira en eitt bað á viku. Síðan hefir hún haldið uppteknum hætti, og þótt það marg-borga sig. Verka- mennirnir hafa bæði orðið hraustari en áður og ötulli til vinnu, svo verksmiðjan græðir óbeinlínis stórfé á böðunum. í=3 D AöBÓPjlN. K=a Afmælí 25. nóv. Guðmnndur G-amaHelsaon bóksali 42 ára. Guðbjörn Guðmundseon trésm. 29 4ra. Oddfreður Oddsson dyravörður 48 ára. Póstáætlun í dag: Ingólfur til Borgarness. Vesta frá útiöndum. Veðí'ið í gær: Reykjavik, logn -f- 2.8, Vestmanneyjar, sunnangola -j- 3.3, ísafjörð- nr, snðvestangola -)- 3.4, Aknreyri, snnn- an-hvassviðri -)- 4.5, Grimsstaðir, S. S. V. stinningskaldi -f- 2.0, Seyðisfjörðnr snnnan stinningsgola -f- 6.0. Skýjað loft alstaðar og regn i Vest- manneyjnm. í Þórshöfn i Pæreyjum, var snnnankaldi, alskýjað loft og -f- 5.7. Háflóð er k). 2,58 árd. og 3,1 siðd. Sólarupprás kl. 9,28 árd. Sólariag kl. 3 siðd. Tveír unglingspiltar anstan frá Eyjafjöll- nm komn hingað til bæjarins á snnnndag. Lögðu þeir á stað að heiman á miðvikn- dag og fórn fótgangandi alla leið. Þeir ætla að nema sund hér i Langunum. iarðarför Dýrleifar Guðmundsdóttur, fór fram i gær frá Frikirkjnnni. Hófst með húskveðju á heimili hinnar látnn, Berg- staðastræti 45. Hljómleikar Brynjólfs Þorlákssonar i Bárnnni á sunnndagskvöldið, vorn svo vel sóttir að húsið rúmaði ekki allan þann sæg, er dreif þar að og náði fylkingin langt fram á götu. Stóð þar 200 manns og lagði við hlnstirnar, ef ske kynni að einhver ómnr heyrðist þangað innan úr húsinu. Þótti öllnm er inni vorn vel tak- ast, en söknnðn þó Simonar Þórðarsonar á Hóli, sem var veiknr og gat þvi ekki snngið. Allur þorri bæjarbúa metnr hljómleika Brynjólfs til jafns við hinar beztu skemt- anir er hér bjóðast, og væri þvi ekki nema vel, ef hann sæi sér fært að endnr- taka þá enn einu sinni, svo þeim gefist kostur á að heyra sönginn, er frá nrðn að hverfa nú siðast. Vesta fór frá Færeyjnm i gærmorgun. Aprll seldi afla sinn i gær á Bretlandi fyrir 560 sterlingspund. Snorri Sturluson seldi afla sinn i Grims- by fyrir rúm 10,000 kr. Gestir ( bænum: Frú Gnðrún Fálssson frá Borgarnesi. Hettusótt gengnr { bænnm, og segja læknar hana vera með vægara móti. Hálkan: 17 manns keypín blývatn í lyfjabúðinni i gær, fyrir hádegi — höfðn doltið á hálkunni. Botnvörpungur ensknr, var nær strand- aðnr hér við Seltjarnarnes i gær. Var á leið til Reykjaviknr og ætiaði fyrir inn- an Akurey. Skipið átti að eins skamt eftir að Selskeri, þegar Fétur Hansson, sem var i skotför, hrópaði til skipstjór- ans. Skipið heitir >Xerxes« og liggnr nú hér á höfninni og teknr kol. »Kong Helge<: Undir eins og fregnin barst hingað til bæjarins nm hið sorglega slys, sem komið hefir fyrir á »Kong Helge« i Atlantzhafi, sendi M 0 r g n n - h 1 a ð i ð út fregnmiða. Var þeim útbýtt nm stræti bæjarins og vorn komnir i glugga afgreiðslannar um hádegisbil. Fregnin vakti mikla eftirtekt um allan bæinn. Flaggað var i hálfa stöng á afgreiðsln Thorefélagsins og víðar hjá kaupmönnum, i tilefni af fregninni nm slysið á »Kong Helge«. Hansen skipstjóri var hér knnn- nr mjög og átti marga vini. Hann var skipstjóri á »Ingólfi« (Thore) nm tima og siðan á »Vestra«, en tók við stjórn á »Kong Helge« þegar strandbátar félags- ins hættu ferðnm hér við land. Kaupið Morgunblaðið. Erl. símfregnir. Khöjn 24. nóv. kl. 6.10 slðd. Kong Helge í ofsaveðri. Kong Helge kom í gærkvöldi til Kristiansand í Noregi, bilaður mjög af ofveðri og stórsjó I Atlantzhafi. Hansen skipstjóri, Dam yfirstýrimað- ur og einn háseti féllu fyrir borð i ofveðrinu og druknuðu allir. Eng- inn vegur að koma við björgunar- tilraun. Skipið hafði fengið ofsarok alla leið frá Seyðisfirði til Noregs. Kong Helge liggur þar enn og er verið að gera við skemdirnar. Góð ráð. Skósólar verða vatnsheldir ef borin er á þá »Kopalfernis« nokkrum sinnum og auk þess endast þeir mörgum sinnum lengur. Annað ráð er það, að bera á þá volga »línolíu«r eins mikið og þeir geta í sig drukk- ið. Harðna þeir þá er þeir þorna og verða bæði vatnsheldir og hálfu end- ingarbetri en ella. —o— Tíu eða tólf dropar af salmíak- spiritus blandað saman við einn pott af vatni, er bæði góður og ódýr áburður á gluggablóm. —o— Lím verður sterkara og endingar- betra, ef dálítið af »glycerin« er lát- ið saman við það. —o— það er vani margra kvenna, að bíta sundur nálþráðinn, þegar þær eru að sauma, eða bregða þráð- arendanum upp í sig, áður en þær þræða nálina. Þetta er mjög hættu- legt, því að margt saumagarn, einkum silki, er blandað eitri í lituninni til þess að gera það þyngra. —o— Kartöflur verða bragðbetri og fastari í sér, ef þær eru þurkaðar i ofni, rétt áður en þær eru soðnar. Brófaskrína. 1. Má eg ekki, sem dvel hér sem nemandi við opinberan skóla, skrifa mig til heimilis hér í bæ, án þess að sækja um leyfi til bæjarfógetans? 2. Eða þarf eg að tilkynna bæ- jarstjórn öðru vísi en með því, að skrifa nafn mitt, heimili og fyrra heimili á manntalsskýrsluna? 3. Þarf eg, sem nemandi að gjalda hér útsvar, hvar sem eg tel mig eiga heimili? 1. svar: jú. 2. svar: nei. 5. svar: nei. Auglýsið í Morgunblaðinu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.