Morgunblaðið - 27.11.1913, Page 1
Fimtudag
27.
nóv. 1913
HOBfiDNBLADIB
1. árgangr
26.
tölublað
Ritstjórnarsími nr. 500| Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. | ísafoldarprentsmiðja
I. O. O. F. 9511289
Bio
Biografteater
Reykjavíkur.
Bio
Lifandi fréffablað.
Veronese sfrandar.
Ceyfon.
Trijggur fií dauðans.
Háfu þvoffakonurnar.
Bio~kaffif)úsið
(inngangur frá Bröttugötu) mælir með
sínum á la carte réttum, smurðu
brauði og miðdegismat,
Nokbrir menn geta fengið
fult fæði.
Tfartvig Jlieísen
__________Talsími 349.___
Heijkið
Godfrey Phillips tóbak og cigarettur
sem fyrir gæði sín hlaut á sýningu
í London 1908
sjö gullmedaliur
og tvær silfurmedalíur
Fæst í tóbaksverzlun
H. P. Levi.
fz
q L
L
dic
Sælgætis- og tóbaksbúðin
LAN DSTJ ARNAN
á Hótel Island.
íin
J
Skrifsfofa ^
Eimskipafélags Ísíands
Austurstræti 7
Opin kl. 5—7. Talsími 409.
tiiiiiiujiijiiimmi
Yacunm Oil Company
hefir sínar ágætu oliubirgðir
handa eimskipum hjá
H. Benediktssyni.
Kaupmenn og útgerðarfélög
munið það.
Símar: 284 og 8.
Það er
óhrek-
jandi
að alt
er
ódjrast
í
V ör uhúsinu.
Kaupið Morgunblaðið.
UmboðsYerzlun. — Heildsala.
Magnús Th. S. Blöndahl.
Skrifstofa og sýnishornaBafn
Lækjargata 6 B (uppi).
Selnr að eins kaupmönnum og kanpfélögum.
Auglýsið i Morgunblaðinu.
Skandia: Fundur í kvöld kl. 9 á Hotel Reykjavík.
Nýja Bíó,
Vaíd konunnar,
Leikrit í tveim þáttum.
Erfðaskrá Bínu,
gamanleikur frá Kaupmannahöfn.
Þar leika m. a.: Frk. Ebba Thomsen, frú Amande Lund,
H. Seemann og Chr. Schröder.
Af þvi að myndirnar eru langar, byrja sýningar stundvíslega.
Eimskipafélagið.
Fyrir 8 mánuðum síðan sendu
rúmir 60 menn hér í Reykjavík boðs-
bréf til íslendinga um að gerast hlut-
hafar í nýju hlutafélagi, sem nefnd-
ist: Eimskipafélag Islands. Var félag-
inu ætlað að taka að sér siglingar
við útlönd með 1 eða 2 skipum,
eftir því hvernig undirtektir manna
yrðu undir hlutaútboðið og hlutaféð,
áætlað eftir þvi, annaðhvoit 230 þús.
kr. eða 385 þús. krónur.
Sjaldan mun nokkru hlutaútboði
— eða jafnvel nokkrum tíðindum —
hafa verið tekið hér á landi með
meiri fögnuði, en hlutaútboði þessu.
Þó voru ýmsir í fyrstu all-efablandn-
ir. Flestir viðurkendu þörfina á því
að vér tækjum sjálfir siglingarnar í
vora hönd. En margir óttuðust
getuleysið hjá okkur. Þótti of hátt
reitt til höggs. Töldu gott ef nóg
fé fengist til þess að byrja með einu
skipi.
En hvað hefir síðan gerst, á þess-
um 8 mánuðum, sem liðnir eru sið-
an hlutaútboðið var sent út?
Hér á landi hefir safnast í hlut-
um á 4. hundrað þúsund kr. Auk
þess skrifuðu 3 Vestur-íslendingar
sig fyrir 30 þús. krónum í hlutum,
er þeir voru á ferð hér i sumar.
Enn er ekki fullfrétt hvað safnast
muni vestan hafs, en allar líkur munu
til þess, að samanlagt verði það meir
en þær 385 þús. kr., sem áætlað
var til tveggja skipa, sem safnast
hér á landi og meðal Vestur-íslend-
inga.
Upphafsmenn fyrirtækisins settu
sér það mark, að safna öllu hluta-
fénu meðal Islendinqa. Og á þess-
um 8 mánuðum, sem liðnir eru frá
útboðinu, hefir það tekist.
Enn eiga þó ýmsir hér á landi
eftir að skrifa sig fyrir hlutum. Og
enginn má láta það draga úr sér,
hve vel hefir gengið að safna hingað
til. Því meira sem saýnast, pvi betri
0% vandaðri verðtir heeqt að hafa skip-
in 0$ pví tryggara verður ýélaqið.
Alþingi lofaði félaginu 40. þús.
króna ársstyrk og gaf stjórninni
heimild til að taka hluti í félaginu
fyrir 400 þús. kr., ef það vildi taka
að sér strandferðir með tveim skipum.
Liklega gengur saman með stjórn-
inni og félaginu.
Verður þá Eimskipafélag íslands
öflugasta félagið, sem nokkurntíma
hefir stofnað verið með íslenzku fé.
Bráðabyrgðastjórnin hefir nú látið
gera uppdrætti að tveim skipum handa
félaginu og gefst almenningi kostur
á að sjá þá í skrifstofugluggunum
þessa dagana. Eftir uppdráttunum
að dæma verða skipin mjög snotur
og öllu hentuglega og þægilega fyr-
ir komið. Gert er ráð fyrir að vanda
smíði skipanna svo vel sem fé og
föng .verða til, og 10—20 helztu
skipastöðvar í Norðurálfunni verða
látnar keppa um að fá að smíða
skipin. Oss er sagt að ýmislegt
verði það í skipum þessum, sem
uppdrættirnir sýna ekki, en gerir
þau sterkari og betur hæf til sigl-
inga þeirra, sem þeim eru ætlaðar,
en skip þau sem nú eru í þeim
förum.
Tilboðin frá skipasmíðastöðvunnm
er gert ráð fyrir að verði komin hing-
að seinni hluta janúarmánaðar. Gefst
stjórn félagsins, sem þá verður ný-
kosin af stofnfundi þess, sem hald-
inn verður 17. janúar, þá færi á að
velja úr tilboðunum.
Hvernig á eiginmaður-
inn að vera?
Svar nr. 36.
Virðir meira vitran dyggan, veit eg
sanninn,
piltinn snauða prúður svanninn,
en pemnqinn sem vantar manninn.
Asta.
Svar nr. 37.
Bestan eiginmann tel eg þann
sem er að útliti eins og Guð hefir
skapað hann, og er við konu sína
og börn eins og Guði er þóknan-
legast.
Hanson.
Svar nr. 38.
Góður eiginmaður er sá sem les
Morgunblaðið þvi þar getur hann
Afgreiðslusími nr. 48
Leikfélag Reykjavíkur
Sunnudaginn 30. nóv. 1913
kl. 8^/2 siðdegis:
Trú og heimili
eftir
Karl Schönherr,
sjónleikur í 3 þáttum.
Tekið við pöntunum í bóka-
verzlun ísafoldar (ekki í síma).
Útsanmsvörur. | j Smávörnr.
I»eir, sem vilja fá góðar
vörur með lágu verði, verzla í
Nýju verzluninni
í Vallarstræti.
.mgniiQæjipioA-ji JB jöjaæu-noAg
Til reykingar og uppkveikju:
Birkihrfs í böggum, 40 pd. á 1 kr.
Hverfisgötu 33.
Skógræktarstjórinn.
V erzlunarmannafólag
Reykjavíkur.
Fjölbr. skemtifundur laug-
ardag n. k. Félögum verða sendar
nánari tilk. á morgun.
séð hvernig hann á að breyta gagn-
vart konu sinni og hvaða eigin-
ieikum hann á að vera gæddur til
þess að vera góður eiginmaður.
(Kona sem Ies Mort>unblaðið).
Svar nr. 39.
Ekki alls fyrir löngu var eg hrif-
in af ungum pilti hér í bænum sem
er í blóma æskunnar eins og sú er
þetta skrifar. Eg sagði hrifin, nei,
eg var blátt áfram ekki með réttu
ráði. Eg naut hvorki svefns né matar.
Ef eg á að lýsa honum nákvæmlega,
þá hefir hann alla þá kosti sem einn
mann. Hann er eitthvað 22 ára gam-
all, hefir hvítt hár og er hvítur í
andliti, en þó hraustlegur, greiðir hárið
slétt, en skiftir því í miðjnuni, hann
er heldur hár, mátulega gildur, hefir
reglulega fallegt göngulag og er sem
sagt voðalega »fix«. Hann er vel
mentaður og það sem betra er, vel
hagmæltur. Munnurinn er mátulega
stór og varirnar mátulega þykkar, en
þó mjúkar. Augu hans eru stór,
grá og djúp, einlægt dreymandi.
I þeim virðist búa einhver hulinn
leyndardómur. Eg spurði hann einu
sinni, hvort hann vildi segja mér
þann mikla leyndardóm, sem augu
hans gáfu til kynna að byggi í djúpi
sálar hans, en þá sagði hann mér,
að eg skyldi fá að heyra hann þeg-
ar eg væri orðin konan hans. Þetta
verður eiginmaður minn, því honum
gef eg áreiðanlega hjarta mitt, og
svona hefi eg hugsað mér hann.
Hamingfusom stúlka
---------■»!«■-------