Morgunblaðið - 28.11.1913, Page 2
122
MORGUNBLAÐIÐ
Blá-grár íslenzkur hund-
ur (kallaður ‘Blár), eign konsúls
Brillouins, hefir horfið hér í bænum.
Sá sem kynni að verða var hunds-
ins, utanbæjar eða innan, er vinsam-
lega heðinn að gera vart við á skrif-
stofu blaðsins, gegn borgun.
i. umr. um, að altof lítið sé áætlað
til afborgunar lánum. Dygði því alls
eigi að hækka afborganaliðinn.
Kvað lánstraust bæjarins í hættu,
ef eigi væri gætt forsvaranlegrar fjár-
hagsstjórnar. En ef lánstraustið færi,
— væri fótum kipt undan verkleg-
um framkvæmdum bæjarins, ogkæmi
það niður á fátækustu stéttinni —
verkamönnum.
Tryirqvi Gunnarsson átaldi gjalda-
hækkunartillögur Péturs G. Guð-
mundssonar. Kvaðst eigi greiða
atkvæði »með einni einustu af vit-
leysum hanst.
Atvinnuskrifstofa hefði ekkert að
segja. Verkmannahælið húmbúg.
Gæti í mesta lagi orðið fyrir 4 fjöl-
skyldur og hvað skyldi það hjálpa
húsnæðisleysi eða húsaleiguverði í
bænum.
Borqarstjóri mælti móti sama sem
cllum br.till., sem fram hefðu komið,
þær mundu að eins verða nafnið eitt,
en engin áhrif hafa á reikninginn.
Taldi útsvörin eigi hafa hækkað
hér í bænum hlutfallslega við
tekjur bæjarins. (Kl. J.: Þetta er
rangt, sannanlega rangt).
Umræður stóðu til kl. 8V2 u®
kvöldið. Töluðu enn nokkurir bæ-
jarfulltrúar og mun skýrt frá þeim
ræðum á morgun.
Þá var gengið til atkvæða, og
kemur atkv.gr. sömul. á morgun.
Að eins skal þess getið, að tillaga
Péturs Guðmundssonar um atvinnu-
skriýstofu var feld með 7 : 3 atkvæð-
um (Pétur, Þorv. Sv. Bj.) og tillaga
P. G. um að reisa verkmannahæli
var feld með öllum atkv. gegn hans
eigin.
Comts.
(jripdeildir í Reykjavík.
Tveimur bátum stolið.
Siðla á sunnudagskvöldið var, voru
nokkrir skipverjaraf kolaskipinu Vana-
dis, hér i landi. Sex þeirra urðu
nokkuð síðbúnir, og er þeir ætluðu
að komast aftur á skipsfjöl, voru
hinir félagar þeirra farnir á undan
og höfðu auðvitað tekið með sér
bátana. En þessir piltar urðu ekki
ráðalausir fyrir því. Fjórir þeirra
tóku bát, sem stóð i fjörunni, og
Kristinn Sæmundsson sótari átti.
Fluttust þeir á honum fram til skips
og sleptu honum þar lausum. Bát-
inn rak þegar til hafs og hefir hann
ekki sézt síðan.
Hinir skipverjarnir, tveir, tóku
pramma, sem Frederiksen kolakaup-
maður átti, og létu hann einnig laus-
an, er þeir voru komnir á skipsfjöl.
En maður, sem var á verði á
kolabarki Frederiksens, sem liggur
hér á höfninni, sá til þeirra og gat
gefið upplýsingar, er það vitnaðist
að pramminn var horfinn.
Var nú leitað hófanna hjá skip-
verjum, hverju þeir vildu bæta stuld
þennan, en þeir brugðust ókunnug-
lega við, og neituðu þverlega að
þeir ættu nokkurn þátt i hvarfi
prammans. Leið svo mánudagurinn
að engar málsbætur fengust af söku-
dólgunum; en nú var einnig saknað
báts Kristins.
Á þriðjudagsmorgun árla, fór Þor-
valdur Björnsson lögregluþjónn að
finna piltana að máli, og ætlaði að
heimta þá með sér í land, svo þeir
yrðu löglega yfirheyrðir. En þá féll
þeim allur ketill í eld og könnuð-
ust við klæki sína.
Var þá sátta leitað, og varð sú
sætt þeirra, að þeir skyldu gjalda
Kristni 100 kr. fyrir bátinn, en Fre-
deriksen 30 kr. fyrir prammann.
Skipstjóri greiddi sektarféð eftir
beiðni sökudólga, og fór Þorvaldur
við það i land.
Fluqmaður.
Símfréttir.
Haýnarfirði í %œr.
Færeyinqarnir eru sem óðast að
undirbúa skip sín til brottfarar. Halda
þeir heim til Færeyja undireins og
gefur.
Samsæti á að halda Mr. W. S. Hadd-
en — manninum, sem fiskreitana
tók á leigu hjá bæjarstjórninni í haust.
Verða þar margir bæjarmenn við-
staddir. Samsætið fer fram hjá ung-
frú Theodóru Sveinsdóttur.
0.
Vestmanneyjum í qærkvöldi.
Hér er óvanalega mikill vestan-
stormur og stórsjór. Menn muna
varla eftir öðru eins veðri í mörg ár.
Vesta enn ókomin hingað.
Skiptjón.
\ m
Enskur togari strandar.
Skipshöfnin bjargast.
Aðfaranótt miðvikudags var ofsa-
veður fyrir sunnan land — kafalds-
bylur og stórsjór. Togari nokkur,
Lord Carlington, frá Hull, var þá á
siglingu fyrir suðurlandi, en sá lítið
til lands vegna hriðarinnar. Áður
varði, rakst hann á sandrif hjá Kerl-
ingardalsá, skamt fyrir austan Vik í
Mýrdal, og stóð þar fastur. Hafði
sjór og straumur fyrst borið skipið
upp að Vik, og fólk þá orðið vart
við hættuna.
Skipshöfnin beið í skipinu til dög-
unar, en þá voru menn úr landi
komnir að strandinu til hjálpar. Sagði
Sigurður sýslumaður Eggerz fyrir við
björgun mannanna, er fór ágætlega
fram. Voru mennirnir fluttir vestur
í Vík, og biða þar ferðar hingað til
Reykjavikur. Skipstjórinn er sænsk-
ur maður, Petersen að nafni, og hefir
hann verið hér oft áður.
Björgunarskipið Geir hefir verið
kvatt til hjálpar, en fer eigi austur
fyr en veður og sjór batnar. Engin
tiltök að bjarga skipinu meðan ill-
viðrið stendur yfir.
Lord Carlington er tæplega árs-
gamalt skip, og kvað vera alveg
óskemt, og því von um að það ná-
ist út ef veður batnar bráðlega.
Vagab.
----------------------
Smávegis víðsYegar að.
Hundamyndir. Hundaeigendur i
Paris gera alt sem í þeirra valdi stend-
ur til þess að gera hundunum sínum
lífið eins létt og hægt er.
Það kemur þráfaldlega fyrir, að
hundarnir villast og lenda á flæking.
En nú hefir einhver hundavinurinn
komið með þá uppástungu, að láta
mynda hundana og safna myndunum
í bók, sem geymd sé á lögreglustöð-
inni. Undir hverri mynd á að standa
lýsing á hundinum, nafn hans og
nafn og heimili eiganda hans.
Ef hundur lendir á fiæking, getur
lögreglan þegar í stað vitað hverra
manna hundurinn er, með því að
fletta upp myndabókinni.
Skoplegar auglýsingar. Hvitur
köttur hefir tapast, frá frú F. sem
hefir tvo svarta bletti á nefinu og
einn á rófunni.
Þurt brenni er til sölu hjá Jóni
Jónssyni sem hefir legið í þurki i
alt sumar.
Armbandi týndi stúlka með gull-
lás að framan en perlu að aftan.
Sófi er til sölu hjá Jóni Jónssyni
með mahóníhrygg og snúna fætur.
Lykli tapaði kona sem hékk á bandi
milli Hafnarfjarðar og Reykjavíkur.
Snjallræði. í rúm tuttugu ár hafði
Andersen borðað á sama veitinga-
húsinu og altaf sat hann í sama stað,
við lítið borð úti í homi.
En einu sinni þegar hann kom til
að borða, er ókunnur maður í sæti
hans og les þar í blaði. Andersen
vissi nú ekkert hver ráð hann átti
að hafa til þess að koma manninum
burt, en hitt vissi hanu, að matar-
lyst mundi hann enga hafa fyr en
hann settist í gamla sætið sitt.
En svo datt honum ráð í hug.
Hann gekk þangað sem gesturinn
sat.
— Góðan daginn, hr. Andersen!
sagði hann vingjarnlega.
— Fyrirgefið þér, svarar ókunni
maðurinn. En eg heiti ekki Ander-
sem. Yður hlýtur að skjáilast.
— Nei, þér þurfið ekki að gera
gys að mér, svaraði Andersen. And-
ersen hefir nú setið við þetta sama
borð í rúm 20 ár, og eg v e i t að
enginn dirfist að ræna hann sætinu,
og hann borðar altaf á þessum tíma.
Þér hljótið að vera Andersen.
Ókunni maðurinn reis nú á fætur
og settist við annað borð.
— Eg vissi alls ekki að þetta sæti
væri ætlað vissum manni, sagði hann,
en eg fullvissa yður um það, að eg
heiti alls ekki Andersen.
— Nú, þá er það líklega eg, sem
heiti Andersen, svaraði hinn og sett-
ist.
.......—
crra dagbófjin. ■—«
Afmæli í dag, 28. nóv.
Kristjana Blöndahl jnngfr.
Halldóra Björnadóttir hásfr.
Jón Eyólfsson steinsm., 58 ára.
Bjarni Bjarnason skósm., 44 ára.
Friðrik Jónsson kanpm., 62 ára.
Kristinn Eyólfsson 19 ára.
Háflóð er i dag kl. 5.9 árd.
og kl. 5.32 síðd.
Sólarnpprás kl. 9.43.
Sólarlag k). 2.46.
Nýtt tungl kl. 12.41 árd.
Ókeypis eyrna-, nef- og hálslækning
Austurstræti 22 kl. 2—3.
Ókeypis lækning Ansturstr. 22 kl. 12—1,
Póstáætlun.-
Sterling til ótlanda kl. 6 síðd.
Veðrið I gær: Eeykjavik, vestangola,
regn og 6 st. hiti, ísafjörður, austan-stinn-
ingsgola 1.2, Aknreyri, logn og snjó-
koma -f- 0.0, Grlmsstaðir, snð-anstan-
stinningskaldi, regn og hiti 2.0, Seyðis-
fjörðnr, norð-anstanknl, snjór + 0.3, Vest-
manneyjar, snð-anstan-stinningskaldi, regn
og hiti 3.8, I J>ór8höfn á Færeyjnm S. S.
V. stinningsgola, regn og 7 stiga hiti.
Á stjórnarráðsblettinum tóku menn eftir
stóði mikln í gær, er var þar á beit.
Alls voru sjö skepnur innan stjórnarráðs-
girðingarinnar — fjörar merar og þrjú
folöld. Befir þeim vist fundist vistin
heldnr slæm á blettinum, þvi tvö folöld
stóðu við fætur Jóns Signrðssonar, á sjálf-
nm fótstallinum, í skjóli fyrir útsynningn-
nm, og leið þar auðsjáanlega vel. Sjást
enn merki þess að þau hafa þar komið.
J. P. T. Brydes verzlun hefir flutt hing-
að eggjadnft nokknrt, er Colovo kallast.
Er það mikið notað af húsmæðrnm er-
lendis, einknm þar sem egg eru dýr. En
dnftið er ódýrt og gott og má nota það
1 öllu sem egg. Morgunblaðinu var send
kaka, sem Colovo hafði verið notaö í, í
staðinn fyrir egg, og oss þótti hún af-
bragðs góð.
Bjarni Björnsson, hermikrákan þekta,
hýðnr npp á »skellihlátur€ i Bárunni í
kvöld. Það verða áreiðanlega margirr
sem vilja hlægja sig máttlansa á kostnað
náungans, núna þegar svona dauft er i
bænum.
Togararnir: Ingólfur Arnarson, Virg-
inia'og Freesland fórn á fiskiveiðar i gær
þó slæmt væri veður.
Landsíminn. Aukalinan til Borgarness
er í ólagi þessa dagana. Búist við að
takist að koma henni i lag innan skamms.
Þinglestur. Afsöl:
1. frá Guðjóni S. Jónssyni og Valdimar
S. Guðjónssyni dags. 24. þ. m. til Frið-
bergs Stefánssonar fyrir húseigninni nr. 3
b. við Norðurstlg.
2. frá Sigþóru Steinþórsdóttir, dags. 20.
þ. m. til Jóns Benjaminssonar, fyrir hús-
eigninni nr. 34 við Sellandsstig.
3. frá Jóhanni Kr. Ólafssyni, dags. 19.
febr. ’12 til Gnðjóns Guðmundssonar fyr-
ir lóð nr. 19 við Grettisgötu.
4. frá uppboðsráðanda Reykjavikur, dags.
21. þ. m. til Jóhanns Jóhannessonar fyrir
»Doktorshúsinu«.
Á bæjarstjórnarfundi 1 gærkveldi voru
laun lögreglnþjóna bæjarins hækkuð, sem
hér segir: Þorvalds Björnssonar úr 1200
í 1400 kr., Páls úr 1000 i 1200, og Jón-
asar úr 1000 i 1200, en Ólafs úr 1000 í
1100 og Sighvats næturvarðar úr 900 í
1000 krónnr.
Sterling var á Bildndal i fyrrakvöld, en
var ókominn til Isafjarðar i gærkveldi.-
Búist við, að eigi muni skipið ferðbúið
héðan til útlanda, fyr en i fyrsta lagi
á mánudagskvöld. Verðnr það þrem dög-
nm á eftir áætlun.