Morgunblaðið - 28.11.1913, Qupperneq 3
MORGUNBLAÐIÐ
123
Piano
frá verksmiðjunni Weissbrod, hirðsala á
Saxlandi, fást keypt með titsöluverði.
Snúið yður til undirritaðs umboðsmanns.
Árni Thorsteinsson.
Hin fyrsta og eina
Ú T S A L A
hjá okkur á árinu
hefst laugardaginn 29. nóv., og varir um tíma.
Við gefum 20°/o af Kjólatauum,
Klæði, á kr. 3,30 nú 2,60
— - — 4,50 — 3,60
Karlmannaföt mikið niðursett. Ekkert undanskilið.
Minsti afsl. io°/0, nema af netagarni og taurullum, sem er nú
þegar ódýrara en nokkur útsala býður.
Varan er vönduð. Verðið viðurkent lágt.
Virðingarfylst,
Ásg. G. Gunnlaugsson & Co. Austurstræti 1.
Bezta jólagjöfin.
Þau 14000—15000 manns,
sem hafa látið taka af sér mynd hjá mér, frá árinu 1907 til
þessa tíma, geta fengið þessi kostakjör fyrir jólin:
Stór mynd 1/4 örk á 3 kr., áður 8 kr.
— — V2 örk á 5 kr., áður 15 kr.
Menn þurfa að eins að segja til nafns síns, eða
koma með seðil, sem þeir haía fengið (alt frá Nr. 10000 til
24000).
Þeir sem láta mynda sig fyrir jól, njóta hins sama.
Sérhver mynd verður vandlega unnin.
Pétur Brynjólfsson sjálfur við kl. 11—2.
3ezt að koma sem fyrst. Timinn er naumur til jóla.
Myndastofan er opin frá kl. 9—6.
P. Bryujólfsson.
:0
t»
08
08
N
®
n
w
®
N
«+
89
u
O*
89
(Q
u.
O:
Hj
Axa-hafralímfóður
er bezta og ódýrasta fóðurnijöl banda kúm.
Prófeesor dr. Schmidt i Stockbólmi,
eiðsvarinn næringaefnafræðingnr sænska
rikisins, hefir gert efnarannsókn á þesen
föðurmjöli og maÍ8fóðnrmjöli og er
samanbnrðurinn þannig:
Axa hafralímfóður Maísmjöl.
Eggjahyita 8,90°/o 905°/„
Fita 4,00°/« 3.94°/o
Kolavatnseldi 73,10°/0 69,22°/o
Vatn 8,50°/o 16,57°/0
Aska 5,50°/o l,22°/o
100,00°/o 100,00„/„
Tekið á móti pöntunum
i verzluninni >Von<
Talsími 353.
Sýnishorn fyrirliggjandi.
Tilbúnar rósir af ýmsum
litum, fást á Bergstaðastr. 4. Hent-
ugar í blómsturvasa og gluggaskraut
o. s. frv.
Dansmeistari Ari Kr. Eyjólfs-
son 2. bekk A, á bækur geymdar á
afgr. Morgunblaðsins,sem hann get-
ur vitjað ef hann vill.
Slys á hálkunni.
Emanuel Cortes, prentari í Guten-
berg, datt á hálkunni í gærmorgun, er
hann gekk til vinnu sinnar, og sin-
slitnaði í hægri hlið. Hann liggur
rúmfastur og mun verða frá vinnu
um stund.
Það líður varla sá dagur hér í
bænum, að eigi detti einhver á hálk-
unni og meiðist. Sandur er að eins
á örfáum stöðum borinn á hálkuna,
og er það því skammarlegra, sem
lengur líður. Ætlar bæjarverkíræð-
ingurinn aldrei að vakna, eða liggur
hann sjálfur í beinbrotum?
Hvernig á eiginmaður-
inn að vera?
Svar nr. 40.
Eiginmaðurinn á að vera skírlífur,
hraustur og af góðu kyni.
Svar nr. 41.
Sannkristinn.
--------------------
Svörtu gammarnir.
27 Skáldsaga
eftir
Ovre Richter Frich.
~ (Frh.)
— Það er lýgi. Það hafa verið
verðir á öllum vegum hér í grend
og þeir hafa hvergi farið fram hjá.
Hvar eru þeir? Ekki ríða þeir gand-
reið um loftið eins og kvöldriður.
Þá brosti Pétur illgjarnlega og
hæðnislega.
— Jú, það gerðu þeir, sagði hann.
Þeir flugu á brott. Gammarnir eru
farnir á veiðar. Þú sérð þá aldrei
framar, Burns.
Þá slepti leynilögreglumaðurinn
takinu.
— Auðvitað sagði hann og þaut
út, en hinir bundu Pétur frænda.
Á söndunum fyrir framan húsið sá
Burns merki þess að flugvélar hefðu
verið settar þar á stað til flugs. Pét-
ur sagði satt, fuglarnir voru flognir.
Hann gekk nú inn í húsið aftur.
— Eg verð að krefjast þess að þið
færið mig fram fyrir dómarann, sagði
Pétur frændi og hafði nú náð sér
aftur. Eg er ranglega sakfeldur. —
— Liggur þér mikið á?
— Já, eg kæri mig ekkert um að
vera hér lengur.
Hann leit í kring um sig og Burns
veitti því eftirtekt að í augnaráðinu
lá ótti. —
— Nú, hvar er hún, sagði hann.
— Hver? sagði Pétur alveg hissa.
— Tundurvélin auðvitað. Óg
hvenær springur hún, vinur. Ertu
orðinn hræddur, eða hvað ?
— Eg skil ekki. —
— Er því þannig vnrið. Þá er
bezt að við skiljum þig hér eftir
stundarkorn, á meðan við skoðum
nágrennið.
— Hún er í eldavélinni, tautaði
Pétur og náfölnaði. Hún springur
kl. 7. Við skulum flýta okkur héð-
an. —
En Burns hafði þegar opnað elda-
vélina. Þar var inni dálítill kassi,
sem hann greip og athugaði.
— Það er Kozineffs tundurhylki,
tautaði hann. Svo braut hann gæti-
lega lokið af og kom þá i ljós svo-
litið sigurverk sem var i sambandi
við tundurhylkið. —
— Hún springur eftir hálfa þriðju
minútu, hélt hann áfram. Hérna er
hamarinn sem slær á kvellhettuna.
Við brjótum hann af — svona. —
Þýzku lögreglumennirnir urðu að
gjalti er þeir sáu hve háskinn hafði
verið nærri. En Burns setti kassann
á borðið og sagði með mestu stillingu
eins og ekkert hefði i skorist:
— Nú þarf ekki að óttast þenn-
an háska lengur. En svo er bezt
að við snúum okkur að öðru. Jæja
Pétur, hvar eru gammarnir.
Hann þurfti ekki svar, því í sömu
andrá heyrðist undarlegt hljóð, eins
og útburðarvæl, úti fyrir.
Burns þaut út og hinir á eftir.
Hátt uppi í loftinu eygðu þeir
nokkra dökka díla, sem þutu áfram
með feikna hraða. Það voru fimm
fuglar, sem fluttu með sér ógn og
skelfingu hvar sem þeir komu.
Burns steytti að þeim hnefann
og þaut í talsimann.
16. K a p i t u 1 i.
Burns lagði frá sér simaáhaldið og
leit á úrið sitt.
Morgunblaðið.
Nýir áskriíendur, sem greiða
gjald sitt fyrir decembermánuð,
íá blaðið ókeypis það sem eftir
er af nóvember.
Blaðið kostar að eins 65 aura
á mánuði, heimflutt, samsvar-
ar 34—35 blöðum á mánuði
(8 síður á sunnudögum), með
skemtilegu, fróðlegu og frétta-
miklu lesmáli — og myndum
betri og fleiri en nokkurt ann-
að íslenkzt blað.
Morgunblaðið er hið eina ís-
lenzka blað, sem hefir ráðinn
teiknara sér til aðstoðar og flyt-
ur myndir af öllum helztu við-
burðum hér í bæ, t. d. eins
og í morðmálinu, í miðjum þess-
um mánuði.
Gjörist áskrifendur þegar í
dag — og lesið Morgunblað-
ið um leið og þér drekkið
morgunkaffið!
I
Pað er ómissandi!
Sími 500.
Ágæt egg
fást slöíugt
N9
Jes Zimsen.
— Fjeld verður kominn hingað
eftir stundarfjórðung. Þá eru þeir
hálfri stundu á undan okkur. En
við skulum ná þeim, enda þótt við
verðum að elta þá alla leið til norð-
urskautsins.
Lögreglustjórinn þýzki gekk til
hans.
— Hvað eigum við nú að gera,
sagði hann og leit um leið á hús-
bóndann í »Fjöðrunum þremur«.
Burns svaraði ekki, en horfði út
um gluggann eins og hann væri að
brjóta heilann um eitthvað.
— Hvar er þýzki loftherskipaflot-
inn núna? spurði hann svo upp úr
eins manns hljóði.
— Eg held að hann sé í Elber-
feld, þar sem hinar stóru heræfing-
ar fara fram. En Zeppelínsskipið
»Hansa III« leggur á stað frá Kaup-
mannahöfn núna kl. hálfátta.
— Fer það til Líibeck.
- JL
— Er það vopnað ?
— Já, «Hansa III* er herskip úr
loftflotanum. Það er fyrsta flokks
skip og hefir meðferðis 2 tundur-
fallbyssur og tíu þeysibyssur.