Morgunblaðið - 08.12.1913, Síða 2

Morgunblaðið - 08.12.1913, Síða 2
MORGUNBLAÐIÐ 170 JTlikið af nýjum vörum kom með Bofníu í vefnaðarvöruverzíun ----- Tf). Tf)., Ingóífsf)voíi. -- Nýir ávextir, svo sem: Perur, Bananar, Yínber, Epli, nýkomið til H. f. P. I, Thorsteinsson & Co, (Godthaab). Skautar og skautaólar, langstærst úrval og lágt verð hjá Jónatan Þorsteinssyni. en ætli að fá konungdóminn í hend- ur syni sinum Boris. Aðrir ætla að konungur bíði þess, að kosningar fari fram í Búlgaríu 7. des. og hverfi heim aftur ef þær ganga honum í vil. En aðrir segja konung geggjað- an orðinn og ófæran til ríkisstjórnnar. Verstu fjandmenn konungs eru Dr. Daner og Savov hershöfðingi. Gefa þeir konum einum að sök, að til ófriðar kom milli Búlgara og bandamanna þelrrá er voru. Er svo sagt, að Savov neitaði í fyrstu að hlýðnast skipuH 'honungs um að hefja þann ófrið, en konungur hót- aði þá að draga hann fyrir her- mannadóm og láta skjóta hann. Lét Savov þá undan, en krafðist þó áður skriflegrar skipunar. Enn er það, að Daner og hans sinnar vilja leita vináttu við Rússa og firrast Austurríkismenn, en það er konungi mjög á móti skapi. Trúlegast er því, að hann láti af konungdómi ef Daner nær yfirtökum í þinginu, en ella ekki, nema svo sé, að geðveikissögurnar séu á rökum bygðar. Jólafötin. Ef maður fer að spyrjast fyrir á saumastofum karla og kvenna hér í þessum bæ, hvort nú sé mikið að gera, er fljótt svarað, — »já, bless- aður verið þér, nú fara jólin að nálg- ast og allir sem eitthvað geta veitt sér, þurfa eitthvað að fá sér saumað fyrir jólinc. Já, að ýd sér, þetta heyr- ir maður ár eftir ár, en ótíðara hljóm- ar það í eyrum manns — að um þann eða hinn, sem ekkert getur, þurfi að hugsa, — en á þessu eru auðvitað heiðarlegar undantekningar. — Því vissulega veit maður um margt efnað og góðhjartað fólk, sem hugs- ar um að gleðja og hjálpa ýmsum fyrir jólin, — en meira má qera,— og almennari verður sá hugsunar- háttur að verða að gleðja og hjálpa. Eg held að fólkið sé ekki nógu hugsunarsamt um það, hvað öðrum geti komið að notum, eða ekki nógu nærgætið við þá fátæku, þegar það heldur að þeim þyki ekki neitt varið í það sem þeim efnuðu sýnist lítils eða einkis nýtt. — En margir þeirra fátæku kunna það sem erfið og inn- tektarrir atvinna hefir kent þeim, það er að nota út Jötin. Efnaða fólkið lítur á tímann sem það hefir gengið í sínum fötum, og reiknar svo út hvort það geti nú verið lengur í þeim á almanna færi. — Þessi ummæli mundu hinir laikuðu klæða- skápar sanna, — ef góðvilld eig- andanna væri viðlátin til að opna þá og með aðstoð óhindraðrar gjaf- mildi, Jiýtti sér að tína saman og senda frá sér til þeirra nöktu. Þá ættu þeir líka með Jullum rétti hina eðlilegu gleði yfir nýju fötunum sin- um, sem myndi endast Jram yfir jólin. Því það, að hafa getað glatt og klætt marga þurfandi með því sem þeim var ekki sjálfum lengur neins virði, ætti að vekja varanleqa þakklátsemi við gjafarann allra góðra hluta, fyrir lífshlutskiftið sem máské veitti altsnægtir líkamlegra þarfa. — Fyrirbænir og þakklátsemi hinna fátæku manna fylla upp í þau skörð, sem annars kynnu að verða auð, ef þið nú verðið þeim tilmælum, sem fram hafa komið í Morgunblaðinu vegna hinna fátæku. Mundi það vera eðlileg gleði, eða geta heitið sönn jólagleði, sem hreyfði sér hjá ykkur, heiðraðir bæjarbúar, sem fáið ykkur ný föt eða eigið nóg af nýj- um fötum til að klæðast i, áður en þið gangið að margréttuðu matborði, ef þið gætuð ekki fundið í meðvit- und ykkar að þið heíðuð veitt öðr- um gleði um þessi jól. Eða mynduð þið í Jesú nafni geta gengið til guðs- þjónustu án þess ? Það þolir vonandi ekki langa bið í hugskotum ykkar, að rýma til hjá ykkur og senda eða láta sækja föt þessa dagana, sem auglýst er að þeim >é veitt móttaka, því það er ællast til, að hægt sé að sauma á börnin úr fötunum eða fataefninu sem þið sendið, fyrir jólin. Tíminn er stutt- ur til jóla, en miklu má þó í verk koma ef samtaka áhugasemi kristi- legs kærleika vinnur hvíldarlaust. — Fátæku mæðurnar telja ekki eftir sér að vaka og vinna, ef þær fá verk- efnið. — Arangur tilrauna vorra i þessu efni mun verða sagður í Morgunblaðinu um jólin. Kona. Frá Danmörku. Hvítu sandar. Stórviðrin sem geys- uðu um Norðurálfuna norðanverða um og eftir miðjan nóv., hafa m. a. gert stóran usla við Jótlandsstrend- ur. Úr Norðursjónum gengurskurð- ur inn í Ringköbingfjörð, þar sem heita Hvítu sandar. Skuró þenna lét J. C. Cristensen gera á almættis- dögum sínum, en áður lá mynnið sunnar. Það kom þó brátt í ljós að þetta verk hefði betur verið óunnið. Norðursjórinn braust í gegnum skurð- inn og skolaði burtu sandinum til beggja hliða, svo að þar varð 300 metra breidd, sem áður voru 30 m. Sjórinn flæddi yfir engi og ekrur, bændur sunnan megin fjarðarins urðu að flýja híbýli sín, en kvikfé drukkn- aði. Nú skiftast menn i 2 flokka, sunnanmenn, er vildu hlaða upp í skurðinn, og norðanmenn, undir for- ustu I. C. Christensen, er vildu halda honum opnum en afstýra frekari skemdum með öflugum varnarkömp- um. Þessi flokkurinn var hlutskarp- ari. Ríkisþingið veitti 900,000 kr. til fyrirtækisins og var Monberg verktaka falið að sjá um framkvæmd á því. Hafa menn hans nú unnið að kampahleðslunni mánuðum saman undir forustu Arvid Hansen yfirverk- fræðings, og voru komnir vel á veg. En Norðursjórinn lætur ekki að sér hæða. I stórviðrinu 19.—2. nóv. skolaði hann burtu mestöllum varn- arkömpum báðum megin svo að ekki stóð steinn yfir steini. Bilið milli kampanna var 45 m., en nú er mýnnið aftur yfir 100 m. Því fé, sem kostað hefir verið til þessa fyr- irtækis, er því í bókstaflegum skiln- ingi fleygt í sjóinn. Verði nú byrj- að á nýjan leik, er fullyrt að traustar varnir verði eigi gerðar fyrir minna en 2 milj. kr., og þó óvíst að dugi. Fátækt. í sambandi við grein í Morgun- blaðinu í gær með fyrirsögninni »Fátækt« vill félagið K. F. U. K. láta þess getið, að það veitir vænt- anlegum gjöfum viðtöku á hverjum degi frá kl. 5—7 frá 4.—12. þ. m. i húsi K. F. U. M. Gefendur geta þvi sent gjafir sinar þangað beina leið ef þeir vilja. Annars annast ritstj. Morgunbl. um að senda til þeirra, sem þess óska, á þann hátt sem hann tilkynti í grein sinni í gær. Den 15. Jannar begynder sin nye Serie, hvori fölgende store Gievin- ster skal ndtrækkes. Störste Gevinst i heldigste Tilfælde. Fres. 1.000.000 (En Million) 1 a 450.000 3 a 50.000 1 - 250.000 2 - 40.000 1 - 150.000 2 - 30.000 1 - 100.000 2 - 20.000 1 - 80.000 5 - 15.000 1 - 70.000 10 - 10.000 1 - 60.000 24 - 5.000 34 - 3.000 64 - 2.000 210 a 1.000 o.sv. ialt. 5 Millioner 175 Tusinde Frcs. paa ðO.OOO Lodder med 21.550 Gevinster og 8 Præmier. Altsaa: Hvert 2. No. vinder. Gevinsterne ndbetales kontant. Loddernes Pris for hver Klasse */„ Lod Kr. 2.90. ‘/2 Lod Kr. 11.50.. 'U — Kr. 5.80. >/, — Kr. 22.50. For at nndgaa Forsinkelee med For- nyelse af Lodderne hedes Betaling ind- sendt for 2 KlasBer. Adrs. Fru Selma Edeling, Autoriseret Kollektion. Vendersgade 3. Köbenhavn. Morgunblaðið. Það kostar að eins 65 aura á mánuði, heimflutt, samsvar- ar 34—35 blöðum á mánuði (8 síður á sunnudögum), með skemtilegu, fróðlegu og frétta- miklu lesmáli — og myndum betri og fleiri en nokkurt ann- að islenkzt blað. Morgunblaðið er hið eina ís- lenzka blað, sem hefir ráðinn teiknara sér til aðstoðar og flyt- ur myndir af öllum helztu við- burðum hér í bæ, t. d. eins og í morðmálinu, í miðjum fyrra mánuði. Gjörist áskrifendur þegar í dag — og lesið Morgunblað- ið um leið og þér drekkið morgunkaffið! Það er ómissandi! Sími 500.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.