Morgunblaðið - 06.01.1914, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 06.01.1914, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ Olíuofnarnir V margeftirspurðu nýkomnir aftur til c c?. c7. cKfíorsíeinsson S (So. (Goodtfjaab). EXPORT Að eins nokkur pund eftir af 20 aura exportkaffinu góða í Edinborgarverzlun. Hvitarj svartar eikarmálaðar. Likklteði. Líkkistuskraut. Teppi lánuð ókeypis 1 kirkjuna. Eyv. Arnason. Trésmlðaverksmiðjan Laufásveg 2. Hér með tilkynnist vinum og vandamönn- um, að minn elskaði eiginmaður, Ólafur Magnússon bókhaldari, andaðist á Landa- kotsspftala 2. þ. m. Jarðarförin fer fram föstudaginn 9 þ. m. kl. II1/, frá Landakots- spitala. Helga Jénsdéttir frá ísafirði. OSTAR og PYLSUR áreiðanlega bæjarins stærstu og beztu birgðir í Matarverzlun Tómasar iónssonar, Bankastræti 10. Talsími 212. Rauða akurliljan. Skáldsaga frá 25 stjórnarbyltingunni miklu eftir baronessu Orczy. (Framh.) Margrét horfði ekki upp, hún fann ekki til hræðslu, og »Sjómannaheim- jlið« var nú svo nærri, að það heyrð- ist til hennar þangað. Ókunni maðurinn nam staðar, þeg- ar Margrét nálgaðist hann, og um leið og hún straukst fram hjá hon- um sagði hann mjög rólega: — Margrét St. Just. Hún rak upp dálítið undrunaróp, er hún heyrði meyjarnafn sitt nefnt svo nærri; hún leit UPP r^ttr honum síðan báðar hendurnar, um leið og hún aftur rak upp lítið óp, sem nú bar vott um afdráttarlausa gleði. — Chauvelin I sagði hún. — Hann sjálfur, frú, sagði hinn ókunni, og kysti kurteislega á fingur- góma hennar. Margrét sagði ekkert nokkur augns- blik, meðan hún virti fyrir sér með ?°9 LtÖGMENN Sveinn Björnsson yfirdómslögm. Hafnarstræti 22. Sími 202. Skrifstofutimi kl. 10—2 og 4—6. Sjálfur viö kl. 11—12 og 4—5. GGERT CLAESSEN, yfirréttarmála- flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulega heima 10—11 og 4—5. Simi 16. YÁTI^YGGINGA^ A. V. TULINIUS, Miðstræti 6, Brunaábyrgð og lífsábyrgð Skrifstofutími kl. 12—3. Jarl Finsen Austurstr. 5, Reykjavík. Brunatryggingar. Heima 6 r/4—7 Vt- Talsími 331. Mannheimer vátryggingarfélag C. Trolle Reykjavík ^ Landsbankanum (uppi). Tals. 235. w Allskonar sjóvatryggingar Lækjartorg 2. Tals. 399. Havari Bureau. Vátryggið hjá: Magdeborgar brunabótafélagi Den Kjöbenhavnske Söassurance Forening limit Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. PORVALDUR PAL880N 5pec. meltingarsjúkd. Laugaveg 18. Viðtalst. 10—11. Sími 334 og 178. ^AUP^APur^ Faliegur grímubúningur fæst til leigu. Ritstj. vísar á. DÚkkuhÚS, bezta afmælisgjöf, til sölu. Upplýsingar á skrifstofu blaðsins. „Ingvi konungur* óskast keyptur. Ritstj. vísar á. Dýzkt tímarit, 2—3 árgang- ar, til sölu. Skemtilegt og fróðlegt. Lágt verð. Ritstj. vísar á. Beiðhjól karla og kvenna, geta menn fengið með lægsta verksmiðju- verði, að viðbættu flutningsgjaldi. Uppl. á skrifstofu Morgunblaðsins. The North British Ropework Co. Kirkcaldy Contractors to H. M. Government búa til rússneskar og ítalskar fiskilínur og færi alt úr bezta efni og sérlega vandað. Fæst hjá kanpmönnum. Biðjið því ætíð um Kirkcaldy fiskilínur og færi, hjá kaupm. þeim, er þér verzlið við, því þá fáið þér það sem bezt er. KENjSIfA <1 3 Nokkrar stúlkur geta feng- ið tilsögn í að taka mál og sníða karlmannafatnað eftir nýustu tísku. Uppl. á afgreiðslu Morgunblaðsins. Tilsðgn í hjúkrunarstörf- pm í heimahúsum veitist. Þátt- takendur gefi sig fram fyrir 10. jan. S. Berqmann, Ingólfsstr. 10 a, heima kl. 12—1 f. h. Síðustu ísfregnir. Isafirði, kl. 8.jj siðd. Hér ar alt fult af ís ennþá. Eng- in breyting frá því í dag. Land- pósturinn er hér ennþá — kemst eigi fyrir ís. Fer hann héðan á morgun landveg til Alftafjarðar og þaðan á bát til Arngerðareyrar. ■— Engar fréttir af botnvörpungunum ennþá. Ekkert frést frá Aðalvík. Jón. 1 ■ lí> YINNA Þarfleg gjöf. Johan Fahlström, leikhússtjórinn í Kristianiu, og kona hans, hafa ný- lega gefið björgunarfélaginu norska stóran og afar-rambygðan og vel út- búinn björgunarbát. Nafn hans er »Arne Fahlström«, en því nafni hét sonur þeirra hjóna, sem var einn þeirra er fórst á Titanic í Atlantzhafi. Arne var einkasonur þeirra og til minningar um hann gáfu hjónin þessa sjáldgæfu og nýtu gjöf. Ungur maður — 17 ára — óskar eftir atvinnu við innanbúðarstörf nú þegar. Hefir hann haft slík störf með höndum síðustu 3 árin við stóra verzlun á Austur- landi. Góð meðmæli. Nánari upplýsingar í Miöstræti 10 uppi. Kjallari sem er hentugur fyrir verkstæði, óskast til leigu í Austur- bænum. Kristinn Siqurðsson, Óðins- götu 13. 1=11=1 tapað r=in=i Sígarettu veski hefir tapast. Skilist á afgreiðslu Morgunblaðsins. Stór silfurhnappsuæla töpuð frá Stýrimannastíg nr. 14 að Mentaskólanum. Skilist á afgreiðslu Morgunblaðsins gegn fundarlaunum. óblandaðri ánægju, litla, heldur ósjá- lega manninn, sem stóð fyrir fram- an hana. Chauvelin var þá nær fertugu, útlitið bar vott um hygni og kænleik, og það var eitthvað refslegt í augum hans, sem lágu djúpt inn í höfðinu. Hann var sami maðurinn, sem einum eða tveimur tímum áður hafði svo vingjarnlega drukkið glas með herra Jellyband. ___ Chauvelin I vinur minn, sagði Margrét ánægjulega, — mér þykir mjög vænt um að sjá yður. Það var ekki svo undarlegt, þó veslings Margrét, sem var svo ein- mana í allri sinni dýrð, fyndi til gleði yfir því að sjá mann, sem minti hana á gleðidagana í París, þegar hún ríkti eins og drotning yfir gáfumannahringnum í Richelieu- götunni. Hún tók því ekki eftir því hæðnisbrosi, sem lék um hinar þunnu varir Chauvelins. — En segið mér, hélt hún glaðlega áfram, — hvað eruð þér þó að gera hér í Englandi ? Hún tók að ganga í áttina til gest- gjafahússins, og Chauvelin sneri við og gekk við hlið hennar. — Eg gæti spurt yður um hið sama, göfuga frú, hvað eruð þér að gera hér ? sagði hann. — Ó! eg, sagði hún og ypti öxl- um. Eg læt mér leiðast, það er alt og sumt. Þau voru nú komin að dyrunum á Sjómannaheimilinu, en Margrét virtist ekkert inngöngufús. Kveld- svalinn var svo yndislegur, eftir óveð- rið, og hún hafði hitt vin sinn, sem bar henni angan af París, sem þekti Armand vel, og sem gat talað við hana um þá sveit fjörugra, ágætra vina, sem hún átti þar, svo hún nam staðar við inngöngudyrnar, en á meðan heyrðist út um hina vel upplýstu glugga í veitingastofunni, hlátursköll, köll á Sally, köll á bjór- kollur, hávaði af kollunum, er þeim var skelt niður á borðið, tenings- köst, og innan um alt þetta heimsku- hláturinn í herra Percy Chauvelin stóð við hlið hennar og leit með sinum refslegu, gulu glyrn- um á hana, sem stóð þarna svo blíð og barnsleg í hinu milda enska rökkri. — Mig furðar á að heyra þetta til yðar frú, sagði hann um leið og hann tók í nefið. — Svo, svaraði hún glaðlega, jæja litli Chauvelin, eg hefði hugsað, að þér hefðuð gáfur til að skilja, að loftslag, sem er samsett af þoku og dygðum, ætd ekki við Margréti St. Just. — Nú, svo slæmt er það ekki, sagði hann með uppgerðarfurðu. — Jú, og meira en það, svaraði hún. — Það var skrítið, eg hélt ein- mitt að lífið í Englandi væri sérlega aðlaðandi fyrir fagra konu. — Jú, það hélt eg líka, sagði hún og stundi. England ætti einmitt að eiga vel við fagra konu, úr því að allar nautnir eru þeim bannaðar þar — en hafa þær þar þó daglega. — Einmitt það. — Þér trúið því varla, litli Chau- velin, sagði hún alvarlega, að það líður svo oft heill dagur — heill dagur, án þess að eg mæti neinni freistingu. - Þá er ekki að furða, sagði Chauvelin kurteislega, þó að gáfuð* ustu konum i Norðurálfu leiðist. Hún hló þessum yndislega og barnslega hlátri.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.