Morgunblaðið - 21.01.1914, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ
377
r=nr=i tapað r^li—1
Skóhlíf töpuð. Skilist á afgr.
blaðsins gegn fundarlaunum.
Vasahnífur fallegur hefir tapast.
Komið með hann í afgr. blaðsins.
LiEIGA
Góð 4—5 herbergja ibúð
óskast á góðum stað í bænum frá
14. maí. Ritstj. visar á.______
3 herbergja íbúð með eld
hfisi og góðri geymslu óskar reglu-
samur maður, í góðri stöðu, að fá
frá 14. maí. Ritstj. vísar á.__
Herbergi með húsgögnum,
helst í miðbænum, óskast til leigu
nú þegar. _______
2 herbergi óskast nú Þ©»"
ar. Æskilegt að miðdagsmatur fá-
ist á staðnum, þó ekkert skilyrði.
Skrifstofa Morgunblaðsins vísat á.
I IC> VINNA <|- =3
Ung stúlka óskast til að gaeta
barna nú þegar. Uppl. Njálsg. 13 B.
Stúlka getur fengið vist 14. mai.
Uppl. hjá Morgunbl.______________
Stúlka, dugleg og áreiðanleg,
óskast i vist frá 14. maí. Hátt kaup
i boði. Uppl. á skrifst. bl.
Stúlka.
Ráðvönd og dugleg stúlka, vön
afgreiðslustörfum getur fengiðatvinnu
nú þegar. Tilboð merkt S t ú 1 k a
sendist Morgunblaðinu.
Starfsmaður óskast nú þegar
um lengri eða skemri tima, á gott
sveitaheimili i grend við Reykjavík.
Upplýsingar á Grettisgötu 8 (niðri).
Dugleg: stúlka getur fengið
vist 14. mai. Hátt kaup í boði.
Uppl. á Laugaveg 38.
►- ^AUP^APUI^
HÚS til sölu i Hafnarfirði ásamt
stórri og góðri lóð. Semja má við
Ögmund Ólafsson, Brekkugötu 11,
Hafnarfirði.
Clarinet til sölu. Ritstj. vís-
ar á.
Ferðakoffort og klifsöðlar til
sölu. Uppl. hjá blaðinu.
Laglegur grímubúningur
handa feitum manni, er keyptur í
Godthaab i dag kl. 5—6.
Islendingasögur til sölu í
ágætu standi afgr. v. á.
Kven-grímudansbúningur fæst
keyptur eða lánaður i Þingholtsstræti
7. Sömuleiðis fæst þar keyptur alls-
konar fatnaður nýr og brúkaður.
4 laglegir Kven-grímudansbún-
ingar, lítið eða ekkert brúkaðir, eru
strax keyptir háu verði Vesturgötu 22
(niðri).
Grímudansbúuingur (karl-
manns) til leigu eða sölu. Ritstjóri
visar á.
50 aura
gefur Klæðaverksmiðjan Ið-
unn fyrir pundið af hvitri, góðri
og vei þurri haustull. Verð á
annaii ull þar eftir.
Yatnsstígvél og Sjóstigvél
kosta kr. 18.50.
Trollarastigvél kosta kr. 35.00.
Efni og vinna vönduð.
Jón Stefánsson.
Leiðrétting.
Misprentast hefir í frásögn vorri
um stofnfund Eimskipafélagsins. Á
einutn stað er þar sagt «aðdróttun«,
en átti að vera: fyrirspurn, sem hr.
A. J. Johnson gerði til bráðabirgða-
stjórnarinnar.
■--- DAGBÓIJIN. E
Afmæli í dag:
Helga Á. Ólafsson, húsfrú.
d. Bergur Torberg, landsh. 1886.
d. Árni biskup Helgason 1320.
Sólarupprás kl. 9.46 árd.
Sólarlag kl. 3.33 síðd.
Háflóð erí dag kl. 12.44 árd.
og kl. 1.16 síðd.
Veðrið 1 gœr:
Rvk a. andvari, hiti 4.7
ísaf. logn, frost 0.3
Ak. logn, hiti 1.5
Gr. logn, frost 4.5
Sf. logn, regn, hiti 5.6
Vm. logn, hiti 5.6
Þórsh. F. v. s. v. kaldi, hiti 6.2.
Augnlækning ókeypis í dag
kl. 2—3 í Lækjargötu 2.
Jón Sveinbjörnsson aðstoð-
armaður á fjármálaskrifstofunni í Kaup-
mannahöfn, var 1. jan. sæmdur kam-
merjunkeranafnbót. — Jón er fyrsti
landinn sem þennan titil hefir hlotið.
Vór eigum bæði etatzráð og justitsráð,
en kammerjunker hefir enginn orðið
fyr en Jón.
í g ö r ð u m tveim hór í bænum
eru hvannir teknar að spretta þessa
dagana. Mun það vera fremur sjald-
gælt um þennan tíma árs. Tún öll
hér í nágrenninu grænka og óðum eins
og á vordegi væri.
C e r e s kom í gærmorgun kl. 9 frá
útlöndum og Vestmannaeyjum. Með
skipinu var, auk þeirra sem áður var
getið, Gunnar cand. Egilsen.
F i s k u r var seldur hér í bænum
{ gær á 12 aura pundið. Voru það
vólbátar Gísla kaupm. Hjálmarssonar,
sem komið höfðu með aflann frá Sand-
gerði.
í t i 1 e f n i af fyrirspurn þeirri,
sem »kaupandi« gerði til blaðsins um
útsendingu S.tjórnartíðindanna,
þá skal það tekið fram, að vór hjá
hlutaðeiganda höfum fengið vissu fyrir
því, að Stjórnartíðindin voru send út
þ. 6. þm. Orsökin til þess að þau
eigi voru send fyr, er sú, að lögin
komu eigi hingað fyr en með síðustu
póstferð 1913. Hólum þ. 22. des.
Landvarnarmál Svía.
Njósnarmálin. — Hervarnir Rússa.
Frá Jréttaritara Morqunblaðsins,
Khojn 9. jan.
Landvarnarmálið og önnur þau
mál, er standa í nánu sambandi við
það, eru nú cfst á baugi hjá Svium.
Þeir tala valla um annað eða rita.
Helztu ræðuskörugar þeirra ferðast
um landið þvert og endilangt til
þess að tala um fyrir lýðnum, og
blöðin, hægri blöðin fyrst og fremst,
eru þó einnig með og blöð vinstri
manna taka í sama strenginn. Jafn-
vel jafnaðarmenn mæla ekki á móti,
eða þá svo hljóðlega, að efast má
um, hvort hugur fylgir máli. —
Auðsætt er, hvaðan þessi alda er
runnin. Svíar hafa eins og aðrir
séð aðfarir Rússa á Finnlandi; þeir
ganga þess ekki duldir, að röðin
muni koma að þeim fyr eða síðar,
og þvi er um að gera að vera á
vaðbergi.
Á síðustu tímum hafa og gerst
ýms þau atvik, er vel hafa verið til
þess fallin að auka tortrygnina.
Fyrst og fremst njósnarmálin Svo
sem kunnugt er orðið, var sendi-
hersveitin rússneska við þau riðin,
bæði sendiherrann sjálfur og þó
einkum sá maður, er Assanovitsch
hét, og var aðstoðarmaður sendiherra
og ráðunautur í öllum hermálum.
Þeir hrukku báðir úr landi, en starf-
sveinn þeirra, sænskur stúdent Hol-
steinsson að nafni, er nýskeð dæmd-
ur í 3 mánaða fangelsisvist, fyrir
meðverknað sinn.
Annar Sví, F. W. Tðrngreen, var
samtímis dæmdur í 5 ára hegning-
arvinnu og 2 ára ærumissi fyrir lík-
ar sakir. Hann var uppvís að því,
að hafa tekið á móti og svarað fyr-
ir borgun nafnlausum bréfum frá
Kaupmannahöfn, þar sem leitað var
ýmsra upplýsinga um landher og
flota Svía.
Enn hefir danskur maður, Freáerik-
sen að nafni, fyrrum undirliðsforingi
í danska hernum,. en síðar banka-
starfsmaður í Kaupmannahöfn, orðið
uppvís að þvi, að hafa dvalið í Sví-
þjóð i njósnarerindum. Hann þótt-
istvera verzlunarerindreki, en Svíar
grunuðu hann um græsku og tóku
hann fastan i Boden, i Sviþjóð norð-
arlega. Eiga Sviar þar öflug virki
og þóttust menn hafa veitt því eft-
irtekt, að hann væri oft á sveimi
kringum virkin og tæki þar ljós-
myndir. Lengi vel neitaði hann
öllu en að lokum bárust þó svo að
honum böndin, að hann varð að
játa, að hann bæri ekkert skyn á
kaupmensku, en væri i Boden
njósnarerindum og þægi að launum
325 kr. á mánuði. Eigi vildi hann
Morgunblaðið
Það kostar að eins 65 aura
á mánuði, heimflutt, samsvar-
ar 34—35 blöðum á mánuði
(8 síður á sunnudögum), með
skemtilegu, fróðlegu og frétta-
miklu lesmáli — og myndum
betri og fleiri en nokkurt ann-
að íslenkzt blað.
Gjörist áskrifendur þegar i
dag — og lesið Morgunblaðj
ið um leið og þér drekkið
morgunkafíið!
Það er ómissandi!
Sími 500.
segja, hvaðan honum kæmi féð eða
hverjum hann ynni.
Eigi að siður þykir nú fullvíst, að
uppgjafa embættismaður einn rúss-
neskur, er Hampen heitir, og dvalið
hefir langvistum í Khöfn, hafi staðið
á bak við alt þetta njósnarbrask. —
Vita menn með vissu, að Frederik-
sen og Assanovitsch, sá er fyr var
nefndur, voru tíðir gestir í húsi hans,.
og einnig þykjast menn hafa séð
Törngreen fara þar inn. Sitt hvað
fleira hefir orðið uppvíst um Ham-
pen þenna, sem of langt yrði upp
að telja. Hann er nú farinn úr landi
huldu höfði og kominn til Rússlands.
En það er fleira en njósnarbrask-
ið, sem veldur Svíum áhyggju.
í fyrsta lagi þykjast sænsk blöð vita
með sannindum, að Rússar hafi á-
kveðið að gjöra afarmikið og ram-
gjört virki við Kyrjálabotn. Eru áætl-
aðar til þess 400 milj. rúbla. Svíar
ætla, að tilgangurinn sé sá, að stía
sundur norður- og suðurher þeirra,
ef til ófriðar kæmi.
í öðru lagi er sagt, að Rússar haldi
heræfingar í vetur i Finnlandi, i svo
stórum stíl, að sliks séu engin dæmi,
og búi alt i garðinn, svo sem vetrar-
leiðangur væri fyrir höndum. Meðal
annars hafa þeir keypt 25.000 skíða,
dýrum dómum. Einnig hefir verið
spurst fyrir um, hve marga hesta
væri hægt að hafa til taks, ef á þyrfti
að halda.
Ef þessar frásagnir sænskra blaða
eru réttar, er það sízt að undra þótt
nokkur breyting hafi orðið á stefnu
vinstri manna í landvarnarmálinu,
enda lýsti StaaJJ, yfirráðherra og for-
ingi vinstrimanna því yfir i ræðu
þeirri, er hann hélt i Karlskrona fyrir
nokkru og síminn hefir skýrt frá, að
stjórnin mundi leggja fyrir þingið
frumv. um endurskipun hersins,
auknar fjárveitingar til hans og leng-
ing varnarskyldutímans, í samræmi
við tillögur nefndar þeirrar, er fjall-
að hefir um þessi mál síðustu árin.
Bað hann menn þó jafnframt forðast
allar æsingar og tortryggja engan að
ósekju. Ræða hans hefir hvaivetna
mælst vel fyrir og þarf varla að efa,
að Svíar standa allir sem einn mað-
ur, ef alvarleg tíðindi skyldi að hönd-
um bera.