Morgunblaðið - 21.01.1914, Qupperneq 4
MORGUNBLAÐIÐ
378
Leiga á bryggju
okkar í Grófinni — íyrir framan Liverpoo! — er fyrir kl.tímann
kr. 1.50. Umsjónarmaður með bryggjunni er verzlunarmaður Guðjón
Björnsson í »Verzlunin Björn Kristjánsson«.
Reykjavík 19. janúar 1914.
Tf). Ttjorsfeinssoti. Jón Björnsson.
Ungur kvenmaður,
sem er vel fær í reikningi og skrifar góða hönd, getur fengið stöðu við
stærri verzlun. Bréf með eiginhandar skrift, merkt »Skrifstofa«, sendist
ritstjóra blaðs þessa.
LrÖGrMBNN
Sveinn Björnsson yfirdómslögm.
Hafnarstrœti 22. Simi 202.
Skrifistofutími kl. 10—2 og 4—6.
Sjálfur viö kl. 11—12 og 4-5.
EGGERT CLAESSEN, yfirréttarmála-
flutningsmaður Pósthússtr. 17.
Venjulega heima 10— II og 4—5. Sfmi 16.
Bogi Brynjólfsson, yfirréttarmála-
flutningsm. Hótel Island. (Aðalstr. 5).
Venjulega heima 12—1 og 4—6.
Talsími 384.
Hvitar, svartar eikarmálaðar. Likklæði.
Likkistnskraaf. Teppi iánnð ókeypis i
kirkjnna.
Eyv. Arnason.
Trésmiðaverksmiðjan Laufásveg 2.
Kaupið Morgnnblaðið.
YÁOý^YGGINGAÍ}
A. V. TULINIUS, Miðstræti 6,
Brunaábyrgð og lífsábyrgð
Skrif8tofiutími kl. 12—3.
Carl Finsen Austurstr. 5, Reykjavík.
Brunatryggingar. Heima 6 J/4—7 lU-
Talsimi 331.
Lmumnninirrrrrc
Mannheimer vátryggingarfélag
C. Trolle Keykjavík
Landsbankannm (nppi). Tals. 235.
Allskonar sjóvatryggingar
Lækjartorg 2. Tals. 399.
Havari Bureau.
Vátryggið hjá:
Magdeborgar brunabótafélagi
Den Kjöbenhavnske Söassurance
Forening limit
Aðalumboðsmenn:
O. Johnson & Kaaber.
ELDUB! -yqt
Vátryggið i »General«. Umboðsm.
SIG. THORODDSEN
Fríkirkjuv. 3. Heima 3—5. Talsimi 227.
Rauða akurliljan.
Skáldsaga frá
38 stjórnarbyltingunni miklu
eftir
baronessu Orczy,
(Framh.)
Hún vissi að hann hlaut að hafa
þær sálargáfur og það öryggi og
einbeitni, sem til þess þyrfti, að
vera foringi helztu aðalsmanna Eng-
lands og jafnvel prinsins sjálfs.
Var það Sir Andrew Ffoulkes?
Nei, það gat ekki verið. Hann var
alt of tilfinninganæmur til þess.
Var það auðséð á truflun hans og
vonleysissvip, er greifafrú de Tour-
nay truflaði samtal hans og Súsönnu.
Margrét sá allar svipbreytingar hans.
Þegar Súsanna var farin, virtist hann
svo yfirgefinn og einmana, sem
nokkur maður getur verið.
Hann ráfaði til dyranna í næstu
stofu og hallaðist þar upp að dyra-
brandinum, eins og honum stæði á
sama um það, sem fram fór í saln-
um.
Margrét notaði tækifærið til þess,
að laumast burt frá dansmanni sín-
um. Hún gekk þangað er Sir And-
rew stóð. Það var eins og eittbvert
ómótstæðilegt afl knýði hana til þess.
En — það var eins og himin og
jörð hyrfu henni í einum svip. Hún
sá að Hastings lávarður, sem var
góður vinur manns hennar og dygg-
ur fylginautur prinsins, — stakk
litlum bréfmiða í lófann á Andrew.
Hún varð sem þrumu lostin, en
það varði aðeins eitt augnablik. Sir
Andrew hafði gengið inn í herberg-
ið og var henni horfinn. En hún
náði sér skjótt aftur og án þess að
hika við, gekk hún á eftir honuin
inn í herbergið. Þessi tíðindi skeðu
öll á tæpri mínútu. Við örlögunum
fær enginn spornað.
Margrét hafði nú gleymt öllu
umhverfis sig, stöðu sinni, mannorði
og virðingu fyrir hinni ódauðlegu
hetju. Ástin til bróðursins og um-
hyggjan fyrir honum varð öllu öðru
ríkari í sál hennar. Hún fann, að
líf bróður síns lék á þræði og það
var á hennar valdi hvort hún bjarg-
aði honum eða eigi. Og í næsta
herbergi væri ef til yildi þann vernd-
argrip að finna, sem bjargað gat lífi
hans.
Nýlegur 6 hesta Mótor
er til sölu með gjafverði. Semjið sem fyrst við
Hjörleif Þórðarson.
Steinolíu
selur ódýrast
Guðm. Bgilsson
Laugaveg 42.
Þeir, sem að undanförnu hafa
keypt hinar dýrari steinolíutegund-
ir á brúsum hjá Steinolíufólaginu,
geta íengið þær tegundir hjá verzl.
„Von", Laugaveg 55.
Steinolían er send um allan bæ-
inn.
Talsimi 353.
Piano
frá verksmiðjunni Weissbrod, hirðsala á
Saxlandi, fást keypt með útsöluverði.
Snúið yður til undirritaðs umboðsmanns.
Árni Thorsteinsson.
Hún gekk rakleitt inn í herbergið.
Þar stóð Sir Andrew við borðið og
sneri við henni bakinu. A borðinu
stóð stór, fjölarmaður kertastjaki.
Andrew hélt á litlum pappírsmiða
í hendinni og var að lesa.
Margrét læddist nær honum. Hún
hélt uppi kjólfaldinum sinum svo
að ekki skyldi heyrast skrjáfið í hon-
um, og þorði naumast að draga
andann. En í sama bili sneri Sir
Andrew sér við og leit á hana.
Hún andvarpaði, greip höndinni um
enni sér og mælti lágt:
— Hitinn í salnum er alveg ó-
þolandi. — — — Mér varð svo
flökurt — — —.
Hún riðaði eins og ætlaði að líða
yfir hana. Sir Andrew áttaði sig
skjótt. Hann kreisti miðann i hendi
sér og gekk til hennar.
— Eruð þér veik, frú Blakany?
spurði hann og bar ótt á. Eg skal
— Nei, nei, það er ekki neitt,
svaraði hún. Lánið þér mér stól
— r-------fljóttl---------—
Hann færði nær henni einn stól-
inn, sem stóð við borðið og hún
fleygði sér niður á hann, lokaði
augunum og hallaði höfðinu aftur á
bak.
— Svona! hvíslaði hún. Nú batn-
ar mér þegar------------. Þér skuluð
ekki hugsa um mig, Sir Andrew.
Eg fullvissa yður um það, að nú
líður mér miklu betur.
Hann svaraði engu, og dauðaþögn
var í herberginu. Frá danssalnum
heyrðist hljóðfæraslátturinn vaggandi
og þýður, skrjáfið i silkikjólunum
og raddkliður. Margrét lá í stóln-
um með lokuð augu og heyrði
hvorki né sá. En hún jann að Sir
Andrew var að brenna litla miðann.
Hún fann, að hann hélt honnm yfir
einu kertaljósinu.
Þá opnaði hún augun og í sama
mund kviknaði i miðanum. Og án
þess að hugsa sig um, rétti hún
fram hendina, hrifsaði miðann af
Sir Andrew, slökti eldinn og hélt
miðanum að vitum sér.
— En hvað þér eruð nærgætinn,
Sir Andrew, mælti hún. Eg er viss
um, að það er amma yðar, sem
hefir sagt yður það, að reykurinn af
brendu bréfi er bezta ráð við svima.