Morgunblaðið - 03.03.1914, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 03.03.1914, Blaðsíða 4
MORGUNBLAÐIÐ 5 66 Bútadagur '£ Th. Th. Ingólfshvoli. Búð til leigu. Veínaðarvörubúð Gunnars Þor- björnssonar við Hafnarstræti. er til leigu nú þegar eða 14. maí. Skinfaxi vill fá miklu fleiri kaupendur í Reykjavík. Spyrjist’fyrir um blaðið, ef þér ekki þekkið það. Bjarni Magnússon hjá Jóni Halldórsyni & Co. og Þorleifur Gunnars- 80n Félagsbókbandinu taka móti áskrifendum. Hús óskast til kaups. Góð hiiseign óskast til kaups nú þegar gegn peningaborgun. Hús- eignin má kosta 4—5000 kr., og verður að liggja við Grettisgötu, Lauga- veg, Hverfisgötu eða Lindargötu. — Semja ber við Boga Brynjólfs- son yfirrértarmálaflm., Hotel Island, Aðalstræti 5. Sími 384. Stór útsala. Allir þekkja hinar fgóðu og fallegu vörur í verzlun Jóns Þórðar- sonar. Þrátt fyrir þaðj'þó verðið sé lágCog vörurnar nýjar^og góðar, verður fra 1. marz alt selt með miklum afslætti.J J _ ,|gj Þetta boð stendur - að eins örfáa daga,J notiðjþví tækifærið. Verzlun Jóns Þórðarsonar. Beztu Cigarettur heimsins eru Special Sunripe frá R. & J. Hill Ltd, London. || | sem taka vilja þátt i félagsskap með því augnamiði að fá _ prófessor Harald Níelsson til þess að halda guðsþjón- ' ustur í Fríkirkjunni annanhvorn sunnudag síðdegis, eru beðn- ir að rita nöfn sín og heimili á lista í bókverzlun Isafoldar eða hjá Halldóri I»órðarsyni bókbindara, Laugaveg 4, fyrir næstu mánaðamót. Kanpendur Morgunblaðsins eru vinsamlegast beðnir um að borga blaðið á afgreiðslunni eða skrif- stofunni, Austurstræti 8. Þakpappaverksmiðjan Dortheasminde Köbenhavn B. JU Herkúles-þakpappi HaldgóDir þakpappalitir allsk. Strokkvoðan Saxolin. ZACHARIAS & Co, Dortheasminde. Stofnað 1896. * Tals.: Miðst. 6617. Álagning með ábyrgð. Triumph-þakpappi Tjörulans — lyktarlaus. Triumph-einangrunarpappj Rauða akurliljan. Skáldsaga frá 76 stjórnarbyltingunni miklu eftir baronessu Orczy, (Framh.) — Þeir mundu kosta kapps um að missa aldreí sjónar á honum og svo fremi að hann ætli að flýja, þá munu þeir slá hring um hann. Og gerist þess þörf, munu þeir skjóta út í loftið einu skoti og drífa þá hinir varðmennirnir þangað þeim til hjálpar. Ekki vil eg að honum sé nokkurt sérstakt mein unnið nú þegar, mælti Chauvelin. En þú hefir samt gert skyldu þina og eg kem vonandi ekki of seint.------ — Hvað sögðu þeir? — Þeir höfðu ekki séð nokkurn mann. — Hann hlýtur að vera á undan okkur í vagni eða — — En við rnegum ekki eyða tímanum. Er langt til kofans? — Hérumbil tvær milur. — Ratar þú þangað þótt svona dimt sé? — Já, það er eg viss um. Það er ekki svo dimt núna, svaraði her- maðurinn. — Fylgdu þá með okkur fótgang- andi, en láttu félaga þinn fara með hestana til Calais. Höfum við hér engin not þeirra. En er við eigum eftir ófarinn mílufjórðung, þá skaltn segja gyðingnum að staðnæmast. Og eins verður þú að gæta hins, að hann fari ekki með okkur afvega. Desgas og menn hans nálguðust nú óðum. Heyrði Margrét fótatak þeirra fáum föðmum fyrir aftan sig og áleit því hættulegt að bíða þeirra úr stað. Hún hafði nú mist alla von. Percy var nú einhversstaðar rétt á undan þeim og innan stnndar höfðu þeir náð honum. Síðan mundu þeir halda áfram og handsama flótta- mennlna. Að vísu vissi hún hitt, að Chauvelin mundi efna gefið lof- orð og gefa Armand frelsi, en Percy átti engra griða að vænta. Heyrði hún nú að hermennirnir gáfu gyðingnum nokkrar fyrirskip- anir og faldi hún sig þá i runnum nokkrum meðfram veginum. Nú komu þeir Desgas og bættust í hóp hinna. Hélt svo alt liðið áfram og Margrét á eftir í hæfilegri fjarlægð. 28. k a p i t u 1 i. 7ekin til jan^a. Margrét fylgdi eftir þeim í hálf- gerðri leiðslu. Sá hún nú enga bjargar von lengur fyrir þann mann er henni var hjartfólgnari en alt annað. Var nú þegar sleginn hring- ur um hann og hlaut að reka að því innan lítillar stundar að hann væri ofurliði borinn. Margrét var dauðþreytl. Hún varð sárþreytt af göngunni og skalf á beinunum af þessari óvanalegu á- reynslu. Hún hafði naumast notið svefns né matar um nokkurra dægra skeið, en samt kom henni það aldrei til hugar að hætta eftirförinni. Hún vildi fá að sjá mann sinn enn einu sinni og deyja með honum til þess að bæta fyrir brot sitt. Vagninn staðnæmdist. Þau voru núfkomin á áfangastað, þangað er einstigið lá niður klettana. Án þess að íhuga hætluna, lædd- ist Margrét nær, þar sem Chauvelin stóð og ráðgaðist um við menn sína. Hafði hann nú stigið niður úr vagninum og langaði hana til þess að heyra hverjar fyrirskipanir hann gæfi nú mönnum sínum, ef ske kynni að það gæti orðið Percy að einhverju liði. Hún skreið nær þeim og lét það ekkert á sig fá, þótt hún rifi andlit sitt og höndur á runnun- um, en hugsaði um það eitt að heyra alt sem sagt væri. Meðfram einstiginu var dálítil trjá- girðing, eins og títt er í Frakklandi, og hinumegin við hana grasi gróinn skurður. Þar gat Margrét falist og komist svo nærri þeim Chauvelin að ekki var nema faðmur á milli. — Hvar er «Kofinn hans Pére Blanchards« ? spurði Chauvelin. — Hann er við þennan veg, miðja vegu milli okkar og strandarinnar, svaraði hermaðurinn, sem hafði gerst leiðsögumaður þeirra. — Það er ágætt. Þú átt að fylgja okkur þangað. En áður en við för- um niður yfir klettana skaltu læðast heim að kofanum og skygnast eftir því hvort mennirnir séu þar. Skil- urðu það?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.