Morgunblaðið - 14.07.1914, Qupperneq 2
MOR6UNBLAÐIÐ
ii 66
um um ritsíma- og talsímakerfi ís-
lands nr. 35, 20. okt. 1913. Fltnm.:
B. Sv.
23. tölul. 3. gr. verði svo:
Hliðartalsímar tíl Hafnar
Bakkafirðj, Þórshafnar, Raufarhafnar
og Kópaskers.
63.
N.ál. um eignarnámsheimild f.
Hv.eyrarhr. Nefndin ræður til að
samþ. frv.
64.
Frv. til laga um landsdóm. Helztu
breytingar frá núgildandi landsdóms-
lögum (frá 20. okt. 1905) eru þess-
ar: Meðal 9 sjálfkjörinna lögfr. i
dóminum eru kennararnir i lagad.
Háskólans þrír. — Aðrir dómarar
eru 20, og kýs e. d. alþingis 7 og
n. d. 13, og aðrir 20 til vara. Kosn-
ing gildir fil 6 ára. — Kjörgengis-
aldur er færður úr 35 niður í 30
ár. Annars sömu skilyrði. — Sækj-
andi og verjandi ryðja hvor um sig
2 lögskipuðum og 5 kjörnum dóm-
endum. — 3 lögsk. og 8 kjörnir
dómendur verða að hafa hlýtt á alla
sókn og vörn og taka þátt í dóms-
uppsögn, svo að dómur sé lögmæt-
ur. Vanræksla dómara varðar 500—
5000 kr. sektum. — Þrjá fimtu þeirra
dóroenda, er taka þátt í dómsupp-
sögn þarf til þess að dómfella ákærða.
65.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um ritsíma og talsímakerfi ís-
lands nr. 25, 22. okt. 1912. — Flutn-
ingsm.: J. Jónss., Bj. Hallss., og
Þór. Benediktsson.
I 3. gr. laga um ritsíma og tal-
símakerfi íslands 22. okt. 1912, skal
talin talsímalína frá Egilsstöðum um
Unaós til Borgarfjarðar í Norður-
' Múlasýslu.
67.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um ritsíma- og talsíma-kerfi ís-
lands nr. 35, 20. okt. 1913.—
Flutningsm.: Stef. Stefánss., Eyf.
Á eftir 7. tölulið í 1. gr. laga nr.
35, 20. okt. 1913, bætist inn nýr
töluliður, er hljóðar þannig:
8. Talsimalínán Sauðárkrókur —
Siglufjörður.
68.
Till. til þingsályktunar um ráð-
stafanir gegn útlendingum út af not-
um þeirra á íslenzkri landhelgi og
höfnum hér á landi við ýms verk-
unarstörf á fiskifangi (síld). — Fltm.:
Stef. Stef., Eyf.
Neðri deild Alþingis ályktar að
skora á landsstjórnina, að rannsaka
með hverju móti verði girt fyrir það,
að útlendingar vinni að ýmsum
verkunarstörfum á fiskifangi (síld) á
útlendnm skipum á íslenzkum höfn-
um og í íslenzkri Iandhelgi, án
leyfis og án þess, að þeir greiði
önnur opinber gjöld, af atvinnu sinni
en útflutningsgjald af þvi, er þeir
taka á höfnum úr öðrum skipum.
Heimili gildandi lög að kippa
þessu í lag, skorar deildin á stjórn-
ina að hlutast til um, að það verði
gert. En þurfi nýja lagaheimild til
þess er skorað á stjórnina, að undir-
búa hana og leggja fyrir næsta Al-
þingi lagafrumvarp í þá átt.
69.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um aðra skipun á æðstu um-
boðsstjórn íslands nr. 17 frá 3. okt.
1903. — Fltm.: G.Eggerz, Bj. Hallss.,
J. Jónss., Þór. Benediktss., Þorl.
Jónss., og Stef. Stef. Eyf.
1. gr. Eftirlaun ráðherra skulu
afnumin þegar hin nýju stjórnar-
skipunarlög ganga í gildi.
2. gr. Úr lögum er numin 3.
gr. laga um aðra skipun á æðstu
umboðsstjórn íslands, frá 3. okt.
1903.
70.
Frv. til laga utp breyting á lög-
um nr. 60, 30. júlí 1909.S—Fltm.:
Sk. Th. þ. m. Norður-ísfirðinga.
ísafjarðarlæknishéraði skal skift í
tvö læknishéruð, ....
71-
Frv. til laga um breyting á lög-
um um ritsíma- og talsíma-kerfi ís-
lands, nr. 25, frá 22. okt. 1912. —
Fltm.: Sk. Tb., þm. Norður-ísf.
Aftan við 3. gr. bæfist:
Símalínan til Æðeyjar og Snæ-
fjalla í Norður-Isafjarðarsýslu, og
þaðan að Höfða í Grunnavík, til
Látra í Aðalvík (um Hesteyri),
og frá Hesteyri að Höfn á Horn-
ströndum.
72.
Frv. til laga um breyting á lög-
um um skipun prestakalla nr. 45,
frá 16. nóv. 1907. — Fltm.: Sk. Th.,
þm. Norður-ísfirðinga.
1. gr. Hóls-sókn í Bolungarvík
í Norður-ísafjarðarprófastsdæmi skal
vera sérstakt prestakall.
Fundur kl. 12 í dag.
Dagskrá:
1. Frv. til laga um undanþágu frá
ákvæðum 1. gr. í siglingalög-
um (18, n. 57); 2. umr.
2. Breyt. á bæjarstj. i Rvík (20,
n. 32); 2. umr.
3. Frv. til laga um breyt. á lög-
um nr. 86, 22. nóv. 1907(46);
2. umr.
4. Frv. til laga um mæling og
skrásetning lóða í Rvík (19, n.
S3); 2. umr.
5. Frv. til laga um mat á lóðum
og löndum í Rvík (36); 2. umr.
6. Frv. til markalaga (25); 1. umr.
7. Till. til þingsál. um birtingu
fyrirhugaðra löggjafarmála (44);
ein umr.
8. Till. til þingsál. um hlutafél; og
endurskoðun á 26. kafla hinna
alm. hegningarlaga (59); hvernig
ræða skuli.
Efri deild:
Fundur kl. 1 í dag.
Dagskrá:
1. Frv. til laga um varnarþing í
einkamálum (83); 2. umr.
2. Frv. til laga um breyt. á lög-
um um vegi nr. S7, 22. nóv.
1907 (75); I- umr-
3. Till. til þingsál. um ísl. fánann
(79); hvernig ræða skoli.
4. Till. til þingsál. um að skipa
nefnd í stjórnarskrána (77);
hvernig ræða skuli.
5. Till. til þingsál. um að skipa
nefnd i fjáraukal. (78); hvernig
ræða skuli.
Altarl og altarismynd dóm-
kirkjnnnar.
Herra ritstjóri!
Færi ekki betur á því, að tjald
væri dregið fyrir altarið og altaris-
töfluna í dómkirkjunni meðan verið
©r að gera við kirkjuna? Lit-
irnir á altaristöflunni verða ekki
skýrari við ryk það, sem er óum-
flýjanlegt við hverja viðgerð sem er,
og auk þess særir það tilfinningar
trúhneigðra manna að sjá altari og
altarismynd gnæfa upp úr moldar-
og grjótrústum. B.
Vér teljum vafalaust, að þessari
bending verði tekið fljótt og vel.
Ritstj.
-------------------------------
1=3 DAGBÓFJIN. I=3
Afmæli f dag:
Björn M. Olsen prófessor.
Gísli H. Gíslason trósm.
Halldór Jónasson cand. phil.
Ólafur Briem, Viðey.
W. Gottlieb veitingam.
Þorl. Andrésson pípugerðarm.
Sólarupprás kl. 2.41.
Sólarlag kl. 10.24.
HáflóS f dag kl. 9.35.
og kl. 9.57.
Þjóðminningardagur Frakka (Bastille-
dagurinn).
Þjóðmenjasafnið opið.
P ó s t a r í dag:
Póstvagn til Ægissíðu.
P ó s t a r á morgun:
Ingólfur fer til Borgarness og kemur
samdægurs.
Veðrið f gser:
Rv. logn, hiti 11.3.
íf. a. andvarl, hiti 9.8.
Ak. logn, hiti 10.0.
Gr. logn, hiti 1.3.
Sf. logn, hiti 7.9.
Vm. logn, hiti 10.3.
Þh. F. logn, hiti 10.0.
A f misskilningi hefir hr. Árni Jó-
hannesson verið nefndur lautinant í
Morgunblaðinu. Hann er nú kapteinn.
Á morgun er útrunninn umsókn-
arfrestur um Eyrarbakka-læknishórað.
Þessir eru umsækjendur: Gísli Pét-
ursson Húsavík, Konráð Konráðsson,
settur læknir á Eyrarbakka, IngóJfur
Gíslason Vopnafirði og Ólafur Ó. Lár-
usson Brekku.
I.'. —... :■ e-TT:
Ólafur Þorsteinsson eyrna-
læknir ætlar til útlanda 16. þ. m. og
er ekki væntanlegur heim fyr en um
miðjan septembermánuð. Hann ætlar
til Kaupmannahafnar og Berlín til að
sjá n/justu aðferðir í sinni sórfræði-
grein.
G i f t i n g. Ungfrú Sigríður Jóns-
dóttir (prests Sveinssonar á Akranesi)
og Dr. Konmð Konráðsson voru gefin
saman í hjónaband á heimili brúðar-
innar 11. þ. m. Morgunblaðið óskar
þeim til hamingju.
D r. Ó. S t e i n b a c k, tannlæknir
frá ísafirði, er hór staddur. Ilann er
á leið til útlanda; ætlar að vera á al-
þjóðaþingi tannlækna f London í næsta
mánuði. Ætlar um leið að hitta syst-
ur sína, sem er gift og búsett í London.
PrófjGuðm. Magnússon fer
' upp í Borgarfjörð á morgun og dvelur
þar þriggja vikna tíma við laxveiðar.
P 0 11 u x fór hóðan í gærkvöldi.
Meðal farþega : Grímúlfur H. ÓJafsson
Skrifari bæjarfógeta, tók sór skemtiför
til Skagafjarðar, jungfrú Lára Blóndal,
jungfrú Sigr. Nielsen, jungfrú Sofía
Ólafsdóttir 0. m. fleiri.
Ferðabréf.
Morgunblaðinu hefir borist blaðið
Scotsman með grein eftir Mr. Dou-
glas, sem hingað kom á Ermine f
fyrra mánuði. Segir hann þar ferða-
sögu sína.
Hann fer fám orðum um ferðina
í upphafi greinarinnar, og lætur þar
þess getið, að sólarlagið hafi verið
mikilfenglegt, kvöldið sem þeir fóru,
enda var til þess tekið hér, af öllum
sem sáu það.
Þá er stuttlega minst á bókment-
ir vorar og tungu. Óánægður er
þessi maður út af bannlögunum,
segir þau virðist bera vott um skyn-
semiskort (lack of wisdom). »Það eru
til menn«, segir hann, «sem eru
nógu framsýnir og víðsýnir til þess
að gera sér grein fyrir, hvað þessi
hefni-lög verða íslandi, og þeir vona
að þessi heimskulegu lög verði úr
gildi numin. Ef það verður ekki,
þó þarf varla að geta þess, að þá
vírðist mörgum þeim löndum, sem
íslandi vilja vel, sem hér hafi verið
unnið mikið óhapp (fatal mistake). er
aðallega verður til þess að auglýsa
það öllum heimi, að ísland sé land
umburðarleysist.
Þessu næst er lýsing á landinu
og hefir höf. allmikla trú á fram-
förum þess, bæði í búnaði og <fisk-
veiðum.
Smávegis missagnir eru í grein-
inni, en engar stórvægilegar nema
sú, að engir útlendingar geti átt hér
eignir nema fyrir milligöngu innbor-
inna manna. Telur höf. litlar líkur
til að Englendingar vilji verja fé sinu
til hérlendra framkvæmda meðan
svo sé. Segir Dani of fátæka til að
verja fé sínu á Islandi, sem þeir telji
nýlendu sína.