Morgunblaðið - 19.09.1914, Side 1
Laiigard.
1. argangr
19.
sept. 1914
MORGDNBLADID
315.
tölublad
Ritstjórnarsími
nr. 500
Ritstjóri:
Vilhjálmur Finsen.
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslnsimi nr. 140
Biografteater
Reykjavlknr.
Tals. 475
Eríendar símfregnir
Mirzi.
(vonda stjúpan) leikrit i 3 þáttum
Stór, fögur og áhrifamikil mynd.
Leikin af alþektum dönakum leikurum,
þar á meðal:
Systrunum Sannom.
[ Bio-Kafé er bezt.
[ Slmi 349. Hartvig Nielsen. ’
Skrifsfofa
Eimskipafélags Ísíands
Landsbankanum (uppi).
Opin kl. 5—7. Ta(s. 409.
Hjörtur Hjartarson yfirdóms-
lögmaður. Bókhl.stíg 10. Simi 28,
Venjul. heima 12V2—2 og 4—J1/^.
Notið sendisvein frá
Sendisvelnastöðinnl
(Söluturninum).
Sími 444.
Hið margeftirspurða
Zephyr hálstau
er nú komið aftur í
Vöpuhúsið.
Nýja verzlunin
— Hverfisgötn 34 (áður 4B) —
Flestalt (utast og inst) til kvenfatnaðar
og barna og margt fleira.
GóBar vörur! — Odýrar vörurl
Kjölasaumastofa byrjaði 1. sept.
Fastar »Bíl«-ferðir milli Hafn-
arfjarðar og Reykjavikur hefjast þ. 18.
þ. m. Frá Reykjavík: kl. 10, 1, 3,
6 og 9. — Burtfararstaður í Rvík:
Hafnarstr. 8.
Reykjavík 17. sept. 1914.
Gunnar Gunnarsson.
Bæjarstj.fundur
17. sept. 1914.
Fundurinn var settur kl. 5.10.
Þessa fulltrúa vantaði: Guðrúnu Lár-
usdóttur, Bríetu, Jóhann og Svein
Björnsson, sem nú er erlendis.
1. Bygginganefndargerðir frá 12.
sept. samþ. i einu hljóði.
Hrindi frá Gunnari Gunnarssyni
leyfi til þess að mega reisa skúr;
samþ.
Veganefndagerðir samþ.
Hátækranefndargerðir samþ.
Tveir fátækrafulltrúar höföu sótt
London 17. sept. kl. 6 síðd.
Óvinirnir veita enn viðnám fyrir norðan Aisnefljótið, en virð-
ast þó fremur láta lítið eitt undan síga.
Afturfylking Þjóðverja hefir fengið hjálparlið frá meginhern-
um og verjast þeir á öllu orustusvæðinu.
Víða í framfylkingunum hefir liðið verið aukið til muna.
Framfylkingin nær nú frá Noyon norður fyrir Verdun og Metz.
Horfurnar eru bandamönnum mjög í vil. Það er sókn af þeirra
hálfu á orustusvæðunum, bæði í Frakklandi 0g í Galiciu.
Rússar halda áfram sigurvinningum í Galiciu. Þeir hafa tekið
Lisko, sem hefir mjög mikla hernaðarþýðingu.
Rússar tilkynna að síðan Lemberg féll hafi fallið og særst 250
þús. Austurrikismanna og 100 þús. hafi verið teknir tll fanga, 400
fallbyssum náð og ógrynni af farangri.
Hinsvegar játa Serbar, að á norður-landamærum Serbíu, við
Savefljótið, að Serbaher hafi verið kallaður aftur af hernaðarlegri
nauðsyn. R e u t e r.
N o y o n er smáborg í héraðinu Oise i norður Frakklandi. Þar er
aðalstöð norðurjárnbrautarinnar. íbúar eru nær 7 þúsund.
L i s k o er þorp i Galiziu og stendur við ána San þar sem járn-
brautin liggur milli Nýa Zágorz og Przemysl. íbúar eru 4300.
um lausn (Árni Einarsson og Jónas
Guðbrandsson) og hinn þriðji (Davíð
Jóhannesson) gat ekki lengur gegnt
þeim starfa. í fátækranefnd hafa til
þessa setið 9 menn, en nefndin
lagði það til að þeir skyldu eftirleið-
is 16. Lá því fyrir fundinum að
kjósa 10 og hlutu þessir kosningu,
eftir uppástnngu nefndarinnar:
1. Einar Þorsteinsson, Lindarg. 19
3. Gisli Björnsson
4. Gisli Þorbjarnarson búfr.
2. Flosi Sigurðsson, trésm.
5. Helgi Helgason, bókhaldari
6. Jakob Árnason, Vesturg. 23
7. Kristinn Magnússon, Túng. 30
8. Samúel Ólafsson, söðlasm.
9. Sigurður Jónsson, bókbindari
10. Valentinus Eyólfsson, verkstj.
Breytinq Bafnarverðarinnar, önnur
umræða. Samþykt var tilboð Mon-
bergs um smíði á þkipalægi með
fram fjörunni frá steinbryggjunni og
vestur að Geirsbryggju, með öllum
greiddum atkv. gegn einu (Þorv.)
Vatnsað að Héðinshðtða, önnur
umræða. Borgarstj. gat þess, að
yrði vatnsæðin lögð eins og vatns-
nefndin hefði áætlað, mundi hún
gefa 16% ar® á iri. En það er
með því móti að h./f. Defencor
taki úr henni vatn til fiskþvotta.
Jón Þorl. kom með þá fyrirspurn,
hvort hlutafél. hefði gert ráðstafanir
til þess að fá vatn annarsstaðar að,
og vissu menn eigi til þess. Tryggva
gazt eigi að þessu og ávítti bæjar-
stjórnina fyrir að vilja nú veita fé
utan fjárhagsáætlunar til þessa. Kvað
hér ráða hlutdrægni og mundi þetta
ekki hafa verið gert fyrir neinn
nema Einar Benediktsson. Var þó að
síðustu samþ. að leggja vatnsæðina
með því móti að Defencor tæki úr
henni vatn til fiskþvotta.
Forkaiipsréttur að landi við Rauð-
ard. Borgarstjóri gat þess að nú
hefði Rauðarárlandið verið mælt upp
að nýju eftir ósk siðasta bæjarstjórn-
arfundar, og hefði það reynst 2,63
dagsl. stærra en Rauðará ætti í raun
og veru. En hver dagslátta er þar
virt á 2400 krónur, svo það er ekki
lítil eign sem bærinn á þarna án
þess að hann hafi vitað af þvi til
þessa.
Um málið urðu talsverðar um-
ræður. Fyrst og fremst var am
það rætt hvar þetta land bæjarins
mundi liggja í þeirri spildu er afgirt
væri og kom mönnum saman um
að það mundi vera niður við sjó.
Nú hefði verið mælt niður að flæð-
' armáli, en áður mundi það tæplega
hafa verið gert, þegar landinu var
úthlutað til ræktunar, enda merki
víðast hvar glögg nema þar. En
það vissu menn að útgerðarfélag
mundi vilja kaupa landið (þessar 10
dagsl. sem Þorlákur Vilhjálmsson
hefir boðið bænum forkaupsrétt að)
og því eðlilegt að það vildi hafa
landið alveg niður að sjó. Sýndist
þá réttast að taka bara vissan hiuta
af fé þvi er fyrir landið kæmi, en
skeyta síður um hitt hvern blettinn
bærinn ætti og hvern eigi. — Þá
var og rætt um það hver skilyrði
bærinn ætti að setja þeim mönnum,
sem vildu breyta erfðafestulöndum i
fiskreita. Urðu menn sammála um
það að þeir, sem leyfi fengju til
þess, yrðu að sjálfsögðu að greiða
eitthvert vist gjald i bæjarsjóð og
NÝJA BÍÓ
Háskaleg ritvilla.
Fallegur amerískur sjónleikur.
Aðalhlutv. leikur M. Costello.
Skókreppan.
Mjög semtilegur gamanleikur
um skóhvarf og ráðagóðan ungan
mann.
var því skotið til fasteignanefndar
að sjá um það að einhverjar fastar
reglur yrðu settar þessu víðvíkjandi.
Nú vanta þær alveg. — Þá var og
drepið á það, hvert gjald Rauðarár-
bóndi ætti að greiða fyrir afnot þessa
bæjarlands í öll þessi ár sem hann
hefir haft það (síðan 1889), en eng-
in ákvörðun tekin um það, sem ekki
var von, því það verður að sjálfsögðu
samkomulagsatriði.
Að siðustu var samþ. svolátandi
tillaga:
Með því að bærinn á eflaust 2,63
vallardagsláttur innan Rauðarárgirð-
ingarinnar og að því er virðist í
landi því, er nú á að selja, þá getur
bæjarstjórnin ekki afsalað sér for-
kaupsrétti á þessum fundi, en vísar
málinu til fasteigannefndar og leggi
hún fram till. sínar á næsta bæjar-
stjórnarfundi.
Leyndardómsfult bréf. Borgar-
stjóra hafði borist tilkynning frá
Jóni Þorkelssyni landsskjalaverði um
það, að á Landsskjalasafninu væri
geymt innsiglað bréf til bæjarstjórn-
arinnar og mætti það ekki opnast
fyr en 2. júlí árið 1961. Innsiglin
fyrir bréfinu eru þrjú og stendur á
þeim: Ólafur Sveinsson, Ó. J. og
Sig. Halldórsson.
Hvað mun vera í bréfinu ? Er
það erfðaskrá ? Skyldi nokkur okk-
ar lifa það að sjá það opnað?
Þessar spurningar lágu á vörum
allra fulltrúanna og sumstaðar hrutu
þær af vörunum. Forvitnin er
manninum meðfædd gáfa og gott
er það að bréfið liggur ekki á
»glámbekk«, því skeð gæti ella að
efni þess yrði kunnugt fyr en til
er ætlast. 1961 — 46 ár I Það
er langur tími að bíða eftir einnu
bréfi og reynir bæði á þolinmæði
og lifseigju. En við skulum reyna
að bíða — í Herrans nafni og
fjörutíu!
Brunabótavirðingar:
Hús Árna Einarssonar, Laugavegi
28 A, kr. 9679,00.
Hús Arna Jóhannssonar, Spítala-
stig 3, kr. 6255,00.
Húseignir Einars Helgason, Gróðr-
arstöðinm, kr. 14091,00.