Morgunblaðið - 30.11.1914, Síða 2

Morgunblaðið - 30.11.1914, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ til að finna hvað skotfærið var langt. Er þau höfðu skotið þrisvar úr fall- byssum sínum kom upp eldur bæði í »Good Hope« og »Monmouth« og logaði alt af í þeim þangað til klukk- an var tæplega hálf 8. Þá urðu stórkostslegar sprengingar miðskips á »Good Hope« og stóð blossinn 200 fet i loft upp. Hlýtur skipið að hafa gjöreyðilagst. Nú var orð- ið aldimt. Skipin héldu enn þá áfram að skjótast á og miðuðu á blossana úr fallbyssum hvors annars. Stafninn á »Monmouth« var nú far- inn að síga í sjóinn og sneri skipið þá við til að snúa skutnum í öld- una. Klukkan hálf 9 sendi »Glas- gow« skeyti til »Monmouth«: »Óvinirnir elta oss«, en fekk ekkert svar. Tunglið var þá að koma upp og sá »Glasgow« þá að óvinaskipin nálguðust og þar sem skipstjóri sá að hann gat ekki veitt »Monmouth« neina aðstoð, hélt hann undan, til þess að skip hans yrði eigi eyði- lagt. Þegar klukkan var 20 mínút- ur gengin í 10 sáu skipverjar á »Glasgow« 75 blossa og telja víst að það hafi verið síðasta skothríð óvinanna á »Monmouth«. Bryndrekkinn Conopus. Brezka stjórnin hefir fengið fréttir um það hvers vegna bryndrekinn Canopus tók engan þátt í sjóorustunni. Hann var alllangt á brott þegar hann fekk skeyti um orustuna, en hann fer ekki nema 16 sjómílur á klukku- stund og kom því of seint til sög- unnar. Kvikmyndaleikhús in. Nýja Bíó. Sporhundarn- i r heitir ný mynd, sem nú er á sýningarskrá í Nýja Bíó. — Flestir munu hafa ánægju af að lesa leyni- lögreglusögur Sherlock Holmes, en enn fleiri munu með ánægju horfa á þessa mynd, er sýnir margar helztu svaðilfarir leynilögreglunnar oghversu þeir ganga með lifi og sál upp í starfi sínu. Vér sjáum þá meðal annars elta veiðidýrið á bifreiðum og eimreiðum — kappakstur á eimreið- um — sem er ákaflega »spennandi«, sjáum þá henda sér af eimreiðinni á fullri ferð til þess að grípa bráðina o. s. frv. — Engi mun sjá eftir aurunum, sem hann ver til þess að sjá þessa mynd, því það er ágæt skemtun. Z. --------«0*0»------- Kr. 2450 fyrir kr. 18. Lundúnablaðið Times hefir safnað liðlega hálfri miljón sterlingspunda handa rauða krossinum. Meðal gjafa þeirra sem blaðið fékk var fyrsti pundseðillinn sem var gefinn út á Englandi 1 sumar. Númerið á honum var Aooo,oox. Síðan aug- lýsti blaðið að seðill þessi yrði seld- ur hæstbjóðanda kl. 12 á hád. mið- vikudaginn 18. nóv. — Hæstbjóð- andi varð maður að nafni E. Evans ogfékk hann seðillinn fyrir tæpt 136 sterlingspund. ----- DAGÖÓfJIN. C=3 Afmæli í dag: Guðm. Guðmundsson verzlm. Jónas Andrésson verzl. Jóla- og nýárskort fást hjá Helga Árnasyni í Safnahúsinu. Sólarupprás kl. 9.43 f. h. S ó 1 a r 1 a g — 2.47 síðd. H á f I ó ð í dag kl. 3.35. f. h. og kl. 3.53. e. h. G i f t 28. þ. m. ungfrú Dagbjört Þorsteinsdóttir og Þorvarður Seindórs- son trósm., bæði á Skólavörðustig 33. 132 manns búa nú í Bjarnaborg. Mun það flest fólk í einu húsi hór á landi. Sterling er væntanlegt hingað frá Yestfjörðum í dag. Draugagangurinn í Helli. Enn fleiri sögur hafa komið þaðan að audtan. Ólafur læknir ísleifsson fór þangað fyrir hönd ísafoldar og birtist frásaga hans í laugardagsblaði ísafoldar. Ingólfur birtir langa grein í gær um »draugaganginn« og ber þar margt á góma. En hvers vegna fer enginn af gömlu Tilraunafólagsmönnunum austur og grenslast eftir hvernig á þessum fyrirburðum stendurl Það mundi verða vatn á mylnu »spiritista« ef það reynd- ist svo, að þarna væri eitthvað annar- legt á sveimi. í k v ö 1 d er væntanlegt skeyti frá ráðherra um það, hver afdrif stjórnar- skráin og fáninn fær. Kjörfundurj verður haldinn hór í barnaskólanum í dag. A þá að kjósa menn í niðurjöfnunarnefnd. Nú er ekki um marga lista að velja — að eins tvo. — Sjálfstæðismenn standa að baki öðrum þeirra, en »Fram« menn að baki hins. í s 1. g 1 í m a n: Er okkar íþrótt. Lærið að glíma. Gangið í Ármann. ---------------------- Tyrkir skjóta á Bandaríkjamenn. Þegar Tyrkir lentu i ófriðnum sendu Bandaríkjamenn herskip til smyrna til þess að gæta þar hags- muna Bandaríkjaþegna. Þegar »Ten- nessee«, svo hét herskipið, kom til Smyrna, sendi það gufubát inn á höfnina til að fá leyfi til innsigling- ar á höfnina. Tyrkir skutu á bát- inn, svo að hann hélt þegar út til skipsins. Skipið lagði síðan frá landi. Stjórnin í Bandaríkjunum hefir beð- ið sendiherra sinn 1 Miklagarði að fá skýringu hjá Tyrkjastjórn á þessu atferli, en svar var ekki komið frá þeim 20. þ. m. Kosningin í dag. Kjósið B-listann. Hann er svona: Eggert Briem, skrifstofustjóri. Jóhannes Hjartarson, verzlm. Jóhannes Magnússon verzlm. Flosi Sigurösson, trésmiður. Gunnl. Pétursson, umsjónarm. Ben. S. Þórarinsson, kaupm. Einar Þorsteinsson fátækrafulltr. Andrés Andrésson, verzlm. Aætlun um tekjur og gjöld Reykjavíkurkaupstaðar áriO 1915. T e k j u r: 1. Eftirstöðvarfrá fyrra ári ............... . kr. 65000.00 2. Tíund af fasteign og lausafó ............. — 250.00 3. Tekjur af bygðri og óbygðri lóð ......... — 13000.00 4. Landskuld af jörðum — 1250.00 5. Leiga af erfðafestu- löndum .............. — 5500.00 6. Leiga af húsum, tún- um, lóðum m. m ... — 1000.00 7. Tekjur af laxveið- inni í Elliðaánum... — 6500.00 8. Hagatollur........... — 1400.00 9. Tekjur af ístöku, 35 aur. pr. ten. meter — 800.00 10. Tekjur af lóðasölu — 7000.00 11. Tekjur af seldum erfðafestulöndum ... — 4000.00 12. Tekjur eftir bygg- ingarsamþykt ........ — 1000.00 13. Tekjur af vatnsveit- unni ............... — 55000.00 14. Endurborgun lána til húsæða .............. — 1000.00 15. Tekjur af gasstöðinni — 34000.00 16. Sótaragjald . ...... — 5000.00 17. Hundaskattur ....... — 300.00 18. Endurgold. fátækra- styrkur frá innan- sveitarmönnum ... — 1500.00 19. Endurgold. fátækra- styrkur frá öðrum sveitum............. — 12000.00 20. Styrkur frá lands- sjóði til barnaskól- skólansog skólagjöld — 6300.00 21. Tekjur frá grunneig- endum til holræsa og gangstétta ........— 5000.00 22. Salernahreinsunar- gjald ............. — 5000.00 23. Sundkenslustyrkur úr landssjóði...... — 300.00 24. Óvissartekjurbæjar- sjóðs .. ............ — 3500.00 25. Lán : a. Til holræsa ..... — 12000.00 b. Til gatnaoggang- stótta ........... — 16000.00 c. Til aukningar gas- stöðvarinnar.... — 30000.00 d. Til mælinga og skrásetninga lóða — 12000.00 26. Niðurjöfnuneftirefn- um og ástæðum með 5—10°/0 umfram ... — 169949.38 16,000,000 pd. sterling. ítalska ráðuneytið ákvað um miðj- an þennan mánuð að verja 16.000.000 sterlingspundum til herkostnaðar um fram það fé, sem venjulega er veitt í því skyni. Fé þetta á að nota til þess að gera herinn svo úr garði, að hann sé við öllu búinn. Manntjón Breta. Enska stjórnin var spurð að þv* skömmu eftir að þing var sett i nóvember, hve manntjón Breta væb mikið. Asquith stjórnarformaðut svaraði fyrirspurninni á þá leið að tii 31. október hefðu þeir látið 57.000 manna (fallnir, særðir og fangar). Enska stjórnin segist ekk- ert geta sagt um manntjón banda- manna sinna né óvinanna. Rússar i Austur-Rrússlandi. Frá Berlin er símað til Knup- mannahafnar 14. þ. m. að Rússar leggi herskatt á borgir þær, sem þeir taka í Austur-Prússlandi og að her- skattur þessi sé tiltölulega eins hár og herskattur sá sem Þjóðverjar leggja á belgiskar borgir. Ófriðarsmælki. Þingmaður fellur. Arthur Edward Bruce O’Neill, elzti sonur O’Neill lávarðar og þingmaður fyrir Mið-Antrim, fóll í orustu þ. 4. nóv., 38 ára gamall. Þetta er fyrsti þing- maður Englendinga, sem fellur í ófriðn- um. Vasabók bjargar mannslífi Hermaður nokkur, sero liggur á spítala í Edinborg, gætir vasabókar sinnar, sem sjáaldur auga síns. Hann særð- ist í handlegg, fyrir nokkru: »0g ef að þesssi hefði ekki verið«, sagði hann um leið og hann dregur upp þvælda vasabók úttroðna af póstkort- um; »þá væri eg ekki lifandi«. Sprengi' kúluflís hefði lent á henni og stöðvast < póstkortunum. Útlendingar af óvinaþjóðunun) í Prússlandi, sem eru 15 ára eða eldri, verða að hafa vegabróf með sér, og sýna það lögreglunni sjálfir tvisvar á dag; þeir mega ekki fara úr því lög' sagnarumdæmi, sem þeir búa í, án leyfis lögreglunnar. Þeir verða að far» heim til sín kl. 8 á kvöldin og ekki út fyr en kl. 7 á morgnana. Skúffjóíkar TMllur Svunfupör Stafir grafnir á þau frítt. Margir aðrir fallegir og velgerðit Silfurmunir hjá Birni Símonarsyni, gullsmið, Vallarstrætt 4-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.