Morgunblaðið - 04.04.1915, Blaðsíða 2
2.
MORGUNBLAÐIÐ
Karpatafjöllum. Rússar náðu þýð-
ingarmiklum hæðum hjá Uszok, 2300
menn teknir höndum.
-----------------
Þegar Belgía
rís úr rústum.
í síðastliðnum septembermánuði
voru ýmsir samskotasjóðir stofnaðir
í Bretlandi, Belgum til hjálpar. Þar
voru meðal annars : The Everyman
Belgian Relief and Reconstructur
Fund, sjóður Society of Friends og
The Repatriation Fund. Hinum 2
fyrst nefndu sjóðum á að verja bæði
til þess að hjálpa Belgum nú þegar
til þess að halda í sér lífinu og eins
til þess að reisa landið úr rústum
þegar þar að kemur. Hinn síðast
tiefndi sjóður er eingöngu ætlaður
til þess að byggja landið aftur. Þeg-
ar Þjóðverjar hafa verið hraktir á
braut úr Belgíu, á að sameina alla
þessa sjóði og endurreisa landið.
Það er ef til vill nokkuð snemt
að tala um hvernig að því skuli
farið. En þeir, sem hafa áhuga fyrir
því máli, munu hafa gaman af að
heyra hvað Mr. Seebohm Rowntree
segir um það efni í »The Friends
Quarterly Examiner*. Mr. Rown-
tree er Belgíu kunnugri en nokkur
annar Englendingur, og mun óhætt
að bæta því við, að hann sé laud-
inu flestum Belgum kunnugri. Hér
er eigi rúm til þess að rekja vand-
lega tillögur hans, en geta má þeirra
í stuttu máli:
Þeir menn sem hafa vilja til þess
að hjálpa Belgum, ættu ekki að láta
sér það eitt lynda, að skjóta yfir þá
skjólshúsi. Sá tími kemur fyr en
varir að belgísku flóttamennirnir geta
snúið heim til ættjarðar sinnar aftur,
og því fyr, sem það verður, því
betra. En hvernig eiga þeir að hefja
starf sitt þar í hrundum húsum og
verkfæralausir, útsæðislausir og ails-
lausir ? Þeir eiga ekki einusinni
kvikfé eða peninga, sem nauðsyn-
lega þurfa til þess að byrja búskap
eða hverja aðra atvinnu.
Hugmyndin er sú, að safna svo
miklu fé, að Belgum verði séð fyrir
lífsviðurværi fyrst í stað, eftir að
bandamenn hafa hrakið Þjóðverja frá
stöðvum þeim og víggirðingum, sem
þeir hafa á valdi sínu nú í svipinn.
Við hyert fótmál af landi, sem banda-
menn vinna, á að senda þangað belg-
íska flóttamenn frá Englandi og
Frakklandi til þess að rækta það
land, sem ófriðurinn hefir gert að
eyðimörk og reisa það úr rústum.
Sumir munu nú ef tfl vill segja:
»Hvers vegna eiga ekki Þjóðverjar
að láta þetta fé af hendi rakna«? —
Fyrst og fremst er þá því til að
svara, að það er efasamt hvort Þjóð-
verjar verða nokkru sinni færir um
að endurgjalda það tjón, sem þeir
hafa unnið þarna. Sumir menn hafa
lásið í ljós, að þeir séu þess vissir,
að Þjóðverjar verði aldrei færir um
það. En hér kemur einnig annað
til athugunar. Við vitum ekki hve
langur tími líður frá því að fyrstu
héruðin í Belgíu verða unnin aftur,
og þangað til friður verður saminn.
Það verður ef til vill missiri og ef
til vill ár. Eiga þá belgísku verka-
mennirnir að bíða allan þann tíma,
eða á ekkert að hjálpa þeim til þess
að endurreisa land sitt, bæ eftir bæ
og sveit eftir sveit ?
(Úr enskum blöðurn frá 24. marz).
DAGöORIN. C=3
Afmæli í dag:
Jón Eyvindsson, verzlm.
Ludvig Jakobsson, bókbindari.
Afmæli á morgun.
Marta M. Helgason, húsfrú.
Sveinbj. K. Th. Armannsdóttir, húsfrú.
Þóra Jónsdóttir, jungfrú.
Kr. Kristjánsson, járnsmiður.
Þorst. Þorsteinsson, hagstofustjóri.
Þorvaldur Eyjólfsson, skipstjóri.
f. Joseph Lister 1827.
Afmæliskort selur Friðfinnur Guð-
jónsson, Laugaveg 43 B.
Sólarupprás kl. 5.40 f. h.
S ó 1 a r 1 a g — 7.22 síðd.
Háflóð er í dag kl. 8.18 f. h.
og — 8.45 e. h.
í nótt kl. 9.12 árd.
á morgun kl. 9.44 síðd,.
Veðrið í gær:
Vm. a. stormur, regn, hiti 1,4.
Rv. a. hvassvigri, regn, hiti 1,0
ísaf. logn, frost 3,7.
Ak. s. stinnings kaldi, frost 1,5.
Gr. sa. snarpur vindur, frost 4,0.
Sf. n.a. stinnings kaldi/frost 2,0
Þórsh., F. s.a. kaldi, hiti 5,5.
Morgunblaðið kemur ekki út á
morgun, annan í páskum.
Ceres kom hingað í fyrrakvöld frá
Isafirði. Hefir hún verið þrjár vikur
á leiðinni frá Fáskrúðsfírði, enda tafist
af ís. Þrisvar varð hún að leita inn á
Reykjarfjörð undan ísnum. Meðal
farþega voru : Kristján Jónsson ritstj.
»Vestra«, Jón Auðunn bankastjóri^og
Arni Sveinsson frá ísafirði; Kristján
Torfason kaupm. frá Flateyri; alþing-
ismennirnir Hákon Kristófersson í
Haga og Jósef Björnsson; Björn Sigfús-
son á Kornsá; Jón Edvald Samúelsson
kaupmaður, Karl Olgeirsson verzlunar-
stjóri og margir fleiri. Skipið lá hór
í gær vegna hvassviðris; fer hóðan til
Leith og Kaupmannahafnar.
Dórnur er nylega fallinn yfir Jóni
Ögmundssyni, |þeim er stal hestinum
í fyrra og drap hann síðan suður í
Gar|5ahrauni. Var Jón dæmdur í 3 ára
hegningarhússvist, en er nú veikur og
liggur á sjúkrahúsinu.
Vesta kom til Vestmanneyja í gær-
morgun og lá þar í gærdag.
Nýtrúlofuð eru Margrét Sveinsdótcir
jungfrú og Jóel Jónsson skipstjóri.
Morgunblaðið flytur hjónaefnunum
heilla óskir.
t
Skilnaðarhugleiðingar heitir bæk-
lingur, sem Gísli Sveinsson yfirdóms-
lögmaður hefir samið, og er nýútkom-
inn á kostnað Fjallkonu útgáfunnar.
Síðan greinin um sundskálann birt-
ist í Morgunblaðinu á sunnudaginn,
hafa þvi borist margar greinar um
sama efni og tillögur um það hvar
skálinn skuli standa. Fara þær allar
í eina átt — að sjálfsagt só að flytja
hann til Örfiriseyjar.
Nýlátinn er hér í bænum Snæbjörn
Þorvaldsson fyrverandi kaupmaður.
Var hann nú kominn á sjötugsaldur.
Hann var tengdafaðir þeirra Þór. B.
Þorlákssonar og Jóns Jónssonar sagn-
fræðings, en bróðir þeirra Böðvars og
Vilhjálms kaupmanna á Akranesi og
Jóns konsúlsritara hór í Reykjavík.
Ceres fór til útlanda í gærkvöldi.
Með skipinu tók sér fari Fr. Nathan
stórkaupmaður.
Utan af landi.
Frá ísaflrði.
Maqnús bœjarjógeti Torjason hefir
fyrir nokkru ritað all-langa grein,
sem nefnist »Stjórnarskrárbreytingin«.
Var hún seld á götunum sérstak-
leg, fyrir ro aura. Knésetur bæjar-
fógeti þá Hannes Hafstein og síra
Sigurð í Vigur. Svarar Vigurklerk-
ur pésa bæjarfógeta í Vestra i all-
langri grein. Kallar hann bæjarfóget-
ann »Skolla«, en pésann »Skolla-
blindu*.
Síra Þorvaldur Jónsson hefir sótt
um lausn frá prestsskap. Er hann
einn af elztu prestsvígðum mönnum
landsins, þar sem hann hefir verið
prestur samfleytt 44 ár.
Maður nokkur, Olafur Guðmunds-
son að nafni, gekk nýlega yfir þvera
Glámu úr Múlasveitinni yfir f Skut-
ulsfjarðarbotn. Er fjallvegur þessi
langur og mjög sjaldfarinn, en það
er í annað sinn sem Ólafur þessi
fer hann. 12 stundir var hann á
fjallinu, og þykir það áræði eigi lít-
ið af einum manni, að leggja á
Glámu um þenna tíma árs..
Hajls er nú heldur minni í Djúp-
inu. Hann hefir tálmað mjög sjó-
ferðum úr veiðistöðvum vestra, en
afli hefir verið dágóður, bæði i Súg-
andafirði og Bolungarvík, þegar menn
hafa komist á sjó.
Hr. 01. Pálsson hefir gengist fyrir
samskotum í sjóð Belga í Nauteyrar-
hreppi. Hafa alls safnast þar 110
kr., sem Vestri hefir veitt móftöku.
Guðm. Hannesson lögm. og ko°'
súll er ný trúlofaður ungfrú Frið'
gerði Guðmundsdóttur.
Bátajerðir. Undanfarin ár hefir
sýslunefndin styrkt vélbátaferðir uifl
Djúpið og norður á Húnaflóa með
9000 kr. fjárveitingu. Nú er í ráðb
að Húnaflóaferðirnar verði látnaf
falla niður þetta ár, og styrkurinö
— alls 6000 kr. — veittur fyrif
ferðir um Djúpið eingöngu. Jón
Guðmundsson annast ferðirnar á vél-
bátnum »Guðrún«.
Botnvörpuskipið » Pamela«, sem
strandaði á Tálknafirði í vetur, hefir
fiskivéiðafélagið »Græðir« keypt fyrir
4000 kr. (Vestri).
Þýzk blöð, sem gefin hafa verið
út seinast í marzmánuði, flytja opið
bréf frá kardínála erkibiskupsins í
Köln til barnanna i biskupsdæminu.
Kardínálinn nefnir' þar mörg
dæmi þess hvernig börnin eigi að
leggja landinu liðsinni sitt á þessutn
ófriðartímum. Fyrst og fremst eiga
þau að biðjast fyrir. Þvi næst eiga
þau að biðja foreldra sína, ættingja
og vandamenn að gefa sér alla
þá gullgripi, sem þeir eiga, til þess
að skifta á þeim og öðrum pening-
um, »því rikið þarfnast gulls til
hernaðarins*.
»Það eru ekki öll börn«, segir
kardinálinn, »sem hafa tækifæri tii
þess að fá þvílíka gripi að gjöf, eö
þá er til önnur tegund af gulli, sem
er jafnvel enn þýðingarmeiri til þess
að sigri verði náð og skjótum friði,
og það er fórnfýsin. — Það er að
segja, þið eigið að vera góð og
hlýðin á allan hátt og guði þóknan-
leg, sárstaklega þegar erfiðleikarnir
eru mestir og umfram alt þegar guð
lætur meðvitund ykkar segja ykkur
að fara einhvers á mis, sem ykkur
annaðhvort langar mikið í eða fýsir
að gera. Mörg ykkar hafa þegar lag1
fram skerf úr sparisjóði sínum handa
hermönnum vorum og særðum
mönnum og eins handa þeim, sein
óvinirnir hafa rænt öllu i Elsass og
Austur-Prússlandi.
En það er ekki þetta, sem vakif
aðallega fyrir mér. Á hátíðisdöguin
ykkar eru foreldrar ykkar vanir að
gefa ykkur ný föt og gjafir og P^
er gott. En nú eru blóðugir styrjald'
artímar og það er því fyrsta skyld3
hvers manns að gera alt sem hann
getur fyrir föðurland sitt. Og PesS
vegna, börnin mln góð, vil eg þ3®’
að þið sýnið sjálfsafneitun og séu
ánægð með lítilmótlegar gjafir
biðja helzt foreldra ykkar að g®1
ykkur hin ódýrustu föt og gi3”r’
sem unt er að fá».
«
Börnin eiga að hjálpa.