Morgunblaðið - 04.04.1915, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 04.04.1915, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 Sundskálinn. Sfríðsmtfttcfir Hvar hann á að vera? í fyrstunni var búist við að sund- skálinn yrði til þess að endurreisa hina fögru, fornu og hollu íþrótt — sundið. Og að þangað mundi æsku- lýðurinn streyma í hópum tii þess að sækja þrótt og harðfengi. En það fór alt á annan veg. Þegar Hannes hélt vigsluræðuna, þá brosti sólin yfir skálanum og hann var umkringdur af ungu fólki. Nií er hann lokaður. Hjá hon- sést nú aldrei maður nema þegar einhver af forvitni kemur til þess að lita á þessi yfirgefnu húsakynni, sem einu sinni áttu að vera til þess að endurreisa sundíþróttina hér og veita nýju blóði í hinar þrælsognu æðar íslenzku þjóðarinnar. í mörg ár hefir skálinn ekkert verið notaður og er slíkt engin furða. Þótt sumir haldi því fram, að hann sé á ágætum stað, þar sem hann er, og það sé að eins til hressingar að ganga þangað, þá er slíkt hin mesta heimska. Eg ber ekki á gióti þvi, að það er gott og hressandi að ganga þangað, en það mun hverjum tnanni ljóst, að það eru fæstir sem tíma hafa til þess nema á sunnu- dögum. Það orkar ekki tvisýnis, að sund- skálann verður að færa, ef hann á að verða að nokkrum notum.— Og það á að færa hann út í Örfirisey. Hann á að standa svo sem fimmtiu föðmum fyrir vestan grandagarðinn. Þar er ágætur staður fyrir hann, sandbotn og hreinn sjór. Auðvitað Þyrfti að laga þar ýmislegt til, en það mundi ekki kosta mikið fé, því eg veit að margir góðir íþróttamenn myndu fúslega rétta hjálparhönd til þess að hreinsa þar um og laga það sem betur mætti fara. Það er alllangt síðan að ýmsir góðir menn sáu að þar var staður fýrir hann og stjórn sundfélagsins ‘Grettir* hefir eflaust verið bent á Það, þótt ekki hafi til framkvæmda komið enn i þá átt. Nú eru grútarbræðsluskúrarnir á eynni. Sú bæjarplága átti að vera fyrir löngu rekin á braut þaðan. Eru slík fyrn mikil, að bæjarstórnin skuli enn þá einu sinni hafa leigt eýna til þessa, þótt henni hljóti að Veta það mjög vel ljóst, að grútar- kfæðslan eitrar loftið í bænum á Sumrin þegar vindur andar úr norð- Ur eða vestur átt. Vonandi verður ^túturinni ekki sundskálanum þránd- llr í götu, en á eynni geta þeir ekki ^áðir verið; verði skálinn fluttur ^Qgað, verður að flytja grútinn á burtu með öllu. Eg hefi heyrt að Kirk verkfræð- ’ngnr hafi boðist til að flytja skál- *ön ýfir á eyna, án nokkurs gjalds. 8 veit að vísu ekki sönnur á þvi, 6tl ekki þykir mér það ólíklegt. Ef Tíermetm í shotgrijfju. svo væri, ætti flutningurinn ekki að hamla breytingunni. Það eina sem hugsanlegt er að þetta geti strandað á, er bæjarstjórn- in, og er það samt all-óliklegt. Eg fæ ekki séð neina skynsamlega ástæðu, sem henni gæti komið til að reisa skorður við því, að breyt- ing þessi næði fram að ganga. Og með því að neita skálanum um stað þarna, þá sviftir bæjarstjórnin íbúa þessa bæjar ágætum skemtistað. Því þetta yrði skemtistaður. Þang- að mundu menn flykkjast á hverju kvöldi og hverjum sunnudegi, þegar gott væri veður, sér til hressingar og ánægju. Vonandi lifi eg það að sjá að eyja þessi verði aðal skemti- staður bæjarins á sumrum. Að þar verði haldið kappsund og knatt- spyrnuleikir, kapphlaup og leikfami, allar íþróttir, sem 'miða að því, að gera menn fagra og hrausta. Eg vona að allir góðir menn, sem áhuga hafa fyrir málefni þessu, leggist nú á eitt til þess að reyna að hrinda því áfram. Mér sýnist og að stjórn sundfélagsins sé illa sæm- andi, að halda að sér höndum, eins og hún hefir gert undanfarið, og hafast ekki að, fremur en engi sund- skáli væri til og engir hluthafar. Það liggur og henni næst að ganga fyrir mái þessu með þeim, sem þvi vildu fylgja og veit eg að sú fylk- ing yrði ekki þunnskipuð. B-n-O. Ástandið á Þýzkalandi. Fréttaritari Central News í Kaup- mannahöfn símar fréttastofu sinni 22. f. m. á þessa leið: Ferðamenn frá Þýzkalandi segja að fátæklingar þar í landi eigi nú við bág kjör að búa sakir matvæla- skorts. Efnafólkið getur keypt meira af matvælum en áður, nema kartöfl- ur og brauð og er brauðskorturinn því ekki eins tilfinnanlegur fyrir það. En fátæklingar hafa orðið að lifa á kornmat og kartöflum og hafa ekki efni á að kaupa kjöt. I Berlín hafði hópur af verka- mönnum safnast saman fyrir fram- an Ríkisdagshúsið og kölluðu til þingmannanna, er þeir fóru af fundi, og báðu um brauð og frið. Margir Norðurlandabúar, sem heima eiga í Þýzkalandi, fá nú send- ar á laun, frá ættingjum sínum á Norðurlöndum, smáböggla af mat- •vælum til þess að geta haldið í sér lifinu. Þýzkt skip reynir að strjúka. Á einni San Juan Puerto Rica, sem er eign Bandaríkjanna i Ame- ríku, hefir þýzka skipið Odenwald, eign Hamborgar—Ameríku-félagsins legið síðan í ágústmánuði í sumar. Fyrir skömmu reyndi skip þettk til þess að strjúka úr varðhaldinu. Víg- in hjá höfninni skutu á skipið og ætlaði það fyrst eigi að fara að því, en neyddist þó að lokum til þess að snúa til hafnarinnar aftur. Var skipið þá tekið af yfirvöldun- um og^fullkomið hald lagt á það. Ástandið í Vínarborg. Ensk blöð frá 24. f. m. hafa það eftir verkmannablaði í Vínarborg, að borgin verði otðin mjöllaus 1. maí, og að líkindi séu til að borgarbúar hafi ekkert brauð í maí, júní og júlí. Frá Rómaborg er símað, að múgur manns hafi ráðist á brauðsölubúð í Vinarborg og rifið alt úr búðinni, og sefaðist ekki fyr en útbýtt var meira brauði til fólksins. ..... Beztu vindlar i heimi heita Consulado Ministro President Sandeneros og fást í öllum betri verzlunum. Búnir til af van der Sanden & Co., Rotterdam. Kvef og hæsi. Bezta meðalið er Menthol-sykriö þjóðfræga úr verksmiðjunni í Lækjar- götu 6 B. HJFæst hjá flestum kaupmönnum borgarinnar. 1 herbergi með forstofninngangi, ómöblerað, og helzt morgnnkaffi óskast í Anstnrhænnm. Uppl. i sima 510. ^ cTZaupsRapuT Morgnnkjólar fást altaf i Dokt- orshásinn, Vestnrgötn. Sanmalann 2 kr. Jenny Lamhertsen. Sjóvetlingar, ágætir, til söln & SmiÖjnstig 11 (uppi). Jónea Kr. Jónsdóttir. G 0 11 h e y til söln i Doktorshásinn. Ingveldnr Gestsdóttir ^ffinna S t ú 1 k a óskast i vist 14. Jörgensen Nýlendngötn 15 B. mai Frú * cKapaé * Hurðarlykill tapaðist Skilist i Isafoldarprentsmiðjn. í gær. Það borgar sig að halda til haga ölllum gömlum ullartuskum. þær eru keyptar háu verði í Vöurhúsinu. mitt í Hotel ísland, verður 1 o k a ð föstudaginn langa og 1. páskadag. Theodór Johnson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.