Morgunblaðið - 08.04.1915, Blaðsíða 1
^imtudag
8.
aPríl 1915
H0R6DNB1ADID
2. árgangr
153.
tðlublað
Ritstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
Isafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusími nr. 499
Nýja Bíó
í bjarma blossavitans
Bræðurnir.
Stórfenglegur sjónleikur á láði og legi í 6 þáttum, leikinn
af þektum dönskum leikurum, meðal hverra má nefna:
Oajus Bruun, frú Agnete Blom og Fr. Buch.
Þetta er ein áf hinum stórfenglega myndum, er Nordisk Film
hefir sent á markaðinn nú á seinni árum, og hrifið hafa áhorf-
endur mjög. Það mun flestum ógleymanleg sjón, sem fyrir
augun ber í þessari mynd, um borð í skonnortunni »Harland«
úti á regin hafi þar sem lifið og dauðinn heyja sitt harða stríð.
Leikurinn fer einnig fram á greifasetri og eynni Peele.
Aðgöngumiða má panta í síma 344 eða 107 og kosta þeir
tölusettir 60, 50 og 40 a. og 10 a. f. börn.
Myndin stendur yfir fullkomlega einn og hálfan tíma.
Málverkasýning
Einars Jónssonar
opin daglega frá kl. 10—5 á
Vesturgötu 17.
Theodor Johnson
Konditori og Kafé
stærsta og fullkomnasta kaffihús
í höfuðstaðnum.
— Bezta dag- og kvöldkaffé. —
^ljóðfærasláttur frá 5—7 og 9—I1V2
Erl. simfregnir
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Kaupmannahöfn 6. apríl.
Bretakonungur hefir bannað alla
áfengisnautn við hiið sína.
Áköf orusta hefir staðið í Karpata-
fjöllum — í Dukla og Uszok-skörð-
um. Hefir Rússum veitt betur og
hafa þeir tekið marga fanga. —
Sjóorusta varð við Krímstrendur
í Svartahafinu milli flota Rússa og
tyrknesku skipanna Goeben og
Breslau. Barist var á löngu færi.
Er myrkur var komið hætti skot-
hríðin. Menn vita ekki um árangur
hennar.
Bandaríkjastjórn krefst 228 þús.
dollara skaðabóta af Þjóðverjum fyr-
ir að skip þeirra, Prinz Eitel Friede-
rich, sökti ameriska skipinu William
T. Fryes.
Ákafir stormar hafa geisað við
strendur Norður-Ameríku. Mörg
skip haía farist, þar á meðal hol-
lenzka póstskipið Prinz Maurits. 50
manns fórust.
Frönsku stjórnarvöldin hafa nú
fengið áreiðanlega skýrslu um tjón
það, sem brezku flugmennirnir unnu
í herför sinni þ. 26. marz. Loft-
skipaskýli og loftskip var stórskemt
í Berghen St. Agathe. í Hoboken
hjá Antverpen kveiktu þeir í skipa-
smíðastöð, eyddu algerlega tveim
kafbátum og skemdu hinn þriðja.
40 þýzkir verkamenn biðu bana og
62 særðust.
London 7. apríl.
Útdrattur
úr skýrslum Rússa frá 4.-6. april.
Hjá Niemen hafa staðið smábar-
dagar og halda Rússar áfram sókn
sinni þar.
í Póllandi hefir ekkert markvert
skeð. —
í Karpatafjöllum hafa Rússar enn
unnið ágæta sigra. 2. april unnu
þeir mikið fyrir norðan Bartfeld og
einnig hjá Meso Laborcz. Rússar
tóku járnbrautarstöðina í Cisna norð-
an við Lupkow-skarð 'og náðu járn-
brautavögnum og miklum skotfæra-
birgðum. 4. apríl sóttu Rússar fram
við Rostocki-skarð fyrir suðaustan
Lupkow, og náðu þar á sitt vald
nokkrum hluta af fjallahring og fram-
verðir Rússa settust í nokkur ung-
versk þorp. Frá 20. marz til 3.
apríl hafa Rússar handtekið 378 for-
ingja og 33155 liðsmenn, 17 fall-
byssur og 101 vélbyssu á milli Bali-
grod og Uzok eingöngu. Frásagnir
Austurríkismanna um sigra síns liðs
eru einber uppspuni.
Tyrkneska heitiskipið Medjidieh
rakst á tundurdufl fyrir utan Odessa
og sökk. Rússnesk herskip eltu
Goeben og Breslau og neyddu þau
til að leyta skjóls í Sæviðarsundi.
Yatnsskortnrinn 1 Reykjavík.
Alvarlegt mál er vatnsleysið hér
i öllum húsum, sem hátt liggja, bæði
Hérmeð tilkinnist vinum og vanda-
mönnum að okkar eiskaða eigínkona
og méðir, Katrin Halldórsdóttir, and-
aðist að heimili sinu, Bergstaðastræti
8, h. 4. þ. m. (páskadag). Jarðarför
hennar er ákveðin miðvikud. 14. þ. m.
kl. Il>/S.
Guðm. Magnússon. Fanney Guðmundsd.
Aðalsteinn Hjartarson.
á Kárastíg, Skólavörðustíg, Frakka-
stig ofanverðum og víst oft allri
Njálsgötu;. eru þessar götur vatns-
lausar að öllu jafnaðarlega frá kl. 9
f. h. til kl. 10—11 að kvöldi.
Oss, sem búum í þessum húsum,
þykir hart að tekið er frá oss vatn-
ið á hverjum degi, því að við verð-
um að borga fullan vatnsskatt, eins
og aðrir bæjarbúar. Þetta vatnsleysi
stafar af óhóflegri brúkun vatnsins
við fiskþvott, þar sem eins vel
mætti nota sjávarvatn.
Setjum svo, að kvikni í húsi á
þessu svæði einhverntima á þessum
ro—14 tímum, sem vatnslaust er.
Það mundi brenna upp áður en
hjálpað yrði, þvi að þótt lokað væri
samstundis þessum sífossandi þvotta-
húskrönum, þá dygði ekki til.
Eftir því sem brunamálum er
komið hér, að minsta kosti á papp-
írnum, gæti það haft alvarlegar af-
leiðingar fyrir bæinn, ef hús brynni,
án þess að gerðar yrðu slökkvitil-
raunir, vegna vatnsleysis.
Þorsteinn Þorqilsson,
Kárastig 14.
t
Jón Pétursson.
Það sorglega slys vildi til í Vest-
mannaeyjum i gær, að ungur mað-
5. F. U. M.
A.-D. fundur í kvöld kl. S1/^.
^isli Guðmundsson gerlafr. talar um
P a s t o r.
^ Allir ungir menn velkomnir.
^iðjið einungis um:
Vacht nið“s”
í'ána
^Íörlikið viðurkenda, og tegundirn-
/t/Bouquet^, »Roma«, »Buxoma«,
•J?*, »E«, »D«, »C«,
grænmeti,
v ’
Baldur
jj/Jlprlíkið ágæta, í 5 kilogr. spor-
^löguðum pappa-ílátum,
Juwel tr
^ildsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. CÍFÍkss, Reykjavik.
Erl. símfregnir.
.öpinber tiikynning
frá brezkn utanríkisstjórninni
i London.
(Eftirprentun bönnuð).
^ólgin skotvopn.
^abat í Marokko var áður þýzk-
1%*ðÍSmaður’ en þegar ófriðurinn
Ijj varð hann að höfra þaðan og
íi
^ Frakkar hald á íbúðarhús hans.
nokkru voru verkamenn að
Vlð Fúsið. Fundu þær þeir milli
mikið af Mauser-byssum og
Jnj ^ skothylkja. Þar fundust og
»kjöl, sem menn ætla að hafi
a Þýðingu.
London, 7. apríl.
Útdráttur
úr skýrslu Frakka frá 3.-6. april.
Milli sjávar og Champagne hefir
ekkert markvert skeð.
í orustum þeim sem nú hafa stað-
ið í Le Pretreskógi, hafa Frakkar
handtekið rúmlega 200 hermenn —
þar á meðal 6 fyrirliða. Þar hafa
þeir og sótt lengra fram og náð
fleiri skotgryfjum.
Austan við Verdun tóku Frakkar
þorpið Gussinoille og hæðir nokkr-
ar. Þaðan hafa þeir vald á Orne-
dalnum.
í sunnanverðu Woewre-héraði hafa
Frakkar tekið þorpið Regnisville, og
samkv. frásögnum hertekinna manna
var 6 þýzkum herfylkjum (battalions)
gjörtvístrað í orustunni þar.
í Dailly-skógi sunnan og austan
við St. Mihiel náðu Frakkar þrem
skotgrafalínum Þjóðverja, og héldu
þeim þrátt fyrir gagnáhlaup óvin-
anna.
í Elsass náðu Frakkar litlum fjalls-
hnjúk suðaustur af Hartmannsweilar-
kopf.