Morgunblaðið - 02.05.1915, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Erl. símfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezkn ntanríkisstjórninni
í London,
Viðureignin i Hellnsundi
25.-29. apríi.
Tilkynning frá hermálaskrifstofunni og
flotamálastjórninni.
London 30. apríl.
Landgangan hófst fyrir sólarupp-
rás þ. 25. apríl. Var liðið sett á
land á sex stöðum og varði allur
flotinn landgönguna. Gekk alt
ágætlega á flmm þessum stöðum,
enda þótt óvinirnir veittu ramma
mótspyrnu. Lágu þeir þar i sterk-
um samsíða skotgröfum vörðum með
gaddavirsgirðingum og styrktir af
stórskotaliði. Á sjötta staðnum,
nálægt Sedil Bahr gat liðið ekki
sótt fram, fyr en undir kvöld. Þá
gerði brezkt fótgöngulið ágætt áhlaup
á óvinina frá Capern Tekeh og
hrukku þeir fyrir. •
Landgangan hafði áður verið vand-
lega undirbúin milli hers og flota.
Árangurinn af viðureigninni fyrstu
dagana var sá að öflugur brezkur,
franskur og ástralskur her kom sér
fyrir á þrem aðalstöðunum. Astra-
líu og New Zealandsherinn settist
að á neðri hæðunum á Sari Bair og
norðan við Gaba Tepe. Brezkt her-
inn settist að hjá Cape Tekeb,
Cape Helles og skamt frá Morts
Bay. Franski herinn gekk á land
Asíumegin og settist að hjá Kum
Kale eftir ágæta árás í úttina til
Yem Shehr.
Seinni hluta dagsins þ. 25. apríl
hófu óvinirnir öflug gagnáhlaup og
tókst hörð orusta. En landsetningu
liðsins var haldið áfram viðstöðu-
laust.
í sólarupprás daginn eftir héldu
óvinirnir enn Sedil Bahr þorpinu
og skotvígjunum. Bretar hófu áhlaup
beint á víggirðingarnai í gegn um
óskemdar gaddavírsgirðingar. Lagði
flotinn þeim lið með fallbyssuskot-
um. Sedil Bahr var tekið um kl.
2 síðdegis. Fjórar »Pom-Pomc fall-
byssur voru teknar herfangi og
stöðvar vorar á þessum enda skag-
ans algerlega tryggar. Var nú hald-
ið áfram að setja enn meira franskt
og brezkt lið á land.
Að morgni hins 27. apríl var
hrundið áhlaupi vinstra herarms
Tyrkja og hann hrakinn til Cape
Helles.
Eftir það sótti lið bandamanna
fram og kl. 8 um kvöldið hafði það
sezt í skotgrafalínu sem lá milli
staðar hér um bil tveim mílum fyr-
ir norðan Cape Tekeh og til lítill-
ar flatneskju hjá Totts skotvígi.
Þaðan hefir liðið síðan sótt fram og
er nú í grend við Krithia.
Meðan þessu fór fram átti Astralíu-
herinn og New Zealandsherinn í
höggi við óvinia hjá Sare Bair.
Var þar grimmileg og nær látlaus
viðureign, þvi óvinirnir gerðu grimm
áhlaup hvert á fætur öðru, en þeim
var öllum hrundið. Her Astralíu-
manna og New Zealand barðist af
ágætu hugrekki og hreysti.
Árla morguns þ. 27. apríl var
nýu tyrknesku liði skipað fram gegn
Sari Bair og hóf það orustuna -með
stórskotahríð. Tókst nú grimmur
bardagi. Óvinirnir sóttu fram af
mikilli grimd og gerðu hverja atrenn-
una á fætur annari, en Ástralíu og
New Zealands herinn vann jafnan
sigur og um þrjúleytið hóf hann
sókn.
Franski herinn var hjá Kum Kale.
Voru gerð á hann fjögur öflug
gagnáhlaup þ. 26. apríl, en hann
hélt öllum stöðvum sinum. I einu
áhlaupinu urðu 500 Tyrkir viðskila
við aðalherinn, og komust hvergi
vegna stórskotahríðar skipanna. Þeir
voru teknir höndum.
Það hefir þannigtekist að koma lið-
inu á land gegn skothríð nýtízku vopna
og þrátt fyrir vírggirðingar og sprengj-
ur bæði neðansjávar og á landi og
djúpar grafir með oddhvössum flein-
um á botninum.
Flotaforinginn tilkynnir að sjólið-
ið dáist að hernaðarframkvæmdum
félaga sinna á landi.
Manntjón hersins er eigi meira
en við mátti búast.
Tjón flotans er ekki mikið og er
það aðallega á tundurspillum og í
líðinu á bátum þeim, sem fluttu
herinn á land. Þar á meðal voru
skipshafnir af kaupförum og flutn-
ingaskipum.
Tyrknesk herskip frá Nacure hafa
nokkrum sinnum reynt að taka þátt
í orustunni, en jafnan orðið að hörfa
frá vegna þess, að þeir áttu »Queen
Elizabethc að mæta.
Um hádegi þ. 27 apríl kom sú
fregn að 8000 smálesta flutningsskip
væri á leiðinni frá Maidos, og áður
en það gæti komist undan hóf
»Queen Elizabeth« skothríð á það.
Þriðja skotið hitti og sökk skipið
þá þegai. Eigi var unt að sjá hvort
það flutti lið eða annað.
28. og 29. apríl hélt liðið kyrru
fyrir, styrkti stöðvar sínar og hélt
áfram vista- og stórskotaliðsflutningi
á land.
Öllum áhlaupum óvinanna, sem
voru skæð fyrri daginn, en eigi jafn
öflug seinni daginn, var hrundið.
Bæði her og floti tóku nú að
snúa sér að vígjunum. »Triumph«
skaut á Maidos, sem stóð í björtu
báli í fyrrinótt (29. apríl).
Þegar viðureigninni er lokið, mun
skýrt frá henni í sérstakri skýrslu,
en ekki í símskeytum, jafnharðan
sem tíðindin gerast.
London 1. maí.
Útdráttur
úr skýrslum Frakka frá 28. apr. til I. maí.
Her vor sækir enn fram fyrir
norðan Ypres einkum að vestan-
verðu, ásamt her Belga. Vér höfum
tekið nokkur hundruð manns hönd-
um, hriðskotabyssur og sprengikúlu-
slöngur. Mannfall óvinanna er felki-
mikið. Vér höldum höldum öllu
því svæði, sem vér höfum náð á vald
vort aftur.
Her vor hefir síðan sótt fram 300
—1000 metra á öllu orustusvæðinu
fyrir norðan Ypres.
500 sprengikúlur og margar með
íkveykjuefnum hafa fallið hjá Rheims.
Á Meuse-hæðum höfum vér unnið
á hjá les Eparges og unnið óvin-
unum mikið tjón og eyðilagt skot-
vígi fyrir þeim. Óvinirnir skjóta á
les Eparges og Hartmannsweiler-
kopf, en þeir hafa engar árásir gert.
Stóiskotalið vort lamaði Zeppelins-
loftfarið, sem varpaði niður sprengi-
kúlum hjá Dunkirk, svo það strand-
aði hjá Bruges.
Þýzk fallbyssa á landi skaut stór-
um sprengikúlum á Dunkirk og
særði 40 manns, en drap 25. Flug-
menn rcrir komust að hvar hún var
og vörpuðu 14 sprengikúlum á hana.
Verzlunin Björn Kristjánsson
hefir nú fengið mikið úrval af alls konar
Vefnaðarvöru.
Léreft bí. og óbl. Alklæði Dömuklæði Chiviot Fata-
efni Flúnnel Flauil Gardinutau. Kjólatau Tvist-
tau. SJÖL, hvergi meira úrval og
Morgunkjólatau sem allir kaupa hjá
V. B. K.
Heiðraða viðskiftavini
bið eg vinsamlegast að gefa mér upplýsingar um það hvað þeir hafa
fengið úttekið við verzlun mína í siðastliðnum mánuði, vegna þess að
útlánabókin (kladdinn) fórst í brunanum.
Mig er fyrst um sinn að hitta
í Lækjargötu 4
(niðri að norðanverðu) milli kl. i og 5.
Virðingarfylst
Egill Jacobsen.
Jón Björnssson & Co.
Bankastræti 8
hafa nú miklar birgðir af
Vefnaðarvöru
sem seld er með hinu alþekta lága verði.
Gjörið svo vel að líta á vörurnar.
jón Björnsson & Co.
oTrá i óag Refí eg L íkv agti fít íeigu. Likkistur og alt er að jarðarför lýtur, hvergi vand- aðra en hjd Cyv. Jlrnasyni.
V ^upsRapur V
Bezta neeturgisting borgarinnar á Laugavegi 28.
Morgunkjólar fást altaf ódýrastir i Grjótagötu 14, niðri. Saumalan 2 kr.
T v ö eamstæð trérúm og járnrúm fyrir ungling fæst til kaups. R. v. á.
Morgunkjólar, ætið mikið úrval í vesturendannm i Doktorshúsinu.
Fjölbreyttur heitur matur fæst allau daginn á Kaffi- og matsöluhúsinu Laugavegi 23. Kristin Dahlsted.
Tveggjamannafarertil sölu með árum og seglnm. Semja ber við GuÖmund JHelgason, Vitastig 15.
R e i ð h j ó 1 ódýrust og vönduðust hjá Jóh. Norðfjörð, Bankastræti 12.
JSeiga *iffinna
S t o f a mefl forstofuinngangi, skemtileg og rnmgóö, er til leigu fyrir einhleypa á Laugavegi 64. Þ r i f i n og dugleg eldhússtúlk®' óskast á kaffihús frá 1. mai. Gott kaup. R. v. á.