Morgunblaðið - 09.05.1915, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Hvað hafast þjóðverjar að?
í norska blaðinu >Tidens Tegnt
stendur þessi greinfþ. 23. f. mánaðar:
Úr ýmsum áttnm hafa komið sam-
hl'jóða fregnir um það að Þjóðverjar
dragi nú mikið lið saman á vestri
vígstöðvunum. Sérstaklega er þess
getið að þeir hafi aukið mjög lið
sitt í Belgíu og Norður-Frakklandi.
Er eigi gott að segja um það með
neinni vissu hvað gerst hefir eða er
að gerast í Þýzkalandi. Það virðist
þó ljóst, að eitthvað sé þar á seyði.
Sést það meðal annars á því að eng-
inn þýzkur bréfpóstur hefir komið
til Kristiania síðan á mánudag, 19.
apríl. Póststjórnin hefir ekki feng-
ið neina tilkynningu um það, hvern-
ig á því stendur að póstsamgöngurn-
ar hafa stöðvast.
Þetta sama hefir komið fyrir tvis-
var sinnum áður siðan ófriðurinn
hófst og það virðist svo sem það
hafi þá staðið i sambandi við það
að Þjóðverjar voru að flytja her sinn.
Tii dæmis kom það fyrir rétt áður
en Hindenburg gerði aðalárásina í
Póllandi, eða meðan járnbrautirnar
höfðu nóg að gera við það að flytja
lið og vistir til eystri vígstöðvanna.
Það liggur því nærri að ætla að
Þjóðverjar búi sig nú semkappsamleg-
ast undir það að taka í móti hinni
öflugu sókn bandamanna, sem þeir
hafa áður boðað að væri í aðsigi.
Það er því mjög sennilegt að Þjóð-
verjar dragi saman mikið lið á
vestri vigstöðvunum.
En eftirtektarverðari er sú fregn
sem »Svenska Dagbladet« i Stokk-
hólmi hefir fengið frá Vamdrup, sem
er á landamærum Þjóðverja og Dana.
Sú fregn hermir það að sunnan við
landamærin hafi Þjóðverjar núna á
skömmum tima haft mikinn her-
búnað. Meðal annars ef sagt að
þeir hafi dregið saman mikinn her,
alt að 50 þúsundum, á svæðinu
milli Flensborg og Tönder.
Jafnframt er þess getið að einka-
sími Suður-Jóta hafi verið teptur síð-
an á mánudaginn. Til þess að friða
íbúana segja þýzku yfirvöldin að
þetta sé nauðsynlegt vegna þess hve
Suður-Jótland sé afskekt.
Alt bendir og á það að hér sé í
rauninni eigi að ræða um neinn lið-
samdrátt heldur að eins aukið land-
varnarlið.
Engir þ/zkir prófessorar.
Stúdentar á ýmsum æðri skólum í
Rómaborg hafa hótað að hætta námi,
ef þ/zkir prófessorar við skólann verði
eigi reknir burt.
Lagleg þrenning. Kona nokk-
ur í Pallion, sem er skamt frá Sund-
erland í Englandi, átti n/lega þríbura
— alt drengi. Maðurinn bennar er á
vígvellinum og því var farið með a!la
drengina á uppeldisstofnun. Þeir voru
vatni ausnir og nöfn gefin. Heitir einn
Kitchener, annar Jellicoe og hinn þriðji
French.
Bezta öliö
Heimtið það!
— o —
Aðalumboð fyrir ísland:
Nathan & Olsen.
Þeir sem nota blaut-
asápu til þvotta kvíða
einlægt fyrir þvotta-
desinum.
Notið Sunught sapu
og hún mun flýta
þvottinum um helming.
Preföld hagsýni—
tími, vinna og penin-
gar.
Farið eftir fyrirsögnidni, sem
er á öllum Sunlight sápu
urnbúöum.
iíK0SíBMí2 K.roner at tjene!*™®*
For at skaffe Anbelaliriger til vort Katalog
sælger vi vore bckendte 24 Kroners Herre-
og Dameuhre fop 12 Kronerí
Disse Uhre er af allerbedste Fabrikat, ægte,
meget svære Solvkasser med ægte Guld-
kanter, ekstra prima Værker med 10 Stene.
fint aftrukne og regulerede, hvorfor vi for
hvert Uhr giver 5 Aars skriftlig Garanti.
Betingeisep for, at De kan erholde et af
vore 24 Kroners Systemuhre for 12 Kr. er,
at De sender os en Anbeíalíng lor Uhret,
naar det viser sig, at De virkelig er tillreds
med det; men glem det nu ikke, da disse
Anbefalinger jo har stor Betydning for os i
Fremtiden. Pengene sendes Dem retur, hvis
ikke De cr aldeles tilfreds med Uhret.
Skriv straks. Adr.: Oanmark
UHR-EKSPORT0REN, Jens P. Lar$en, Aarhus. m
Menn gleyma
0
öllum sorgum
þegar
menn reykja
Special Sunripe Gigarettur!
Gremja og reiði í Bandaríkjnnnm
i Norður-Ameriku.
Það hefir vakið gremju og reiði
um allan hinn mentaða heim, er
þýzkur kafbátur sökti farþegaskipinu
>Falaba» og gerði ekkert til að
bjarga farþegum, en skaut jafnvel á
björgunarbát, sem annað skip sendi
út til að bjarga þeim, sem voru að
velkjast í sjónum. En hvergi virð-
ist gremjan og reiðin vera jafn megn
sem í Norður-Ameriku. Amerísku
blöðin yfirleitt kalla þessa að‘erð
Þjóðverja villidýrslegan, æðisgengin
morðvargaskap.
Eg skal nefna hér að eins fá um-
mæli allra-merkustu blaðanna.
»New York Herald* segir að’
þetta sé að snúa aftur til villi-
dýrsástands. Víkingarnir á sín-
um grimdardögum voru ekki eins
miskunnarluusir eins og Þjóðverjar
sem breyta eftir fyrirmælum keisara
síns. Þegar skipið >Agulla« sendi
björgunarbát til að bjarga fólkinu,
sem á floti var í sjónum, reyndi
kafbáturinn þýzki að sökkva björg-
unarbátnum og sökkva fólkinu á
honum. Þjóðverjar tala mikið um
þjóðmenningu sína (kúltúr). En þessi
aðferð afklæðir þessa menningu
þeirra og sýnir þá alsnakta i grimd-
aræði sinu.
»New York Times*. segir, að
grimdaræði Þjóðverja hafi verið enn
andstyggilegra við þetta tækifæri,
heldur en i öllum hryðjuverkum
þeirra í Belgíu.
Þetta er ekki hernaður; það er
morð. Það er of veglegt að líkja
Þjóðverjum við sjóræningja. Vík-
ingurinn drepur menn, ekki af tómri
slátrunarfýsn, heldur sér til ávinn-
ings; hann er ræningi. En að fyr-
irfara farþegaskipi eins og >Falaba«
og fyrirfara um leið öllum farangri
þess, það ber ekki vott um neitt
annað en morðæði. Þegar Þjóð-
verjar myrtu konur, börn og gamal-
menni í Belgíu, þótt saklaust fólk
væri, þá var það þó fólk, sem heyrði
til þjóð, sem þeir áttu í hernaði við.
Farþegarnir á >Falaba« voru að miklu
leyti menn þeirra þjóða, sem iifa í
friði við Þjóðverja. Þegar þeir í
Belgiu hafa nauðgað konum og meyj-
um, þá hafa þeir, svo svívnðilegt
sem athæfið var, verið að svala girnd-
um sínum, en ekki einu sinni því
var að heilsa þegar þeir fyrirfóru
fólkinu af »Falaba«. Menn eiga örð-
ugt með að trúa því, að þeir hafi
haft skemtun eða nautn af að horfa
á kvalir og dauða manna í bylgjun-
um. Það er örðugt að trúa því, þó
að mörg vitni, bæði meðal þeirra
sem bjargað var og þeirra sem björg-
uðu, hafi svarið fyrir dómi; að Þjóð-
verjarnir á kafbátnum hafi hlegið
dátt að fólkinu, sem var að skolast
í bylgjunum.
»New York Iribune« kallar
>Falaba«-sprenginguna morð með
ásettu ráði og köldu blóði. Fyrir-
liðarnir á kafbátnum ættu að missa
allan rétt til þess, að með þá sé