Morgunblaðið - 09.05.1915, Page 5
MORGUNBLAÐIÐ
S
farið sem fanga ef í þá næst. Ef í þessi
kvikindi næst, þá ætti að hengja þá.
*Nf.w York Sunt og »New York
Worldt fara svipuðum orðum um
málið.
»New York Press« segir að flota-
málastjórn von Tirpits admirals sé
dæmd i augum allra siðaðra manna.
Hermenn Þjóðverja, bæði þeir misk-
unnsömu og miskunnarlausu, bæði
þeir mannúðlegu og þeir æðisgengnu,
séu rétt rækir úr öliu mannlegu þ;óð-
félagi.
»New York Globe« segir, að vík-
ingainir frá Algier (en til þeirra
heyrðu Tyrkjarnir, sem rændu hér
á landi) hafi mátt heita mannúðar-
menn í samanburíi við Þjóðverja;
aðalatriðið fyrir þeim var þó ekki
að drepa fólkið, heldur að hertaka
það og selja það sem þræla og am-
báttir. Þeirra víkingsskapur var
ávinningsfyrirtæki.
*New York Post« segir, að það
iriuni verða tcrvelt að finna í allri
tnankynssögunni nokkuð sem Hkist
þessari mannvonzku Þjóðverja.
Þjóðverjar hafa fengið þann beyg
af Ameríkumönnum, sð þeir hafa
greitt andvirði skipsins og farmsins.
En hvað verður um bætur fyrir alla
þá sem myrtir voru? Það er mælt,
að meðal farþega hafi verið einn
Ameríkumaður, Thrasher að nafni.
Reynist það rétt, er hætt við að stjórn
Bandaríkjanna láti það mál til sín
taka.
K. í Gh.
Ásqnith talar til Yerkamanna,
Asquith forsætisráSherra Breta hélt
nýlega ræðu í Newcastle fyrir verka-
mönnum, sem vinna aS skotfæra- og
hergagnagerö viö Tyne-fljótið.
Hann kvaöst þangað kominn vegna
þessa, að hvergi í brezka ríkinu og
jafnvel ekki heldur á Frakklandi eðaí
Flandern ríði meira á því, að brezkir
menn gerðu skyldu sína og legðu fram
alla krafta sína, en einmitt í héruðuu-
um kring um Newcastle. Námumenn-
irnir, skipagerðarmenn, vélamenn og
þeir, sem vinna að afgreiðslu skipa,
ættu engu minni þátt í ófriðnum en
hermenn og sjóliðsmenn.
Hann kvað engan flota eða hcr
mundu nokkru sinni hafa verið betur
búinn að vopnum og öðrum hergögn-
um cn brozki herinn og flotinn hefði
veriö i þeagum ófriði. Það væri gjör-
samlega rangt að hernaðarframkvæmd-
ii helðu hindrast sakir þess að hern-
um helði ekki vorið sóð fyrir skotfær-
um i ins og þmfti. i>ftg væri heldur
ekki satt að stjórniu hefði ekki haft
fyrirhyggju um að ætíð væru til næg-
ar skotafærabirgðar. Það hefði hún
einmitt gert. En í þessum ófriði hefði
meira vcrið eytt af skotfærum en nokk-
ur dæmi væru til áður og langt um
meira en þeir menn hefðu búist við,
or bezt gátu gort áætlanir um það.
Sakir þessa væri nú svo komið, að
bryn nauðsyn væri á því, að auka
skotlæralramleiðslu og hergagnasmíð
sem mest. Hét Asquith á verkamenn-
ina, að láta ekki standa á sór.
Beauvais
niðursuðuvörur eru viðurkendar að vera langbeztar í heimi.
■
Otal heiðurspeninga á sýningum víðsvegar um heiminn.
Biðjið ætíð um Beauvais-niðursuðu. Þá fáið þér verulega góða vöru.
Aðalumboðsmenn á íslandi:
O. Johnson & Kaaber.
ik' Heinr. Marsmann’s
Yindiar
Cobden
eru langbeztir.
Aðalumboðsmenn á Islandi:
Vörumerki. Nafhan & Olsen.
Stjórnin í Chile hefir sent brezku
stjórr.inni mótmælaskjal yfir aðfórum
brezkra herskipa er þyzka beitiskipinu
Dresdeu var sökt við Juan Fernan-
dezeyjar i vetur. Segir í skjali þessu
að Dresden hafi legið fyrir atkerum í
landhelgi við eina af eyjunum þegar
brezku herskipin komu að því og hófu
atlöguna. Skipstjórinn á Dresden hafði
farið fram á það við yfirvöldin áeynni
að hann fengi að gera þar við skipið,
en honum var neitað um það ög sagt
að hann yrði að halda af stað aftur
eftir 24 klst. En skipið sigldi eigi
burtu er fresturinn var liðinn, heldur
tilkynti skipstjóri að hann óskaði eftir
því að hald væri lagt á skipið. Þegar
brezku skipin komu dró Dresden upp
griðarflagg en hinir skeyttu því engu
heldur tóku að skjóta á skipið. Land-
stjórinn í eynni skaut út báti og ætl-
aði að segja brezku skipunum frá hvern-
ig sakir stæðu, en hann varð að hverfa
frá sakir skothríðarinnar.
Nætur, Sildarnætur, Tilbúnar Stangarnætur, Snerpe-
nætur fyrir kópsíld, síld, makril.
Fisknetjagarn, úr rússneskum, frönskum og ítölskum hampi.
Færi, Lóðarfæri, Kaðlar.
Öngultaumar, Segldukar, Presenningsdúkar — tilbúnar
Presenningar.
Utanríkisráðherra Breta, Sir Edward
Grey, hefir svarað skjali þessu. Segist
hann ekki hafa fengið fullnaðarskýrslu
frá foringja brezku skipanna, en biður
fullkominnar afsökunar á tiltækinu.
Fréttaritari »Times« í Santiago s/m-
ar að Chile stjórn hafi sent tvö beiti-
skip til eyjarinnar að rannsaka málið.
Þau skip tóku skipshöfnina af Dresden,
sem hafði flúið í land og fluttu hana
til Valpariso.
Þegar Dresden var sökt skemdust
nokkur hús í landi og seglskip, sem
Chile-menn áttu, en skipstjórinn á
Glasgow bætti vel fyrir þær skemdir.
Landsbókasafnið.
Samkvæmt xt. gr. í Reglum um afnot Landsbókasafnsius eru allir
lántakendur ámintir um, að skila öllum þeim bókum, er þeir hafa að láni
úr safninu, fyrir 14. d. maím. næstk., og verður engin bók lánuð út úr
safninu 1.—-14. maím.
Landsbókasafninu 27. d. aprilm. 1915.
Jóa Jakobsson.
Frá Landsímanum.
Starfræksla Landsímans 1914.
Hart á móti hörðu.
Þess hefir áður verið getið að Bret-
ar láti skipshafnir af kafbátum Þjóð-
verja, sem sökt er, eigi njóta sömu
meðferðar sem aðra hertekna menn,
heldur er farið með þá sem væru þeir
sjóræningjar. Þjóðverjum sárnar þetta
sem von er, eti láta nú hart mæta
hörðu. Hafa þeir nú nýlega sent 10
brezka liðsforingja, — þar á meðal
son fyrverandi sendiherra Breta í
Berlín — til Magdeburg og sett þá
þar í fangelsi — einn í hvern klefa.
T e k j u r :
Símskeyti innanlands ............... kr. 45530.30
do. til útlanda .................... — 22795.86
do. frá útlöndum .................. — 17150.15 85476.31 (62311.45)
Símasamtöl ........................................ 117t53.90 (92882.10)
Talsímagjald frá föstum notendum (Bæj-
sími Reykjavíkur ekki meðtalinn ................. 12222.17 (11983.40)
Aðrar tekjur........................................ 2382.56 ( 4083.09)
Tekjur alls kr. 217834.94 (171260.04)
Gjöld:
Laun starfsmanna (hér með talin laun
landsímastjórans, þóknun til lands-
stöðva, lauti til sendiboða 0. fl.....
Viðhald landsímans ...........
Eyðublöð, prentkostnaður 0. fl
Onnur gjöld
kr. 50290.62
— 15074.35
— 5367.77 ,
— 20786.72 91519.46 (82161.38)
Bindindismaður áfengissali
Maður nokkur í Drammen í Noregi,
Reiersrud af nafni og einhver ákafasti
og ötulasti forkólfur bindindismanna
þar um slóðir, hefir nýlega sótt um
leyfi bæjarstjórnarinnar þar til þesa
að mega selja áfengt öl. Honum var
þegar veitt leyfið. Sagði bæjarstjórn-
in sem satt var, að hefði einhver ver-
ið í efa um það hvort selja ætti
áfengt öl, þá væri nú allur efi af tek-
inn fyrst að sjálfur forvígismaður bind-
indisinB vildi fá að verzla með það.
En nú er eftir að vita hvað æstir
bindindismenn segja. Ætli þeim tak-
ist eigi að finna ástæðu til þess að
fordæma atferli félaga síns 1
Tekjuafgangur kr. 126315.48 (89098.66)
Tölurnar í svigunum eru frá árinu 1913, teknar með hér til samanburðar.