Morgunblaðið - 09.05.1915, Qupperneq 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Þessi bók er send
ókeypis.
Ef þér álítið að þér getið haft
gagn af þessari bók, þá sendið
oss póstkort og vér sendum yður
hana ókeypis.
Það er augljóst, að eítir því sem
milliliðirnir eru fleiri, er varan dýr-
ari. Sá, sem kaupir beint
frá heildsalanum, fær því
ódýrasta vöru.
Athugið!
það að við tökum aftur hvern þann
hlut, sem þér eruð ekki ánægður með
og greiðum yður andvirði hans, svo
engin áhætta getur komið til greina.
Hið eina heildsöiuhús á Norðurlöndum er selur kaupendum án milliliða.
KöbenhaYn F.
■1
Alt það, sem maður, kona, drengur eða stúlka þarfnast, munuð þér
finna i þessari bók. Þar eru rúmlega 4000 hlutir, þeim er nákvæmlega
lýst og verðsins getið við hvern þeirra. Það er einfaldara heldur en að
láta kaupmanninn sýna yður allar þær vörur, er hann hefir á boðstólum.
Látið oss senda yður hinn stóra aðalverðlista vorn, sem er 200 blað-
síður með 3000 myndum. Hann er hinn bezti ráðgjafi þegar þér þurfið
að kaupa búsgögn, verkfæri, hnifa, stálvörur, plettvörur, leðurvörur, úr,
sjónauka, hljóðfæri, pipur, byssur, hjólhesta og hjólhestatæki.
Kanadaherinn.
í orustunni miklu hjá Ypres reyndi
fyrst alvarlega á Kanadaliðið og gekk
það þá svo vel fram, að orðstír þess
hefir flogið um öll löod. Segja
brezk blöð að vörn þess muni uppi
meðan heimur er bygður og brezk
tunga töluð.
Georg Bretakonungur hefir sent
hertoganum af Kunnjáttaborg svo-
látandi skeyti:
Eg samfagna yður innilega yfir
því hve Kanadaliðið barðist hraust-
lega og djarflega í tveggja daga or-
ustunni hjá Ypres. Sir John French
segir að framganga þess hafi verið
framúrskarandi.
Konungsríkið miklast af því.
Hertoginn af Kunjáttaborg hefir
einnig sent hermálaráðherra Kanada
bréf, þar sem hann lætur i Ijós sam-
hrygð sína yfir manntjóni því hinu
mikla, sem Kanadaliðið hefir oeðið,
og segir síðan :
Kanada má stæra sig af hinum
hraustu sonum sínum, sem börðust
hjá Ypres. Því þeir hafa með heiðri
og sóma tekið sinn þátt í þessari
miklu styrjöld fyrir frelsi og heiður
brezka ríkisins, gegn yfirdrotnun og
ranglæti Þjóðverja.
I þessu liði voru nokkrir tugir
Islendinga. Ef til vill eru þeir nú
allir fallnir, >en orðstír deyr aldreigi
hveim sér góðan geturc.
Þjóðverjar
neita að greiða skaðabætur.
Skipatökudómurinn þýzki hefir
lcveðið upp dóm í máli, er reis út,
af því að þýzkur kafbátur hafði sökt
hollenzku skipi, »Marie«, sem var á
leið til Dublin og Belfast. Eigend-
ur skipsins lýstu þvi yfir, að skipið
hefði verið eign hlutlausrar þjóðar
og eigi haft bannvöru meðferðis.
Skipatökudómurinn benti á það,
að kornið hefði átt að fara til Bel-
fast og Dublin, en það væru auka-
hafnir flotans og því væri kornið
bannvara.
Eigendurnir komu þá fram með
sannanir um það, að kornið hefði
átt að fara til myllu nokkurar, sem
seldi mél til alþýðu. Skipatökp-
dómurinn gat eigi failist á að þetta
væri næg ástæða til þess að kornið
yrði eigi talin bannvara.
Skipseigendur hafa áfrýjað málinu.
Krónprinz Wilhelm.
ágætu orgel-harmónium
ávalt fyrirliggjandi hér á
staðnum. Seljast með verksrniðjuverði að viðbættum flutningskostnaði.
G. Eiríkss, Reykjavik.
Einkasali fyrir ísland.
„Sanifas"
er eina Gosdrykkjaverksmiðjan á íslandi
sem gerir
gerilsneydda Gosdrykki og aldina-
safa (saft) úr nýjum aldinum.
Sími 190.
Bandarikjastjórn hefir kyrsett Krón-
prinz Wilhelm, vopnaða kaupfarið
þýzka, sem flúði inn til Newport
News. Var það gert samkvæmt ósk
skipstjórans.
H.f. ,Nyja lðunn‘
kaupir ull og allskonar tuskur
fyrir hæsta verð.
■ Menn þurfa að mála
þegar veðrið er gott,
er ekki minni ástæða til að nota eingöngu litina góðu, frá
Sadolin &f|Holmblad & Co’s Eftf., Kaupmannahöfn,
því þeir þola alla veðráttu.
Aðalumboðsmenn: Nathan & Olsen.