Morgunblaðið - 20.05.1915, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 20.05.1915, Blaðsíða 2
2 MÖRGUNBLAÐIÐ Svaríar Jiven ■ regnkápur komnar fií Tt). Tf). Tíafnarsfræti *t. Harfmanmföf selcí afar ódtjrf f)já Tf). Tf). Hafnarstr. 4. í dag kemur e/s Vesta, og hán hefir að færa hin langþráðu Kvenstígvél og skó, Karlmannsskófatnað, fleiri teg., feikn af Barnaskófatnaði frá nr. 17 til 25. Skókhlífar, Strigaskó og Sandala — sem og allan annan skófatnað í stærstaúrvali og með lægsta verði í Skóverzlun Lárus Gr. Lúðvígsson. þeir höfðu á sínu valdi vestan við Yser-skurð. Bretar unnu mikinn sigur á Þjóðverjum hjá Richebourg l’Avons. Tóku þeir þar heila röst af skotgryfjum óvinanna og 1500 metra af skotgryfjum austan við Festubert. í öðru áhlaupi sóttu þeir langt fram í áttina til Quitqueveg- arins. Norðan við La Basse náðu brezk- ar hersveitir nokkrum skotgryfjum óvinanna. Manntjón óvinanna var mjög mikið í þessu héraði og xooo menn voru teknir höndum. Þýzk liðssveit, sem í vor 700 manr.s, lenti á milli vélbyssuskot- hríðar Breta og stórskotahríðar síns eigin liðs. Var hún strádrepin, svo að eigi stóð einn maður uppi. Norðan við Arras styrktum vér stöðvar vorar og héldum uppi bar- daga. Hrundum vér af oss gagn- áhlaupum Þjóðverja og sóttum fram í áttina til Sochez. Slæmt veður hefir varnað oss frekari framsóknar. Aköf skothríð og orusta heldur enn áfram í öllu þessu héraði. í Champagnehéraði, norðan við Ville sur Tourbe unnum vér ágæt- an smásiguráhlaupi voru var snild- arlega stýrt og biðu óvinirnir feikna manntjón. Rúmlega 1000 menn dauða fundum vér í skotgryfjunum og brjóstvígjunum. Vér gerðum árás hjá D’Ailly-skógi. Náðum vér þar skotgryfjum óvin- anna og vélbyssutn og tókum 250 manns höndum. Vér hrnndum öllum áhlaupum Þjóðverja allsstaðar. Sir John French talar um gasið. 1 skýrslu sinni þ. 4. þ. mánaðar farast Sir John French svo orð um gastegundir þær, sem Þjóðverjar eru farnir að nota í ófriðnum: Gasið, sem þeir nota, er leitt í pípum inn í skotgrafirnar, eða það er i sprengikúlum, sem sérstaklega eru til þess gerðar. Hersveitir Þjóð- verja, sem gerðu áhlaupin eftir að gasinu hafði verið veitt á okkur, höfðu andlitsverjur, og bendir það til þess að þeir hafi lengi búið sig undir það að nota gasið. Viku áður en þeir notuðu það í fyrsta skifti, sögðu þeir það i opin- berum tilkynningum sinum, að við værum farnir að nota kæfandi gas- tegundir. Þá gátum við enn eigi séð neina ástæðu til þessarar óskamm- feilnu lygi, en nú er það auðséð að það var aðeins undirbúningur. Þjóð- verjar hafa óttast að hlutlaus riki mundu fordæma aðferð sína, ef þeir hefðu ekki skelt skuldinni á okkur fyrst. Síðan óvinirnir tóku fyrst að nota þetta gas til þess að skýla framsókn liðs síns, hafa þeir altaf gripið til þess, bæði til sóknar og varnar, þegar tækifærj hefir gefist. Áhrifin af þessu gasi eru ekki óþægileg og kvalalaus eins og þýzku blöðin hafa komist að orði. Þeir, sem anda að sér gasinu og deyja ekki þegar í stað á vígvellinum, heldur eru fluttir til sjúkrahús, hafa óþolandi þjáningar og deyja venju- lega kvaladauða. Þeir, sem lifa, eru litlu betur komnir, því skaði sá, sem gasið hefir gert lungum þeirra, er svo mikill, að það er efasamt að þeir biði þess nokkurn tíma bætur alla sína æfi. Vísindamaðurinn þýzki, sem hefir lagt á ráðin um notkun gassins, hefir áreiðanlega vitað þetta og eins herstjórnin, sem skipað hefir fyrir um notkun þess. Eg er á þeirri skoðun, að óvin- irnir séu ákveðnir í því að nota þetta gas eins og hvert annað sjálf- sagt hernaðartæki, og þess vegna muni vera þýðingarlaust að hefja mótmæli. ------ DAÖÖÓBflN. C Afmæli f dag: Maigrét Guðmundsdóttir, húsfrú. Fransiska Júlíana Olsen, húsfrú. Maria ÞórSarson, húsfrú. Elín Magnúsdóttir, húsfrú. Hedvig D. Blöndal, húsfrú. Guðm. Stefánsson, húsgagnasm. Björn Björnsson, prestur, Laufási. Petra Teitsdóttir, jungfrú. Veðrið í gær: Vm. a. snarpur vindur, hiti 6,0 Rv. a. andvari, hiti 7,5 ísaf. logn, þoka, hiti 2,6 Ak. logn, þoka, hiti 1.0 Gr. logn, niti 5,0 Sf. logn, hiti 2,8 Þh.F. a. kaldi, hiti 6,6. Sóiarupprás kl. 3.5 f. h. S ó 1 a r I a g — 9.46 síðd. Háflóð í dag kl. 9.15 og í nótt — 9.39 Póstar í dag: Kjósarpóstur fer. Keflavfkurpóstur fer. Ingólfur til Borgarness. Cere3 á að koma frá útlöndum. A morgun: Ingólfur frá Borgarnesi. Kjósarpóstur kemur. Þjóðmenjasafnið opið kl. 12—2. Dagskrá á fundi bæjarstjórnar fimtu- dag 20. maí kl. 5 síðd.: 1. Fundargerð byggingarnefndar 15. maí. 2. Fundargerð fasteignanefndar 12. maí. 3. Fundargerð fasteignanefndar 17. maí. 4. Fundargerð veganefndar 17. maí. 5. Fundargerð hafnarnefndar 14. maí. 6. Fundargerð brunamálanefndar 13. maí. 7. Fundargerð fátækranefndar 11. maí. 8. Lagður fram reikningur elli- styrktarsjóðs árið 1914 og kosnir end- urskoðendur. 9. Umsókn Magnúsar Blöndahls um leigu a Stóra-Selstúni til fiskverkun- ar. 10. Umsókn Benedikts Jónssonar, fyrv. sótara um hækkun á eftirlaunum. 11. Erindi Gísla Þorbjarnarsonar um hringekju. 12. Brunabótavirðingar. Botnía kom til Khafnar 17. maí. Fer þaðan um Leith 23. maí. Ráðherra Einar Arnórsson fór ekki með Floru í gær. Vesta er væntanleg hingað snemma í dag. Jarðarför frú Maríu Finsen fer fram næstkomandi laugardag. Munið eftir Léreftunum Odýrust Tvisttau hjá Th. Th. hjá Th. Th.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.