Morgunblaðið - 11.06.1915, Síða 1
Ritstjórnarsími nr. 500 | Ritstjóri: VilhjAlmur Finsen. | ísafoldarprentsmiðja | Afgreiðslusimi nr. 499
2. árg'angr
216.
tðlsiblað
Handavinna
Málleysingjaskólans
verður til sýnis í dag frá 12—3 á Spitalastig 9.
Allir
ættu að kaupa í Smjörhúsinu, því að þar er verðið lægst
og vörurnar nýjar.
Gefins
með 1 kg. af kaffi eða I kg. af margaríne fallegt bollapar,
fyrir utan vanalega kaupbætismiða.
Verð á íslenzku rjómabússmjön er sett niður. Margarínið er niðursett
Smjorhusið
Simi 223. Hafnarstræti 22.
I- O. O. F. 976119 — III.
Conditori & Café
Skjaldbreið
íegursta kaffihús bæjarins.
Samkomustaður allra bæjarmanna.
Hljómleikar á ‘virkum dögum kl.
=9—sunnudögum kl. 5—6.
A.V. Mikið úrval af áqœtis kökum.
Ludvig Bruun.
Vaji der Sanden & Co’s
hollenzkn vindlar fást hjá öllum
kanpmönnnm. Sérstaklega skal mælt
meðtegundunum»Sanital«og»Globe«.
G|K Vindlar
■ ^lingemann & Co. Khöfn er eina
verbsmiðja í heimi, sem býr til
ekta »&. K.« vindla, »E1 Diplomat«
(litla) og »E1 Sol« (stóra) svo og
ýmsar aðrar fyrirtaks tegundir af
dönsknm vindlnm.
Nestor Gianacli’s
og
Westminster
Cigarettnr eru þektar nm allan
heim.
I heildsölu fyrir kaupmenn, hjá
G. Eiríkss, Reykjavík.
Símfregnir,
Kaupmannahöfn í gær.
Birtingj Ingólfs á skjölum
^emenninganna er hér
talið níðingsverk gagnvart
beim.
Erl, simfregnir.
Opinber tilkynning
W brezku ntanríkisstjórninni
í LondOQ.
London 9. júní.
4f . Utdráttur
^'"berurn skýrslum Frakka 5.-9. júni.
gr- ^rrashéraði gerðu óvinirnir
8agnihlaup 5. júní í því
höfðu að.ná a^tur stöðvum sem þeir
skotak n^'St' þeir ákafri stór-
r á svæðið milli Ablain
og Neuville og svöruðum vér þeim
i sama tón. Óvinirnir gerðu fimm
áhlaup á Lorette-hæðirnar. Látlaus
gagnáhlaup hafa þeir og gert í skóg-
inum austan við Aix Souchez. Alls
staðar voru þessi áhlaup brotin á
bak aftur. Vér náðum nokkrum
skotgryfjum óvinanna milli Souchez
og vegarins milli Ablain og Souchez.
Stóð þar grimmileg viðureign, sem
gekk oss í hag. Hjá Neuville héld-
um vér áfram sókn vorri inn í þorp-
ið og tókum þar nokkur hús. Einn-
ig drógum vér umsáturslið vort nær
vígi þeirra norðaustan við þennan
stað og náðum jarðgöngunum, sem
lágu þangað. Viðureignin var ákaf-
lega grimm, en áhlaup óvinanna
voru stöðvuð bæði af stórskotaliði
og fótgönguliði voru.
7. þ. m. náðum vér á vort vald
einum kilometer fyrir austan Lorette
og sömuleiðis 100 metrum í miðj-
um viggirðingum þeim, sem nefnast
Labyrinth. Vér höfum unnið á á
öllu þessu svæði og er barist þar af
miklum ákafa. Vér höfum treyst
allar stöðvar, sem vér höfum unnið
og hrundið öllum gagnáhlaupum.
Hafa óvinirnir mist margt manna.
Fyrir norðan Aisne, skamt frá
Hebuterne, réðumst vér á bóndabæ
og náðum hverri skotgrafaröðinni á
fætur annari á 1200 metra svæði.
Þjóðverjar hafa síðan gert sífeldar til-
raunir að ná þessum stöðvum aftur,
en hefir ekki tekist það, enda þótt
þeir hafi dregið þangað nýtt lið.
2000 fallnir Þjóðverjar lágu á víg-
vellinum. Vér handtókum 250 manns
og tókum 6 vélbyssur og tvær 77
millimetra fallbyssur að herfangi.
Vér unnum enn meira á siðar.
Milli Soissons og Rheims höfum
vér víða gert áhlaup og orðið allvel
ágengt.
S. þ. m. fundum vér hvar fall-
byssan var, sem skotið hefir verið
með á Verdun. Oss tókst að skemma
fallbyssupallinn með skotum vorum
og sprengja í loft upp skotfærabirgð-
irnar.
Kolanámurnar
í Barðastrandasýslu,
Guðm. E. Guðmundsson segir frá.
Guðm. E. Guðmundsson kom að
vestan með Botniu í gær. Höfðum
vér þegar tal af honum til þess að
fræðast um hvað nýtt væri að frétta
af námunum þar vestra. Viljum
vér nú í fám orðum skýra frá því
hvað honum hefir orðið ágengt og
látum hann sjálfan segja frá:
— í Skápadal hefi eg grafið 29*/^
fet niður í jörðina. Er þar fyrst
brúnn leir 3 al. 6 þml. þykkur og
síðan annað leirlag, 2 al. 12. þuml.
Þeim leir er hægt að brenna efhann
er settur á glóð jafnharðan sem
hann er grafinn upp. Síðan kemur
enn eitt leirlag, brúnt að lit, og er
það 2 al. þykt. Eg gerði engar til-
raunir með þann leir, en hygg að
hægt muni að gera úr honum gler-
ung. Undir þessu lagi kemur svart
NÝ J A BÍ Ö
JTlttnið efíir
shemtikvöídi
P.Bernburgs
í kvöíd.
leirlag, 8 al. á þykt. Sá leir brenn-
ur ágætlega, funar eins og olía, ef
hann er tekinn jafnharðan og hann
er grafinn. En leiki loft um hann
eina nótt eða svo, er alt eldsneyti
úr honum.
Eg varð að hætta greftrinum þarna
í Skápadal sökum þess að okkur
reyndist hann alt of erfiður. Var
þar svo mikið vatn, að við urðum
að ausa 5—600 fötum á dag upp
úr gröfinni, og enga dælu höfðum
við. Fór eg því yfir fjallið að Sjö-
undá og tók að athuga hvort nokk-
ur kolalög væri að finna í Stálfjalli.
Þar er fýrst surtarbrandur og leir,
en undir því fann eg hrein kol og
er það lag 18 fet á þykt. Það er
á 60—70 faðma löngu svæði og
hallar inn undir fjallið. Er hailinn
ca. ir/2—2 þml. á alin. Eftir því
sem eg komst næst, ættu kolin i
Skápadal þá að vera 500 fet niðri,
ef laginu hallar alt af jafnt.
Nú er eg kominn hingað til þess
að útvega mér verkamenn. Hefi eg
í hyggju að bjóða landsstjórninni til
reynslu svo sem 60—70 smálestir
af kolum þessum og ábyrgist eg að
enginn steinbrandur sé í þeim. Það
eru eingöngu hrein kol, og getið þér
hér séð sýnishorn af þeim.
Guðmundur dró þá upp úr vasa
sinum dálítinn kolamola og rétti að
oss. Er það hið fallegasta sýnishorn,
sem vér til þessa höfum séð af is-
lenzkum kolum.
— Hvað ætlið þér . nú að selja
þessi kol dýrtí spurðum vér.
— Fimtán krónur þar á staðnum.
Það er reifarakaup, en eg ætla mér
ekki að okra á þeim.
Nú er að vita hvernig Stjórnar-
ráðið tekur í málið.
Landar erlendis.
Gunnari Gunnarssyni skáldi er á
fjársögum Dana fyrir árið 1915— 16
veittur 300 króna fjárstyrkur i viður-
kenningarskyni fyrir skáldrit hans á
dönsku. Gunnar hefir ritað nokkrar
skáldsögur og smásögur og kvæði
eftir hann hafa birst í ýmsum dönsk-
um blöðum. Danir telja hann með
efnilegustu skáldum sinum.