Morgunblaðið - 28.06.1915, Side 4

Morgunblaðið - 28.06.1915, Side 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir kappmepp: Cfjivers niðursoðnu jarðarber ,°g Fruit Salad YÁTííYGGINGA^ LfOGMBNN Vátryggið tafarlaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Brithish Dominion General Insurance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. Sveinn Björnsson yfird.lögm. Fríklrkjuveg 19 (Staðastað). Simi 202. Skrifstofutími kl. io—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6 ávalt fyrirliggjandi, hjá G. Eiríkss, Keykjavík. Einkasala fyrir ísland. Vátryggið hjá: Magdeborgar brunabócafélagi Den Kjöbenhavnske Söassurance Forening limit Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. A. V. Tulinius Eggert Olaessen, yfirréttarmála' flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulsga heima 10—11 og 4—S. Simi 16. Olafur Lárusson yfird.lögm. Pósthússtr. 19. Simi 215. Venjulega heima 11 —12 og 4—5 H. P.DUUS kaupir eins og áður góða vorull Miðstræti 6. Talsími 254. Brunatrygging — Sæábyrgð. Stríðsvatrygging. Skrifstofutími 11—12 og 3 */2—41/*. Det kgL octr. Brandassnrance Co, Kaupmannahöfn vátryggir: hus. húsgðgn, alls- konar vðruforða 0. s. frv. gegn eldsvoða fyrir lægsta iðgjald. Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h. í Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen) N. B. Nielsen. Carl Finsen Laugaveg 37, (uppi) Brunatryggingar. Heima 6 l/t—Talsími 331. Jón Asbjðrnsson yfid.lögm. Austurstr. 5. Sími 433. Venjulega heima kl. 4—51/,. Guðm. Olafsson yfirdómslögm. Miðstr. 8. Sími 488. Heima kl. 6—8. Alt sem að greftrun lýtur: Líkkistur og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna, fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. hæsta verði. „Sanifas‘ er eina Gosdrykkjaverksmiðjan á íslandi sem gerir gerilsneydda Gosdrykki og aldina- safa (saft) úr nýjum aldinum. Sími 190. Reykið að eins: ,Cl)airman‘ og ,Vice Cf)air‘ Cigarettur. Fást i öllum betri verzlunum. Sími 497. Ullar-prjóna- tuskur keyptar hæzta verði gegn peningum eða vörum Vöruhúsinu. Silfurlands nótt. Skáldsaga om ræningja I ræningjalasdi 26 eftir Övre Richter Frich. Framh. — Hvernig veiztu það? Lopez hikaði við svarið. — Eg á yður lif að launa, herra, mælti hann að lokum. Og sá mað- ur, sem svíkur lffgjafa sinn lendir í eilífum kvölum helvítis. — Eg er Fernando Lopez---------og það nafn er vfðfrægt meðal rauðra manna. Martinez, sem beið bana þarna uppi í gildrunni, mnndi hafa lotið mér. Og Emiliano Zapata mundi feginn sverjast í fóstbræðralag við mig. — — Eg veit hvað er á seyði. Þér skiljið mig? — Eg skil þig, mælti Fjeld. Og eg veit það eins og við erum hérna, að þú áttir að koma mér fyrir katt- nef. Þú veizt hvert erindi mitt er? — J^i eg veit það, mælti Lopez. Þéreruð sendur hingað úr framandi landi til þess að ná manngarminum sem stolið var, úr klóm Zapata. Hafið þér lausnargjaldið? - Nei. — Það er gott. En hvað ætlið þér þá að gera? — Eg hefi í hyggju að stela ráð- herranum frá Zapata. — Hvernig? — Úr þvi verður tíminn að skera. — Og hver á að hjálpa yður til þess. — Hjálpa mér? Það gerir auðvit- að fylgdarmaður minn. Eg hefi leigt Fernando Lopez til þess að fylgja mér til Perote og herbúða Zapata fyrir 250 pesos. Er það ekki sæmileg borgun? Hví hikar þú? — — Við getum ekki gengið til Perote. — Nei, en við getum riðið þang- að, ekið í vagni eða bifreið.--------- — Það er ómögulegt------------Veg- irnir eru teptir. Eg veit hver ráð hafa verið lögð á. — Jæja, þá verðum við að fljúga þangað í Guðs nafni. Við skulum flýta okkur til flugskálans áður en félagar þinir leggja hann í auðn------ Þú ratar? — Já, en eg flýg ekki. Það er ekki við mitt hæfi. — Þú skalt gera það, maelti Fjeld. Og það fljótt. Við verðum að vera komin á flug áður en hanarnir gala. Varir Mexikanans bærðust, en hann sagði ekkert. Svo draup hann höfði, sneri sér við og gekk út á sléttuna. Sextándi kapituli. Flw’skdli Monde^os. Þetta var undarleg nótt. Úti við sjónarrönd i norðri sást dálítil silfurlit ljósrönd og þykk ský ultu yfir loftið eins og heriikarar trölla í gandreið. En blæjalogn var á. Það var eins og lungu náttúr- unnar væru úr lagi gengin. Mollu- leg brennisteinssvæla þandist yfir jörðina,'sem breiddi faðminn í móti hinum komandi degi. En í austri hófst sótrauður eld- strókur yfir sléttuna og sleikti him- ininn með blóðtungum sinum. Og fjarlægur hávaði, sem ýmist lækkaði eða hækkaði eins og ölduniður, barst að eyrum flóttamannanna, sem þreif- uðu sig áfram i myrkrinu. Neyðar- óp kváðu við, byssuskot dundu og stundum sáust tvö glóandi augu í einhverju ferlíki, sem kom innan úr borginni og þaut burt með feikna hraða. — Það voru skemtibifreiðir Mexikosborgar, sem flýðu ógnir blóðnæturinnar. Fernando Lopez gekk á undan, líkt og vesall rakki, sem töltir á undan húsbónda sínum. Alt i einu var eins og hinn mikli herra, sem stýrir hnattanna gangi, hefði dregið einhvern ársal til hliðar, og birtan streymdi yfir landið. Fjeld staðnæmdist undrandi. Það var. eins og birtan stykki milli fjallanna, af ási á ás og af stalla á stalla. Hún dansaði eins og vindur yfir landið og kunni sér engin læti. Hino mikli Fobus Apollo stóð sjálfur á hæsta fjallstindinum og skaut gló- andi eldörvum út í náttmyrkrið. —- — En hvað þetta er fagurt, taut- aði unga stúlkan. En hvað þetta er dýrðlegt land I Sjá I Þá var síðasta ársalnum um leið svift til hliðar og snæhvitur tinduf Popocatepetlo gnæfði hátt yfir þeii» og bar við himin sjálfan. — Við skulum hraða ferðuffl/ mælti Lopez hásum rómi. Hver maður er óvinur framandi manna k þeim degi sem nú rís. Eftir Haf minútur erum við komin til flug' skálans.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.