Morgunblaðið - 06.07.1915, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
■----- DAÖBÓFflN. C=3
Afmæli f dag:
Herdís Jónsdóttir, húsfrú
Kristín Gunnarsdóttir, jungfrú.
Magnús Arnbjarnarson, lögmaður.
Magnús Stephensen, verzlunarm.
Pótur Ingimundarson, slökkviliðsstjóri.
Jóhann Húss brendur fyrir 500
árum.
Sólarupprás kl. 2.20 f. h.
Sóiariag — 10.40 síðd.
Háflóð í dag kl. 12.40
og í nótt — 1.18
Veðrið í gær:
Vm. logn, hiti 9.5.
Rv. logn, hiti, 10.5.
ísaf. logn, hiti 6.7.
Ak. logn, þoka, hiti 7.0.
Gr. s. gola, hiti 11.5.
Sf. logn, hiti 7.0.
Þórsh., F. logn, þoka, hiti ,10.5.
Þjóðmenjasafnið opið kl.
12—2.
Ófriðarmyndir sínar — þar á meðal
>Orustan í Vogesa-fjöllum« — sýnir
Nýja Bíó í kvöid eftir áskorun fjölda
magra bsejarbúa.
Kvenhátíð. Konur þessa bæjar hafa
í hyggj u að halda morgundaginn hátið-
legan í tilefni af róttarbótum þeim,
sem þeim hafa hlotnast.
Alþing verður sett á morgun. Enn
eru nokkrir þingmenn ókomnir til
bæjarins.
Flora fór hóðan í gærmorgun
snemma með ótölulegan sæg farþega.
Flest af því var verkafólk á leið aust-
ur á firði.
•
Knattspyrnan hjá þaim »Val« og
»Fram« fór svo, að »Fram« sigraði
þrisvar og hinir einu sinni.
Ólafur Jónsson hreppstjóri á Geld-
ingaá i Leirársveit, andaðist í fyrradag.
Var hann einn af merkustu mönnum
sinnar sveitar, dugmikill og drengur
góður.
Ingólfur fór til Borgarness í gær á
hádegi. Meðal farþega voru dr. Helgi
Pjeturss í rannsóknarferð, ráðherra
Einar Arnórsson og dr. Jón Þorkelsson
á þingmálafund, sem haldinn verður á
Akranesi í kvöld, og margir fleiri.
Rich. Thors framkvæmdarstjóri h.f.
>Kveldúifur« og skipstjórar á skipum
félagsins fóru í gær með Ingólfi til
Borgarness. Ætla þeir þaðan landveg
norður á Akureyri. Skip féla’gsins eiga
að stunda síldveiðar fyrir Norðurlandi
í sumar.
Þingmálafnndur var haldinn í
Hafnarfirði á sunnudagskvöldið. Var
hann fremur fjölmennur og umræður
fjörugar. Fundurinn stóð til miðnætur,
en var þá frestað til næsta kvölds
kl. 8.
»Susanna«, leiguskip Nathan & 01-
sen, kom ningað í fyrrakvöld. Skipið
hafði þríllta fánann á siglu og
mun vera fyrsta erlenda skipið, sem
hingað kemur með það flagg.
Hestur fælist. Skömmu eftir há-
degi í gær fældist hestur sem var fyr-
ir vagni í Hafnarstræti. Hljóp hann
yfir Lækjartorg og upp Bankastræti.
Þar lenti vagnin á Ijóskeri og brotn-
aðl, en hesturinn var stöðvaður.
Hór er enn eitt dæmi þess, hve
hættulegt það er, að skilja hesta eftir
ótjóðraða fyrir vögnum á götunum.
Það er skeytingarleysi sem er óþolaudi
og ætti að hegna mjög stranglega.
Lögreglan ætti að hafa nákvæmar gæt-
ur á þeim ökumönnum, sem skilja
hesta sína eftir fyrir vagninum meðan
þeir ganga frá, án þess að þess að
binda þá. Annars hlýtur skeytingar-
leysi ökumanna að verða einhverjum
að bana fyrir eða síðar.
Póstmeistari fór með Flóru í gær-
morgun og ætlaði til Seyðisfjarðar fyrst
í stað. Þaðan mun hann fara landveg
norður um land.
Ófriðarsmælki.
Rússakeisari lagði ai stað frá
Petrograd 24. f. m. og ætlaði að
heimsækja hersveitir sínar á vígvell-
inum.
Kaupmaður nokkur í Kanada hefir
gefið 100,000 dollara til þess að
kaupa vélbyssur handa herliði Kan-
adamanna. Maðurinn heitir John
Eaton og býr í Toronto. Hann á
stórverzlanir í flestum meiriháttar
borgum í Kanada.
Það er sagt til marks um riki-
dæmi enskra verkamanna um þessar
mundir að einn þeirra kveikti í
pípunni sinni með 18 kr. seðli.
Dagblað eitt i Berlín, Deutsche
Tageszeitung, kom ekki út 20. f. m.
Er sagt að stjórnin hafi bannað út-
komu þess fyrir þá sök að i blað-
inu var hvatt til þess að slaka ekk-
ert til við Bandarikjamenn og halda
kafbátahernaðinum áfram miskunar-
laust.
Bastillu-dagurinn.
Þjóðminningardagur Frakka er þ.
14. þ. mán. Hefir þá venjulega ver-
ið mikið um dýrðir þar i landi, en
að þessu sinni verður þar ekkert um
hátíðahöld. Eru nú svo alvarlegir
timar, að þjóðinni virðist það ekki
rétt að hafa nokkurn fögnuð. Stjórn-
in hefir þó i hyggju að gera daginn
hátiðlegan með því að hafa her-
sýningu í Paris.
Skotnir fangar.
Menn rekur máske minni til þess,
að i vor var auglýst hér i blöðun-
um, að aliir óskih kundar, sem fyrir
finnist í bænum, yrðu settir inn og
siðan skotnir innan fárra daga, ef
eigendur gæfi sig ekki fram í tæka
tíð. Og ekki stóð á framkvæmdun-
um, því nokkrir hundar og tikur
hafa síðan hlotið þessi afdrif hér í
bænum i vor. Auðvitað er nauð-
synlegt að gera einhverja gagnlega
ráðstöfun fyrir þessum heimilislausu
og viltu vesalingum, en leitt er það
— ef satt er — ef menn, sem mæl-
ast til að fá ungan og álitlegan
rakka keyptan út (í þeim tiigangi
einum að hafa hann til þess að
■ verja og smala yfir sumarið) er þver-
neitað, þvi það eigi að skjóta hund-
inn. Og á hinn bóginn lýsir það
mikilli ómensku —r ef vera skyldi —
að fólk hér i bænum hafi það lag að
losna á þennan hátt við kvikindin
til þess að borga ekki af þeim iög-
boðinn skatt. Og oft er það af
ræktar- og kæruleysi fyrir ferða-
mönnum að þeir týna hundum hér
i bænum. Þeir ættu þó að vita að
pólití bæjarins hafa glögt eftirlit með
hundum og taka þá til hirðu.
Þessi hreingerning i bænum, að
losa hann við óheimila hunda, stefn-
ir þó því miður ekki alveg í rétta
átt, þvi þeir, sem að þessari tilrým-
ingu vinna, virðast fremur hafa augu
fyrir slátrun en prifum og hreinlati.
Hundarnir eru settir inn i svo
nefndan »hundakofa«, sem stendur
einna næst húsinu Frakkastig 19.
Þaðan heyrist til þeirra ýlfrið og
gólið nokkra daga, sem virðist helzt
lýsa þvi að þar sé að búa við leið-
indi og litinn kost. Loks þegar af-
takan er afstaðin eru þeir ýmist
grafnir í gamlan öskuhaug, sem rétt
er við kofadyrnar, eða þeim er fleygt
lítið lengra — nokkur fet fjær —
úr í holtið og iátrtir bíða skúra og
skins milli steina, þar til flugan hefir
gert þá að miljóna maðkahrúgu, —
handa börnurn og óvitum, sem þar
fara um til að undrast yfir eða dást
að. Þessi lik benda ekki á fram-
takssemi heilbrigðisnefndarinnar.
Það eru nú ekki nema 2 dagar
siðan hann þessi stóri, guli og loðni
rakki féll á pallinum. Af naumum
tíma var honum fleygt fullnærri
kofanum, en í gærkvöldi 4*/7. var hann
dreginn nokkra faðma lengra út i
urðina og kastað ofan á hræið nokkr-
um steinvölam. Samt geta þeir sem
vilja séð hann eins og hann er lang-
ur og loðinn til, eins og hina, sem
óhuldir liggja i holtinu milli Frakka-
stígs og Njálsgötu.
Sjón er sögu rikari! Máske þarf
þessi starfræksla einnig eftirlits við,
eins og ekki má kasta ösku eða öðru
órotnanlegu út í Skólavörðuholtið.
T.
ási.
Stúlku vantar nú þegar að L*^'
Húsaeigendur!
Því kastið þér út fé yðar að óþöríu
fyrir dýran olíufarfa og mikino
vinnukostnað þegar hægt er að
hús ykkar með
Hall’s Distemper
sem er miklu ódýrari og spar^
40% af vinnukostnaði.
Fæst í
Verzl. Björn Kristjánssoo
og
3 Siippfélaginn.
^ £eiga
L i t i 1 fjölskylda óskar eftir 2—3 bet-
bergja ibúfJ meó eldhási frá 1, okt. nsestk-
í góðn búsi ú góðam staÖ i bænum. Ti’"
boð merkt »GóO íbúð« sendist Morg®0'
blaðÍDn fyrir 10. júli. ^
Litil fjölskylda óskar eftir
herbergja ibúð frú 1. okt. Tilboð merk'
Ibúð< sendist Morgnnblaðinn.
L i t i 1 fjölskylda, barnlans, óskar eft‘r
2—3 herbergja ibúð með eldhúsi frú
okt. næstk. Tilboð merkt »Litil ibúð'
sendist Morgnnblaðinn fyrir 7. jáll.
Fyrir þingmann er til leign stór
stofa og svefnherbergi, móti snðri, annaö
hvort með húsgögnnm eða ún beirra.
R. v. ú.
fXaupsRapur ^
H æ z t verð ú nll og prjónatnsku® 1
»Hlif«. Hringið i sima 503.
Reiðhjól ódýrnst og vöndnðnst hjú
Jóh. Norðfjörð, Bankastræti 12. ^
Rúms t æ ð i, vöndnð og ódýr, og fl8ir|
húsgögn til söln ú trésmiðavinnnstofnnn
úLangavegil. ■
Ullartnsknr, prjónaðar 0g ofn9r>
keyptar hæzta verði i Aðalstræti 18-
Björn GnfimnndssoP^,
Barnavagn til söln með tœkif®rl9
verði. R. v. ú.
Barnakerra óskast til kanps. R-v^
F æ ð i fæst i Bankastræti 14.
Helga .Tónsdóttir.__
~inna
óskast ú 9Verfis-
Uppl. ú Hverf'
}leg stúlka ósk®8* ^5.
atsölnhúsið Lang
ristin Dablsted^^
cTapaÓ
ú »on0lú
Sjúlfblekingnr
daginn. Skilist gegn fundarl®
skrifstofn Morgunblaðsins.