Morgunblaðið - 05.10.1915, Blaðsíða 1
f*riðjudag
5.
okt. 1915
2. árgangr
332.
tölublað
Ritstjárnari.ími nr. 500 .| Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. |ísafoldarprentsmiðja
Reykjavíkur
Biograph-Theater
Talalmi 475.
BIO
Nútimans
Messalina
Stór og spennandi sjónleikur
í 3 þáttum, ioo atriðum.
Saumastofa.
Karlmannsfet
hvergi betur saurnuð. Fyrir-
taks efni og ágætur frágangur.
Komið í
VörnhiLSið.
Vefnaðarvörubuðin
i norðurenda hiissins, Hafnarstræti
20 niðri, fæst leigð nú þegar, hálf
-eða öll, eftir samkomulagi.
6. Eiríkss.
K, F. U. M.
Biblíulestur í kvöld kl. 8i/a
Allir ungir menn velkomnir.
Thorvaldsenstélagii
Samkomur byrja þriðju-
dag 5. okt. á veniulegum
stað og tíma.
;
Biðjið um:
Mazawattee
og
Lipton’s
heimsfrægá the í pökkum pg
dósum. Lipton’s sýróp, kjöt-
extract, pickles og annað súr-
meti, fisk- og kjötsósur alls-
konar, niðursoðið kjöt og tung-
ur, fæst hjá kaupmönnum um
alt land.
Umboðsm. fyrjr ísland
G. Eirikss, Reýkjavik.
Verzlunin
VEGAMÓT
Laugavegi 19
verður framvegis rekin undir mínu nafni, og fvrir minn reikning, —
hefir til sölu: Mat-, Nýlendu-, Niðursuðu-, Krydd og Hreinlætisvörur.
Allskonar Ö1 og Gosdrykki o. m. fl. —- Alt fyrsta flokks vörur, sem;
seldar verða við svo væga verði sem frekast er unt.
Areiðanleg viðskifti.
Reykjavík 4. okt. 1915. Virðingarfylst.
Hafliði þorvaldsson.
Sfeinoíta sú,
er dTisRifélacj cJslanós hofirpaníaó, vcréur
ssíó á SfainBryggjunni / dClQ•
Stjórn Fiskifélagsins.
Erl. símfregnir.
Opinber tilkynning
frá brezkn ntanríkisstjóminni
i London.
Skýrsla French.
London, 3. okt.
Sir John French tilkynnir 2. októ-
ber:
Vér gerðum gagnáhlaup { gær-
kvöldi og náðum því sem við ætl-
uðum að ná, en það voru 2 þýzkar
skotgrafir suðvestur af Loose. Þeim
höfðu óvinirnir náð með gagnáhlaupi
26. sept. Annars er ekkert að frétta
frá vígstöðvum vorum.
Ný ófriðarþjóð ?
Þýzka blaðið »Lokalanzeiger* flyt-
ur þá fregn frá Miklagarði, að á
norðurtakmörkum Indlands hafi stað-
ið blóðug orusta milli Breta og Af-
ghanista, og hafi 3000 Bretar fallið.
Sé þessi fregn sönn, sem alls eigi
er víst, þá er hér komin ný hraust
og herská þjóð inn i ófriðinn þar
sem Afghanistar ern.
Afghanistan liggur á hinni irönsku
hásléttu, sem cr milli Vestur-Ind-
lands og Persalands. Er það 538,000
ferkilómetrar að stærð og talið að
þar búi 5 miljónir manna. Tvær
þjóðir búa í landinu: Afghanar, sem
hafa lagt landið undir sig og drotna
þar, og Tadshikar, sem eru hinir
upprunalegu ibúar landsins og und-
irkúgaðir. Afghanar eru Múhameðs-
trúar af hinni svonefndu »Sunni-
hislu« trúbragðastefnu. I her þeirra
eru 50 þús. manns og hafa þeir
komið sniði Norðurálfuþjóða á her-
inn og hafa öflugt stórskotalið.
Húsnæðisleysið.
Þau vandræði, sem húsnæðis-
leysið hér i Reykjavík hefir vald-
ið eru alment umræðuefni, og er
það sízt að furða. En eg hefði
þó ekki farið að minnast á þau,
ef ekki hefði brytt á því hvað
eftir annað, að menn hafa kent
• bæjarstjórninni um alt saman,
því það nær ekki neinni átt. —
Bæjarstjórnin hefir sjálfsagt marg-
ar verknaðar- 0g vanrækslusyndir
á samvizkunni, sem eigi tjáir að
mæla bót, en það keyrir þó fram
úr hófi að kenna henni um alt
það, sem aflaga fer í bænum.
Málrófsmenn og vandlætarar
tala gjarna hátt um það, að menn
þurfi ekki að búast við því að
bæjarstjórnin geri neitt. En þeir
sömu menn eru þó að hvetja al-
þýðu til þess að varpa öllum sín-
um áhyggjum upp á bæjarstjórn-
ina, með því að skella altaf skuld-
inni á hana, er illa fer. Finst
Afgreiðsiusím’ nr. 500
NÝ J A BÍ Ó
sýnir i kvöld
(Ivar hlújárn).
Mikilfengkgur sjónleikur í 3
þáttum, sniðinn eftir hinni
frægu skáldsögu
Walther Scotts.
Sýning stendur yfir hálfa aðra
klukkustund og aðgöngumiðar
kosta þvi 60, 50 og 40 aura.
Mynd þessi var sýnd hér i fyrra
og hlaut almanoa lof. Er hún
nú sýnd aftur vegná áskorana
fjölda manns, sem hefir séð
hana áður og sökum þess að
nú er hér margir menn, sem
aldrei hafa séð hana.
K.F.U.K.
Saumafundur kl. 5 og 8
í kvöld.
mér sem þeir menn vinni litið
þarfaverk.
Ef menn hugsa um það, þá sjá
þeir eflaust að það nær ekki
neinni átt að bæjarstjórnin gangi
fyrir hvern mann og spyrji hann
hvort hann hafi þak yfir höfuðið
þegar að flutningsdegi kemur. Og
þótt bæjarstjórnin vissi um fjölda
manns, sem væri húsnæðislaus,
þá getur hún lítið bætt úr vand-
ræðunum. Hún á ekkert hús
sjálf, þar sem hún geti látið menn
fá húsaskjól. Og eigi hefir hún
heldur vald til þess að skipa
Pétri eða Páli að taka Jón inn í
hús sitt vegna þess að hann fái
hvergi inni. Þá efast eg um að
það sé sök til burtreksturs úr
bænum þótt mönnum gangi illa
að fá sér húsnæði, eða banna
megi fólki að flyta til kaupstað-
arins. Enda efamál hvort það
væri hagur fyrir Reykjavík þótt
sú stefna væri upptekin. Þeim
mun meiri framtíð á Reykjavík
fyrir höndum, sem íbúum hennar
fjölgar.
VíJc.
Bindindismönnum fækk-
ar í Danmörku,
Eftir því sem »Afholdsdagbladet«
danska segir, þá eru nú 192,726
bindindismenn í Danmörku, en voru
í fyrra 193,785. Þeim hefir þvi
fækkað á annað þúsund á þessu eina
ári.