Morgunblaðið - 20.10.1915, Side 1

Morgunblaðið - 20.10.1915, Side 1
IKiðvikd. 20. okt. 1915 2. árgrangr 347. tölublað Ritstjórnarbími nr. 500| Ritstjóri: Vilhjálmnr Finsen. Isaíoldarprentsmiðja Afgreiðslusím; nr. 500 ALÞÝÐUKONAN Þýzkur sjónleikur í 3 þáttum. Sérlega falleg, átakanleg og efuisrík mynd, samin af hinni alþektu kvik- myndadrotningu, Henny Porten, er sjálf leikur aðalhlutverkið af fram- urskarandi snild. Betri sæti tölusett kosta 50 aura alm. sæti 30 aura. Þorgr. Gudmundsen Vesturgötu 22 (uppi) kennir ensku og frönsku. íHeima til viðtals kl. 11—11 x/2 f. h. lítsaum og baideringu kenni eg eins og að undanförnu. Teikna á það sem óskað er og sel áteiknuð efni. Guörún JónsdóttÍT, Þingholtsstræti 3 3 Biðjid um: Mazawattee og Lipton’s heimsfræga the í pökkum og dósum. Lipton's sýróp, kjöt- extract, pickles og annað súr- meti, fisk- og kjötsósur alls- konar, niðursoðið kjöt og tung- ur, fæst hjá kaupmönnum um alt land. Umboðsm. fyrir ísland G. Eirikss, Reykjavik. Samsæti Tryggva Gunnarssonar. Það hófst kl. 8 i fyrrakvöld, og sátu það 125 manns, karlar og kon- ur. Sighvatur Bjarnason bankastjóri bauð heiðursgestinn velkominn. — Aðalræðuna fyrir minni heiðursgests- ins hélt Knud Zimsen borgarstjóri. Rakti hann i skörulcgri ræðu hið mikla starf, sem Tryggvi Gunnars- son hefir unnið fyiir þennan bæ og þetta land. Ræðu þessa þakkaði heiðursgesturinn, og mintist á hinn mikla þroska og þær framfarir, sem hér hefðu skeð frá því hann var ungur. Þá mælti fón Jakobsson landsbókavörður fyrir minni Reykja- víkur, en frii Briet Bjarnhéðinsdóttir talaði um það gagn, sem Tryggvi hefði gert kvenþjóðinni. Voru allar ræðurnar skörulegar og fjörugar. — Borgarstjóri las nú upp símskeytin, sem afmælisbaminu höfðu borist, bæði héðan af landi og frá útlöndum. Tala þeirra skifti tugum, því víða á Tryggvi vini. Mörg þeirra voru i ljóðum, þar á meðal þetta frá síra Matthíasi Jochumssym: »Fjarri dýrum drengjaher drekk eg vatn úr glasi. Kveðju samt þér síminn ber frá síra Matthíasi*. , Loks las Rikharður Jónsson upp fjögur rímnaerindi, sem ort hafði Guðm. Guðmundsson. A8 því loknu voru tekin upp borð og dans stlg- inn langt fram á nótt. Sjálft af- mælisbarnið sat í salnum og horfði á unga fólkið stíga »One step« og »Boston«, en lagði sjálft aldrei út á þá hálu braut. — Um þrjúleytið fylgdi veizlufólkið Tryggva Gunnarssyni heim, en söng- ur og kæti heyrðist um allan Mið- bæinn. Hinn áttræði öldungur steig stundu siðar úr rekkju í gær en hans er vandi. Símfregnir. Vestmannaeyjum i gær. Sterling kom hingað í nótt. Hafði hrept versta veður í hafi. Ómögu- legt að afferma skipið, sem hefir mikið af vörum meðferðis hingað. Meðan skipið lá í Leith komst upp um ýmsa skipverja að þeir höfðu áfengisbirgðir meðferðis, án þess að hafa tilkynt yfirvöldunum það við komu skipsins. Fundu tollþjónarnir brezku miklar vinbirgðir faldar hing- að og þangað um skipið og var það gert upptækt í Leith. Annar stýri- maður var tekinn fastur og honum haldið eftir, en hásetar og einhverjir Hifiwii¥ivif t UMLtAftAMHtt Leynilögreglusjónleikur í fjórum þáttum. 77Z/777 BÍÓ Þetta er áreiðanlega hinn áhrifamesti leyni iögreglusjónleiknr, sem hér hefir sýndnr verið. Hugrekki og ksenska Stnart Webbs á engan sinn líka — Leikinn af sama leikara og.Basker- villehnndnrinn* og • Reimleikinn hjá pró- fessornnm*. Þetta er ein af mynd- nm þeim, sem hafa verið teknar eftir at- hnrðnm úr lífi hins fræga lögreginþjóns Stuart Webbs. Og: það má mikið vera ef ein- hverjnm þykir ekki nóg nm, — svona stundum — þegar Stuart Webbs er hættast kominn. Liverpoof selur slna ágætu Sfeitiolíu enn i nokkra daga, fyrir 32 kr. tunnuna, en 161/* eyrir litirinn í smásölu. aðrir skipverjar voru dæmdir i sektir alt að 11 sterlingspundum hver. Óveður mesta undanfarna tvo daga. Ferðir milli Eyja og lands hafa ver- ið teptar um tíma og er það mjög svo bagalegt. Mikið af fé er enn í landi, sem flytja átti hingað, og bú- ast menn nú við því, að það verði að skera féð í landi. Þá eru um 600 tunnir af kjöti sem hingað áttu að koma frá Vík i Mýrdal til flutn- ings héðan til útlanda. Óvíst hvort tekst að koma þeim hingað hér eftir. Rafmagnsljósin eru í bezta lagi og hér loga ljós á götunum alla nóttina. Leikfélag Reykjavíknr Fjalla - Eyvindur eftir ióh. Sigurjónsson Aiþýðusýning miðvikudag 20. okt. kl. 8 síðd. Aðgöngumiðar seldir sama dag kl. io—12 og eftir 2 i Iðnó. Um „ Hesperian“. Lífvarðarforingi Rússa- __ keisara Þjóðverjar hafa enn eigi kannast við það, að þeir hafi sökt »Hesper- ianc, en Bretar þykjast þó hafa fulla vissu fyrir því að svo sé. Meðal annars bera þeir fyrir sig frásögu Smellis skipstjóra á gufuskipinu »Crossbyc, sem fór frá Lundúnum 31. ágúst á leið til Ameríku. Að kveldi hins 4. september segist skip- stjóri hafa séð »Hesperian« eigi all- langt frá sér, og rétt áður en full- dimt var orðið, kvaðst hann hafa séð skipið hallast eins og það mundi sökkva þá og þegar. Sagði hann að sér hefði fyrst komið til hugar að »Hesperian« hefði rekist á tundur- dufl og snúið skipi sínu þegar þang- að, er »Hesperian« var, til þess að reyna að bjarga einhverjum. En í sama bili sér hann hvar kafbátur kemur og stefnir beint á »Crossbyc. Sá skipstjóri þá þann kost vænstan að flýja og þykist eiga myrkrinu það að þakka að hann kom »Cross- byc undan heilu og höldnu. hengdur fyrir föðurlandssvik. Þegar ófriðurinn hófst, var sá mað- ur lífvarðarforingi Rússakeisara er Ivanoff Miassaiaedoíf hét. Var hann í rr.iklu áliti, bæði hjá keisara sjálf- um og eins yfirherstjórninni, fyrir gáfur sínar, skarpskygni og herstjóra- hæfileika. Hann var og átrúnaðar- goð heldra fólksins i Petrograd og hvers manns hugljúfi. Þegar ófriðurinn hófst sótti hann um lausn frá starfa sínum og mælt- ist til þess að vera gerður að líf- varðarforingja Nikulásar stórfursta. Fanst keisara þetta svo sjálfsagt, að hann veitti honum þegar þá beiðni. En Miassiedofl vissi hvað hann fór, og hann notaði þessa nýju stöðu sina til þess að njósna fyrir Þjóð- verja. Þó komust föðurlandssvik hans upp um siðir, og var hann þá hengdur, ásamt nokkrum öðrum mönnum, sem höfðu verið i vitorði með honum. Saga þessa máls er sögð á þessa

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.