Morgunblaðið - 20.10.1915, Page 4

Morgunblaðið - 20.10.1915, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ George Duncan & Go., Dundee. Sérverksmiðja i Dundee- og Kalkútta-striga-pokum, og Hessians til fiskumbúða. Framleiðir allar jule-vörur. Stórt úrva! af allskonar Hessians ávalt fyrirliggjandi hjá umboðsm. fyrir ísland, G. Eiríkss, Reykjavík. STEINOLÍA. Ódýrasta steinolían í bænum. Kaupið steinolíu að eins eftir vigt. Tóm íöt undan steinolíu, sem keypt er hjá okkur, kaupum við aftur á 6 krónur hvert. Snúið yður til: Verzl. V O N, Laugavegi 55, °g Verzl. á Vesturgötu 50. Talsími 353. Talsími 403. Beauvais nlðursuðuvörur eru viðurkendar að vera langbeztar í heimi. Otal heiðurspeninga á sýningum víðsvegar um heiminn. Biðjið ætið um Beauvais-niðursuðu. Þá fáið þér verulega góða vöru. Aðaiumboðsmend á íslandi: O. Johnson & Kaaber. Gríman. 5 6 Skáldsaga eftir Katherine Cecil Thurston. Framh. í fáum dráttum lýsti Loder stefnu afturhaldsmanna, og hann gerði sér far um það að beita ekki til fulln- ustu hinni meðfæddu mælskugáfu sinni. Honum fanst eigi enn vera kominn tími til þess. Á þessari stundu, þegar hann stóð þar sem Chilcote átti að standa og talaði fyrir hans munn, fann hann bezt til þess hvern vanda hann hafði tekið sér á herðar. Það hefir jafnan verið erfitt að vekja áhuga brezka þingsins fyrir pólitíkinni í Persíu, en takist það, þá getur áhuginn orðið ðfgakendur. En sá sem hefir máls á þessu á mest á hættunni — hann á það á hættu að tala fyrir daufum eyrum. En Lod- er gat sneitt hjá þessari hættu vegna þess hve glögt hann sá erfiðleika þá, sem honum voru búnir. Hann talaði eins og sá sem vald hefir, og það bregst ekki, að slíkt hefir jafnan áhrif. Og hann rakti viðfangsefnið með hinni mestu ró- semi. Hann benti á það kapp sem Rússar legðu á það að komast suð- ur á bóginn og hættu þá, sem brezkum kaupmönnum stafaði af því í Indlandi, Afghanistan og jafnvel í Bretlandi sjálfu. Eftir það fór hann nokkrum orð- um um hag þessara manna, sem hvergi ættu griðland svona langt í burtu frá ættjörð sinni, nema hjá brezku konsúlunum. En hann sýndi jafnframt fram á það, að konsúlarnir gætu ekki veitt þeim neina vernd. Hann benti á vald Rússa og það, að það væri að eins tvent, sem héldi í hemilinn á þeim fyrst um sinn eftir að þeir hefðu sezt að i Meshed: Annað væri það, að þeir vissu að Bretum mundi eigi á sama standa ef þeir gerðust um of uppivöðslu- samir þar syðra, og hitt væri það, hvernig Persaland mundi snúast við því ef þeir ætluðu sér meira eu það að bæla niður uppreistina. En Eng- land væri langt á brautu, og Persaland gæti enga rönd reist við Rússum, vildu þeir fara sínu fram. Og er hann hafði þannig gert grein fyrir skoðun sinni mótmælti hann því kröftuglega að málið væri dregið á Geysir Export-kaffi er bezt. Aðalumboðsmenn: 0, Johnson & Kaaber, Alt sem að greftrun lýtur: Líkkistur og Líkklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. Þeir, sem kaupa hjá honum kistuna, fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. Sími 497. LtGöMENN Sveinn Bjðrnsson yfird.lögm. Fríklrkjuveg 19 (Staðastað). Simi 202. Skrifstofutími kl. io—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—é. Eggert Claessen, yfirréttarmáia- flutningsmaður Pósthússtr, 17. Venjulega heima 10—11 og 4—5. Simi i$. Jón Asbjðrnsson yfird.lögm. Hverfisgötu 45 (hús Matth. Einars- sonar læknis, uppi). Sími 435. Heima kl. 1—2 og 5—6 síðd. Guðm. Olafsson yfirdómslögm. Miðstr. 8. Sími 488. Heima kl. 6—8. Skúli Thoroddsen alþm. og Skúli S. Thoroddsen yfirréttarmálaflutningsmaður, Vonarstræti 12. Viðtalstimi kl. 10 —11 f. h. og 5—6 e. h. Hittast á helgidögum kl. 6—8 e. h. Simi 278. Lesið Morgunblaðið. langinn án þess að þingið hefði fengið fullvissu um það hjá stjórn- inni að gætt yrði hagsmuna Breta bæði í Meshed og Khorasan. Áhrif þau sem ræða Loders hafði voru einmitt eins og flokkur hans hafði framast óskað. Hún hafði snortið alla áheyrendur, og er hann fékk ekkert svar af stjórnarinnar hálfu, heimtaði hann það, að atkvæði yrðu þegar greidd um málið og af- leiðingin varð sú, að stjórnarflokk- urinn varð í mjög litlum meirihluta. Það hafði mikla þýðingu fyrir Loder að hann hafði þannig réttlætt breytni sína og látið til sin taka. Áður hafði hann einn vitað um hæfileika sina, en nú þektu fleiri þá og hann var nógu barnalegur i sér að gleðjast af þvi. Hann varð þess fyrst var að lok- inni atkvæðagreiðslu, er Fraide kom til hans og tók innilega í hönd hans. — Kæri Chilcote! mælti hann. Við erum allir montnir af yður. Svo horfði hann nokkra stund al- varlega i augu Loders og mælti svo: — En þér verðið að lofa mér þvi að hugsa altaf um framtiðina, en láta ekki nútiðina villa yður sjón- ir, hversu bjðrt og fögur sem hún kann að virðast. — Loder skalf af geðshræringu er hinn mikli maður Regnbápiir karla, kvenna, drengja og telpu panta eg undirritaður með því sem næst innkaupsverði, fyrir hvern er hafa vill. Fyrir kvenfólkið úr 30 mis- munandi gerðum (Faconer) að velja, og fyrir karlmennina úr 12 gerðum. Sýnishorn fyrirliggjandi, engin fyrir- fram greiðsla. Fljót afgreiðsla. Carl Lárusson. Fyrst um sinn Þingholtsstr. 7, uppi. Heima kl. 1—4. daglega. VÁTÍ^YGGINGA^ -*tgi| Vátryggið tafarlaust gegn eldi, vörur og húsmuni hjá The Brithish Dominion General Insurance Co. Ltd. Aðalumboðsm. G. Gíslason. Br unatry ggin gar, sjó- og stríðsvátryggiugar. O. Johnson & Kaaber. A. V. Tulinius Miðstræti 6, Talsimi 254. Brunatrygging — Sæábyrgð. Stríðsvatrygging. Skrifstofutími 10—11 og 12—3. Det kgl octr. Brandassnrance Co. Kaupmannahöfn vátryggir: hus, lmsgögn, alls- konar vöruíorða o. s. frv. gegn eldsvoða fyrir lægsta iðgjald. Heimakl. 8—12 f. h. og 2—8 e. h. i Austurstr. 1 (Búð L. Nielsen) N. B. Nielsen. Carl Finsen Laugaveg 37, (uppi) Brunatryggingar. Heima 6 */*—7 x/« Talsími 331. Bezt að auglýsa í Morgunbl. tók í hönd hans, en honum rann kalt vatn til rifja er Fraide mælti seinustu orðin. Hættan, sem sífelt vofði yfir honum, slökti þann áhuga- eld, sem kviknað hafði njá honum. Hann kipti ósjálfrátt að sér hendinni. — Þér eruð alt of góður, herra Fraide, svaraði hann. Og þér hafið ætíð á réttu að standa. Maður ætti aldrei að gleyma því, að dagur kem- ur eftir þennan dag. Gamli maðurinn leit forviða á hann. Honum fanst málrómur Loders eitthvað undarlegur. En sigurgleði Loders var horfin. Þær Lady Sarah og Eva komu til þess að samgleðjast honum, en hann tók heillaóskum þeirra með mesta kæruleysi. — Þakka, mælti hann, en eg er ekki í þvi skapi nú, að eg geti farið heim með yður Lody Sarah. Það eru líklega — líklega taugar mínar, sem enn einu sinni angra mig. Hann hló stuttlega. — Viljið þér, hr. Fraide, skila til Evu að eg voni það að hún sé ánægð með framkomu mína ? mælti hann lágt um leið og hann kvaddi gamla manninn. Og svo gekk hann í snatri burtu úr þinghúsinu án þess að tala nokkuð við hina mörgu menn, sem biðu þess að samgleðj- ast honum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.