Morgunblaðið - 03.01.1916, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
3. janúar verður Vöruhúsið lokað vegna vöru-upptalningar.
Jieimkoma íjermatma.
Allar ófriðarþjóðirnar hafa tekið upp þi reglu að senda hermenn sína heim til skiftis Hefir það gefist
vel til þess að gera þá ánægða. — Hér á þessari mynd sjást brezkir hermenn sem fengið hafa heimfararleyfi og
hitta ástvini sína á járnbrautarstöðinni. Verða þar iöngum fagnafundir, er heim koma menrt, sem ekki hefir
frézt af tímunum saman. Hér tekur gömul kona á móti yngsta syni sínum sem nú cr einn eftir af þremur
bræðrum, er gengu í herinn. Hér hittir aldraður niaður einkason sinn, sem nú er orðinn liðsforingi Kona
með barn sitt mætir manni sínutn, hann tekur bar.iið á handlegg sér, en konan tekur við byssu mannsins og
heldur á heuni. — Má næiri geta að þeim þykir vænt um sem heimta þannig sína úr helju. En þungur harm-
ur er kveðinn að hinum, sem bíða á stöðinni en þekkja engan af þeim sem koma, en fá þær fregnir að ást-
vinir sinir munu aldrei koma heim framar.
Mjólkursalan.
Vér höfum löngum haldið því
fram að slíkt væri ósvinna að hækka
nú verð á mjólk, svo sem mjólkur-
framleiðendur (sumir hverjir) ætluðu
að gera. En vér höfum leitt það
hjá oss að rekja það með tölum,
hvað hver einstakur maður eyðir
miklu fóðri í kýr sínar, þótt oss
hafi staðið það til boða. Liggja til
þess tvær orsakir. Önnur er sú,
að svo mikið má gefa kúm, að úr
hófi keyri, sbr. málsháttinn: Sjaldan
launar kálfur ofeldi. Menn getalát-
ið kýr sinar eta svo mikið fóður,
að þær geldist við það, en leggi alt
til fitunnar. Væri það eigi allgóður
mælikvarði á verð mjólkur að miða
við það ef kýrin etur of mikið og
geldist við það um leið.
Hin ástæðan er sú, að vér vitum
að hér er enginn mælikvarði á
mjólkurverð annar en sá, er útlend
mjóld setur, og er það þó hastar-
legt. Oss hefir jafnan fundist, að
eigi mætti þegja við því, ef mjólk-
urframleiðendur hér settu hærra verð
á mjólk sína en hér er á útlendri
mjólk. Og finst oss þó sem vér
teygjum oss þar langt, því sann-
girni ætti að mæla með því, að í
öðru eins búnaðarlandi og ísland er,
ætti það að vera fyrsta hugsun allra
þeirra er búnað stunda að keppa við
erlendan markað, eigi einungis hér
i landi, heldur einnig erlendis. En
nú er dýrtið og höfum vér altaf
tekið tillit til þess, enda þótt bænd-
ur hrópi hátt og biðji menn að
skeyta ekki slíkri vitieysu I
Höfum vér átt nokkurn þátt að
þvi að verðlagsnefndin tók i taum-
ana og ákvað hámarksverð mjólkur,
þá þykir oss fremur að því hróður
en hitt. En síðan sú ákvörðun verð-
lagsnefndar kom, hafa mjólkurfram-
leiðendur átt fund með sér og sam-
þykt þar í einu hljóði að standa
sem einn maður til að verja rétt
sinn 0% atvinnu qcgn ofurríki peirra
er meðvöldinýara. (Leturbreyting vor.)
Þetfa mun vera stílað til verð-
lagsnefndar. En jafnframt lýsir fund-
urinn þvi yfir á annan hátt, að það
sé sjálfsagt skilyrði fyrir þvi að börn
og sjúklingar geti lifað hér i Reykjá-
vík að mjólkin fáist með því verði
er framleiðendur vilja vera láta. Þetta
er þeim mun hastarlegra þar sem
pað er þó öllum augljóst, að geril-
sneydd mjó'ik getur ekki verið óhollari
en nýmjólk, og sé hún ódýrari þá
kaupa menn hana heldur. Þessi yfir-
lýsing er líka einkennileg að þvi
leyti að þarna á fundinum voru
margir menn, sem ails eigi hafa áð-
ur hækkað mjólkurverð sitt úr 22
aurum.
Verðlagsnefndin hefir áður ákveð-
ið hámarksverð á ýmsum vörum,
og hafa kaupmenn ekki séð sér fært
að kvarta undan því. Hefir hún þá
auðvitað gætt allrar sanngirni og
haft fyrir augum hag kaupenda jafnt
sem seljenda. En gull má jafnvel
kaupa of dýrt! Verðlagsnefndin
hefir þvi sjálfsagt gætt þess jafnan
hvert meðalmarkaðsverð var á hverri
vöru. Að þessu sinni mun hún
auðvitað hafa farið eins að. Hún
hefir auðvitað ekki farið til þeirra
manni er seldu mjólkina dýrast,
heldur til hinna. Og öll alþýða á
ekki að gjalda þess þótt einstakir
menn séu ekki svo ráðdeildarsamir
sem þeir ættu að vera.
Hitt finst oss eðlilegt, að finni
mjólkurframleiðendur til þess, að
þeir geti fengið meiri ágóða með
því að hagnýta mjólkina á annan
hátt þá geri þeir það. Slíkt bannar
enginn. Eti gætu mjólkurframleiðend-
ur baft meiri ágóða af mjólk sinni
með því að framleiða smjör og osta,
heldur en selja mjólkurpott. á 22 aura,
þá furðar oss það mest að þeir skuh
ekki hafa tekið upp þann kost fyrir
löngu.
■i'SSS» O A ©-B O H' * .N. tíS23
Afmæli í dag:
Bernhard Smidt, vélstj.
Magnús Þorsteinsson pr. Mosfelli.
Brezkt herskip kom hingað á ny\
ársdag og tafði hér fram eftir deg>n'
um. Um erindi þess er ókunnugt.
Af Akranesi var 03s símað að þaí
hefði verið dágóður afli milli jóla og
nýárs, 40—50 í hlut af heldur vsen-
um fiski.
Flora fór héðan vestur á fjörðu a
Nýársdag. Fer á ísafjörð og snyr
þaðan aftur til Reykjavíkur.
Hekla, sem áður hót Ask, kott>
hingað á gamlarsdag. Skipstjóri et
Guðm. Kristjánsson.
Heilbrigðisfulltrúinn mun eiga von
á >n/árslireðju« frá MorgunblaðinU
innan fárra daga. Ýmsra orsaka vegna
var ekki unt að taka mál það fyr>r ^
þessu blaði.
Hadda-Padda hefir verið leikin tvö
undanfarin kröld fjrir troðfullu hú8>-
Bræðurnir Þórarinn og Eggert GuÖ'
mundssynir endurtóku kirkjuhljómle'^
sinn í gærkvöld. Geröu áheyrendur
hinn bssta róm að leik þeirra.
Verzlunarskýrslur fjrir árið 19^
eru komnar út. Leitt að ekki skul'
vera hægt að koma skýralunum
fyr. Þriggja ára gamlar skýrslur
gamlar til þess að menn alment get
notfært sér þær.
Skautasvell hefir verið allgott *
Tjörninni undanfarið — en fátt b®^r
verið þar um manninn.
Manntjón Breta.
Hálf miljón manna.
Asquith gaf nýlega skýrs'u
brezka þinginu um manntjón $ret
skýrsla ef
til 9. desember. Sú
þannig:
í Frakklandi og FlæmingjalaD£^^
Fallnir liðsforingjar
Særðir -
Horfnir —
Fallnir hermenn 77'4