Morgunblaðið - 04.02.1916, Síða 1
í'Östudag
4.
febr. 1916
H0B6DNBLADIÐ
3. árgaugr
92.
tölublað
Ritstjérnarslmi nr. 500
X 0. 0. F. 97249 — I.
Dr. Morris.
Stór, ábrifamikill og afarspenn-
andi sjónleikur i 4 þáttum.
Vel saminn og snildarlega vel
leikinn af góðkunnum dönskum
leikurum.
Aðgm. kosta: 10, 30 og 50 au.
*
Isf. sörtgvasafn
— I. BINDI —
150 uppáhaldssönqlö^ pjóðarinnar
með raddsetninqu við allra h<efi.
Stærsta og ódýrasta fslenzka nótnabókin
sem út hefir komið til þessa. Prentuð i
vönduðustu nótnastungu Norðurðlfu á
sterkan og vandaðan pappir.
Ómissandi fyrir alla söng-
vini landsins!
Fæst hjá öllum bóksölum.
Verð 4 kr. Innb. 5 kr.
Bókaverzfun
Sigf Eijmundssonar.
Kaupið Morgunblaðið.
Record
Bkilvindan,sæn8ka,er vanda-
minst i meðförnm, og end-
ingarbevt. Skilnr 125 litra
á klnkkustnnd, 0? kostar
að ein8 kr. 65,00. Fæst
hjá kanpmönnum.
Ellams Doplicators
vélritnn, svo og allar tegundir
af farfaböndum og öðru til-
heyrandi ritvélum, ávalt fyrir-
liggjandi hjá
Umboðsm. fyrir ísland,
G. Eiríkse,
Reykjavik.
FlóðiO i Hollandi
hefir enn tekist að stemma stigu
!^r’r flóðinu mikla í Hollandi. Brezk
05 frá 24. janúar segja, að dagana
® undan hafi flóðið aukist mikið
/tns hóruð og þorp, sem ekki hafði
^tt yfi| fyF) g^u un(fir vatni.
^t'nfremur hafa orðið flóð í Þyzka-
1 hjá Oderósum og hafa þau valdið
tjóni.
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen.
Erl. simfregnir
(frá fréttaritara ísafoldar og Morgunbl.)
Kaupm.höfn 31. jan.
Tvö Zeppelinslofttör flugu
yfir Paris og vörpuðu niður
sprengikúlum. 25 menn biðu
bana.
Þjóðverjar sækja fram hjá
Somme og hafa handtekið
1200 hermenn.
Frakkar tóku aftur skotgraf-
irnar, sem þeir rristu.
Orustan heldur áfram.
K.höfn 2. febrúar.
Goremyken forsætisráðherra
í Rússlandi hefir sagt af sér.
Sturmer hefir tekið við for-
sætisráðherraembættinu.
Ófriðaræsingar hafa orðið
mjög miklar i Bandaríkjunum.
Wilson forseti hefir látið í
ljós að dregið geti til ófriðar.
Lincoln strokinn.
Svo sem fyr hefir verið getið hér
i blaðinu, varð Lincoln nokkur,
brezkur þingmaður, uppvis að því í
fyrravetur að njósna fyrir Þjóðverja.
Hafði hann ætlað sér að leiða nokk-
urn hluta brezka flotans í gildru og
var það atvik eitt sem réði því, að
honum tókst það eigi.
Fyrir rúmu ári hvarf hann svo
burtu af Englandi, því að hann áleit
sér þar ekki vært lengur. Hélt hann
vestur um haf og settist að í Banda-
ríkjunum.
Bretum var það nú í mun að geta
fest hendur í hári hans og gátu þeir
auk landráða sannað á hann fjár-
svik. Fyrir þær sakir var hann svo
tekinn fastur í Bandaríkjunum og
heimtuðii Bretar sér hann iramseldan.
Voru sendir menn úr Scotland Yard
vestur um haf til þess að sækja
hann, en einhver dráttur varð á því
að maðurinn yrði framseldur og
hefir málafærslumönnum hans tekist
að vefja málið.
Nú er Lincoln strokinn úr varð-
haldinu eg veit enginn hvað af hon-
um hefir orðið. Er það ætlan manna
að hann muni hafa notið Þjóðverja
að, til þess að komast undan.
Lincoln þessi er af ungverskum
ættum.
ísafoldarprentsmiðja
Stefna Wilsons
Slæmur dómur.
New York blaðið »Tribuna« flyt-
ur nýlega þessa grein um framkomu
Wilsons forseta, sérstaklega þó í
hafnbannsmálinn. Er það einhver
hinn leiðinlegasti dómur sem nokk-
ur þjóðhöfðingi getur fengið.
Greinin er svo (hér tekin eftir
»Times«):
Eftir því sem »Tribuna« hefir
verið sagt með leyfi forsetans,
þá er stefna hans í þeim málum,
er England varða, sú, að draga á
langinn. Hann mun halda áfram
að mótmæla harðlega hafnbanni
Breta og krefjast þess af brezku
stjórninni, að hún virði siglinga-
frelsi Bandaríkjanna. En hann gerir
þetta án þess að búast við, eða æskja
þess, að Bretar verði við því. For-
setanum er það fyllilega ljóst, að
bandamönnum mun aldrei koma til
hugar að slaka hið minsta á til-
raunum sínum um það að einangra
Þýzkaland, og hann veit það einnig
vel, að slík tilslökun yrði Bandaríkj-
unum að eins til bölvunar. Hann
veit það að ástæðan til þess að
Þjóðverjar hafa verið svo sáttfúsir
við Bandaríkin, er sú, að þeir hafa
vonað að af því mundu rísa deilur
milli Bandarikjanna og Breta. En
það er ætlan hans að koma í veg
fyrir það.
Hann ætlar að jafna málin við
Bretland að ófriðnum loknum. Hann
mun halda áfram að senda »nótur«,
og hinir æðstu menn landsins munu
láta hafa eftir sér orð, sem eiga að
styrkja menn í þeirri trú, að Mr.
Wilson sé mjög gramur frændum
sfnum, Bretum. En bak við alt
þetta mun leynast sú von, að ein-
hver í Lundúnum sé nógu skarp-
skygn til þess að sjá það, að þetta
er að eins leikur til þess að villa
Þjóðverjum sýn.----------
Hið eina atriði, sem virðist óljóst,
er það, hvernig málalokin eiga að
verða milli Bretlands og Bandaríkj-
anna. Forsetinn viðurkennir það,
að þólt það sé dregið að jafna mál-
in þangað til ófriðnum er lokið, þá
þá sé það ekki sama sem að skjóta
þeim á frest til eilifðar. En það er
sagt, og haft eftir beztu heimildum,
að forsetanum sé það ekki vel Ijóst,
hvernig hann á að fara með allar
»nóturnar« sinar að strlðinu loknu.
Hann verður að viðurkenna það, að
hann hefir gefið Bandaríkjunum fyrir-
heit um það, að gera eitthvað til þess
að fá bætt það tjón, sem ætla má
að þau hafi orðið fyrir af ráðstöfun-
um Breta. En í viðskiftunum við
Þýzkaland hefir hann vaðið reyk
(Blaðið kemst enn neyðarlegar að orði:
»íje has muddled trough«, segir það).
Afgreiðslusimi nr. 500
N Y J A BI O
CARMEN
eða
Astin hatrinu yfirsterkari.
Sjónleikur í 3 þáttum.
Aðalhlutv. leika:
Frk. Robinne og Alexandre.
Hadda Padda
Leikrit 1 4 þáttum
eftir GuOm. Kamban
verður leikin laugardag 5.
og sunnudag 6. þ. m.
i Iðnaðarmannahúsinu
í siðasta sinn.
Tekid d móti pðntunum i Bókverel. Ita-
foldar nema þd daga tem leikid er, Þd
eru aðg.miðar eeldir i Iðnó. — Pantana té
vitjað fyrir kl. 8 þann dag tem leikið er.
Hann hefir verið upphafsmaður að
því, sem hann vonar að einhver
annar muni geta ráðið fram úr. Öll
stefna stjórnarinnar er bygð á þvi,
að ófriðurinn muni standa nógu
lengi fram á sumarið til þess að for-
setinn losni við aðfinslur á fram-
komu sinni, þangað til forsetakosn-
ingu er lokið. En þeir sem vel
fylgjast með, hafa bent á það, að
hin núverandi stefna stjórnarinnar
í utanríkismálum sé aðeins stefna
Wilsons sjálfs, en hvorki »demo-
kratac-flokksins né stjórnarinnar. —
------Þess ber að geta, að »Tri-
bunat er eitt af helztu blöðum
Bandaríkjanna og andvígt Wilson
forseta.
British Museum lokað.
Brezka stjórnin hefir ákveðið að loka
öllum opinberum söfnum í landinu, þar
á meðal British Museum. Lestrarstof-
an verður þó höfð opin fyrst um sinn
meðan bjart er á daginn.
Stjórnarskifti í Ítalíu?
Það er mælt í enskum blöðum
að Salandra-ráðuneytið muni bráð-
lega segja af sér. Si heitir Luzalle,
sem talinn er sjálfsagður til þess
að mynda nýtt ráðuneyti.