Morgunblaðið - 22.04.1916, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Kvæði Jónasar á dönsku þóttu
ágæt og fekk hann lof mikið fyr-
ir bæði í Danmörk og Noregi.
Hafði hann þau á norsku framan
af, þótti meiri þróttur í norsk-
unni, enda feldi hann sig ekki
við dönskuna og ritaði tæplega
eins gott mál (dönsku) eins og
t. d. Gunnar Gunnarsson. Sögur
Jónasar standa kvæðum hans að
baki að mínu áliti, sálarlýsingar
hans þokukendar víða, endalítur
út fyrir að hann vildi taka meira
tillit til ýmsra lýsinga á íslenzku
þjóðlífi, eins og t. d. í Solrun og
hendes Bejlere, er hann lýsir þar
álfadans, nýjársgleði, heyslætti,
seljalífi o. fl. Jónas var eflaust
of mikill ofstopamaður og óró-
leikamaður til þess að geta bund-
ið sig við viðfangsefni, er tæki
lengri tima að glíma við. Þess
vegna eru smákvæði hans ýms
lang bezt og urðu þau æ heilsteypt-
ari, formfegruri og tilfinninganæm-
ari. Við og við hafa birzt smá-
kvæði eftir hann, eftir að síðasta
Ijóðasafn hans kom út, í dönskum
blöðum og tímaritum, t. d. í »Vore
Damer«. Eru mörg af þeim
ljómandi falleg, lítil meistaraverk,
og hygg eg að enginn núlifandi
danskra skálda hafi staðið honum
fraraar í ljóðalistinni á þessu sviði,
að steypa í bragarbundið mót
undurnæmum tilfinningavitrun-
um sínum.
En nú er hann dáinn, hörpu-
strengir brostnir og einu skáldi
færra í Danmörku.
' 4. J.
í febrúarmánuði kom brezkur kaf-
bátur inn fyrir landhelgi Noregs og
stöðvaði þar fleiri en eitt skip og
heimtaði að fá að sjá skjöl þeirra.
Norðmönnum þótti sér illa misboðið
með þessu og gerðu fyrirspurn um
það til Lunddna, hvernig á þessu
gæti staðið. Fengu þeir þar það
svar, að kafbátsforinginn hefði mis-
skilið fyrirskipanir sínar. En það
þótti Norðmönnum ekki nóg og
mótmæltu þeir kröftuglega þessu til-
tæki kafbátsins og héldu því fast
fram að það væri þvert ofan i al-
þjóðalög að erlend herskip væru með
uppivöðslu innan landhelgis hlutlauss
rikis — því að landhelgin væri frið-
he!g.
Bretar hafa nú viðurkent þetta og
beðið Norðmenn fyrirgefningar á
þessu athæfi kafbátsins.
Sænskir föðarlandssvikarar,
Þrír jafnaðarmenn sænskir hafa
verið teknir fastir og eru ákærðir
fyrir að hafa undirbúið ýmsar
ráðstafanir til þess að hindra liðs-
samdrátt Svía, ef til ófriðar kæmt.
Það er búist við því, að þeir
verði dæmdir í margra ára
Jangelsi.
Rannsóknir Breta á skipum.
m
Samkvæmt norskum blöðum hefir
brezka stjórnin nú nýlega tilkynt
stjórnum hlutlausra landa að ýmis-
konar breytingar verði á rannsókn-
um á skipum á höfum úti. Er tal-
ið að ástæðan sé sú, að Möwe hafi
verið á að sjá sem vanalegt flutn-
ingaskip, en haft margar fallbyssur
huldar við borðstokkinn. — Héreftir
gefa varðskipin þeim skipum, sem
rannsaka á, merki um að halda
kyrru fyrir á löngu færi. Hlýði
skipin ekki því, verður undir eins
skotið á þau. Síðan verður bátur
sendur um borð í skipin, en her-
skipin liggja langt í burtu. A nótt-
unni verða skipin stöðvuð með ljós-
merkjum.
Austurrlkismenn hefja sókn?
>Politiken« flytur þá fregn þ.
11. apríl, að Austurríkismenn séu
nú í óðaönn að búa sig undir
það að hefja allsherjarsókn á
hendur ítölum. Hafa þeir flutt
til vígstöðvanna þar ógrynni liðs,
sem áður var haft til vonar og
vara á landamærum Rúmeníu,
og auk þess koma þangað nýjar
hersveitir innan úr landi og
feiknin öll af hergögnum.
Roald Amundsen.
Svo sem kunnugt er hafði Roald
Amundsen það í hyggju, áður en
ófriðurinn hófst, að fara til Norður-
heimskautsins. Hafði norska stjórn-
in og þingið lofað að leggja fram
200.000 króna til fatarinnar.
En er ófriðurinn hófst, þótti
Amundsen sem ríkið mundi þurfa
á öllu sínu fé að halda og slepti þvi
öllu tilkalli til fjárins og settist um
kyrt.
En nú er hann að hugsa um það
að Ieggja af stað, ekki alveg að svo
stöddu, en sumarið 1917. Fer hann nú
að búa alt undir förina. Hann ætlar
ekki að nota >Fram« til fararinnar,
heldur ætlar hann að fá sér nýtt
vélskip, 100 smálesta.
Norskur blaðamaður átti tal rið
Amundsen nýlega um norðurför
hans og spurði hann hvort hann
ætlaði eigi að fara þess á leit við
stjórnina að hann. fengi fé það, sem
honum hafði verið áður haitið. —
Kvað Amundsen nei við því, en
kvaðst eigi slá hendinni á móti þvi,
ef stjórnin vi'di leggja fram fé til
fararinnar. Hann kvað nú vera svo
mikið fé til í landinu að engin hætta
væri á því að eigi fengist nægilegt
fé og það mnndi aldrei standa i vegi
fyrir förinni þótt stjórnin vildi eigi
styrkja sig neitt með fjárframlögum.
Fyrirætlanir Amundsen eru annars
hinar sömu og áður. Hann ætlar
að fara til Point Barrow, norðan við
Alaska og fara á isi yfir íshafið.
Póstflutningnr frá Bretlandi.
í tilefni af greininni í fimtudags-
blaðinu, hefir póstmeistarinn beðið
oss geta þess, að það sé með öllu
rangt, sem þar er haldið fram að
póststjórnin geri lítið til þess aðláta
póstflutningaskip færa póst hingað
til lands. Gat póstmeistari þess, að
póststjórninni ensku væri tilkynt
bréflega um hvert skip, sem hingað
ætti að koma frá Bretlandi, og hún
beðin um að senda póst með þeim.
En það hefir varla komið fyrir að
Bretar hafi skeytt því. Briem gat
þess og að það væri ómögulegt fyrir
póststjórnina hér að skipa Bretum
að senda póst — hún (póststjórnin)
gæti ekki gert meira eða annað en
hún þegar hefði gert.
Eitt er það í þessu máli, sem
póstmeistari ekki tók fram og lík-
lega ekki veit. Vér höfum það
fyrtr satt, að Bretar hafa upp á síð-
kastið aldrei látið sækja póst um
borð í flutningaskip, sem héðan hafa
komið néheldur hafa þeirflutt póst um
borð í skipin sem hingað hafa kom-
ið með póst. Bretar hafa skipað
skipstjórum skipanna að afhenda og
sækja póstinn á land. Það er þvi
ekki nægileg ráðstöfun — ef duga
skal — að rita brezku póststjórninni
þessu viðvíkjandi. Póststjórnin verð-
ur að biðja skipstjóra skipanna, sem
í förum eru hingað, að nálgast póst-
in í landi i Bretlandi. En fæstir
þeirra munu vera fáanlegir til þess
fyrir annaðhvort enga borgun eða
þá svo lítilfjörlega borgun, að hún
er ekki nægileg fyrir kostnaðinum
og ómakinu við að nálgast póstinn.
Það er, að voru áliti, ekki nóg að
borga leigutaka skipanna fyrir rúmið
sem pósturinn tekur i skipum. Það
verður einnig að þókna skipstjórun-
um yrir þeirra ómak. Að öðrum
kosli getur það aldrei blessast.
■ ■■ ..+e>m<am - ---
CS DAGOÓFflN. ra
Veðrið.
Fostudag 21. apríl.
Vm. nv. andvari, frost 3,2
Rv. a. ku1, frost 3,6
íf. na. snarpur vindur, frost 4,3
Ak. logn, frost 6,0
Gr. logn, frost 6,0
Sf. n. kaldi, frost 5,1
Þh. F. nnv. kaldi, hiti 0,7
Páskamessur í dómkirkjunni:
Páskadagsmorgun kl. 8, síra Bjarni
Jónsson.
Páskadag kl. 12, síra Jóhann Þor-
kelsson.
2. pásakadag kl. 12, síra Bjarni Jóns-
son (altarisganga).
2. páskadag kl. 5, síra Jóhann Þor-
kelsson.
Gangstéttin fyrir framan Laugaveg
40 er oss sögð illgangandi vegna þess,
hve mikið er þar af glerbrotum.
Kjallararústirnar í Miðbænum hafa
verið hálffullar af ís i vetur. Kom inn
í þær sjór og skólp úr holræsunum f
haust og lagði þaðan illan daun. En
hvað mun verða nú þegar fer að hlýna
í veðri? Skolpið hefir úldnað í- vetur
og mun flótt spilla andrúmsloftinu í
bænum, þegar ísinn leysir af því. Það
væri því bráðnauðsynlegt að hreinsa
kjallarana hið fyrsta að hægt er.
Botnía fór hóðan til Vestfjarða í
y rrakvöld.
Víðavangshlaupið. Það var háð á
skírdag eins og til stóð. Var múgur
manna umhverfis Austurvöll til þess
að horfa á það. Einn keppenda var
veikur (Einar Pétursson) og gat því
eigi hlaupið þreytt i fjögra manna
floknum. ■ Fyrstur varð Jón Jónsson,
myndsmíðanemi, þá Ólafur Sveinsson,
prentari, þá Ottó Bj. Arnar, símritari
og síðan hver af öðrum. En er hinir
fyrstu voru komnir til marksinB, þyrpt-
ist fólk f veg fyrir hina síðari og tafði
þá mjög. Er það leiðinlegt og ættl
jafnan að gæta þess, að slíkt kæmi eigi
fyrir.
Gullfoss. Fregn hefir borist hing-
að frá skipstjóranum á Gullfossi, að
Bretar hafi lagt hald á allan póst-
flutning sem var < skipinu.
Drengur varð fyrir hjólreiðamanni
í Bakarabrekkunni í fyrramorgun.
Datt drengurinn og meiddist töluvert.
Klinb. Það er ljótur ósiður, sem
fer hér í vöxt árlega, þetta »Klink«
sem drengir eru að leika sór að hór f
bæ. Það er altítt, að fátækir drengir
eyði í því 50—200 aurum á dag —
aurum, sem móðir þeirra hefði fulla
þörf fyrir að fá. En klinkið gerir
meira ilt. Það elur upp í drengjunum
spilafysn og vogunarfýsn (hazard).
Foreldrar, prestar, kennarar og lögregla
ættu að taka höndum saman um það
að útrýma þessum ósið. Lofið ung-
lingunum að leika sór, þeir hafa gott.
af því. Eti takið fram fyrir hendur
þeirra, þegar þeir taka upp álíka leika
og »klinkið« er.
Snmarið heilsar heldur kuldalega,
Þó hefir verið bjart veður núna um
helgina, sólskin báða dagana, en loft-
kuldi mikill og frost mikið um nætur.
Morgunblaðið kemur út á morgun,
én ekki á annan í páskum.
Lóuhópar margir eru komnir, og'
halda þeir sér á túnunum hór í grend.
Fremur kuldaleg móttaka, sem lóan
fær í þetta sinn.
Dr. Guðmundur Finnbogason hólt
áleiðis frá Kaupmannahöfn til New
York á skipinu »Hellig 01av« 6. apríl.
Samkvæmt dönskum blöðum voru 600"
farþegar á því skipi, er það fór.
Baldur kom inn af fiskveiðum með
fullfermi af ágætum fiski.
Mjölnir fór hóðan fyrir um '/2 mán.
álelðis til Bergen með fiskfarm frá h.f.
Kveldúlfi. Svo sem Breter fyrirskipa,
silgði skiplð fyrst til Lerwick tll rannsókn-
ar, en þar liggur það enn. Hafa Bretar