Morgunblaðið - 31.05.1916, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 31.05.1916, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ að hverfa þaðan innan lítils tíma, þá er það engin afsökun þess að hafa fisktorgið svo ilt, sem það er. Annaðhvort er nú fyrir bæinn að láta þcgar í stað gera nýtt fisktorg, steinsteypta palla með skolpræsum og vatnsleiðslu, eða þá að gera sæmi- lega við þetta fisktorg. Væri gert nýtt fisktorg, þyrfti það að vera á þeim stað, sem ætla mætti að orðið gæti til frambúðar. Fyrst verður því að finna þann stað, og bænum má ekki verða skotaskuld úr því, vegna þess, að »einhvers staðar verða vondir að vera«. Því næst er að gera þann stað hæfileg- an, leggja þangað skolpræsi, og vatnsleiðslu og gera steinsteyptan pall — eða palla — eigi einungis undir fisktrogin sjálf, heldur tals- vert stærri o. m. fl. Bærinn gæti síðan tekið svo hæfilega leigu af fisksölunum, að hann biði sjálfur ekkert tjón við þetta. Og svo ætti að banna fisksölu annars staðar. En vilji bærinn hitt heldur, að tjalda til einnar nætur, og nota gamla fisktrogið svo lengi, sem kost- ur er á, þá kemst hann þó ekki hjá því, að gera við það. Hann verður að gera steinsteyptan pall yfir það alt og leggja þangað skolpræsi og vatnsléiðslu, þar sem það er ekki fyrir. Það er þýðingarlítið að skamma fisksalana fyrir óþrifnað, þegar þeim er afmarkaður sá staður, þar sem ómögulegt er að gæta þrifnaðar í hitum á sumrin. Væri nú fisktrogið samt einhvers staðar í útjaðri bæjar- ins, þá gerði það minna til að sumu leyti, en að hafa það hér í Miðbæn- um, eins og það er, verður að telj- ast óþolandi. Héilbrigðisnefnd ætti að vera það ljóst, að hér er farið með rétt mál, og væntum vér þess að hún geri sitt til að rumska við bæjarstjórn- inni. Það er öllum í fersku minni röggsemi hennar í lifrarbræðslumál- inu, en hvað eru óþrifin af lifrinni og grútnum í samanburði við óþrif- in af fisksölunni eins og hún er nú ? Vér teljum það tvent ólíkt. Af grút- arbræðslunni stafar þó eigi jafn mikil óhollusta. Menn verða að gæta þess, að fisktorgið er í raun og veru búr alls bæjarins — og hver mundi vilja hafa slík óþrif i sínu búri? Það er eigi nóg með það, að ódaunninn, sem þaðan kemur, eitri andrúms- loftið 1 bænum, heldur hefir hann einnig áhrif á fiskinn, sem berst á land daglega og við borðum dag- lega. En vegna þess að það er ofur auðvelt að kippa þessu i lag, þá höfum vér haft orð á þvi. Þá fyrst er bærinn hefir gert sitt til að bæta úr ólaginu, má veitast að fisksölun- um, ef þeir gæta eigi sæmilegs þrifn- aðar og láta þeim það í koll koma. En — meðal annara orða — hefir bærinn ekkert hugsað Um það að reka fisksölu ‘í sumar, eins og í vetur? Eða virðist honum það öld- ungis óþarft, að fenginni reynslu? Pétur Jónsson, operasöngvari. Þá er hann kominn heim til fæðing- arstaðar síns, maðurinn sem frægastur er allra íslendinga fyrir rödd sína og söngkunnáttu. Hann kemur beina leið frá Þvzkalandi, þar sem hann hefir sungið öll aðalhlutverkin í operum þeim, er sungnar hafa verið á leik- húsinu í Kielarborg og víðar í Þýzka- landi — og söngfróðir blaðamenn hafa kepst um að lofa söng hans og leikara- hæfileika. — Pétur Jónsson kom hingað á Botníu í gær, feitur, glaður og sællegur. Það sózt ekki á honum að hann hafi dval- ið í hinu matarsaauða Þýzkalandi, þar sem margir dagar hafa liðið svo, að Pétur hefir ekkert smjör fengið á stríðsbrauðið sitt. — Hafið þór fitnað svona á leiðnni, spurðum vór Pótur, þegar vór hittum hann á Botníu í gær. — Flestir söngvarar eru i góðum holdum. Eg er að eins 220 pund, og það þykir ekki mikið í Þýzkalandi, — Hve lengi ætlið þór að dvelja hér og hvenær ætlið þór að syngja fyrir okkur? — Dvel hór að eins stutta stund. Vitanlegan ætla eg að syngja. Eg má til að syngja. Og Pótur hleypur raulandi niður í bátinn. Til allrar hamingju var báturinn vænn og gat borið mikinn þunga. Stjórnarbreyting í Þýzkalandi. »Politiken« flytur þá fregn þ. 23. mai að þá sé það afráðið hvernig stjórnarbreytingin I Þýzklandi verði. Helfferich, sem verið hefir fjármála- ráðherra, verður nú innanrikisráð- herra, en sá heitir Roedern er tek- ið hefir við fjármálaráðherra embætt- inu. Þá hefir og v. Batocki verið gerður að »matarráðherra*, eins og frézt hefir fyr. Þá um kvöldið átti þegar að birta ýmsar lifsreglur þær, sem hinn nýi matarráðherra, ætlar að leggja þjóð- inni. Eggert Stefánsson ■ mundsdóttir, sem áður var við vstö^S-' ina þar, ráðin stöðvarstjóri frá sama sima. »Elektron€. Hann hefir sungið tvö kvöld í Bárunni, fyrir troðfullu húsi fyrra sinnið og nær fullu húsi seinna sinnið. Fregnir höfðu borist hing- að í sænsku blöðunum um söng- hæfileika Eggerts og þvi sízt að undra, að margir urðu til þess að heyra hann. Eggert Stefánsson hefir sterka og mikla rödd, framúrskarandi hljóm- mikla og oft mjög þýða. Tónsviðið er ekki sérlega stórt, en hann kann að beita röddinni og virðist »kunna« að syngja. Það er einhver hreimur í röddinni, sem laðar að og hrífur áheyrendurna. Ymsir smágallar munu hafa verið á söng hans fyrra kvöld- ið, t. d. það, að hann söng ekki ætíð alveg hreint. En yfirleitt má segja, að það væri unun að heyra til Eggerts. Langbezt þótti honum takast, er hann söng íslenzku lögin eftir Árna og Sigfús. Sum þeirra voru sungin af hreinustu snild. Víst er það, að hér hefir »Nótt« eftir A. Th. aldrei verið betur sungið. Eggert hefir óefað mikla og góða framtíð fyrir sér sem söngmaður. Það er áreiðanlegt, að ísiand er ein- um listamanninum rikara þar sem Eggert er. Frú Ásta Einarson lék undir á piano af mikilli snild. Var hrein- asta unun að heyra undirspil hennar. Hún mun vera færust allra hér á landi til þess starfa. Það hefir heyrst, að Eggert muni ætla að syngja aftur bráðlega, og er það vel farið, þvf það var verulega skemtilegt að heyra hann. I Hraýn. --------- Símatíðindi. Nýjar línur til Hajnarýjarðar. Tvær nýjar línur hafa nú verið lagð- ar til Hafnarfjarðar í viðbót við þær 2, sem fyrir voru. Seinna, þegar búið er að leggja hina fyrirhuguðu nýju línu milli Hafnarfjarðar og Keflavíkur og Hnurnar til Hafna og Grindavikur, verða sett upp 2 huldu- línusambönd milli Reykjavíkur og Hafnarfjarðar. Reykjavik hefir þá 6 sambönd við Hafnarfjörð. Þar af verður eitt notað fyrir viðskifti við Keflavik og Gerðar, og annað fyrir Grindavík, Hafnir og fleiri smá- stöðvar. Kalastaðakotslínan. Þessa dagana er verið að leggja línu frá Reyjavík að Kalastaðakoti, og er búist við að lagningunni verði lokið seint i þess um mánuði (maí). Línan er tvö- öld úr 3,3 m 3. koparþræði. Hajnarfjörður. Stöðvarstjórinn, sem verið hefir í Hafnarfirði undan- farið, lætur af því starfi frá 1. júlí næstk. og er nú frú Ingibjörg Ög- eas DA0BÓRIN. ESZ* Afmæli í dag. Guðrún Helgadóttir, húsfrú. GuSrún Þorsteinsdóttir, jungfrú. Lovisa Sveinbjörnsson, húsfrú. Sigurlaug Lárusdóttir, jungfrú. Tryggvi Hjörleifsson, stud. med. Pótur Zophoníasson, skrifari. Yiggo Snorrason, símþj. Nýtt tungl kl. 6.37 e. h. Sólarupprás kl. 2.31 S ó 1 a r 1 a g — 10.21 Háflóð í dag kl. 5.12 f. h. í nótt og kl. 5.31 e. h. Veðrið í gær: Þriöjudaginn 30. maí. Ym. v. andvari, hiti 7,0 Rv. logn, hiti 7,5 If. n.a. st. gola, hiti 4,3 Ak. n.n.v. andvari, hiti 3,0 Gr. logn, hiti 2,0 Sf. logn, hiti 2,9 Þh. F. s.a. andvari, hiti 9,3 Messað á morgun í Fríkirkjunni t Hafnarfirði kl. 12 á hád. (sr. Ól. Ól.). Altarisganga. 1 Fríkirkjunni í Rvík kl. 5 síðd. (síra Ól. Ól.). Botnía kom hingað kl. 1 í gær. Farþegar óvenju margir þ. a. m. Pótur Jónsson operasöngvari, Þorv. Þorvarðar- son prentsmiðjustjórl, Þorst. Jónsson bókhaldari, frú Hildur Loftsson, Guð- brandur Jónsson ritari, Arni Riis kaup- maður, Carl Riis kaupm. og frú og barn, Þorv. Benjamínsson og frú og barn, Mikkelsen umboðsmaður Smjör- hússins, Þórður Jónsson, Olsen verk- fræðingpr, ungfrú Kristín Þorvalds- dóttir, Jungfrú Helga Jacobson, frú Kr. Kragh, Þórður Bjarnason stórkaupm. og frú hans, Pótur Hjaltested úrsm., Th. Thorsteinsson kaupm., Tofte banka- stjóri, Haukur Thors útgerðarstjóri, ungfrú Magnþóra Magnúsdóttir, An- dersen lyfsali í Stykkishólmi, Guðm. Bergsson póstafgrm. ísafirði. jungfrú Sigríður Sighvatsdóttir, Theodor John- sen bakari, stúdentarnir Hallgrímur Hallgrímsson, Steinn Steinsson, Finnb. R. Þorvaldsson o. fl. Frá Vestm.eyjum. komu Gísli Johnsen konsúll og frú hans, Sigfús M. John- son yfirdómslögmaður, Siggeir TorfasoU kaupm., Kristján Gíslason kaupm-> Gunnar Ólafsson kaupm., Magnú* Þórðarson kaupm., Arni Johnsen 0. — Botnía hafði fengið fyrirtaksveðuí alla leið og tafðist aðeins ll/2 aól*r'‘ hring í Lerwlck. Hjá Bárnnni stendur öskutuuu* með alls konar góðgæti í og leggur því óþef yfir þvera götuna. Sá, se01 á, ætti aö hirða hana hið allra fyrS*'í' eða áður én heilbrigðisfulltrúinn & nokkra vitneskju um þetta, Þv' hann er vís til þess að verða vond1

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.