Morgunblaðið - 08.07.1916, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
H.P.Duus A-deild
Hafnarstræti
Hegnhápur
Sumarkjóíatau
TTIönsfrað moíí
Tltpakka svart og misl.
Sundboíir og Sundfjaffar
Jiandkfæði
Miklar byrgðir af
Svunfuefnum
Alt nýjar vörur.
ínni, því að visvitandi hefði hún
aldrei fleygt fé úr bæjarsjóði áður
fyrir ekkert.
Samþykt var með 6 atkvæðum
gegn 5 að kaupa landið. En þetta
var fyrri umræða og þarf því málið
aftur að koma fyrir bæjarstjórnarfund.
Framh.
--------------------1—
Á að leggja niður
Eiðaskólann?
Búnaðarskólinn á Eiðum er sam-
eign Norðurmúlasýslu og Suður-
múlasýslu, sem kunnugt er. — Á
sýslunefndarfundi Suðurmúiasýslu 22.
maí síðastl. kom fram tillaga um að
sýslan fyrir sitt leyti hætti að starf-
rækja skólann og sliti sameign sinni
við Norðurmúlasýslu um skólann,
allar eignir Eiðastóls og alt það laust
og fast er skólanum fylgir með nán-
ari ákvörðunum.
Tillaga þessi náði samþykki fund-
arins með 7 atkv. gegn 6.
Þetta gerðist á þeim fundi er
Guðm. Eggerz sýslumaður sagði af
sér embætti, er stjórnarráðið feldi
úr gildi úrskurð hans um fundar-
setu eins sýslunefndarmanns. Reið
atkvæði sýslumanns og baggamuninn
við ofangreinda samþykt.
Hinn meðeigandi Eiðaskólans,
Norðurmúlasýsla, telur gerðir Suður-
múlasýslu ólöglegar. Þar sem báðar
sýslurnar hafi í sameiningu samið
reglugerð um sameign og tilhögun
á skólanum, þá geti önnur þeirra
ekki tekið sig til upp úr þurru og
gengið úr félagsskapnum, án alls
samkomulags við hinn meðeigand-
ann.
Sýslumaður Norðurmúlasýslu hef-
ir skrifað stjórnarráðinu út af þessu
og krafist ógildingar á gerðum
sýslunefndar Suðurmúlasýslu i þessu
máli.
Úrskurður stjórnarráðsins er ekki
fallinn enn, en mun væntanlegur í
þessum mánuði eða fyrripart ágúst.
Astæða Suðnrmúlasýsln fyrir úr-
sögn sinni úr félagsskap um Eiða-
skólann, er ekki kunn. En hyggja
má, að hún sé þessi eðlilega óánægja,
sem hefir einlægt verið vakandi út
af því, að Eiðaskólinn var ekki tek-
inn í tölu bændaskóla landsins eins
og Hvanneyrarskóli og Hólaskóli.
Teljast Austfirðingar vera þar
órétti beittir á við aðra landsfjórð-
unga. — Enda má segja að sann-
gjarnt hefði verið, ef bændaskólarnir
að eins áttu að vera tveir, að þá
hefði annnar verið hafður á Austur-
landi en hinn á Vesturlandi, en ekki
báðir á vesturhelmingi landsins.
Auðvitað hefir Eiðaskólinn styrk
úr landssjóði, 3000 kr. á ári, en það
er ekki fullnægjandi til að halda
honum í sæmilegu horfi. — Sjálfsagt
tekur næsta þing þetta mál til sann-
gjarnrar meðferðar.
H.
Utan af landi.
Selveiðar. Frá Seyðisfirði sendi
Stefán Th. Jónsson kaupmaður skip-
ið »Óðinn« til selveiða norður i is-
haf í maíbyrjun. Kom það aftur
seint í júní og hafði þá veitt 300
seli og einn ísbjörn. — Fremur hafði
verið storma- og þokusamt þar nyrðra
að því er Austri segir og oft óhægt
um veiðar.
Mislinqar voru farnir að gera vart
við sig á Austfjörðum áður en Flóra
fór þaðan. íþróttamót ætluðu Aust-
firðingar að halda 2. júlí, en sýslu-
maður Suður-Múlasýslu og héraðs-
læknirinn í Fljótsdalshéraði lögðu
bann við sakir mislingahættu. Aðr-
ar ráðstafanir gegn útbreiðslu veik-
innar ekki sagðar gerðar.
Óstundvísi bæjarstjórnar.
Stundvísi þekkir bæjarstjórnin ekki
og hefir líklega aldrei þekt. Þess
vegna »hefir farist fleiri en ein
flyðran undir borði« hjá henni, og
þess vegna liggur við sjálft að oft
og einatt verði ekki fundafært tvisvar
í mánuði. I stað þess að hér ætti
að vera haldinn bæjarstjórnarfundur
i hverri einustu viku.
Einu sinni — en það er nú langt
síðan — var þó bæjarstjórninni farið
að blöskra sitt eigið framferði, og
var að hugsu um að samþykkja að
sekta hvern þann fulltrúa, er kæmi
of seint á fund, eða kæmi alls eigi,
nema því að eins, að hann tilkynni
forföll. Þá batnaði um tima, en nú
sækir í sama horfið aftur. Seinast
hafði bæjarstjórnin hálftíma yfir— eða
nær það. Fundur var ekki settur
fyr en kl. 5,20 i staðinn fyrir kl. 5.
Þá kom Bríet. Sumir komu þó
seinna. Og sumir komu alls ekki.
Lagleg, litil húseign
á góðum stað í bænum óskast keypt nú þegar.
Af sérstökum ástæðum þarf að gera út um kaupin fyrir 12. þessa núc'
Tiboö óskast
Lárus Fjeldsted.
Cg fiofi verió Baóinn aó raóa
3 fjásefa á móforbáf <* CsRífirti-
Verða að fara með Flóru eða Gullfossi. Fast kaup eða hlutdeild í afl*
eftir samkomulagi.
Lárus Tjejdsfed.
Menn eru nógu fjandi gráðugir
í það, að vera kosnir í bæjarstjórn,
en þegar þeir eru komnir þangað,
þá minkar áhuginn.
E5S3 DAGBÓFJIN. CSSS
Veðrið í gær:
Vm. logn, hiti 10.6
Rv. logn, hiti 12.0
íf. a. gola, hiti 8.0
Ak. n.n.v. gola, þoka, hiti 8.0
Gr. logn, hiti 9.5
Sf. s.v. gola, hiti 7.6
Þh., F. logn, hiti 9.3
Ásgeir Sigurðsson konsúll hefir
umsjón með vörukaupum hór á landi
fyrir brezku stjórnina. Var hann í
Kaupmannaráði íslands, en hefir nú
sagt sig úr því.
Messað í þjóðkirkjunni í Hafnar-
firði kl. 12 á hád., og síðdegismessa á
Bessastöðum kl. 6.
Messað á morgun í Fríkirkjunni
f Reykjavík kl. 12áhád. (síra Ól. Ól.),
Guðm. Björnsson landiæknir fer
með Floru í dag norður í land á eftir-
litsferð.
Tún eru nú víða slegin hér í bæn-
um og í grendinni. Sumsstaðar er
jafnvel verið að hirða töðuna þessa
dagana.
Hcilagfiski er nú selt á 25 aura
pundið hér í bænum.
Bensín kvað vera væntanlegt með
»Tjaldur« eftir nokkra daga, svo þá
komast bifreiðarnar vonandi aftur á
gang.
Botnvörpungarnir fara nú upp úr
helginni áleiðis til Norðurlands á síld-
veiðar.
Gísli Þorbjarnarson hefir látið
reisa tréskúr að baki hússins á Lauga-
vegi 11. Það gerði hann í leyfisleysi.
Slðar sótti hann um leyfi til þess að
fá að láta skúrinn standa; var synjað
og sótti hann aftur um leyfi til þess að
reisa þar skúr úr steinsteypu. Það
hefir bæjarstjórn leyft, en jafnframt
ákveðið að kæra hann til sekta fyrir
smíði timburhússins.
Gasverðið hækkar. Borgarstjód
gat þess á bæjarstjórnarfundi í fyrra*
kvöld, að gasverið mundi hækka bráS"
lega. Kolin, sem gasstöðin brennir dU
kosta 87 krónur smálestin. KostuSu
áður 18 krónur. Næstu birgðir kost*
90 krónur. — Ekki mun þó enO
ákveðið hve mikið á að hækka ga3‘
verðið.
Dagsbrún, húsið við HverfisgötUi
hefir M. Júl. Magnús læknir keypt ^
Eggerti Jónssyni kaupmanni, sem ver*
ið hefir eigandi hússins í 3 ár.
Gasstöðin. Nú er það afráðið
bærinn taki við rekstri gastöðvarinnar
um næstu mánaðamót, samkvæmt til'
boði C. Francke og tillögum gasnefnd'
ar. Hefir það áður verið skýrt kér í
blaðinu og því óþarfi að fara út þa®
frekar.
Laugavegnr 1. Bamþykt hefir ver-
ið að veita úr bæjarsjóði alt að 3000
kr. til þess að færa húsið Laugaveg L
inn í rótta götustefnu. Fyrst var til
þess ætlast að verkið kostaði ekki nem»
2500 kr., en við frekari rannsókn hef'
ir’komið í ljós, að húsið er svo skemt
að sú upphæð muni ekki nægja og 10*'
lega ekki 3000 krónur heldur.
Þinglesin afsöl 6. júli:
Ekkjufrú M. Havsteen selur 29.
f. m. O. J. Havsteen */2 húsið nr. 9
við Ingólfstræti.
Bæjarfógetinn afsalar (sarnkvæmt
áður framfarinni uppboðsgerð) 28«
f. m. Sigurði Björnssyni r/15 hlut»
úr Norðurmýrarbletti nr. 2.
Gunnar Gunnarsson kaupm. selur
30. f. m. Kristjönu Markúsdóttur
húsið nr. 4 við Ingólfsstræti.
4. Þórður Bjarnason selur 30. f-
Ragnheiði Blöndal húsið nr. 2 v>
Bergstaðastræti.
5. Jóh. H. V. Sveinsson selur 2?
1.
2.
3.
f. m. Erlendi Björnssyni skip
ii8
Niels Vagn.
6. Jónas Andrósson selur 31 • A®8'
1913 Leifi Th. Þorleifssyni hús»
nr. 25 við Laugaveg.
7. Guðrún Aradóttir selur 30. f-
Guðrúnu Jónsdóttur húsið nr. 2
Grettisgötu.
Morgunblaðiö
bezt.