Morgunblaðið - 29.07.1916, Side 2

Morgunblaðið - 29.07.1916, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ T}Íífl1V reglusamur og duglegur getur fengið atvinnu við J tttUi verzlun Norðanlands við skriítir, afgreiðslu og fleira, Nokkur ensku og dönsku-kunnátta nauðsynleg. Piítt fæði, húsnæði og þjónusta. Eiginhandar umsóknir með kaupkröfu afhendist afgreiðslu þessa blaðs undir merkinu „Skritari*. Pósttökur SYía. Svo sem kunnugt er, lögðu Svíar hald á allan rússneskan og enskan bögglapóst i fyrra, til þess að ná sér niðri á Bretum fyrir það, að þeir lögðu hald á sænskan póst og sænsk skip. t fyrra mánuði komst á samkomu- lag milli Breta og Svia, og jöfnuðu þeir með sér þessa deilu. Hinn 28. júní gaf því sænska stjórnin póst- stjórninni skipun um að leysa bögglapóstinn úr haldi. En það er hægra sagt en gert fyrir Svía, að losna við hann aftur. Það eru 60,000 bögglar, sem kyrsettir hafa verið i landinu, og eru flestir þeirra í Gautaborg. Þaðan verður að senda þá með járnbrantinni til Gefle, en þaðan gengur ekki nema eitt póst- skip. En nú ber þess að gæta að þetta skip verður einnig að flytja allan herfangapóst, cg niðurstaðan verður þá sú, að það er ekki hægt að senda út úr landinu nema svo sem 5000 böggla á viku af þessum Gautaborgarpósti. Það tekur því pærri þrjá mánöði fyrir Svia, að koma honum af sér. Futningur á herfangapósti frá Rúss- landi til Þýzkalands og frá Þýzka- landi til Rússlands er ókeypis, og eykst pósturinn dags daglega. Auð- vitað er bögglapóstur ti) herfanga í Þýzkalandi miklu meiri heldur en bögglapóstur frá Þýzkalsndi til Rúss- lands,. en nú koma á hverjum mán- uði 25—30,000 bögglar frá Þýzka- landi og fara til'Rússlands yfir Svi- þjóð. Og til þessa hafa Svíar ann- ast flutning á nær 3^/2 miljón póst- böggla milli Rússlands og Þýzka- lands. Kafbáta- hernaðurinn. Fréttaritari >Morning Post« í Washington segir, að þar búist menn við því, að Þjóðverjar muni aftur taka upp kafbátahernað sinn. — Er haldið, að þeir muni gera það í bræði út af sókn bandamanna. — Stjórnin i Washington kvað hafa feugið vitneskju um það, að búast meigi við kafbátahernaðinum á hverri stundu, engu vægari en hann var áður. Fréttaritarinn hefir átt tal við mikils ráðandi mann um það, hvað Bandaríkin mundu gera, ef Þjóðverjar tækju upp kafbátahernaðinn aftur. — Við höfum varað Þjóðverja við, mælti hann, og þeir vita ósköp vel, hvað við munum gera. — Eg veit ekki hverjar breytingar hafa orðið á skoðunum Þjóðverja, en við lítum alveg eins á málið nú eins og við litum á það þá er Lusitania-málið var jafnað. Frá skotgryfjunum. Tímarit eitt, er gefið er út í Sví- þjóð, getur þess i síðasta júníhefti, að franskír guðspekingar beini nú aðallega starfi sínu og áhrifum til þeirra, er dvelja í skotgryfjunum. Senda þeir þangað guðspekisbækur, er svo ganga meðal hermannanna. Otal þakklætisbréf berast guð- spekis-stöðvunum í París frá her- mönnunum. Sýna þau ljóst, að áhrif guðspekinnar eru æfinlega hin sömu, hvar sem hún nær tökum: Mennirnir vaxa upp úr daglegum raunum og þrautum eins og jurtin upp úr moldinni. Tímaritið flytur tvo örstutta kafla úr tveimur hermannabréfum. Annað bréfir segir: — Vér dveljum í skotgryfjunum og höfum gætur á óvina hersveit- unum. Og meðan einn eða tveir af oss eru á verði, les einhver vor upphátt í hinum dýrlegu bókum, er þér senduð oss. — í hinu bréfinu segir svc: — Lestur þessara bóka veitir mér þann frið, er mig hafði aldrei dreymt að mundi geta fallið mér í skaut. — — Mér virðist lífið ólíkt léttara að bera nú, heldur en fyr, þrátt fyrir það, að banvænum kúlum rignir niður alt í kringum mig. — En guðspekingarnir frönsku gera meira en að senda bækur til skot- gryfjanna. Þeir styðja mjög að því, að þeir, er aðhyllast kenningar guð- spekinnar, geti kynst hver öðrum per- sónuleqa. Hafa þannig myndast vin- áttusambönd og bræðralag meðal hermanna, er ekkert þektust áður. Enda er guðspekin vel fallin til að bræða ísinn úr sálum mannanna, svo þeir finni — bókstaflega skilið — að þeir eru brceður. Aðurnefnt tímartt endar frásögn sina með þess- um orðum: — A alvöru-þrungnustu augnablik- um lifsins eru mennirnir næmastir fyrir kenningum guðspekinnar, því að hún ein megnar að ráða fram úr þyngstu gátum tilverunnar. — M. Jóh. Kolin á Færeyjnm. • Svo sem áður hefir verið getið um, fundust nýlega töluverð kolalög í jörðu á Færeyjum, og þótti Dön- um það heldur en ekki fengur. Hafa þeir nú sent þangað sérfræð- ing, til þess að rannsaka grandgæf- lega, hve mikil kolalög þessi eru, og hvort útiit sé til þess að kola- gröftur þar muni svara kostnaði. Hannover matarlaus. Matarskifting Þjóðverja gengur ekki sem bezt. Hvaðanæfa að í Þýzklandi berast kvartanir til aðal- matarskrifstofunnar í Berlín útaf því, að heil héruð eða heilar borgir verði útundan — þangað séu eigi sendar nægilegar birgðir af matvöru og annari nauðsynjavöru. Bæjarstjórnin í Hannóver sendi mjög harðorða kvörtun til Berlin nýlega. Sýnir hún greinilega hvern- ig ástatt er i sumum borgum Þýzka- lands. Fólkið sveltur að meira eða minna leyti. I kvörtunarskjalinu er sagt, að i öðrum borgum landsins séu pylsur fáanlegar fyrir 4V2 niark pundið, en í Hannóver séu þær ekki fáanlegar undir 8 mörkum pundið. Hver ibúi fái að eins 75 grömm af smjöri á viku, annars staðar fái menn þó 8 5 grömm á viku. í skjalinu segir ber- um orðum að fólkið svelti i þús* undatali og að það líti út fyrir að Hannóver-riki verði alveg útundan í matarskiftingunni. Bæjarstjórnin hefir leitað fyrir sér i Hollandi um kaup á 40 vagn- hlössum af kjöti, smjöri og osti. Fáist það ekki er hungur fyrirsjáan- legt. Kona prestur? Það þykir tíðindum sæta i Dan- mörku, að i lok júnímánaðar lauk dönsk stúlka embættisprófi i guðfræði við Kaupmannahafnarháskóla. Heitir sú Rigmor Larsen og er fyrsta stúlkan, sem lokið hefir guðfræðis- prófi í Danmörku. 25. júní 1875 fengu konur í Dan- mörku leyfi til þess að stunda há- skólanám og er það mikill urmull danskra kvenna sem síðan hefir lokið prófi. Flestar þeirra leggja stund á málfræði og gerast kennarar að loknu prófi. Margar nokkuð eru læknar, fáar lögfræðingar, en engin hefir enn ætlað sér að komast í prédik- unarstólinn nema Rigmor Larsen. Daginn eftir að hún hafði lokið prófi, heimsóttu margir blaðamenn hana. I viðtali við þá kvaðst hún hafa lagt stund á guðfræði eingöngu til þess að verða prestur. »Eg ætla að sækja um embætti, þó að eg viti að eg sem stendur get ekki orðið prest- ur. En lögunum verður einhvern- tíma breytt*. Og blaðamennirnir spá því, að kirkjan muni verða full þegar sú stund kemur aðungfrúLarsen á að stíga í stólinn 1 fyrsta sinni. Kolakaup i Bretlandi. * , að Það er ekki hlaupið að þvl’ fá kol frá Bretlandi á þessuffl s^ ustu og verstu tímum. SáseiB in vill kaupa, verður að ha^a ^ skjöl í reglu, og það góðri reglB> þess að útflutningsleyfi ^ist brezku stjórninni. Kaupmaður einn hér í b^ao^ lánaði oss bréf, sem hann hafði feví , ið frá Bretlandi, viðvikjandi k?3 farmi, sem hann var að kaupa- kolin að flytjast hingað á ákve skipi. Til þess að hægt vasri a^ sækja um leyfi til útflutnings, vi seljandinn að gefa brezku stjórni0*1 eftirfarandi upplýsingar: — Akvörðunarstaður kolanna til hvers á að nota þau. — Fult nafn og bústaður kauþ andans. ■ -— Nafn skipsins og eiganda þeSS — Skrásetningarstaður skipsi°s' — Núverandi legustaður skipsltlS' farmur þess í ferðinni áður en k in eru fermd. — Akvörðunarstaður skipsins og farmur þess eftir að kolin 0 verið affermd. Akveðið er að eD^ in skip fái kolafarm í Bretlandi, þess að flytja nauðsynjavörur Bretlands í sömu ferðinni, senr in eru fermd. — Skuldbinding frá kaupend0 ’ að ekkert af kolunum verði hvorki beinlínis né óbeinlíms) aðstoðar óvinum Bretaveldis. Öllum þessum sjö spurning0^ verður að svara grandgæfileSa svörin látin fylgja beiðninni um flutningsleyfið. Kunínur til matar. ntið rn00 í Þýzkalandi, þar sem **— ^ vera um góðan og ódýran &3,1 þessar mundir, eru menn ^arDl^Ds, leggja sér kaninukjöt til 1101 \ m.eira en áður hefir tiðkast P landi. »Deutsche medizin1^ Wochenschrift* birtir langa ^0. eftir frægan lækni^sem hvetu^^uf til þess að rækta kanínur. hann fram, að kanfnur eti alt ^ $j, legt, nær allar leifar, sem a0°a j,ví kastað á heimilunum. Það ^ ey mjög ódýrt að ala þær. ^ n{naí nærandi og ljúffengt og þola vel kulda. Arangur af sá, pesí>! kanínur, og þykir ágætur ° * nii bt' orðið grein að fólk etur — Væri ekki reynantn jt# koma á kanínurækt í n0^U;^dflle^# um stíl? Fólk mundi læra að borða kjötið. áreiðaDlí

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.