Morgunblaðið - 11.08.1916, Qupperneq 1
IFÖstudag
3. fcrgangr
11.
ágúst 1916
H0R6UNBLADIB
277.
töiublað
Ritstjórnar&imi nr. 500 | Ritstjóri: VilhjAimnr Finsen |ls*toiearpientsmiðja
Rinl R<íykiíiyíkiir Iriíi
Ö1W| Biograph-Theater |D,U
----- Talsími 475. -----
í fylgsnum
hallarinnar.
Stór, fallegur og afar pennandi
leynilögreglusjónleikur í 3 þátt-
um, leikinn af hinum góðkunnu
leikurum
Edith Psilander,
Einari Zangenberg,
Peter Malberg o. fl.
Aðgöngumiðar kosta 30, 30
og 10 aura.
Hafnarfjarðarbíliinn
nr. 3
fer til Keflavíkur
mánudaginn 14. þ. m. kl. 10 f. m.
ef nógu margir gefa sig fram.
Upplýsingar í talsíma nr. 35 og 36
í Hafnarfirði.
Sæmnndur Yilhjálmsson
bifreiðarstjóri.
---------------1-------------
Rafmagnsstöðin.
Viðtal við Lange verkfræðing.
Verkfræðingarnir norsku, sem
fengist hafa við mælingar á vatnsafli
Elliðaánna í sumar, brugðu sér aust-
ur í Sog um daginn. Dvöldu þeir
þar í nokkra daga, mældu ekki vatns-
afl fossanna, en rannsökuðu stað-
háttu alla og gerðu ýmsar athuganir
viðvíkjandi fyrirhugaðri notkun vatns-
aflsins í Soginu. —
Þeir eru nú komnir aftur til bæj-
arins úr þeim leiðangri, og áttum
vér i gær viðtal við yfirverkfræðing-
inn, hr. Th. Lange.
— Hvernig gengu mælingarnar i
Elliðaánum, spurðum vér hr. Lange.
Hvar haldið þér bezt sé að taka
vatnsaflið til rafmagnsstöðvar bæj-
arins ?
— Eg held bezt sé að nota vatn-
ið í Elliðaánum að svö stöddu, en
jafnframt sjá fyrir meira vatnsafli til
framtiðarnotkunar einhvers staðar hér
sunnanlands, helzt auðvitað sem næst
bænum. Það er að svo stöddu ekki
þörf á svo miklum krafti, sem yrði
að takast úr t. d. Soginu, ef það
ætti að svara kostnaði. Eg meina,
að ef aflið væri tekið þar, þá mundi
það kosta svo mikið, að það yrði að
selja hvert hestafl, sem í notkun
væri, miklu hærra verði, en ef það
væri tekið úr Elliðaánum. Vextir af
stofnkostnaði yrðu svo miklir —
rafmagnsnotendur yrðu að borga að
nokkru leyti fyrir aflið, sem ekki
væri þörf á, ekki yrði notað fyrst
um sinn.
— Hve mörg hestöfl hyggið þér
að muni fást úr Elliðaánum?
— Við gerðum að eins eina mæl-
ingu, en vatnið þarf að mælast aftur
til þess að unt sé að segja það ná-
kvæmlega. Samt hygg eg, að það
muni fást 1500—2000 hestöfl ætíð
og 2000—2500 með sérstöku fyrir-
komulagi, sem eg álít sjálfsagt, að
sé komið á, ef úr framkvæmdum
verður. Það þarf að hlaða vatnsgarð og
gera þró, sem vatninu væri safnað í.
Það þyrfti ekki að notast nema þeg-
ar þess væri þörf. Hygg eg að það
mundi geta aukið hestöflin um 1000
að minsta kosti í 14 daga í senn. Ann-
ars mun vatnsaflið vera meira í Ell-
iðaánum á vetrum, einmitt þegar
mest er notað af rafmagni til ljósa
og hitunar, og er það sérlega heppi-
legt. Liklega mun ekki verða notuð
meira en 700—1000 hestöfl til ljósa
í bænum fyrst um sinn. Með því
yrði bærinn nær allur raflýstur. Þá
yrði þó að minsta kosti jafnmörg
hestöfl eftir sem notuð yrðu til véla
og til hitunar og suðu.
— Hve langan tíma tekur það að
koma stöðunni á?
— Hún ætti að geta orðið fullger
á einu ári. Ef bæjarstjórnin ákveð-
ur sig nú um jólaleytið í vetur og
verkið væri hafið þegar í vor, þá
ætti rafmagnsstöðin að vera langt
komin um næsta nýár.
— Hr. Lange fer héðan til Nor-
egs á Ceres og þaðan sendir hann
borgarstjóra nákvæma skýrslu um
rannsóknirnar á Elliðaánum. Tekur
bæjarstjórnin þá vonandi málið fyrir
við fyrsta tækifæri og ræður því til
lykta í snatri. Hún hefir engu að
biða eftir, þar sem nákvæm skýrsla
þá liggur fyrir eftir þaulæfða og
ábyggilega rafmagns-verkfræðinga.
Rafmagnsstöðin verður að komast
upp á næsta ári.
Hljómleikar.
Jón Norðmann hélt hinn fyrsta
hljómleik sinn í fyrrakvöld í Báru-
búð og munu vafalaust margir þeirra
sem heyrðu hann leika á »flygelið<
telja þá stundina, sem hljómleikur-
inn stóð yfir, meðal hinna beztu
ánægjustunda á þessu daufa sumri,
1916, í viðbót við góðar endurminn-
ingar sínar frá hljómleikum Péturs
Jónssonar, sem kom og sigraði með
söng sinum. Eins mun nú óhætt
að segja, að Jón Norðmann kom
og vann þarna í fyrrakvöld fræki-
legan sigur með »flygel«-leik sínum,
enda bar hið hjartanlega lófatak
áheyrenda hans beztan vott um að
þeim þótti mikið til hans koma.
Þetta unga listamannsefni vort er
aðeins 19 ára að aldri og á vitan-
lega enn fyrir sér að þroskast og
fullkomnast í listinni, því námsskeið
hans við Kaiserl. Musikhochschule i
Berlín er aðeins hálfnað, en hefir
nú þegar fyrir iðni, viljakraft og
ágætis hæfileika, náð svo miklum
þroska og leikni að furðu sætir;
finnur hver og einn sem heyrir og
sér Jón leika á hljóðfærið, að þessir
kostir, sem nú voru nefndir, eru
óaðskiljanlegir og samantvinnaðir
hjá honum persónulega og endur-
hljóma í leik hans á hljóðfærið.
Alt gefur þetta hinar björtustu vonir
um að Jón, að afloknu námi, nái
því marki sem hann hefir sett sér
— en það er hátt, um það þarf
enginn að efast. Það mun ekki
líða á löngu, ef alt gengur að ósk-
um og endist líf og heilsa, að nöfn-
in Haraldur Sigurðsson, Pétur Jóns-
son og Jón Norðmann kasti af sér
þeim ljóma hjá öðrum þjóðum að
til stór sóma verði það ættlandi
þeirra og samlöndum.
Mér þykir það óþarfi að gagnrýna
meðferð Jóns á þeim tónverkum
sem hann hafði valið á efnisskrána,
óvíst að eg hafi næga dómgreind
til þess og læt mér því nægja að
benda á kostina sem eru nú þegar
svo yfirgnæfandi. Kraftur, hand-
leikni og skilningur og svo síðast
en ekki sizt, nákvæmni í leik hans,
hvergi farið út fyrir takmörkin með
uppgerð né óeðlilegu látæði, — leik-
ur hans alstaðar hárréttur (»Korrekt«)
og þó persónu hans alstaðar að
finna sem undirstraum og tilfinning.
Eina eða tvær smáathugasemdir mætti
gera við þennan fyrsta hljómleik
Jóns, en eg ætla einnig að sleppa
þeim hér, sérstaklega af því að þar
var um að kenna hinum dásamlega
hljómleikasal bæjarins, í hverjum alt
svitnar af loftleysi — áheyrendur,
listamaður og loks það sem er hin-
um síðar talda óþægilegra — nfl.
hljóðfarið.
Arni Th.
Matvælaskoðunin.
í 275. tölublaði »Morgunblaðsins«
gefur firmað Nathan & Olsen ótví-
rætt í skyn, að eg hafi orðað skýrsl-
ur um rúgmjölsrannsóknir hlutdrægt
i sinn garð. Meðal annars er gefið
f skyn, að eg hafi ekki viljað geta
þess, að V. Petersen hafi haft rúg-
mjöl frá Nathan & Olsen, af því
það hafi reynst vel. Sú ályktun
þeirra er dregin af því, að V. Peter-
sen muni hafa getið þess við mig
að mjölið væri frá Nathan & Olsen.
Atgieiósiusimj nr. 500
NÝJA BÍÓ
Ráðsmaðurinn.
Sjónleikur i 3 þáttum.
Aðalhlutverkin leika:
Gyda Aller, Christel Holch,
Arne Weel, Fred. Jacobsen og
V. Psilander.
Mjög skemtileg mynd og löng.
Aðgöngumiðar kosta því 50,
40 og 30 aura.
Sannleikurinn er sá, að eg átti
ekkert tal um það við V. Petersen,
hvaðan mjölið væri, en konan hans
sagði mér óaðspurt, að þau hefðu
fengið nokkra poka af rúgmjöli með
siðustu skipsferð frá Kaupmannahöfn.
Af þessu sjá menn, að hér er ekki
um neina hlutdrægni að ræða frá
minni hálfu. Ekki eru skýrslurnar
til borgarstjóra eða heilbrigðisnefndar
birtar að minni tilhlutun, óg vísa eg
því hlutdrægnisaðdróttunum Nathans
& Olsens heim til sín.
Eg mun svara íyrir að skýrslurn-
ar, sem eg hefi gefið, séu réttar, en
hirði ekki um að svara frekar lang-
loku þeirri, er Nathan & Olsen hafa
auglýst í Morgunblaðinu.
9. ágúst 1916.
Gísli Guðmundsson.
(Grein þessi kom of seint til þess
að geta birst i Morgunblaðinu í
gær. Ritstj.)
Vesturheimsfarar
frá Islandi 1912—1915.
Allan-linan mun vera eina gufu-
skipafélagið, sem á siðan árum hefir
annast útflutninga fólks héðan af
landi til Vesturheims með sérstök-
um kjörum. Það mun því mega
gera ráð fyrir, að því nær allir vest-
urfarar héðan af landi hafi notað
milligöngu hennar. Hjá aðalumboðs-
manni AUan-línunnar hefir hagstof-
an aflað sér upplýsinga um útflytj-
endur til Vesturheims, sem notað
hafa milligöngu hennar síðustu 4
árin. Tala þessara útflytjenda hefir
verið 2ié árið 1912, 296 árið 1913,
143 árið 1914 og 7 árið 1913, eða
alls 662 á þessum 4 árum. Eftir
að striðið hófst sumarið 1914 tók
að heita mátti alveg fyrir Vestur-
heimsfarir vegna erfiðleika, sem á
því urðu að komast yfir England,
því að engir útlendingar máttu koma
á land í Leith. Þeir fáu útflytjend-
ur, sem farið hafa síðan, hafa þvi
orðið að fara til Kaupmannahafnar
eða Noregs og þaðan til Englands