Morgunblaðið - 28.09.1916, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐItó
verður frarnvegis forsætisráðherra, en
hinir foringjar Ungverja, Andrassy
greifi og Apponyi greifi taka sæti i
stjórninni. A Andrassy að verða
utanríkisráðherra, og er hann þó
svarinn óvinur Tizsa greifa. Apponyi
greifi verður kirkju og kenslumála-
ráðherra.
Andrassy greifi hefir látið sér þau
orð um munn fara að sendiherra
Austurríkis í Bukarest, Czernin greifi,
sé svikari, því að hann hafi vel vitað
um það að Rúmenar hafi ætlað að
segja Austurríkismönnum stríð á
hendur, en þagað yfir þvi vegna
þess að hann hafi hallast að skoð-
unum ófriðarflokksins þar i landi.
Bontnvörpuskípin
Þau eru nú óðum að útbúa sig
til þess að fiska í ís og sigla til
Englands með aflann. Og mun al-
menningi eigi finnast mikið við það
að athuga. En svo er þó í fylsta
máta. Og því miður munu flestir
af sjómönnum vorum, ráðast á skip
þessi án þess að athuga nægilega
þá hættu, sem stafar af völdum
ófriðarins mikla. Hve mikil sú
hæíta er, veit enginn, en allir vita
að hættulaus er þessi leið alls eigi.
Enda hefir heyrzt að flestir af skip-
stjóium skipa þessara ætli sér alls
eigi að sigla til Englands, heldur
fá aðra í sinn stað. Ætli sú ráðstöf-
un standi að nokkru i sambandi við
hættuna, sem Englandsferðum nú er
samfara? En hvað sem því viðvík-
ur, þá ættu sjómenn að minnsta
kosti eigi að fara í þessar ferðir án
þess að vera sæmilega líftrygðir fyrir
stríðshættu, þannig að þeir fái í sín-
ar hendur tryggingu fyrir því að
svo sé í raun og veru. Heyrzthefir
að Vélstjórafélag Islands hafi útvegað
meðlimum sínum sæmilega líftrygg-
ingu, meðan skipið dvelst innan
ófriðar-svæðisins, og er það vel far-
ið. Sjómaður.
Ófrióarsmælki.
Fimtu Indíánar frá Hudsons-flóa
hafa gengið í Kanada-herinn. Eru
þeir nýlega komnir til Ottawa og
voru sex vikur á leiðinni þangað.
Ghenadieff, sem var utanríkisráð-
herra Búlgara árið 1913, hefir verið
kærður fyrir landráð. Var mál hans
tekið til meðferðar hinn 6. þ. mán.
Frakkar oq Bretar hafa sent nefnd
manna suður til Lissabon til þess
að ráðgast um það við Portúgala á
hvern hátt samvinnu þeirra og banda-
manna verði bezt hagað.
Titt miljónir manna í Þýzkalandi,
eða sjöundi hver maður, taka nú
mat sinn í allsherjarmötuneytisstofn-
ununum.
Kenslukona
óskast á ágætt heimili, í kaupstað, ekki langt frá Raykjavík, til að kenna
3 börnum vanalegar námsgreinar, og að spila á piano.
Halldór Sigurðsson Ingólfshvoli gefur upplýsingar.
Jiensíu í fjandavinnu
veitir
^/iíRaímina cfflzgnúséóífir, Sratíisg. 46
frá io. október.
— Meðal annars verður kend baldering og Hedebosauniur. —
Til viðtals frá i. okt., Þingholtsstræti* 18.
2 duglegir og áreiðanlegir
sendisveinar
óskast 1. október
í brjóstsykursverksmiðjnnalí Lækjargötu 6B.
Tilkynning.
Sökum þess hvað alt fóður hestanna er dýrt, hafa öku-
menn bæjarins ákveðið að ’hækka kaupl þeirra^trá 30. sept-
ember,f þannig, að hestur með vagni hafijjafnt kaup og verk-
fær maður eða 45 aura um klukkutímann. Verður þá lægsta
ka»p ökumanns með 1 hest 90 aurarj'uiifklukkutímann
þegar um heila daga eða lengri vinnu er að ræða, annars
hærra, með 2 hesta kr. 1,35. Eftir þessu kaupi skal fara
með alla samningsvinnu (akkord). Et um eftirvinnu er að
ræða, hækkar kaupið jafnt fyrir hestinn og manninn.
Eftir umboði ökumanna í Reykjavík.
Hreinlegur kvenmaðr
til að þvo flöskur í Olgerðiuni.
Kensla í kvenlegum hannyrðum.
Undiriituð tekur að sér að kenna stúlkum kjólasaum, peysufatasaum
léreftasaum, baldéringu, hvítan og mislitan útsaum, knipl 0. fl.
Kenslan stendur yfir frá 15. október til 14. maí, og verður þeim
tíma skift í tvö námsskeið (3V2 mánuð hvort).
Elísabet Valdimarsdóttir,
til viðtals á Stýumannastíg 9 kl. 1—2 og 4—5.
-------------,-------------------------
HERPINÓT
fæst til kaups með tækifærisverði.
— Notuð að eins lítið í sumar. —
Semja ber við
Elías Halldórsson, Hafaarflrði.
§SSSSt DAÖBOEJIN. ESS2
Veðrið í gær:
Miðvikudaginn 27. sept.
Vm. a. st. kaldi, hiti 9.0
Rv. sa. kul, hiti 10.3
íf. logn, hiti 9.1
Ak. — — 7.5
Gr. — — 3.0
Sf. sv. kul, hiti 13.1
Þh. F. sa. andvari, hiti 9.4
Heiðnrsgjöf færðu nokkrar konur
hór í bænum frú Kristjönu Hafstein
á áttræðisafmæli hennar um dagitin.
Var það mynd af Laufási í Þingeyjar-
sýslu, fæðingarstað frúarinnar. Gjöf-
inni fylgdi skrautritað ávarp og kvæði
eftir frú Jarþrúði Jónsdóttur.
Fjúrrekstrar koma nú daglega til
bæjarins. í Sláturfólaginu er skorið
um 800 fjár á dag.
Framboð. Davíð Kristjáusson er
einn frambjóðenda í Gullbringu- og
Kjósarsýslu. Er sagt að framboð hans
hafi komið of seint og því ekki víst
að það verði tekið til greina af kjör-
stjórninni.
Sönglög eftir Jón Laxdal eru ný-
komin út. Er það 1. heftið, eti von
á meiru síðar. Lögin eru við kvæða-
flokka Guðm. Guðmundssonar: Helga
hin fagra og Gunnar á Hlíðarenda,
þau sem sungin voru her í Rvík í
fyrra. Mun hefti þetta vera kærkomið
um alt land, því lögin eru sum gull--
falleg.
Botnia fór héðan í gærkvöld áleiðis
til útlanda. Meðal farþega voru Jón
Sveinbjörn8Son kanrtnerjunker, Páll
ísólfsson, Eggert Stefánsson. Jón Leifs,
Sig. Þórðarson, Frederiksen kolakaupm.,
Ragnar Ásgeirsson, Carl(|uist, Böðvar
Kristjánsson aðjunkt og frú hans, frú
Kristjana Thorsteinsson, ungfrúrnar
Ragna Tulinius frá Akureyri, Sigr.
Nielsen, Hrefna Ingimimdardóttir og
Lára Eggertsdóttir, Th. Krabbe verk-
fræðingur og frú hans og dóttir, Fr.
Nielsen umboðssali, Guðm. E. Guð-
mundsson bryggjusmiður o. fl.
Sjálfkjörnir þingmenn eru þeir
Pótur Jónsson á Gautlöndum í Suður-
Þingeyjarsýslu og Magnús læknir Pót-
ursson í Strandasýslu.
Slys. Drengur að nafni Þorsteinn
Einarsson á Bræðraborgarstíg 31, datt
af hjóli í gær og fótbrotnaði. Annað
barn varð fyrir hestvagni uppi á Lauga-
vegi og meiddist allmikið.
Vatnslanst hefir ve ið efst í Þing-
holtunum og á Skólavörðustíg undan-
farna daga. Hóldu menn að vatps-
veitan hefði bilað eitthvað og fóru þeir
borgarstjóri og Helgi Magnússon í gær
alla leið upp að Gvendarbrunnum, en
urðu þess hvergi varir, að ólag værl
á vatnsveitunni. — Vatnsskorturinn
mun stafa af því, að vatnsleiðslan et
orðin of lítil fyrir bæinn þegar mikið
er notað af vatni, svo sem nú er, °S
eigi er það heldur óhugsandi, að minna
vatnsmagn só í Gvendarbrunnum nú>
heldur en verið hefir.
Vatnsgeymirinn f Rauðarárholti v0r®‘
ur fullger / næsta mánuði. Og þ® Þar^
ekki að óttast vatnsskort fyrst um sinn’