Morgunblaðið - 02.10.1916, Síða 2

Morgunblaðið - 02.10.1916, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÍ) kút og virtust svo sem þeir styndu þuugan annað hvort af sársauka eða áreynslu, eða þá af hvorutveggju. Eg gekk til keyrslumannsins og beiddi hann um að sýna þeim meiri mis- kunn, en »það var enga miskunn hjá Manga að finna*. Hann hélt mig, svo sem hann ákvað, ekki mikið varða um sig eða sína frammistöðu, þetta væri mál sem mér kæmi ekki við, með ýmsum kurteisum og hon- um samboðnum orðum sem hann valdi mér. Bætti því meira að segja við í hróðugum málróm, að eg mætti kæra sig o. s. frv. Þótt að þetta framferði mannsins sæi fjöldi fólks, þá býst eg ekki við að það hafi mikla þýðingu að kæra slíkt fyrir lögreglunni, en hinu lofaði eg hon- nm, og það ætla eg að enda, að birta þetta framferði mannsins opin- berlega, ef ske kynni að hann mink- aðist sín og sæi mynd sína upp- málaða i lýsingu þessari. 23. sept. 1916 Kona. Þess eru hér því miður mörg dæmi, að skammarlega er farið með hesta og önnur dýr. Er það gleði- legt að einstaka menn eru þó á verði til þess að reyna að koma i veg fyrir að slíkt eigi sér stað. Bezta ráðið er að kæra viðkomandi ökumenn og láta þá greiða sekt fyrir misþyrmingarnar. Ófnóarsmælki. Fluqmaðurinn með tréfótinn. Einn af frægustu flugmönnum Frakka heitir Tarascon. Hann hafði lært að fljúga fyrir ófriðinn og gerðist sjálf- boðaliði i flugsveit Frakka þegar i byrjun ófriðarins. En sá galli var á að hann hafði mist fótinn og var með tréfót. Voru yfirvöldin lengi vel í vafa um hvort þau ættu að taka hann i herinn, en niðurstaðan varð sú, að honum var fengin flug- vél. — Tarascon hefir nú skotið niður 5 þýzkar flugvélar og er talinn með- al djörfustu flugmanna Frakka. Um daginn var tréfóturinn skotinn af honum, þá er hann flaug yfir Zee- briigge, og er það þannig i annað sinn, sem hann missir sama fótinn. Húsnæðiseklan. Elendínus segir frá. Eg var á götunni í gær. En það voru margir fleiri. Og tíu minút- um eftir að eg var kominn á fætur og farinn át, höfðu 25 — segi og skrifa tuttugu fimm — heimilisfeð- ur spurt mig að þvi hvort eg gæti ekki visað sér á húsnæði. Og eg svaraði öllum eins: — Þegar eg var barn, var mér kent að í horngrýti væri nóg hús- rúm. Jfe* Krone Lager öl De forenede Bryggerier. — En hvar er horngrýti? — Það verður þú að segja þér sjálfur. Adjö! Eg komst upp á Laugaveginn. En ekki lengra. Því að þar var alt skorðað af kistum, kommóðum, stólum, borðum, lömpum og ýmis- konar drasli. — Hvað á þetta lengi að ganga, segi eg. — Þangað til að við höfum feng- ið húsnæði, segja þúsund menn og steyta hnefana. En til hvers er alt þetta æði ? Til hvers eru menn að steyta hnef- ana? }ú, það er vegna þess að margir hafa enn þá óleigð hús. Þeir vilja selja -— en ekki leigja. Eg fer heim að eta. Auðvitað fæ eg engan mat, því að gasinu er lok- að. Það gerir ekkert til. En á heim- leiðinni mæti eg tíu mönnum og á heimanleiðinni tólf. Og allir spyrja: »Geturðu ekki vísað mér á íbúð ?« — íbúð! íbúð! Bara að eg hefði íbúðl Þá gæti eg gert marga menn hamingjusama. Herfang bandamanna. Franska blaðið »}ournal* birtir nýlega (20. sept.) skýrslu yfir her- fang og fanga bandamanna á austur, vestur og suðurvígstöðvunum á tíma- bilinu 1. júli til 18. september. Skýrslan er þannig. Frakkar hafa tekið af óvinunum 145 fallbyssur, 729 vélbyssur og 33.699 hermenn. Bretar hafa tekið 109 fallbyssur, 223 vélbyssur og 21.450 hermenn, Rússar hafa tekið 841 fallbyssu, 1580 vélbyssur og 402.471 her- menn. ltalir hafa tekið 36 fallbyssur, 92 vélbyssur og 33.048 hermenn. Miðveldip hafa þannig samtals mist 1131 fallbyssur, 2624 vélbyss- ur og 490.668 hermenn handtekna — auk ógrynni skotfæra og matvæla og annara hergagna. Skotfæri Þjóðverja að þverra. Á herteknum þýzkum hermanni fanst nýlega skjal, sem Falkenhayn yfirhershöfðingi Þjóðverja hafði sent hermönnunum. Hvetur hann her- mennina til þess að spara hergögnin sem mest, þar eð meir hafi verið notað af þeim siðustu mánuðina, en framleitt hafi verið. Segir hann, að ef svo gangi lengi, muni reka að því, að Miðveldin verði skotfæralaus. ------------------------- C3S3 D AG BOf}IN. C=23 Afmæli f dag: Guðlaug Jónsdóttir, húsfrú Jófríður Zoega, jungfrú Bjarni Magnússon, veitingam. Gunnar Gunnarsson, bifreiðarstj. Gísli Guðmundsson, gerlafr. Sig. P, Sivertsen, dósent. Friðfinnur L. GuðjónBSon Laugavegi 43 B, selur tækifæriskort með íslenzkum erindum. Allir ættu að kaupa þau til að senda vinum og kunn- ingjum. Sólarupprás kl. 6.40 Sólarlag — 5.38 Háflóð í dag kl. 8.24 e. h. og í nótt kl. 8.50. Tvær efri hæðir húss Gunnars kaupm. Gunnarssonar við Austurstræti eru leigðar út. Hefir brezki ræðismað- ur tekið aðra hæðina á leigu, en Sveinn Björnsson hina. — Verður þar m. a. skrifstofa brunabótafólags íslands. Ekki var það Pótur M. Bjarnason eða niðursuðuverksmiðjan ísland, er átti kjöttunnustafina sem komu með >Anne Marie« í fyrradag. — Það var Pótur Bjarnason beykir. Ráðherra Einar Arnórsson kom aust- an úr sveitum í fyrrakvöld. Frú Briet Bjarnhéðinsdóttnr var færð falleg afmælisgjöf á sextugusta afmæli hennar síðastl. miðvikudag. — Gáfu konur úr Kvenróttindafólaginu henni gullúr og gullnælu og fylgdi gjöfinni skrautritað ávarp. Njörðnr. í fyrrakvöld kom botn— vörpungurinn Earl Hereford hingað með Njörð í eftirdragi. Hafði stálvír flækst í skrúfu skipsins og var Njörður því ekki ferðafær sjálfur. — Hann fór hóðan aftur í gærdag eftir að vírinn hafdi verið tekinn úr skrúfunni. Dagsetnfng blaðsins i gær var eins vitlaus og frekast var unt. Þar stóð 31. sept. í stað l. okt. Flutningar. Kaupendur Dlaðsins eru vinsamlegast beðnir um að tilkynna flutninga, svo blaðið geti komið reglu- lega til þeirra. Þingmannsefni Sjálfstæðisflokksins boðuðu til fundar í Bárunni í fyrra- kvöld. Var fundurinn allvell sóttur og töluðu þeir Sveinn Björnsson og Magnús Blöndahl. Brezkt hjálparbeitiskip kom hing- að í gær. — Okunnugt um erindi skipsins. Elektron, málgagn »Fólags íslenzkra símamanna« minnist tugafmælis slm- ans með því að geta hinna helztu manna er að honum standa og hafa staðið og flytur myndir af þeim H- Hafstein, Jóni Olafssyni, 0. Forbergi lt. Tönnesen, Gísla J. Ólafson, Magn- úsi H. Thorberg og Birni Magnússyni- Er blaðið hið prýðilegasta, Geta verður þess að þýðingar eru þar á sumum greinum á ensku, þýz^u og frönsku. Má af því sjá að engif örkvisar eru það sem að blaðinu standa-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.