Morgunblaðið - 02.11.1916, Síða 2

Morgunblaðið - 02.11.1916, Síða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Tlýi dansskóíinti Fyrsta æfing í þessum mánuði verður fimtudaginn 2. nóvember í Báruhúsinu (niðri). Listi til áskriftar fyrir nemendur liggur frammi i »Litlu búðinni«. ,Kins-Stormf ljóskerin eru ætið fyrirliggjandi. Handluktir — Allskonar búshlutir og eldhúsáhöld. Laura Nielsen, Austurstræti 1. „ Kenvask “ er 6ezía þvoíiavelin. c&œst fíjá Jofjs. Jiansens Enke, Tlusfurstræti 1. urnar, höfðu grafið margra metra djúpar holur og allar rúður ihúsun- um þar umhverfis á stóru svæði, voru mölbrotnar. Þegar loftförin nálgast borgina, flýja allir niður í kjallara, og þess vegna farast svo fáir menn — í seinustu árásinni að eins átta. Menn hafa oft furðað sig á þvi, hvernig á þvi geti staðið, að loft- förin vita hér um bil upp á hár hvar þau eru stödd. í einu af loft- förum þeim, sem skotin hafa verið niður, þykjast menn hafa fundið lausn þeirrar gátu. í rústum þess fanst grind úr aflöngum kassa, sem hafði verið úr gleri. Var hann svo stór, að hæfilegt rúm var fyrir einn mann að liggja í honum. Loftförin eru vön þvi að fljúga ofan við ský- in, til þess að þau sjáist eigi, en þennan glerkassa láta þau siga nið- ur, þannig, að maðurinn sem i hon- um er hafi gott útsýni. Síðan gefur hann hinum merki um það, hvar þeir séu. Það er hér um bil ómögu- legt að sjá þessa glerkassa, og loft- förin geta þvi verið nokkurn veginn örugg um sig. Hafa loftförin gert mikið tjón í London? spyr fréttaritari blaðsins. Nei, það er nú ár síðan að loft- förin komust til London. Þá kom ein sprengja niður á Trafalgar Square. Það er suðvesturhlnti borgarinnar, sem árásirnar hafa komið harðast niður á. í suðausturhluta borgar- innar, hjá hergagnaverksmiðjunum í Woolwich, hafa sprengjurnar einn- ig gert mikinn usla. Þar eru heil- ir borgarhlutar (kvartaler) jafnaðir við jörðu. En verksmiðjurnar sjálf- ar hefir eigi sakað. Loftvarnir Londons eru nú ágæt- ar. Um alla borgina úir og grúir af fallbyssum. Þær eru bæði á torg- um og húsaþökum, og ein er jafn vel á boganum í Hyde Park. Sext- án menn eiga að sjá um hverja fallbyssu. Og svo eru varpljósin, sem lýsa allan himininn. Og þeim er þannig komið fyrir, að loftförin geta alls eigi séð hvaðan ljósin koma. Ohófsvftrur. Meðal flestra ófriðarþjóðanna hafa verið settar einhverjar reglur eða lög til þess, að halda mönnum frá því að kaupa óhófsvörur. Þykir það eigi viðurkvæmilegt, þegar sig- ur eða ósigur getur verið undir því kominn, hverra fé endist lengst, að þegnarnir fái sjálfráðir að sólunda fé sínu i allskonar óþarfa. En nokk- uð er það mismunandi í hinum ýmsu löndum, hvað talið er óhófs- vara. Rússar hafa til dæmis nýlega sett hjá sér þau lög, sem banna all- an innflutning á óhófsvörum. Eru taldar upp þær vörutegundir allar, sem eigi má flytja inn af þessum ástæðum, og þar á meðal er heilag- fiski og niðursoðið fiskmeti. Kafbáturinn hjá Austurlandi. Fregnin, sem vér birtum í blað- inu í gær um að þýzkur kafbátur hefði sökt brezkum línuveiðara undan Bernnesi, reyndist rétt vera. Útgerð- arstjóri einn hér í bænum símaði austur til Seyðisfjarðar í gær þessu viðvíkjandi og fékk það svar, að sýslumaðurinn á Eskifirði, Guðm. Eggerz, hefði símað fregnina til Seyðisfjarðar. Menn höfðu allir bjargast í skipsbátnum til Beruness. Voru þeir xj talsins. Ekkert hefir enn frézt um það, hvert númer var á kafbátnum, eða hvort skipverjar af Nelly veittu því nokkra eftirtekt, og eigi vita menn heldur hve stór kafbáturinn er, eða hvort þeir eru fleiri saman. Sennilega senda Þjóðverjar eigi nema stóra og trausta kafbáta í svo langar ferðir, sem hér er um að ræða. Og líklegt er að þeir sendi fleiri kafbáta hingað, ef þeir ætla sér að hafa eftirlit með fiskveiðum og siglingum hér við land. C3S3 UAOöOFJIN Afmæli i dag: Anna A. Halldórsdóttir. Ingveldur Stefánsdóttir, húsfrú. Sigríður Schou, húsfrú. Helgi Hafberg, afgreiðslum. Óskar Jónsson, prentari. Jón Halldórsson, bankaritarl. Páll Jónsson, járnsmiður. Friðfinnur L. Guðjónsson Laugavegi 43 B, selur tækifæriskort með íslenzkum erindum. Allir ættu að kaupa þau til að senda vinum og kunn- ingjum. Sólarupprás kl. 8.17 Sólarlag — 4.6 T u n g 1 fyrsa kv. kl. 4.51 e. h . Háf lóð í dag kl. 10.14 f. h. og kl. 10.45 e. h. Veðrið í gær: Miðvikudaginn 1. nóv. Vm. logn, hiti 1.5 B,v. a.n.a. gola, hiti 2.7 ísaf. a. hvassviðri, hiti 5.7 Ak. n.n.v. andvari, regn, hiti 4.5 Gr. a. kul, regn, hiti 2.2 Sf. n.a. kaldi, regn, hiti 4.9 Þórsh., F. v. kul, hiti 7.9 Frílækning háskólans í Kirkju- stræti 12, byrjar föstud. 3. nóv. kl. 12 á hádegi. Hafa herbergin verið máluð og fóðruð, ofn settur í biðstofu o. fl., svo að þar er nú miklu vistlegra en áður. Almenn lækning fer fram á þjiðjudögum og föstudögum kl. 12—1, tannlæknlng á þriðjudögum kl. 2—3, og e y r n a -, n e f- og h á 1 s- lækning á föstudögum kl. 2—3. Fyrirlestrar Háskólans. Björn M. Óisen, dr. phll.: Eddukvæði, kl. 5—6. Jón Jónsson, dócent: Verzlunarsaga Islands kl. 7—8. Alexander Jóhannesson, dr. phil.: Æfingar i þýzku kl. 7—8. Guðm. Finnbogason, dr. phil: Sálar- lífið og vinnan, kl. 9 e. h. Gainla Bfó á 10 ára afmæll i dag. í því tilefni verða þar hljómlelkar í kvöld (Bernburg & Co.), en myndir sýndar á milli; meðal þeirra eru tvær myndir af þeim, sera einna fyrst voru sýndar þar fyrir 10 árum. Mun mörg- um þykja gaman að sjá slökkviliðs- æfinguna í Reykjavík 1906. Áreiðanlega verður húsfyllir þar í kvöld. Hljómleik ætla þeir bræður Eggert og Þórarinn^Guðmundssynir að halda í dómkirkjunni næstkomandi sunnu- dag. Hoiger Wiehe hefir nýlega ritað góða grein um Reykjavík í danska tímaritið »Gads Magasin«. Fyigja 3 myndir greininni. Bruni. í gær brann eitthvað af heyi, sem stóð í nánd við Bjarnaborg. Var sá eldur slöktur svo fljótt, að skemdir urðu ekki á öðru en heyinu. Fisksalan. Næstu daga selur bær- inn saltfisk, þorsk á 25 aura pundið en smáfisk á 16 aura. Stúdentafélagið hólt aðalfund á mánudagskvöldið. í stjórn þess voru kosnir Alexander Jóhannesson, dr. phil., formaður, Halldór Jónasson cand. phil. ritari og Kristján Linnet cand. jur. fóhirðir. Njörðnr fór til Fleetwood f fyrra- kvöld, hlaðinn fiski. Goðafoss liggur nú í New York. Er búist við þvl að skipið muni halda aftur heimleiðis um 10. þ. m. Dagskrá á fuodi bæjarstjórnarinnar fimtud. 2. nóv.,' kl. 5 síðd. 1. Fundargerð byggingarnefndar. 2. Fundargerð veganefndar. 3. Fundargerð brunamálanefndar. 4. Fundargerð fátækranefndar. 5. Fundargerð skóianefndar. 6. Fundargerð fjárhagsnefndar 26. 30. og 31. okt. 7. Brunabótavirðingar. 8. Onnur uuiræða um forkaupsrótt að Sjávarborgareigninni. 9. Kristján Kristjánsson sækii um byggingarlóð á Melunum. 10. Guðm. Ingimundarson býður for- kaupsrótt að erfðafestulandl í Norð- urmýri. 11. Þorsteinn Gíslason býSur forkaups- rétt að Arabletti og erfðafestu- landi í Kringlumýri, 12. Dýrtíðarmál. 13. Fyrri umræða um frumvarp til áætlunar um tekjur og gjöld kaup- staðarins árið 1917. Ófriöarsmælki. Samkvamt skýrslu sem nýlega er komin út, voru 500 jafnaðarmenn dæmdir til fangelsisvistar í Þýzkalandi í septembermánuði fyrir að »agitera« á móti ófriðnum. Þykir það hinn mesti glæpur í Þýzkalandi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.