Morgunblaðið - 06.11.1916, Side 4

Morgunblaðið - 06.11.1916, Side 4
4 MOKGUNRLAÐIfc Stumparnir þessir gðða, sem allar konurnar þekkja, eru nýkomnir í K a u p a n g. UPPBOÐ á tómum kössum og ýmsu dóti frá afgretðslu e.s. »ísafoldar« verður haldið miðvikudaginn 8. þ. mán. kl. 4 síðd. hjá stakkstæðinu fyrir austan hús O. Johnson & Kaabers. Ur og klukkur Komið með órin og klukkurnar ykkar á Grettisgötu 18, til hreins- unar, því þar fáið þið bæði fljótt og vel af hendi leyst. Geysir Export-kafR er bezt. Aðalumboðsmenn: 0. Johnson & Kaaber MORGUNBLAÐIÐ kostar i Reykjavik 70 anra á mánnöi. Einetök blöð ð anra. Snnnndagsblöð 10 a. Úti nm land kostar ársfjórðnngnrinn kr. 2.70 buröargjaldsfritt. Utanáskrift blaðsins «r: Morgunblaðið Box 8. , Reykjavík. Alt sem að greftrun lýtur: Likkistur og Likklæði bezt hjá Matthíasi Matthíassyni. Þ :ir, sem kaupa hjá honum kistuna fá skrautábreiðu lánaða ókeypis. óími 497. Leyndarmál hertogans. Skáldsaga eftir Charlotte M. Brame. Lady Nell að leika sér að fjölda mörgum brúðum. Hún leit bros- andi til hans og kinkaði kolli. — Eg á frí í dag, í allan dag, mælti hún. Júngfrú Wynter er að fara héðan. — Þykir þér ekki fyrir? spurði hann. — Jú, mér þykir mjög mikið fyr- ir, en mér þykir vænt um að meiga leika mér að brúðunum minum. — Finst þér það ekki nokkuð mikil sjálfselska? mælti hann brosandi. En brosið hvatf fljótt af andliti hans aftur. Orðið »sjálfselska* kom ónotalega við hann sjálfan. — Nell, mælti hann. Viltu fara til jungfrú Wynter og spyrja hana hvort hún vilji ekki koma og tala við mig. — Jú, svaraði barnið. Hún fór burtu og kom aftur eftir nokkra stund. — Sidonia sagði »nei*, Alban lávarður. Jungfrú Wynter má ekki tala við neinn mann, nema hertoga- ynjan leyfi það. — Jæja þá 1 Þakka þér fyrir Nell. En þá kom honum nýtt til hugar. Hann reif blað úr vasabókinni sinni og reit á það nokkur orð. — Færðu jungfrú Wynter þetta fyrir mig, mælti hann. — Já, en SidoDÍa leyfir henni ekki að taka á móti þvi. — Jú, hún gerir það ef þú biður hana vel. Nell fór aftur á stað en það fór á sömu leið. Hún kom aftur með þau svör, að Sidonia vildi ekki leyfa sér að hitta jungfrú Wynter, en hefði sagt, að ef fleiri skilaboð kæmu, þá mundi hún senda eftir hertogafrúnni. — Eg skal, svei mér, launa henni það einhverntíma, tautaði Alban lá- varður. Heyrðu Nell, hefirðu séð jungfrú Wynter? Er hún búin til ferðar? — Eg sá hana allra snöggvast áðan, en hún var alveg ólík sjálfri sér. Hún var náföl og hágrátandi. Að svo mæltu gekk hann hvatlega út úr herberginu og kallaði á þjón sinn, ungan Frakka, sem hét Gaston Leduc. ■— Gaston, hrópaði Alban lávarð- ur. Eg þarfnast hjálpar þinnar — undireins! . Jungfrú Wynter er á förum héðan. Farðu til Lanceton- járnbrautarstöðvar og komstu eftir því hvert hún heitir förinni. Eltu hana og tapaðu aldrei sjónar á henni fyr en þú getur símað til mín hvar hún hafi sezt að. Hér eru peningar — og vertu nú áreiðanlegur! — Það skal eg vera, lávarður minn, mælti þjónninn. — Þú verður að gæta þess að þjónustustúlka frúarinnar, Sidonia, sjái þig ekki. Skilurðu það? — Já, iávarður minn. Hún skal eigi verða vör ferða minna, því heiti eg yður. — Og ef þú verður spurður um það hvert þú hafir farið, þá segist þú hafa farið heim að finna ættingja þina. Þjónninn laut honum og hélt svo á stað. Þótti nú Alban lávarði sem heldur vænkaðist ráð sitt, en þó ráfaði hann eirðarlaus aftur og fram um húsið. Hann hafði mist virð- inguna fyrir sjálfum sér, hafði sýnt það að hann var ódrengur. — Ódrengur! — Hann endurtók þetta viðbjóðslega orð hvað eftir annað. Bruiiatr jggingar, sjó- og strídsYátryggbgar, O. Johnson Kaabor Det kgl octr. BrandassaMce K&upmænnahsf!* várryggir: htl«, hÚSgSgn, »11»- konar vðruforða o. s. frv. gegs. elásvoða fyrir lægsta iðgjaid. Hemuki, 8—12 í. h. og 2—8 c, b í Austurstr. 1 (Báð L. Nielseru N. B. NJeSww. Gunnar Egilson skipamiðlari. Tals. 479. Veltusundi r (uppi) Sjó- Stríðs- Brunatryggingar Skrifstofan opin kl. xo—4. Allskonar Br una try gg in gar Halldór EiríksHon bókari Eimskipafélagsins. Trondhjems vátryggingarfélag h.f. Allskonar brunatryggingar. AðalnmboÖsmaÖur CARL FINSEN. SkólarörÖustig 25. Skrifstofutími 5'/a—6l/a sd. Talsími 331. 18—» Sveiun Bjðmssou y5rd.l<ðgtn. Fríklrkjuv«o 19 (SfafiastaS). giiul 2PZ Skrifsofutimi kl. io—2 og 4—f. Sjálfur við kl. 11 —12 og 4—6. Eggert Claess 3a, yfirréttarmála- fiutningsmaður, Pósthússtr. 17. Venjultga heima 10—11 og 4—5. Simi IS Kaupið Morgunblaðið. Gaston fór eftir því sem fyrir hann var lagt. Og morguninn eftir fekk Alban lávarður þetta skeyti frá bonum: — — Viðkomandi fór í kvöld til Grimes’s veitingahúss hjá Lundúna- brú og er þar enn. Eg kem heim um miðjan dag. — Alban lávarður fór þegar á fund föður síns. — Eg þarf að fara í burtu og vera að heiman nokkra daga, mælti hann. Sáztu manninn sem kom með símskeytið? — Já, svaraði hertoginn. Það var til þín, eða var ekki svo? Eg var að furða mig á því um hvað það gæti verið. — Vinur minn einn biður mig að vera hjá sér í nokkra daga. Eg ætla að fara til borgarinnar og hitta hann þar. Þú segir móður minni frá þessu — hún er ekki heima sem stendur. Skilaðu kveðju minni til hennar. Og hertoginn skýrði konu sinni frá þvi að Bertrand hefði fengið skeyti frá vini sínum og hefði farið til höfuðborgarinnar til þess að finna hann.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.