Morgunblaðið - 15.11.1916, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.11.1916, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ IIPPBOÐ k kössum, luntmm og íimbri verður haidið í dag kl. 4 síðd. « li.já Ji. P. Díius. Daizleikur „|Éila|s Reykjavlkui" verður, , eins ojz áður er auglýst, laugardagÍDn hinn 18. þessa mánaðar kl. 9 síðdegis. Aðgöngumiðar verða seldir í bókaverzlun Ísaíoldaiv — Sækið bezta danzleik ársins. — Margt nýtt til skemtunar. — Stjórnin. Jarðarför minnar hjartkæru eiginkonu, Þóru M. H. Níeladóttur, er ákveðin laugardaginn 18. þ. m. og hefst með húskveðju kl. 11V2 f. h. frá heimili hinnar látnu. Akrauesi 15 nóv. 1916. Hákon Halldórseon. Frá Landsslmanum. Frá 16. þessa mánaðar verða landssímastöðvarnar Reykjavík, ísafjörð- ur, Borðeyri, Akureyri og Seyðisfjörður aðeins opnar, eins og áður, til kl. 21. Siglufjörður, Sauðárkrókur til kl. 20. Batteriisbryggjan. Tvisvar hefi eg komið út á Batte- rí sbryggjuna síðan hún var fallger. í fyrsta skípti þegar eg fylgdi gamla gamla vini mínum, Pctersen Irá Við- ey og fólki hans um borð í Botníu síðast í september, og nú fyrir skömmu varð mér reikað þangað út að gamni mínu. Þá lá þar skip sem mig langaði til að sjá. Það fyrsta, sem eg heyrði, er eg nálgað- ist skipið var bölv og ragn í stýri- manni. Þegar eg kom fram að skipinu, sá eg að vírar þess voru slitnir, og um leið að þeir hlutu að slitna, og auk þess reyna á bryggj- una, með þeim útbúnaði sem er, og engin furða var að fyrstu orðin, sem eg heyrði, væru bölv og ragn, eins og hér sóð á. Þetta hljóta þeir, sem oft fara um bryggjuna, að verða varið við, en er þá engum, sem dettur í hug nein endurbót? Væri ekki reynandi að hafa 2—3 faðma langa kaðalenda (grastóg) fasta á bryggjunni, þannig útbúna, að skip gætu lásað vírum sínum eða festum í þá; þeir eru fjaðurmagnaðir og festar munu siður slitna. Gildleika ráða þeir, sem um bryggjuna eiga áð sjá, en auk þess að koma í veg fyrir að skip missi festar sínar, mundi slík- nr útbúnaður hlífa bryggjunni. Eg gleymdi einu í »Reykjavíkur- höfn* í gær og það er: Komi sá tími, að reglugerð hafnar- innar sé fullger, þá verður að þýða hana í það minsía á ensku og fá hana inn í sjóalmanakið, — því þá fá skipstjórar að vita, áður en þeir koma hingað, hvernig þeir eiga að haga sér og það ipun sannast, að það léttir verk þess, sem um höfn- ina á að sjá. Reykjavík, 13. nóv. 1916. Sveinbjörn Egilson. Þingmenn 1910. Þá vita menn nú með vissu hvernig næsta þing — eða næstu þing — verða mönnum skipuð. Birtum vér hér þingmanna-Iist- ann eftir stafrófs-röð. Benedikt Sveinsson. Bjarni Jónsson frá Vogi. Björn R. Stefánsson. Björn Kristjánsson. Eggert Pálsson. Einar Araórsson. Einar Jónsson. Einar Árnason Eyrarlandi. Grísli Sveinsson. Guðjón Guðlaugsson. Guðmundur Björnsson. Guðmundur Olafsson. Hannes Hafstein. Halldór Steinesoa. Hákon Kristófersson. Hjörtur Snorrason. Jóhannes Jóhannesson. Jón Magnússon. Jón Jónsson, Hvanná. Jörundur Brynjólfsson. Karl Einarsson. Kristinn Daníelsson. Magnús Guðmundsson. Magnús Kristjánsson. Magnús Pétursson. Magnús Torfason. Matthías Olafsson. Olafur Briem. Pétur Jónsson. Pétur Ottesen. Pétur Þórðarson. SigurJur Eggerz. Sigurður Jónsson. Sigurður Sigurðsson. Skúli Thoroddsen. Stefán Stefánsson. Sveinn Ólafsson í Firði. Þórarinn Jónsson. Þorleifur Jónsson. Þorsteinn M. Jónsson. Kosningarnar. í Norður-Múlasýslu eru kosnir Jón Jónsson á Hvanná með 367 atkv. og I»orst. M. Jónsson kennari með 342 atkv. Ingólfur Gíslason læknir fekk 260 atkvæði og Guttormur Vigfússon 237 atkv. Brennuvargar í Molde. Það var talið áreiðanlegt að mikli bruninn í Molde í fyrra hefði verið af mannavöldum. Kom þá upp eldur í bænum á þrem stöðum í senn. Síðan hafa menn orðið varir við það oftar en einu sinni að tilraunir hafa verið gerðar til þess að kveikja í bænum. Nýlega handtók lögreglan þar ungan málara, sem grunaður er um það að vera valdur að sum- um íkveikjunum. Um það leyti var enn reynt að kveikja íþorp- inu, en sú tilraun mishepnaðist. Bretar taka nýtt lán í Bandaríkjunum. Bretar hafa nýlega gert samning víð fjármálamenn í Bandaríkjunum og bankastofnanir um nýtl herlán. Mun það eiga að nema alt að 60 milj. sterlingspunda eða 300 milj. dala amerískra. Lánið ber 5% vexti og borgist á nokkrum árum. Bretar láta ýms verðbréf sem tryggingu fyrir láninu. Hringsskemtunin í Hafnarfirði. Þá er við gðngum snður í Hafnar- f'jörð, getum vér eigi annað en dáðst að fegurð landfi vors. En er við hlustuðum á skemtun þá, er Hringurinn hélt 11. nóv. vissum við eigi hvort við áttum fremur að dást að smekkvísi Hafnf. eða list þeirra, er þar ákemtu. Sr. Magnús Helgason sagði frá 3 kon- ungum í Noregi er áttu i deilum, (Sigurður Jórsalafari og bræðui). En einn lendmr maður konungs leggur höfuð sitt á kné Sigurðar korungs, til þess að forða innanlands ófriði. Rómuðu menn söguna að verðleik-^ um. Einnig spiluðu þeir bræðurnir Þórarinn og Eggert Guðmundsynir, og hlutu lof fyrir. Naut Eggert sfn eigi, eins vel og skyldi sökun þess að hann er vanur pianó, en skilaði á harmoníum. Heill væri þeim, er styður og dáist að hinum ungu listamönnum vorum. Einnig þeim er dregur hinar fögru sögur forfeðxa vorra fram úr gleymskH hinna myrkvu tima íslands. Mœccnas.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.