Morgunblaðið - 15.01.1917, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Saxon framtíðarbifreiðin
Sterkust, bezt bygðr
vönduðust og smekk-
lepust. Sérlega vaud-
aður 3 5 hesta, 6 cylind-
era mótor. Benzin-
mælir er sýnir nákvæm-
lega fylling geymisins.
Sjálf»starterc og rafljós
af nýjustu gerð. Vott-
orð frá ísl. fagmanni
fyrir hendi.
JOH. OLAFSSON & Co,
Simi 584.
Lækjarg'ötu 6.
nema eðlilegt. Þeir höfðu lagt
líf og limu í hættu fyrir það mál-
efni, er ríkinu var heilagt og
þess vegna áttu þeir að ráða. En
miklu meira tillit verður tekið
til þeirra manna, er hverfa heim
úr þessum hildarleik, heldur en
nokkurra hermanna áður. Og
jafnaðarmenskan í skotgröfunum
festir þær rætur, sem seint eða
aldrei verða upp slitnar. Jafnað-
armenskan verður ráðandi hér í
heimi, þegar stríðmu er lokið og
lengi þar á eftir. En hún verð-
ur raeð nokkuð öðru sniði, held-
ur en jafnaðarmenska sú, sem
nú er. Blóðbaðið mikla þvær úr
henni sorann — tekur við gjall-
inu og skilar jafnaðarmenskunni
hreinni. Og það verða ekki
verstu afleiðingar stríðsins.
Alþingi.
Það stóð samíals 33 daga, en átti
upprunalega aðeins að standa 21 dag.
Alls voru samþykt 13 lagafrumvörp
og r 1 þingsályktunartillögur; 5 frum-
varpanna voru stjórnarfrumvörp en
8 höfðu komið fram frá þingmönn-
um.
Yfirleitt má segja að þetta þing
hafi afkastað töluverðu, hvernig svo
sem sum lagaákvæðin kunna að reyn-
ast í framtíðinni. Og það verður
heldur ekki hjá því komist, að kast-
að sé höndunum til einhvers af því
sem gera þarf, þegar tíminn er svo
naumur.
Brezku samningarnir voru ræddir
fyiir luktum dyrum og veit enginn
með vissu hvað gerst hefir á þeim
fundi. Svo mikið er þó vist, að
þingmenn munu hafa verið sammála
flestir um það að óhjákvæmilegt hafi
verið að semja við brezku stjórniua
og að nauðsynlegt sé að þeir samn-
ingar haldi áfram. Eitthvað kvað
hafa verið breytt um verðið á vör-
unum, enda munu Bretar vera fúsir
til þess að borga meira fyrir vör-
una þareð framleiðslukostnaður all-
ur hefir hækkað svo mjög frá því
samið var fyrst. —•
Hin cýja stjórn mun væntanlega
bráðlega útkljá það mál við brezku
stjórnina.
Hraðskreið herskip.
Á skipasmíðastöð í Ítalíu
hafa verið srníðuð nokkur her-
skip af nýrvi gerð. Eru það
mótorskip, og geta siglt 80 kíló-
metra á klukkustund. Búast menn
við miklu af skipum þessum, sem
öll eru lítil og 8V0 sérstaklega
ætlað að granda kafbátum. Þrjú
skip af þessari nýju gerð eru
þegar fullsmíðuð.
Tunnnr eru í óskilum hjá lög-
reglunni og verða seldar innan fárra
daga ef eigendur koma ekki.
SoFglegt slys.
Akranesi í gær
Hér hefir orðið sorglegt slys,
er fá á sín dæmi. Sjómaður
nokkur, Sigurður Sigurðsson að
nafni, bjó hér ásamt unnustu sinni
og systur hennar. Tvíbýli var
þar í húsinu, sem hann bjó. í
fyrra morgun varð fólkið hinum
megin í húsinu þess vart, að full-
hljótt var hjá Sigurði og reyndi
konan að opna þar dyrnar, en
tókst eigi, því að þær voru lok-
aðar. Voru þá fengnir til menn
að brjóta upp dyrnar. Þegar inn
kom, var þar alveg ólíft fyrir
ljósreyk og sá ekki handa skil.
En er dálítið rofaði til, fundu
menn Sigurð örendan við rúm-
stokkinn, en unnustu hans, Jóu-
ínu Jónsdóttur, og systur hennar,
Guðrúnu, fundu menn með lífs-
raarki. En Jónína dó kl. 7 í gær-
kvöldi og Guðrún kl. 3 í nótt.
Þessi sorglegi atburður hefir
vakið hrygð mikla hér og þykir
mönnum sviplegt fráfall þessara
þriggja manna, á bezta aldri.
ÐAÖBÖffl N• iZíZ*
AfmæJi í dag : •
Asta Sigurðsson, húsfrú
Guðrún Jónsdóttir, húsfrú.
Óskar Lárusson, verzlunarm.
Sólarupprás kl. 10 0
Sólarlag — 3 15
Háf 1Ó8 í dag kl. 9.23 f.h.
og kl. 9.46 e.h.
Samverjinn tekur til starfa á morg
un. Er búist við því að sömu stúlk-
urnar, sem aðstoðuðu við matgjafirnar
í fyrra, mæti og á morgun og hjálpi
til í vetur. Samverjinn er ágæt stofn-
un, aem allir góðir menn ættu að
styrkja, því ekki veitir af. Fátækt
mikil víða.
Fyrirlentrar Háskólans:
Holger Wiehe, sendikennari: Gaman-
leikar Dana, kl. 6—7.
Æfingar í sænsku, kl. 5—6.
Botnvörpungarnir, sem iegið hafa
aðgerðalausir, eru nú í óða önn að
búa sig til vetrarveiða. Munu flestir
þeirra byrja að afla í salt í lok þessa,
eða byrjun næsta mánaðar.
t
Nýja skipið. Fögnuður mikill var í
bænum í fyrradag yfir þvíhve heppilega
Nielsen framkvæmdastjóra hefir tekist
að útvega skip í stað Goðafoss. Var
ekki um annað meira talað / bænum.
Þykir mönnum sem verð skips
ins sé sórlega sanngjarnt, borið sam-
an við það verð, sem skip alment eru
seld um þessar mundir. Þá þykir það
og ekki minst um vert, að skipið kemst
í áætlunarferð svo að segja þegar í
stað. Bætir það mikið úr flutninga-
vandræðunum, sem nú eru. — Nafnið
á skipinu þykir mörgum ljótt — en
menn venjast því von bráðar.
L. F. K. R. Fundur í kvöld í Iðnó
kl. 9. Fjölbreytt dagskrá. Meðal ann-
ars verður talað um skáldið St. G.
Scefánsson og lesin upp kvæði eftir
hann. Heimilt er fólagskouum að taka
gesti með sér.
Hermann Jónasson endurtekur er
indi sitt um drauma og dulrænar sagn-
ir í kvöld. Var því erindi tekið svo
vel, þá er hann flutti það fyrst, að
ætla má að húsfyllir verði hjá honum
aftur.
G u 11 f o s s fór í fyrrakvöld kl. 12
áleiðis til Austfjarða og útiauda.
Fjöldi farþega var með skipinu. Til
útlanda fóru m. a. Carl Olsen og
Hallgrímur Benediktsson stórkaup-
menn, Árni Einarsson heilbrigðisfull-
trúi, Jóh. Þorsteinsson kaupm. frá
ísafirði o. fl. Margir kaupmenn, sem
ætluðu með skipinu, bíða hór eftir
íslandi, þar eð líklegt er, að það skip
komi jafnsnemma til Kaupmanna-
hafnar og Gullfoss.
Allir austan-þingmenn og nokkrir
norðan-þingmenn fóru og á Gullfossi
til Austfjarða.
Kvöldskemtan allmikil var haldin
í Bárubúð í gærkvöldi.
Hljómleikar voru haldnir í Nýja
Bíó í fyrrakvöld. Skemti þar hljóð-
færasveit Bernburgs, en á milli voru
sýndar lifandi myndir.
Gói» gjöf. K. F. U. M. og K. var
nýlega gefið Flygelhljóðfæri. Gefand-
inn vill ekki láta nafn síns getið.
Gasið. Eftirtektarvert var það hve
miklu betur logaði á gasinu í gær en
undanfarið.
Skálinn, sem bæjarstjórnin lót reisa
við Laufásveg til þess að bæta úr hús-
næðisleysinu, er alm. kallaður »Suður-
pólk. Eru þar allar íbúðir fullskipaðar.
Flkki ætlar húsnæðiseklau að verða
minni í vor og næsta haust, en undan-
farið. Margar fjölskyldur bætast við
en ekkert eða lítið sem ekkert hefir
verið bygt af húsum.
Island fór frá Leith á föstudaginn
og ætti því að komið hingað á mið-
vikudaginn.
Fiskur töluverður barst til bæjarins
í gærmorgun, en fisklaus má heita að
bærinn hafi verið undanfarna daga.
Kiflknániufélagu). Svo sem kunnugt
er voru menn um tíma í sumar aS
rannsaka kalkið í Esjunni fyrir fólag
það, sem stofnað var hór í bænum í
þeim tilgangi. Arangur varð tölu—
verður af þessari rannsókn og virðist
vera nóg kalk í Esjunni og ýmislegt
annað, sem tiltækilegt væri að.vinna
úr jörðu. Sýnishorn voru seud til
útlanda / vetur, en ókunnugt er enn
um árangur rannsókna sórfræðinganna
þar. — Vonandi er, að fyrirtæki þetta
hepnist vel. Það er / sjálfu sér engu
þýðingarminni en kolagröfturinn á
Vesturlandi. Þv/ eigi veeri það lítila
virði að fá hór innlent byggingarefnl
/ r/kum mæli.
Hátt kanp. Sagt, er að sumir véla-
menn á mótorbátum hafi nú 300 kr.
kaup á mánuði og alt »frítt«. ÞaS
hefði þótt hátt kaup fyrir nokkninr^
árum.