Morgunblaðið - 26.01.1917, Blaðsíða 1
Föstudag
jau, 1917
4. argangr
83.
tölublað
Ritstjórnarsími nr 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. |Isafoldarprentsmiðja •Afgreiðslusimi nr. 500
Litill skipsbátur,
tilheyrandi 30 tonna motorbát óskast keyptur
nú þegar.
Tilboð, merkt „B“, sendist afgr. Morgunblaðsins.
I. 0. 0. F. 27369
BIOl Reykjavtknr |R|0
ylol Biograph-Tkeater lulu
Talsími 475
f
Ast hugyits-
maonsins.
Áhrifamikil! sjónl. í 4 þáttum.
Vel leikinn og afarspennandi.
Hús
1 með 5—6 herbergjum óskast til
kaups eða 5 herbergja ibúð til leigu
frá 14. mai n. k.
Holger Wiehe.
H ús
til sölu í Hafnarfirði
Ritstj. vísar á.
Stuíla Jdnsson
hefir fengið með »Islandinu«:
Ullargarn
marga liti.
Alklæði,
dömukamgarn, seviott.
Morgunkjólatau,
Stórt úrval.
Flannelette,
sirts, tvisttau, léreft.
Silkitau,
stórt|úrval.
Rekkjuvoðir,
lakaléreft.
Vaxdúka.
Alfatnaði,
fataefnh
Regnkápur, Regnfrakka,
Vetrarfrakka,
Frakkaefnf,
Flauelisbönd,
silkibönd, teygjubönd.
Axlabönd.
Regnhlifar, Göngustafi.
Hálslín,
Slifsi, slaufur o. m, fl.
Hjálpræðisherinn.
Föstudag 26. kl. 8:
Stabskapt. Grauslund flytur fyrir-
lestur.
Efni: Er sökin altaj hjá manninum.
Inng. 15 aura.
Frá Sandgerði.
VéMt vantar.
Ofsastormur hefir verið þar und-
anfarna daga. Á mánudaginu reru
þar allir bátar, en þá hvesti svo, að
margir þeirra mistu nokkuð af lin-
um sínum og urðu að leita lands.
Komust allir til hafnar nema tveir,
Óðinn og May.
Oðinn náði höfn i fyrradag. Hafði
það tafið hann, að línan flæktist í
sktúfunni, og varð hann að halda
sér við á seglum alla nóttina i ofsa-
roki og stórsjó.
En May var ekki komin fram
er síðast fréttist. Er hún eign Valde-
mars Jónssonar hjá Steinolíufélaginu
o. fl.
í gær var enn sama veðrið þar
syðra og reri engin bátur.
Skipaleigubann Dana.
Þess hefir fyr verið getið hér i
blaðinu, að danska stjórnin hefir
lagt bann við þvi, að Danir leigðu
skip sín til flntninga fyrir aðrar
þjóðir, nema því að eins að sér-
stakt leyfi væri til þess veitt. Stjórn-
in gerir þá grein fyrir þessari ráð-
stöfun, að hún sé nauðsynleg til
þess að Danir hafi sjálfir nægilegan
skipastól til þess að draga að sér
kol og kornvöru. Hafa Dan:r mist
85 skip af ófriðarorsökum og báru
þau samtals 88 þús. smál. Hefir
verzlunarfloti þeirra því rýrnað að
miklum mun.
Fyrir skemstu skutu Þjóðverjar i
kaf þrjú skip fyrir Sameinaðafélaginu,
»Næsborg* (1657 smál.), »Ebro«
(1028 smál.) og »Viking« (721 smá-
lestir), en hið fjórða skipið, »Alex-
andra«, tóku þeir og fluttu til Swine-
miinde og tóku úr þvi farminn.
Þá vöktu þeir og i fyrriviku skip-
inu Omsk, sem Sameinaðafélagið
átti.
hrsteinn Gíslason
skáld og ritstjóri verður fimtugur
í dag. Hugheilar hamingjuóskir munu
berast honum viðsvegar af landinu,
því afmælisbarnið á marga vini.
--- f I ■' I I ^ A»e»a»g-
Afmæli Jceisaians
A morgun er afmælisdagur Vil-
hjálms Þýzkalandskeisara. Er það
sagt, að hann ætli þá að vera í
aðalherbúðum Þjóðverja á vestur-
vígstöðvunum og hafi boðið þangað
til sín öllum ríkisstjórum og rikis-
erfingjum i Þýzkalandi ásamt full-
trúum hinna frjálsu borga Lubeck,
Bremen og Hamburg. Þangað er
einnig boðið keisurum Austurríkis
og Búlgaríu og rikiserfingjanum
tyrkneska. Verður það sögulegur
ríkisstjórafundur. Þeir verða þar
einnig Bethmann-Hollweg og Hin-
denburg.
þjóöverjar hindra siglingar.
Brezkur skipstjóri, sem nýlega er
komin til Peerambuco, segir frá þvi,
að skip hans hafi verið komið eina
dagleið út frá Montevidlo, er það
hafi verið stöðvað af tveimur þýzk-
um vopnuðum kaupförum. Skipuðu
Þjóðverjar skipverjum að yfirgefa
skipið, tóku skipverja þess yfir til
sín, og sökktu síðan brezka skipinu.
Skipstjóri var í nokkra daga á þýzka
skipinu og horfði á þegar mörgum
skipum var sökt. Voru Þjóðverjar
ætið vanir að taka lifandi myndir
af þvi, þegar skipverjar voru að
komast í bátanna og þegar skipin
sprungu í loft upp.
Þegar þessi fregn, sem simuð er frá
Suður-Ameriku, barst til Bretlands,
voru herskip þegar send til þess að
mjm bíó
Þegar
hættan er mest.
Sjónleifeur i 3 þáttum leikinn af
Nordisk Films Co. AÖaihiutverkin
leika hinir góðknnnn leikendnr
Ebba Thomsen, Aif Blútecher.
Það er eigi vandalanst að lýsa
ófriði með lifandi myndum svo að
vel fari, en hér er þð hrikaleiknrinn
— þegar þjóðir vegast — sýndur
svo vel að furðu gegnir,
—■II ■
r
U tsala
á Laugavegi 21
l5-20°|o afsláftur
á ýmiskonar álnavöru.
T. d. Kjólataui, Tvisttaui og Last-
ing, Svuntuefni úr ull og silki, Slifsi
og fleira. Komið og skoðið!
2 stofur
og eldhús óskast til ieigu 14.
maí næstk. Tilboð leggist á skrif-
stofu Morgunblaðsins sem fyrst,
merkt »Húspláss«.
iarðarför okkar ástkæru móður og
tengdamóður, Helgu Einarsdóttur, er
ákveðin laugardaginn 27. þ. m. og
hefst með húskveðju frá heimili hinnar
látnu, Holtsgötu 14, kl. IIV, f. hád.
Sesselja Guðmundsdóttír
Eirfkur Eiriksson
Reform Maltextrakt
fæst ódýrast í verzlun
Eliasar S. Lyngdal
Njálsgötu 26 Sími 664
Motorbátur
fæst nú með tækifærisverði, stærð
5—6 tonn, með 6 hesta skandiavél,
tveggja ira gamall, bygður úr eik.
Upplýsingar gefur
Tómas Tómasson.
Lindargötu 43
leita þýzku skipanna. Þykir líklegt
að þau muni geta sökt mörgum
brezkum skipum áður þau náist og
geri sigiingum Breta mikið ógagn
um hríð.