Morgunblaðið - 13.04.1917, Blaðsíða 1
F östudag
4. argangr
13,
apríl 1917
158.
tölublað
Ritstjórnarsími nr 500 I Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. | IsafoMarprentsmiðja | Afgreiðslusimi nr. ?co
r----------------------: -------------- -------------- —------------ ■■ ■' - ■ ----- —......... ....... .............. ~ ■ ■■ ■ ■
Gsm!a Bío
(The Girl of Mysteri).
5., 6,7. og 8. þáttur
verða sýndir
fimtudags-, föstudags-,og laugar-
dagskvöld kl. 9,
og á sunnndag tvær fyrstu sýn-
ingar kl. 6 og kl. 7.
Aðg.m. má panta í síma 475
til kl. 5.
Til þess að komast bjá troðn-
ingi verða pantaðir aðgöngum.
afhentir í Gamla Bíó frá kl. 6
síðdegis, og það sem afgangs
kann að ver3 selst þar.
fMur verður úti.
Fjárskaðar vestra.
Isafirði í gær.
Versta veður var hér á Vestfjörð-
um um piskana og er hætt við að
það hafi valdið stórtjóni viða, þótt
eigi hafi komið fregnir nema úr
nokkrum stöðum.
Að Borg, sem er insti bær í Arn-
arfirði, urðu 40 kindur úti. Bónd-
inn þir, Jón Einarsson, fór að vitja
þeirra þegar ofviðrið skall á, en varð
úti.
A Mæðranesi í Dýrafirði hrakti
30 fjár í sjóinn.
Síiiifregnir.
Borðeyri í gær.
Oveðrið skall hér á skyndilega á
iaugardagskvöMið. Afskaplegur storm-
. ur og blindhríð.
Manntjón fhefir ekkert orðið hér
nyrðra, svo menn viti, en fjárskaðar
hafa orðið víða. Á Sveðjustöðum
hurfu 130 kindur. Hafa 90 þeirra
fundist, en talið víst að hinar 40
séu dauðar.
Frá Fornahvammi fórust um 35
kindur, en 80 náðust lifandi eftir
hríðina. Frá Efri-Svertingsstöðum
vantar 30 kindur.
Kaffihúsin.
Hér í bænum eru til stofnanir,
sem selja fólki'kaffi, svaladrykki og
— stnndum ■— mjólk, eða þá drykki
sem mjólk er í. Kalla Reykvíking-
ar þetta kaffihús, en sjúlfar kalla
stofnanir þessar sig *Café« og víða
er orðinu »Condifoii« hnýtt aftan
i, tii að prýða með féiagsskapinn.
Einu sinni var líka einsygður
flökkukarl, sem útvegaði einhverjum
5 skeppur af kartöflum, og kallaði
sig stórkaupmann eftir það.
Það er hjónasvipar með karlinum
og kaífibúsunum. Ekki vantar það,
að þau líti stórt á sig sjálf. Full-
komin þykjast þau svo mjög, að þar
við sé, engu hægt að bæta. Og
ein hlið drembilætisins, sem aðal-
lega kemur niðar á gestunum, virð-
ist þó vera fullkomnust allra.
Það er föst regla flestra verzlana,
að leggja mikla stund á lipurð við
viðskiftavinina. Og þeir sem snall-
astir eru, telja það ósegjanlega þýð-
ngarmikið fyrir gengi verzlunarinn-
ar, að þjónustufólk temji sér lipurð
og kurteisi.
En kaffihúseigendurnir munu ekki
samþykkir þessari skoðun. Að
minsta kosti viðgengst það, að fólk
sem aMrei virðist hafa þekt hugtök-
in kurteiái og lipurð, hafa á hendi
frammistöðu á kaffihúsunum. Það
gengur svo langt, að það sýnist
móðgun við afhendingarfólkið, að
biðja um eitthvað, og ómögulegt að
skiija látbragð og framkomu þjón-
anna öðruvísi en svo. að því sem
nm er beðið sé slett í mann fyrir
náð eins og beiningamaður ætti í
hlut.
Það er skaði, að þeir menn sem
valist hafa til þess að gerast veitinga-
menn hér í bænum, skuli ekki hafa
gert sér far um að kynna sér, hvern-
ig veitingahús á að vera. Og nægu-
semi bæjarbúa í þessu efni hefir
gert það að verkum, að veitinga-
mönnum finst alt boðlegt. Þeim
finst boðlegt að þjónarnir hreyti
ónotum í gestina, boðlegt að þeim
sé svarað út af og sýnd ósvífni,
boðlegt að framreiða volgt öl í npp
hituðum glösum — Ja, ef upp skyldi
telja alt það, sem boðlegt þykir á
kaffihúsum bæjarins, þá yrði það
mikils til of langt mál. Á einu
kaffihúsinu hérna leyfir fólkið sér að
loka á kvöldin löngu fyrir ákveðinn
lokunartíma og þar fram eftir göt-
unum.
Já, margt má bjóða Reykvíking-
um, fyrst aðrar eins skrípamyndir
og kaffihúsanefnurnar hérna eru
teknar fyrir góða og giMa vöru.
Sennilega hafa þó veitingamennirn-
ir einhverja hugmynd um, hvernig
veitingahús eiga að vera, og þeir
mega ekki sóma síns vegna láta
annan eins álappaskap viðgangast í
atvinnurekstri sínum og átt hefir sér
stað til þessa.
Eu ef þeir treysta sér ekki að
breyta til batnaðar, þá ættu bæjar-
búar að sýaa þeiro, að þeir geta
komist af án þeirra og hætta að
gerast bónleytendar kaffihúsanna.
P. G.
*•
Oíuslan
Bagdad, 12. marz.
Síðasta orustan sem háð var,
áður en Bagdad féll, mun líklega
yerða nafnfræg sökum þess hve
Bretar gengu vel fram. Eftir or-
ustu hjá Lajj hörfuðu Tjmkir
undan norður yfir ána Diala, sem
rennur í Tigris skamt fyrir neð-
an Bagdad. Brú var á ánni rétt við
ármótin, en hana sprengdu Tyrk-
ir og tóku sér stöðvar á nyrðri
bakkanum. Bretum var það nauð-
syniegt að komast yfir Diala og
freistuðu því yfirferðar rétt fyrir
ofan ármótin að kvöldi hins 7.
marz. Uti var bjart tunglsljós og
Tyrkir höfðu komið vélbyssum
sínum fyrir í húsum á nyrðri
bakkanum. Eigi höfðu fyrstu bát-
arnir fyr lagt frá landi en á
þfeim dundi svo ægileg skothríð,
að hver einasti maður var drep-
inn á fáeinum sekúndum. Aftur
sendu Bretar bátaflota á stað og
komst hann fram á miðja ána,
sem ekki er nema svo sem 120
metra breið. Þá beindu Tyrkir
skothríð sinni á bátana og drápu
alla mennina, en bátana hrakti
andan straumi og út á Tigris. í
þriðja skifti komust Bretar næst-
um yfir ána, en þá kom sprengi-
kúla, á bátana og sökti þeim, en
allir menn fórust.
Þrátt fyrir þessar ófarir létu
Bretar eigi bugfallast og gerðu
fleiri tilraunir til þess að komast
yfir ána en allar fóru þær á einn
veg.
Næstu nótt freistuðu þeir enn
yfirferðar og stóðu nú betur að
vígi, vegna þess að stórskotalið-
ið, sem eigi hafði verið jafnfljótt
í ferðum og fótgöngu og riddara-
liðið, var nú komið á vettvang.
Var nú skotið í ákafa yfir ána
og þyrluðu kúlurnar upp svo
þykkum rykmekki að Tyrkir
gátu ekki séð fram á ána. Kom-
ust Bretar þá yfir á 10 bátum.
Eu þá er tunglið kom upp og
rykmökkurinn dreifðist] fór á
sömu leið fyrir Bretnm og nótt-
Hljómleikar
verða endurteknir
/ TJý/a Bíó
i kvöld kl. 9
undir stjórn
P. Bernbnrgs.
7 manna orkester.
Efnisskrá:
Orkester:
I. P. Sousa: Stars and Stribes
for ever.
A. Eckstein: Kleine Mádchen.
Myndasýniug.
Fiðla & Piano
Th. Árnason & E. Thoroddsen:
Ch. de Beriot: Fantasie.
Orkester:
Fr. Kuhiau: Potpourri af Elv-
erhöj.
P. Romanovitsch: Eudoixaruss-
isk Vals.
Myndasýning.
Fiðla & Pi^no
P. Bernburg & E. Thoroddsen:
Kingel: Home sweet home.
Th. Lumbye: Den Frivillige.
Aðgöngumiðar tölusettir kosta
1 kr. og almenn sæti 80 au.
Húsið opnað kl.
Tölusett sæti má panta í síma
107 alian daginn.
Fundur í kvöld kl. 8 lj2.
Allar stúlkur, þótt utanfélags
séu, eru velkomnar.
ina áður, bátar þeirra voru ým-
ist skotnir í kaf, eða allir menn
drepnir á þeim, en bátaflökin rak
niður ána með líkunum. Þó
höfðu Bretar nú náð fótfestu á
nyrðri bakkanum. Einn bátur
var nærri kominn yfir ána þeg-
ar mökkurinn rofnaði og skall
þá á honum vélbyssuskothríð.
Voru allir ræðararnir drepnir,
eða gerðir óvígir og rak bátinn
aftur til sama lands. Liðsforingi
nokkur kvaddi sjálfboðaliða til
þess að bjarga binum særðu
mönnum. Réðust tólf menn til
þess, en biðu allir bana og eng-
um varð bjargað af bátnum.
Það voru að eins 60 menn
sem komust yfir ána og tóku sér
8töðvar hinum megin á bakkan-
um. Létu þeir ána hlífa sér að