Morgunblaðið - 16.04.1917, Blaðsíða 2
i
MORGUNBI.AÐIÐ
læt eg það auðvitað alveg afskifta-
laust, hvort fleiri eða færri nemend-
ur ganga í þetta andbanningafélag,
sem sumir segja, að hér fé í höfuð-
staðnum. Vandamenn þeirra eða
fjárhaldsmenn geta leyft eða bannað
það eftir þvi, sem þeim þykir við
eiga,
Enda þótt eg telji mér eigi skylt að
eíga i blaðadeiium við greinarhöf-
unda í dulargerfum um stjórn Menta-
skólans, hefi eg þó að þessu sinni
viljað leiðrétta þann misskiining, sem
kom fram í áminstri grein í Morg-
unblaðinu, svo sð almenningur geti
séð, að eg hefi hvorki sýnt, né viljað
sýna hlutdrægni i þessu máli.
G. T. Zoega.
Finnland.
Hinar nýju réttarbætur.
Stjórnin í Rússlandi hefir gefið út
svolátandi tilkynningu:
Samkvæmt því valdi, sem oss
hefir verið fengið í hendur, veitum
vér hérmeð aftur það trúarbragða-
frelsi, þau grundvallarlög, réttindi og
forréttindi, sem hverjum manni í
stórhertogarkinu Finnlandi ber með
réttu samkvæmt stjórnarskipun lands-
ins, og vér lofum því að ganga
eigi á þann rétt. Vér nemum úr
gildi: i. Tilkynningu keisarans hinn
15. febr. 1899; 2. samþykt stjórn-
arinnar 8. júní 1908 um meðferð
finskra mála; 3. þau lög sem sett
voru 30. júní 1910 án samþykkis
finska þingsins, allar stjórnarvalda-
birtingar sem út voru gefnar sama
dag án samþykkis þingsins og allar
stjórnarvaldabirtingar, sem út hafa
verið gefnar eftir þessum lögum.
Vér ákveðum, að þá er stríðinu er
lokið, skuli numin úr gildi sú á-
kvörðun keisarans, sem birt var 2.
júní 1904 og mælti svo fyrir, að
herskylda skyldi ná til Finnlands, og
auk þess allar þær tilkynningar, sem
út hafa verið gefnar siðan stríðið
hófst og koma í bág við lög Finn-
iands. Enn fremur upphefjum vér
tilskipun 15. júní 1890 um póstmál
Finnlands og tilskipun 30, sept.
1909 um eftirlit með járnbrautum
í Finnlandi. Vér skipum svo fyrir
að þegar skuli gefnar upp allar trú-
bragða- og stjórnmálasakir, pólitískir
fangar séu leystir úr haldi og land-
flóttamenn fái að koma heim aftur.
Vér skipum enn fremur svo fyrir,
að finska þingið skuli kvatt saman
sem allra fyrst svo að hægt sé að
leggja íyrir það frumvarp um hina
nýju stjórn Finnlands og ef þörf
krefur að undirbúa grundvallarlögin.
Frumvörp þessi skulu gefa þinginu
ákveðnara og víðtækara vald við-
vikjandi tekjum og gjöldum latid-
sjóðsins og tryggja hinn gamla rétt
finsku þjóðarinnar til þess að ákveða
tolla. Að lokum er það ósk vor, að
þau lög, sem þingið hefir samþykt,
verði sem skjótast látin ganga í
gildi. Auk þess skal leggjast fyrir
þingið frumvarp til laga sem veiti
því rétt til eftirlits með ákvörðun-
um finsku stjórnarinnar og ennfrem-
ur iög um æðsta dómstól, ritfrelsi
og prenifrelsi og rétt til félagastofn-
unar. —
Þessi tilkynning er sennilega fram
komin fyrir milligöngu Roditschevs,
hins nýja Finnlandsráðherra. Hann
kom til Helsingfors viku eftir að
stjórnarbyltingin hófst og tók þá
þegar að ráðgast um við helztu
þjóðskörunga Finna. Roditschevs
hefir jafnan verið vinur Finna, enda
var honum tekið með miklum fögn-
uði í Helsingfors.
Fyrsta afleiðing þess, að pólitísk*
um föngum eru upp gefnar allar
sakir, er sú, að Svinhufvud, fyrver-
andi forseti finska þingsins, er nú
á leið heim frá Síberiu, þar setn
hann hefir setið í útlegð.
Um herskyldu Finna sem á að
giida þangað til stríðinu er lokið, er
það að segja að svo er mælt fyrir í
lögunum »að þeir skuli herskyldir
til Jandvarna og til þess^ að verja
krónuna*. Er þetta nokkuð óákveð-
ið, en Finnar vona það að þeir
verði í mesta lagi teknir til þess að
verja Petrograd, ef á þarf að halda.
Finskir menn í Svíþjóð haía séð
ástæðu til þess að vara þjóð sína
við hinum gullnu loforðum Rússa.
Stjórnarskifti í Svíþjóð.
Hammarskjöld hefir nú orðið að
fara frá eftir þriggja ára stjórnarfor-
mensku i Sviþjóð. Ber flestum saman
um það, að hann hafi á þessum tíma
sýnt frábæra stjórnarhæfileika. Hann
hefir jafnan getað stýrt svo fram
hjá boðum ófriðarins, að kosti Svía
hefir eigi verið þröngvað að mun,
en þegar á hefir átt að herða, hefir
hann jafnan sýnt þau þjóðareinkenni
Svía að vilja eigi láta ganga á sér.
Og fyrir alt þetta hefir hann hlotið
maklega viðurkenningu þjóðarinnar,
því að rétt áður, en hann varð að
fara frá, sendu 750 þúsund kjósendur
honum tiaustyfirlýsingu. Ástæðurnar
til þess að hann varð að fara frá,
þrátt fyrir þessa lýðhylli, liggja enn
i skugganum að miklu leyti og má
vera að útlendir fingur hafi þar
»verið með í spilinu.« En ein ástæða
er talin vera sú, að samvinnan milli
hans og utahrikisráðherrans Wallen-
bergs hafi eigi verið sem ákjósan-
legust.
Hin nýja stjórn er þannig mönn-
um skipuð: S. J. Svarz forsætisráð-
herra, A. A. Lindman, flotaforingi
utanríkisráðherra, O. F. von Lydow
landshöfðingi innanríkisráðherra. G.
R. J. Aakeman ofursti hermálaráð-
herra, H. H. K. Ericson flotaforingi
flotaráðherra, A. Hammarström lands-
höfðingi, kenslumálaráðherra, S. J.
Svendborg dómsmálaráðherra, O. A.
C. Carleson fjármálaráðherra, P.
Dahlberg landbúnaðarráðherra og
aukaráðherrar H. O. Falk og A. E.
M. Ericsson.
Sjr» er JSf
Rvs: La na\
Íurl ie FÚ
But qa neh
jm anien
str On'p.
-4 En mm
—\ Ty sH\an d
—l J tQU&n
—1— í ÍeLbie r?
—— - \Po rtt <1Q i
■ 1 /> m hr á.
Rikisskuldir
ófriöaiþjóðanna.
;Ig||
i
191fl
1916
7 irkiel
% ncni v'
Bulr,a/Jen
?e. bi1 'n
hys
lánd
3e/i
Jteiie/f-
’Qien
Ofit,
‘0
ig
7j 'et lond
EjZi/cm
88:
' V? Oo o n>ui ur Gr *J CO O o
5 X O 2.° o O © 0 0 0 0 0 0 0 0 2
> O O O © O O 0-0 OOOOOOOO
.: /■■■** a. V. •
JÞýzkir þjóðhagsfræðingar hafa
reiknað hversu óhemjulega ríkis-
skuldir ófriðarþjóðanna hafa auk-
ist síðan friðnum var slitið. Fyrst
eru taldar ríkisskuldir á hvert
höfuð í löndunum árið 1914 og
síðan ríkisskuldir á hvert höfuð
í löndunum við árslok 1916. Eru
þær taldar í mörkum. Sézt hér
að fyrir ófriðinn hafa ríkisskuld-
ir Þjóðverja verið 300 mörk á
hvert höfuð, en ríkisskuldir Frakka
700 rnörk. Nú eru skuldirnar um
1100 og 1800 mörk. »Ogendalaust
sígur á ógæfuhlið*, svo sem skáld-
ið segir, en nú er um að gera að
berjast þangað til yíir lýkur, í
þeirri von að óvinirnir »borgi
brúsann*.
Fjármái Dana.
Á íundi i fólksþinginu 17. f. m.
skýrði fjármálaráðherrann frá því,
að útgjöld ríkissjóðs á fjárhags-
árinu 1916—17 mundu verða ná-
lægt 265 miljónum króna, í stað
136 miljóna., setn áætlaðar höfðu
verið. Til hermálanna höfðu geng-
ið 100—110 miljónir. Tekjurnar
á sama fjárhagsári taldi hann
mundu verða 235 miljónir og
tekjuhalla því nálægt 30miljónum.
Þá mintist fjármálaráðherrann
á fjárhagsáætlanir fyrir næsta ár.
Voru tekjurnar áætlaðar 163 mil-
jónir en útgjöld 140 miljónir. —
Eftir því ætti að verða 25 mil
jóna tekjuafgangur, sem þó yrði
enn þá hærri ef skattafrumvörp
þau er fyrir þinginu lægju yrðu
samþykt. — En áætluðu tölurnar
væru sjálfsagt mikils til of lágar
Enginn vafi væri á því að tekjur
og gjöld yrðu eins mikil 0g senni-
Jarðarför Ólafs sál. Þorkelsson stýri-
manns frá Hafnarfirði er ákveðin þriðju-
daginn 17. þ. m. og byrjar með húskveðju
á heimili okkar, Kirkjuveg 13, kl. 12 á hád.
Herdís Hannesdóttir,
ekkja hins látna.
lega meiri en á síðasta fjárhags-
ári. Kvað hann alls ekki ósenni-
legt að útgjöldin yrðu 300 miljón-
ir á næsta fjárhagsári, en tekj-
urnar líklega ekki nema 190 milj,
Tekjuhallinn yrði pvl 110 miljónir.
Þó bætti það úr skák að ríkið
ætti mikið í sjóði. En yfirleitt
væri útlitið slæmt og ráðherrann
kvað3t telja það skyldu sína að
vekja athygli þingsins á að al-
varlegir tímar væru fyrir dyrum.
ffí A. <S 11 O ly I v*.
Aímæli í dog:
Áslaug Johnsen, jutrgfrú
Hlíf Hansen, húsfrú
Kristín Jónasdóttir, húsfrú
Guðjón Björnsson
Iugimundur Ogmundsson
Jens Sæmundsson, trósm.
Jón Þorkelsson, þjóðskjalavörður
Magnús Einarson, dýralæknir
Sveinn M. Hjartarson, bakari
S ó I a r u p p r á s kl. 5.58
Sólarlag kl. 9.00
H á f 1 ó ð 1 dag kl. 2.26
og í nótt kl. 2,54
Fyrirlestrar Háskólans:
Holger Wiehe:
Œfingar í sænsku kl. 6—7
Danskar bókmentir á 19. öld kl. 7—8.
Hafíshrafl hefir sést fyrir Horni,
en eigi mikið. Sögur hafa gengið um
það, að ís hafi rekið inn á Skagafjörð
en þær eru bornar ti! baka aftur.
Forming fór fram í dómkirkjunni f
gær.
Færeyskt þilskip kom hingað f
gærmorgun og lagðist fyrir utan hafn*
argarða. Skip þetta hafði danska flagg*
ið í hálfa stöng. Komst englnn í land
i gær úr skipinu svo menn vita ekkl
hvort heldur það hefir mist mann út«
byrðis eða einhver skipverja dáið um
borð.
Botnvörpnngarnir. Úr því líður
þessi vika má búast við því, að sum
botnvörpuskipanna verði að hætta veið-
um vegna kola og saltleysls,
Gnllfoss. Nú mun vera afráðið að
senda Gullfoss norður, og á hann aS
fara hóðan í vikulokin ef ekki verður
mikil töf við afferminguna. Skipið ó
að koma við á Yestfjörðum og líklega
á Húnaflóa.
Kora er komin til Bergen heilu og
höldnu.