Morgunblaðið - 11.05.1917, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 11.05.1917, Qupperneq 2
2 MORGUNBLAÐIÐ Erí. símfregnir frá fréttar. Isafoldar og Morgutibl, Kaupmannahöfn, 9. maí. Frá Washington er símað að samkvæmt ósk forsetans hafi öld- ungaráðið afturkallað útflutnings- lögin, sem getið var um í skeyt- um þann 6. maí. Frá London er símað að her- deiidin hans Roosewelts, 200.000 manna, sé nú tilbúin að leggja á stað til Frakklands. Þjóðverjar hafa tekið Fres- noy. Frá Petrograd er símað að Borgbjerg hafl flutt friðarskil- mála þýzkra jafnaðarmanna. Útflutningslögiu, sem hér er átt við, voru um það, að Bandaríkja- forseta heimilaðist að stöðva útflutn- ing á vörum, ef ætla mætti að þær gætu komist til óvinaríkja. Fresnoy er þorp í Aisne-héraði, hjá norður járnbrautinni. Borgbjerg, jainaðarmaðurinn danski, fór fyrir nokkru að heiman og var förinni heitið til Rússlands. En þeg- ar hann kom til Haparanda fékk hann eigi að fara lengra, vegna mis- skilnings landamæravarðarins. Eigi vildi Borgbjerg þó hverfa aftur við svo búið, en sat i Haparanda þangað til hann fékk fararleyfitil Petrograd. Er það nú skiljanlegt að hann vildi eigi hverfa aftur, fyrst hann fór í svo þýðingarmiklum erindum, sem um getur í skeytinu. Kaupmannahöfn, 9. maí. Þjóðverjar gera grimmileg gagn- áhlaup í Champagne-héraði. Alþjóða-jafnaðarmannafundur verður bráðlega haldinn í Stokk- hólmi. Svíar hafa komist að samn- ingum við Breta. Og nú er von um að þeir fái innfluttar mat- vörur. Kaupmannahöfn á að eins kol til hálfsmánaðar. í Stokkhólmi ætluðu ráðherrar Norðurlanda að koma saman á ráð- stefnu hinn 8. mai. Hefir ekkert um það frézt síðan, en líklega vegna þess, að öllu sé haldið leyndu. Nú á að halda þar aðra ráðstefnu, sem eigi er þýðingarminni, ef trúa má því að þar verði samankomnir jafnaðarmenn af öllum þjóðum. En sá hefir verið andinn í brezku og frönsku jafnaðarmönnunum að mað- ur á bágt með að trúa því að þeir vilji nú sem stendur setjast á ráð- stefnu með þýzkum jafnaðarmönn- um. Þar sem getur um kolabirgðir Kaupmannahafnar, mun átt við það, að eigi treinist kolin lengur til gas- framleiðslu, en í hálfan mánuð, því að kol munu eigi hafa verið seld þar til heimilisþarfa nú um nokkra hrið. Dagsbrúnarkolin. - Eg keypti síðasta tölublað Dags- brúnar þótt dýrt væri. En þeirra kaupa iðrast eg ekki, því að í blaðinu er að mörgu leyti vel þýdd og frumsamin grein um kol. Að vísu eru margar slæmar smávillur á sveimi hér og þar um greinina — slepp- um þeim. En aftur er hinni feitletruðu hugs- unarvillu -»Landið á sjálft að reka námur« — ekki bót mælandi. Það situr sízt á jafnaðarmönnum, sem berjast fyrir algerðu réttlæti og einstaklingsfrelsi — að halda slíku fram. — Eg vona að enginn þing- maður verði svo skyni skroppinn að koma fram með lagafrumvarp sniðið eftir óskum Dagsbrúnar. — Fari svo, þá mun verða ritað ítar- legar um mál þetta, og jafnframt birt meðferð landsstjórnar á einni af okkar allra verðmætustu þjóðareign — silfurbergsnámunni við Helgu- staði. Steinn. Framanritaðri grein höfum vér eigi viljað neita upptöku í blaðið. En eigi ber þó svo að álíta, sem vér séum greinarhöfundi í alla staði sammála. Eins og nú standa sakir, er fyrst og fremst áríðandi, að farið sé að vinna kolin og landstjórnin hefir siðferðislega skyldu til þess, að hefjast handa sem fyrst. Því verður ekki neitað, að áreiðanlegri vissa verður að teljast fyrir því, að námuréttindi verði ekki að verkefni gróðabrallsmönnum, ef þau eru í höndum landssjóðs en ekki einstakra manna, sem oft og einatt hugsa meira um að >svindla« með rétt- indÍD, en að reka námurnar. Og hvað kolanámunum við vikur, þá eru þær á svo mörgum stöðum og svo margir sem námuréttindin hafa, bæði landsstjórnin og ein- stakir menn, að þessvegna gæti námurekstur verið hafinn fyrir löngu. Ög spurningin um, hver eigi að reka námurnar, verður að þoka fyr- ir kröfunni um að einhver reki nám- urnar. A þessum timum, þegar stjórnin vill hafa eftirlit með að kalla má hverjum sykurmola, sem etinn er í landinu, og yfirleitt virðist eiga að vera alt i. öllu, er það ekki ó- sanngjörn krafa, að hún taki kola- málið í sinar hendur. En þareð hún ekki sýnist þekkja sinn vitjunartíma í því máli, mættu íslendingar fagna því, að framtakssamir menn bættu það upp, sem hún hefir forsómað. Stjórnarskiftin i Sviþjóð. Brezku-samningar Svía. Foringi vinstri manna i Svíþjóð, prófessor Edén, hélt nýlega ræðu um samninga Svía og Breta og utanrikis- pólitík Hammarskjöld stjórnarinnar. Hann kvað stefnuskrá vinstrimanna altaf hafa verið sænska og ekkert annað, en þeir hafi verið neyddirtil þess að rísa upp í móti ýmsum mis- fellum í utanríkispólitík stjórnarinnar, meðal annars þá er hún stöðvaði bögglapóstsendingarnar fyrir Bretura og lagðitundurdufl í Kogrunds-renden. En það hefði aðallega komið iIjós naust- ið 1916 að vegir stjórnarinnar og vinstri manna voru að skiljast — eigi um grundvallgratriði hlutleysis- stefnunnar, heldur um framkvæmdir hennar. Það hljóti allir að vita, að á úthöfum geti Svíar eigi kom- ist hjá því að lúta eftirliti Breta um verzlun og siglingar. Haustið 1916 var þetta eftirlit orðið svo strangt, að eigi var annað sýnna en að allir innflutningar til Svíþjóðar mundu stöðvast. Svíar áttu þá um tvent að velja og eiga það enn — að.láta einangra sig að vestan, eða reyna að komast að samningum við Breta. í októbermánuði afréð stjórnin það að velja hinn síðari kostinn og er- indrekar voru sendir til Lundúna. En þrátt fyrir þetta efaðist Hamm- arskjöld mjög um það að þetta væri heppilegri leiðin og sú skoðun hans varð til þess að draga úr þvi að samningarnir kæmust á. Leið svo VÍka eftir viku Og mánuður eftir mán- uð að enginn varð árangurinn af sendiförinni. í febrúarmánuði komu sendimenn- irnir aftur og höfðu með sér samn- inga, sem báðir málsaðiljar höfðu hallast að. En í stað þess að undir- skrifa þá, var nú farið að semja að nýju og stjórnin gat eigi orðið sam- mála. Þess vegna varð þetta eitt af aðalorsökunum til falls stjórnarinnar. Édén kvað það algerlega ósatt, að Bretar hefðu krafist þess að fá að flytja vopn og hergögn yfir Svíþjóð. En það væri Svíum nauðsynlegt, að komastað samningum við Breta. Und- ir því væri það komið, hvort þeir gætu fengið nóg matvæli. Gömlu stjórn- inni hafði orðið það glapræði á, að ætla forða þjóðarinnar meiri heldur en hann hefði verið og það hefði haft hættulegar afleiðingar. Þess vegna hefðu Sviar flutt út meira af sinni eigin framleiðslu heldur en góðu hófi gegndi, þess vegna hefðu þeir eigi fengið vörur frá útlöndum eins og þeir hefðu þurft, og þess vegna væri nú svo komið að skamta þyrfti flestar vörur. SS=3 D A 0 B O R IN. C3» Afmæli f dag: Elsa Jóhannsdóttir, húsfrú. Guðrún Briem, húsfrú. Guðrún Brynólfsdóttir, húsfrú. E» Katrín Einarsdóttir, húsfrú. Margrót Björnsdóttir, jungfrú. María Kr. Jónsdóttir, húsfrú. Ólöf Steingrímsdóttir, húsfrú. Guðni Þorláksson, trósm. Högni Einnsson, trósm. Ólafur Jóhannsson, skipstj. Vorvertíðarlok. Sólarupprás kl. 4.32 Sólarlag kl. 10.18 Háflóð í dag kl. 9.19 og kl. 9.43 Lokin (sem Reykvíkingar nefna venju-- lega svo), eru í dag. Yar það fyrrum hátíðisdagur sjómanna og þá oft glatt á hjalla hór í bænum. Eitthvað mun líklega eima enn eftir af þeirri vénju þrátt fyrir alt. í Hafnarfirði hefir verið góður fiskafli öðru hvoru á handfæri, þar rótt fram í fjarðarmynninu. Hafa sumir fengið aft að 80 króna hlut. Kúabúið, í dag verða sendir meuB' til þess að skoða Gufuneslöndin og' athuga hvort tiltækilegt muni fyrir bæinn að kaupa þau og koma þar upp» kúabúi. Lagarfoss var á Húsavík í gær og mun hafa komið til Akureyrar í gær- kvöldi. Farþegar frá útlöndum: Jó- hann Havsteen og unnusta hans Þóra Vigfúsdóttlr, Ásgeir Pótursson kaup- maður og jjm hans, jungfrú Kristín Ólafsdóttir frá Reykjavík, Nielsen framkvæmdastjóri o. fl., alls 11 far- þegar. I- 0. 0. F. 795119. Gestir í bænnm: Páli Jónsson kennari Hvanneyri, Kristján Eggerts- son oddviti frá Dalsmynni, Bjarní Bjarnason oddviti frá Geitabergi, Guð- mundur Jónsson bóndi á Skeljabrekku, Jón Sigurðsson hreppstjóri í Kala- staðakoti, Jón Einarsson bóndi á Fer- stiklu, Helgi Jónsson bóndi í Stóra- Botni, Lúter Lúðvígsson bóndi á Ing- unnarstöðum, Ólafur bóndi í Kal- mannstungu, Sveinbjörn í Efstabæ, Björn á Heggstöðum o. fl. Nýlunda. í erlendum borgum er bflstjórum ó leigubílum gert að skyldu að hafa á húfum sínum númer, svo að fólk sjái hverjir þeir eru. En ekki hefir þetta tíðkast hór og er fólki því erviðara fyrir að þekkja bflstjórana og vita hvert það á að snúa sór. Herra Sæmundur Vilhjálsson |bílstjórii, sem hefur Hafnarfjarðarbflinn nr. 3 hcfur látið gera sór merki til að hafa á húf- unni. Er það lítil plata með merki- stöfum bifreiðarinnar: H. F. 3. Plat- an er smekklega gerð og gæti verið fyrirmynd handa þeim bílstjórum, sem taka vilja upp þessa þörfu nýlundu. Hey allmikið flutti Ingólfur ofan úr Borgarfirði, bæði til einstakra manna, svo og til sölu. Seldi Guðmundur á Skeljabrekku allmikið á »planinu«, og fengu færri enn vildu. Kolin. í gærkvöldi fór vólskipið »Harry« vestur í Dufansdal. Með skip*

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.