Morgunblaðið - 11.05.1917, Qupperneq 4

Morgunblaðið - 11.05.1917, Qupperneq 4
4 ^OKGU RBLAÖÍB Orgel. Af sérstökum ástæðum fæst keypt óvenju gott orgel, alveg nýtt, á Berg- staðastíg 45. Til sýnis frá 8—9 siðdegis. Garðar Gtsíason óskar effir fiíboðum á 150 smáíesfum af fijrsfa flohks sfórfiski úr saffi, er affjendisf faus í skip í næsfu viku | gg!iig» sjé- o| stridsTátry^iagwr, O. iahnson é, Kaab*» Mótorbátur 7.24 Rg. tonn brúttó, þriggja ára gamall, með jafngamalli io ,hesta Alfa-vél, i ágætu standi, er ti! sölu frá 1. júní n. k. Ritstjóri visar á. Skrifbor með skápum óskast til kaups. Upplýsingar gefur Guðbjörn Guðmundsson, ísafoldarprðntsmiðju Gotf herbergi meðjhúsgögnum óskast til leigu hálfs- mánaðartíma. R. v. á. DRENGUR 15—16 ára — sem er vel að sér og kunnugur i bænum — getur fengið atvinnu nú þegar. Ritstj. vísar á. Kaiapið Morgnnblaðið. Sfúfkur þær sem œtla að ráða sig t sildarverkun á Hjalteyri hjá Th. Thorsteinsson, geri svo vel að gefa sig fram nœsta föstudag kl, 4-7 síðdegis, Tþ. Tborsfeinsson. Til Hafnarfjarðar fer nýja Tordbifreiðtn HE 27 í dag kí. 12 frá kaffifjústnu „Tjafíkonan,,. KARL MORITZ, bifreiðarstjóri. Tfugfýsingar sam Birfasi eiga i iÆorgun6la&inu verða að vsra Romnar fyrir kí* 5 síððsgis i siðasía lagL M tgi ectr. MíÉimmm ■ JCsispm*nji8EÍ»ðfs vátryggir: Sitas, teonar vdruforfia c, s. tv. gcga eldsvoSa, fyrir iægsta iðgjaid. Heimakl. 8—12 í. h. og 2— 8 e. h. i Austurstr. t ?Búð í. Nieiíes). N. B. Niolsou. skipamiðlari. Tals. 479. Veltusundi 1 (npp Sjó- Stríðs- Brunatryggingar Skrifstofan opin kl. 10—4. Brunatryggið hjá »WOL6A«. Aðalumboðsm. Halldör Eirlksson, Reykjavik, Pósthólf 385, Umboðsm. i Hafnarfixði: kaupm. Daniel Berqtnann, Vinnulaun yðar munu endast lengur en vanalega, ef þér gerið innkaup í íslands stærstu ullarvöru- og karlmannafata-verzlun, Vöru- húsinu. Margar vörur. Gam- alt verð. / ,Á Óvinurinn ósýnileg't. Skáldsaga úr striðinu eftir Ewert van Horn. 3 séð neitt ókunnugt skip og eigi held- ur nein ljós. Þegar Hannicourt hallaðist fram yfir hástokkinn gat hann eigi séð neitt nema hin ótelj- andi ljós á »Mauretania«, sem spegl- uðust á boðunum út frá kinnung skipsins. Honum fanst aðeins, sem boðar þeir væru nokkru meiri held- ur en venjulega. Nú lenti alt í uppnámi á skipinu. Fólk kom hlaupandi út á þiljurnar i náttklæðum sÍDum og nokkrir af hin- um hræddustu hrópuðu að björgunar- bátunum yrði skotið fyrir borð. Og eigi rénaði óttinn og áhyggj- urnar þegar ö!l ljós skipsins slokn- uðu í einu vetfangi.------- Meðan þau Hannicourt þreifuðu sig áfram fram að sjórnpalli, tók hann eftir því að skipið var að rétta við eftir óvenjulega krappa vendingu. Og jafn framt tók hann eftir því sem æfður sjómaður, að hraði skips- ins hafði verið aukinn. Þetta hvort tveggja gat hafa valdið halla þeim, sem á skipið kom, en hvernig í ó- sköpunum stóð á því að skipið beygði svo snögglega, út á miðju hafi, þar sem ekkert var að óttast? Þau þurftu eigi lengi að vera í efa um það. Þriðji stýrimaður skýrði þeim frá þvi, að rétt í þessu hefði komið loftskeyti frá beitiskipinu »Essex« um það að breyta stefnu og halda til Halifax í stað þess að fara til New-York. Þýzkt beitiskip var skamt undan og ætlaði að kom- ast i veg fyrir »Mauretania« til þess að hertaka hana. — Þýzkt — beitiskip — erum við þá komin í striðið? var hrópað með skjálfandi kvenmannsrödd að baki þeim. — Sennilega, svaraði stýrimaður- inn og gekk á burtu. Með 26 mílna hraða öslaði »Maure- tania« Atlanzhafið. Það hafði verið slökt á öllum Ijóskerunum. En á þessu stóra og draugalega skipi stóðu á annað þúsund menn og störðu út i náttmyrkrið. Þeir höfðu raðað sér meðfram öldustokknum á bakborða, frá suðvestri var hans von, hins ósýnilega óvinar. A hverri stundu áttu þeir von á því að eldingu brygði yfir skipið úr hinu hvítglóandi raf- magnsauga beitiskipsins og viðvör- unarskot kæmi þjótandi. Hvað skyldi skipstjórinn á »Mauretania* þá gera? Skyldi hann stöðva skipið, eða reyna að komast undan og eiga það á hættu að skipið yrði skotið í kaf? Menn vissu það, að »Mauretania« og »Lusitania« voru hraðskreiðustu hjálparbeitiskip Breta og að Cunard- félagið fékk árlega rikisstyrk þeirra vegna. Og skipstjórinn mátti vita það, að stjórnin mundi lítt þakka honum það, ef hann fengi óvinum slikt herfang í hendnr. Um þetta ræddu farþegarnir fram og aftur, en í hálfum hljóðum þó, eins og þeir væru hræddir um að þýzka skipið kynni að heyra til sín. En það voru líka þarna um borð ýmsir menn, sem eigi hræddust beiti- skipið, heldur óskuðu þess að það gæti tekið »Mauretania«. Og enginn óskaði þess heitar heldur en Karr. Hann hafði skilið við þau Hanni- court-systkinin og stóð nú á efsta þil- farinu aftur á. Þaðan var hægast og fljótlegast fyrir hann að komast þangað er hann átti að vera. Vilford Hannicourt var aftur kom- inn upp á stjórnpaíl og spurði skip- stjóra hvaðan »Essex« hefði sent loftskeytið. Skipstjórinn hreyfði sig eigi, en svaraði í þeim tón, að það var auð- heyrt að honum þótti þetta óþarfa spurning, jafnvel þótt farþegi á fyrsta farrými ætti í hlut — meðan alt var komið undir ráðsnild hans og hraða skipsins: — Eruð þér syo sem nokkuru nær, þótt eg segi yður að »Essex« hafi verið á 61 lengdargráðu og ->9 breiddargráðu ? “— Já, herra skipstjóri, þvi að eg er foringi í brezka sjóliðinu. — Fyrirgefið þér, hrópaði skip- stjóri fjörlega og rétti honum hönd- ina. Fyrst svo er, þá þætti mér vænt um ef þér vilduð vera hér uppi á stjórnpallinum hjá mér. — Það var ætlan mín. — Tveir af hinnm ameríksku gróðabralls — mönnum komu til mín rétt áðan og vildu fá skipið keypt Þeir buðu 30 miljónir í það og vildu að það sigldi til New-York undir Bandaríkjafána. Eg sagði þeim að eg hefði eigi fengið neinar skip- anir um það frá félagsstjórninni. Var það ekki réttast ? — Jú, auðvitað, herra skipstjóri. — Segið mér það, er ekki »Essex«, eitt af hinum nýju og hraðskreiðu beitiskipum ?

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.