Morgunblaðið - 14.06.1917, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 14.06.1917, Blaðsíða 2
2 MOKGUNBLAÐIB I. S. í. Útiæflngar Iþróttafélags ReykjaYíkur er ákveðið að verði á íþróttavellinum á ináaudögum og fimtu- dögum kl. 9 e. h. Skorað er á alla félagsmenn að nota sér þessar æfingar. Utanfélagsmenn geta eiunig tekið þátt í æfingunum. Æfingarnar byrja í kvöld. í æfinganefndinni eru: Ben. G. Waage. Ólafur Sveinsson. Kristján Gestsson. Sigurgísli Guðnason. Páll Einarsson. Járnvörudeild Jes Zimsens hefir nú fengið afarmikið úrval af allskonar svo sem: Ernait. pofta á primusa og olíuvélar, margar stærðir, og allskonar aðrar email. vörur: Pönnur Otíuvétar Gasvétar Btikkbrúsa Jtljótkurbrúsa Hatta Tiönnur. Enniremur skðflur, allskonar lukfir og (ukfargtÖS, Pvottabretti úr tré og gleri, bottabakkar, bnífapör, fiskbursfar, skógarn, peningakassar o. m. m. fl. 'k Betra fyrir fólk að hafa hjaðan á, áður alt er útselt. Prímusar á leiðinni. H.f. Eimskipafélag íslands Tii kaiipmann& Vér viljum vekja athygli kaupmanna á auglýsingu vorri, viðvíkjandi sunduriiðun á vörum með næstu ferðum skipa vorra irá New-York. Sundurliðun þessa þurfum við að fá tafarlaust, til þess að flýta fyrir aigreiðslu skipanna. Reykjavik, 13. júní 1917. H.f. Eimskspafélag Islands. Samsöngur. SöngfélagfiS »17. júni« söng í Bár- unni í fyrrakvöld fyrir troð- fullu húsi, svo sem venja er þegar þeir íélagar láta til sín heyra. Söng- skráin var tæplega eins fjölbreytt og venjulega á samsöngum félagsins, en meðferðin var yfirleitt góð. Þó virð- ist sem nokkuð skorti í »Tenorinn«. Ætti félagið að reyna að útvega einn eða tvo góða »tenora« í viðbót og mundi það vafalaust bæta mikið. Einsöngvar voru þrír og ber sér- staklega að geta hinnar hljómmiklu og mjúku bassaraddar Viggos Björns- sonar. Væri óskandi að hann léti oftar til sín heyra. Arni Thorsteinsson hefir gert nýtt lag við kvæði Gríms Thomsens »A Sprengisandi*, sem er mjög ein- kennilegt og fallegt. Lagið er í mesta máta íslenzkt og er svo samsteypt kvæðinu, sem frekast er unt. Lag þetta þótti takast einna bezt, var sung- ið tvisvar og tónskáldið kallað fram. Söngstjórinn, Sigfás Einarsson, hafði og gert mjög fallegt og hug- næmt lag við kvæði Steingríms: »Bæn fyrir föðurlandi. Að lokum I Báiusalurinn hefir ver- ið »dubbaður upp«. Veggir, loft og bekkir er nýmálað, þrátt fyrir (fyrtíð og vandræði. Það var ánægjuleg sjón. En — fyrir bragðið eignumst við kanske ekki viðunanlegt söng- hús fyrstu fimtán árinl Hrajn. DAGBÓK Aímseli í dag: Guðrún Bjarnadóttir, húsfrú. Garðar Gíalason, stórkaupmaður. Jóh. Kr. Jóhannesson, trésm. Jón Kristjánsson, læknir. Magnús Sigurðsson, bankastjóri. Þórður S. Vigfússon, skipstj. Sólarupprás kl. 2.5 Sólarlag kl. 11.59 Háf lóð í dag kl. 2.15 og í nótt kl. 1.33 íþróttaæfingar í dag: Víkingur kl. 7^— 9 síðd. Fram — 9—10J. Þrjár bifreiðar fóru til Þingvalla í gær. Er það fyrsta sinni á þessu ári að bifreiðar fara þangað. Vegurinn kvað vera í slæmu ástandi og þyrfti endilega að gera við hann sem fyrst. Þrímastrað seglskip, 400 smálesta, kom hingað í gær með matvörufarm til Friðriks Magnússonar & Co. Geir hefir gengið vel til þessa að veiða upp kolin á Rauðarárvík. í fyrra- dag náði hann upp fullhleðslu í þrjá uppskipunarbáta og enn meira daginn iBur. Ragnar Ásgeirsson garðyrkjumað- ur, sem nú dvelur erlendis, er nýlega orðinn kennari við garðyrkjuskólann »Vllvorde« við Charlottenlund á Sjá- landi. Jín þar lauk Ragnar prófi fyrir tv«ám árum. Reikningnr íslands banka. Þessar 61.000 kr. af ársarðinum, sem getið var um í blaðinu í gær, að hefðu ver- ið úthlutað í þóknun, hafa að eins runnið til framkvæmdastjórnar ogfull- trúaráðs. Skrifstofa andba«iningafélagsins, Lækjargötu 6 B opin hvern virkan dag kl. 4—7 e. h, Allir þeir sem vilja koma áfengis- málinu í viðunandi horf, án þess að hnekkja persónufrelsi manna og al- mennum mannréttindum, eru beðnir að snúa sér þangað. Sími 31. Goðafoss. Ábirgðarfélögin hafa nú ákveðið að selja Goðafoss þar sem hann stendur á Straumnesi. Gnðfræðisprófið. Kandídatarnir Erlendur Karl Þórðarson og Steinþór Guðmundsson flytja prófprédikanir sín- ar í dómkirkjunni í dag kl. 5 síðd. Söngfélagið »17. júní« endurtekur samsöng sinn í Bárubúð í kvöld. Viss- ara að ná sér í aðgöngumiða í tíma, því mikið er þegar pantað. Gefin sainan. Þann 26. f. m. voru gefin saman í hjónaband jungfrú Sig- ríður Einarsdóttir, Bræðraborgarstíg 31 og Kristján Ebenezarson sama stað. % Brauðaþyngdin. Rannsókn hefir bæjarfógetinn hafið út af kærum, sem- honum hafa borist út af þyngd bak- aríisbrauða. Hafa tvö próf verið haldin í málinu og fer þriðja prófið fram á morgun. Búist við því, að margar kærur munu koma fram á bakara, sem selt hafa of lótt brauð. En það er ekki að vita hvort allar þær eru á rökum bygðar. Vegna mótorbilunar í prentsmiðj- unni gat Morgunblaðlð eigi komið út fyr en um hádegi í gær. Hjónavigsla. í dag verða gefins saman í hjónaband þau John Fenger stórkaupmaður og jungfrú Kristjana Zoega, dóttir Geirs heitins kaupmanns. Vígslan' fer fram í húsi landsverkfræð- ingsins við Túngötu. Sambandsþing U. M. F. í. byrjar kl. 10 f. hád. í dag í Báruhúsinu. „Thore“. Gufuskipafélagið »Thore« hélt ný- lega auka-aðalfund, og var þar sam- þykt að auka hlutafé þess upp í eina miljón króna. Jafnframt var það ákveðið að gera alla hluthafa jafn réttháa með því að afnema »forrétt- inda«-hlutabréf félagsins. Fá hlut- hafar io almenn hlutabiéf fyrir 3 »forréttinda« hlutabréf og 15 °/0 í peningum af upphæð þeirra hluta- bréfa í eittskifti fyrir öll. »Foriéttinda« -hlutabréfin námu; 204 þús. kr.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.